Morgunblaðið - 03.10.1989, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. OKTÓBER 1989
23
Forseti ASI um óbreytta samninga á næsta ári:
Frysting launa og* minni
kaupmáttur gengur ekki
Samningar án afskipta ríkisvaldsins, segja Þorsteinn Páls-
son, Steingrímur Hermannsson og Jóhanna Sigurðardóttir
ÞAÐ er hlutverk aðila vinnumarkaðarins að komast að niðurstöðu í
frjálsum samningum, ég treysti því að það sé hægt án íhlutunar ríkis-
valdsins," sagði Þorsteinn Pálsson, formaður Sjálfstæðisllokksins, þeg-
ar hann var spurður álits á hugmyndum VSI um framlengingu núgild-
andi kjarasamninga án kauphækkana næsta ár. Steingrímur Hermanns-
son, formaður Framsóknarflokksins, kvaðst telja að ríkisvaldið ætti
helst engin afskipti að hafa af kjarasamningum, hann vildi því ekkert
að tjá sig um málið. Jóhanna Sigurðardóttir, varaformaður Alþýðu-
flokksins, sagði meginatriði gæfíst syigrúm til launahækkana yrðu þær
að fara til lægst launaða fólksins. Asmundur Stefánsson, forseti ASI,
sagði að með frystingu á launum væri kaupmáttur enn keyrður niður
þar sem verðbólgan héldi áfram. Augljóst væri að það gengi ekki.
Ásmundur sagði að krafan í næstu
kjarasamningum hlyti að vera um
verðtryggingu launa. Margs konar
vandamál sýndu að kaupmáttur hefði
lækkað verulega undanfarið, nefndi
þar aukna aðsókn að félagsmála-
stofnunum, æ fleiri gjaldþrot og
landflótta. „Með verðtryggingu
launa myndi tryggt að kaup héldi í
við verðbólgu og reynslan sýnir að
stjórnvöld og fyrirtæki halda meira
að sér höndum varðandi verðhækk-
anir þegar vitað að er að afleiðingin
yrði kauphækkun.
Við verðum að tryggja fólki viðun-
andi lífskjör til þess að halda traustri
byggð í landinu. Það er hættulegur
leikur að framskrifa samdráttinn
með þeim hætti sem sum samtök
atvinnurekenda hafa gert að undanf-
örnu, hér þarf þvert á móti að ráðast
í uppbyggingu, gera átak í því að
nýta fiskafla betur og auka fram-
leiðslu almennt. Þetta er það verk-
efni sem landsmenn verða að samein-
ast um,“ sagði Ásmundur Stefáns-
son.
Þorsteinn Pálsson sagði kjara-
samninga verða að taka mið af efna-
hagsaðstæðum á hveijum tíma. „Eg
tel að ríkisvaldið eigi að hafa sem
minnst afskipti af niðurstöðum kjara-
samninga. Þótt ég hafi í störfum
mínum að kjarasamningum, bæði
fyrir og eftir að ég hóf þátttöku í
stjórnmálum, tekið þátt í að ríkis-
valdið væri aðili að kjarasamningum,
hygg ég að reynslan sýni að það
hafi verið gert í of ríkum mæli.
Ábyrgð samningsaðila sjálfra þarf
að auka en þátttaka ríkisins hefur
dregið úr henni.“
Jóhanna Sigurðardóttir sagði
markmiðin sem þjóðin öll yrði að
vinna að vera að tryggja atvinnuör-
yggið í landinu, ná niður verðbólgu
og renna betri stoðum undir íjár-
magnsmarkaðinn. „Þetta tel ég bestu
kjarabæturnar,“ sagði Jóhanna. „Ef
svigrúm gefst til launahækkana er
grundvallaratriði að þær renni til
lægst launaða fólksins. En samning-
amir eru auðvitað mál aðila vinnu-
markaðarins."
Aðspurð um afstöðu til orða Ás-
mundar Stefánssonar, um að krafa
um verðtryggingu launa væri eðlileg
við næstu samninga, sagði Jóhanna
að hún teidi slíkt ekki til góðs. Við
hefðum heldur slæma reynslu af vísi-
tölubindingu launa. Steingrímur
Hermannsson tók um þetta í sama
streng.
Hagstofiiráðherra
skipar starfshóp
um atvinnumál
JÚLÍUS Sólnes hagstofuráðherra
hefúr skipað starfshóp til að und-
irbúa stefhumótun í atvinnumál-
um er miði að því að auka hag-
vöxt og tryggja viðundandi at-
vinnustig á Islandi.
í starfshópnum eru: Baldvin Jóns-
son auglýsingastjóri, Geir A. Gunn-
laugsson framkvæmdastjóri, Grímur
Valdimarsson forstjóri, Kristján Ing-
varsson verkfræðingur, Jón Sigurð-
arson framkvæmdarstjóri og Jorgen
Holm, danskur kaupsýslumaður.
Starfshópurinn mun, ásamt hag-
stofuráðherra, eiga samstarf við at-
vinnustefnunefnd, sem fórsætisráð-
herra hefur skipað, og er hópnum
ætlað að fara ótroðnar slóðir við að
kanna nýjar hugmyndir og nýjar leið-
ir í atvinnumálum íslendinga.
Opið hús hjá Vatnsveitunni
Um 1.500 manns skoðuðu dælustöðvar Vatnsveitu Reykjavíkur á
Gvendarbrunna- og Jaðarsvæði á sunnudag en þá var opið hús
hjá Vatnsveitunni. Sýndar voru meðal annars myndir frá fram-
kvæmdum á vegum Vatnsveitunnar og gestum var boðið í kaflí
á Jaðri.
Húsavík:
Nýtt fyrirtæki stoihað
Husavik.
HÚSVÍSK matvæli hf. heitir nýtt fyrirtæki, sem stofnað var á Húsavík
síðastliðinn föstudag með um 20 milljónir króna í hlutafé. Yfírtekur
félagið rekstur niðurlagningarfyrirtækisins Hiks sf., sem starfað hefur
á Husavik undanfarm ar.
Hluthafar, sem eiga yfir eina millj-
ón kr. í félaginu eru þessir: Þróunar-
sjóður lagmetis, Húsavíkurbær,
Helgi Bjarnason, Fiskiðjusamlag
Húsavíkur, Höfði hf., íshaf hf. og
Verkalýðsfélag Húsavíkur.
Á fundinum var samþykkt stofn-
skrá og lög hins nýja félags og kos-
in stjórn en hana skipa Jón Steingr-
ímsson frá Þróunarsjóði, Hermann
Larsen, Fiskiðjusamlaginu, Bjarni
Þór Einarsson, bæjarstjóri, Snær
Karlsson, verkalýðsfélaginu, og
Bjarni Hafþór Helgason.
Fundurinn samþykkti yfirtöku á
rekstri Hiks sf. og skuldum, sem
sérstakir samningar hafa náðst um
við kröfuhafa og jafnframt sölu-
samningum á rækju sem Hik hafði
gert.
Starfsemi fyrirtækisins fer fyrst
fram í húsakynnum Hiks, en þau eru
ófullnægjandi svo rætt var um útveg-
un á nýjum og betri húsakosti fyrir
framtíðarrekstur félagsins.
- Fréttaritari
Haukur Þórsso"
*** Hrafnsdútn
FM 102
Brostu út í lífið ... STILLTU Á FM 102,2. Þú sérð ekki eftir því!