Morgunblaðið - 03.10.1989, Blaðsíða 46
t
Móðir okkar, fósturmóðir og tengdamóðir,
KRISTÍN HREIÐARSDÓTTIR
frá Presthúsum,
Garði,
lést á Hrafnistu í Hafnarfirði þann 1. október.
Fyrir hönd annarra vandamanna,
Julíus Oddsson,
Sigrún Oddsdóttir,
Sóley Oddsdóttir,
Ingimar Oddsson,
Eyjólfur Gíslason,
Margrét Jónsdóttir,
Björn Kjartansson,
Anna Stfna Oddsson,
Helga Tryggvadóttir.
t
Konan mín og móðir okkar,
AÐALHEIÐUR KJARTANSDÓTTIR,
Blönduhlíð 31,
Reykjavík,
lést í Landspítalanum sunnudaginn 1. október.
Magnús Árnason,
Ásdís Sæmundsdóttir,
Guðrún Magnúsdóttir.
t
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
SIGFÚSÍNA HALLDÓRA BENEDIKTSDÓTTIR
frá Hesteyri,
andaðist í hjúkrunarheimilinu Skjóli, laugardaginn 30. september.
Kristinn Gíslason, Margrét Jakobsdóttir,
Hjálmar Gfslason, Margrét Guðmundsdóttir,
Sigurrós Gísladóttir, Guðmundur Björnsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Hildigunnur Asgeirs-
dóttir - Minningarorð
Móðir okkar, t BERGÞÓRA EINARSDÓTTIR frá Garðhúsum í Grindavik,
búsett á Hagamel 45,
er látin. Ólafur Gaukur Þórhallsson,
Dóra Gígja Þórhallsdóttir, Ólafía Guðlaug Þórhallsdóttir,
Einar Garðar Þórhallsson.
Fædd 23. apríl 1927
Dáin 20. september 1989
Enn er höggvið skarð í vinahóp-
inn okkar hjóna,— stórt skarð sem
verður vandfyllt. Nú er Hilla vin-
kona búin að fá hvíld frá ströngu
sjúkdómsstríði. Ekki er ætlun mín
að rekja þann feril nákvæmlega,
heldur langar mig að þakka öll þau
ár sem ég hef fengið að vera sam-
vistum við hana og njóta óþtjótandi
lífsgleði hennar og gamansemi.
Okkar kynni hófust mjög fljótlega
eftir að ég kom hingað í Olafsfjörð,
því á þeim árum var harmonikkan
aðalhljóðfærið á dansleikjum og þar
spiluðu þeir saman mennirnir okk-
ar. Já, þær eru ófáar ánægjustund-
irnar sem við höfum átt saman —
á skemmtunum og eftir— og utan
þess. Það hefir æði oft gerstef við
hjónin höfum verið að hugsa um
að fara á ball, að sagt hefir verið:
„Hringdu í Hillu og Ingólf og vittu
hvort þau ætla að fara.“
Svo höfum við náttúrlega verið
vinnufélagar í Hraðfrystihúsi Olafs-
fjarðar frá árinu 1955 til október
1988, er hún fór að kenna þess sjúk-
dóms sem ekki varð við ráðið.
Hilla var alveg ótrúleg afkasta-
manneskja til allra verka — virtist
alltaf hafa tíma til alls, bæði fyrir
skylda og óskylda. Þau Hilla og
Ingólfur áttu smekklegt og fallegt
heimili sem hún hlúði að í hvívetna
og þar var venzlafólkið daglegir
gestir— börnin, tengdabörnin og
barnabörnin. Þá má ekki gleyma
Guðrúnu tengdamóður hennar, en
milli þeirra var alltaf mjög gott
samband. Þegar svo Hilla þurfti á
að halda, sýndi fjölskyldan líka í
verki hvers hún var metin, því skipt
var vöktum undir það síðasta, og
heima í rúminu sínu kvaddi hún
þetta líf. Þetta síðasta ár hefir ver-
ið mikil þolraun fyrir Ingólf og hann
hefir sýnt ótrúlegt þrek, þegar þess
er gætt að sjálfur hefur hann verið
heilsubilaður í nokkur ár. Hilla gat
verið dálítill grallari í sér og hressti
hún ósjaldan upp á mannlífið í HÓ
og rifja ég upp sem dæmi, þegar
við, sem stundum henti, enduðum
vinnuvikuna með „vatnsslag“ og
hún ásamt tveim öðrum voru króað-
ar af inni á tækjaklefa en þær gerðu
sérlítið fyrir og renndu sér í kassa-
rennunni niður í frystiklefa á neðri
hæð, komu svo upp í dyrnar á
vinnusalnum og kölluðu „bless“ til
þeirra er biðu með vatnsföturnar
inni við klefa.
Hildigunnur fæddist í Óiafsfirði
23. apríl 1927. Foreldrar hennar
yoru Gunnlaug Gunnlaugsdóttir og
Ásgeir Frímannsson skipstjóri. Hún
ólst upp í kátum hópi 7 barna þeirra
hjóna (reyndar voru þau 8 því
tvíburasystir Hillu dó í fæðingu).
Hún fór snemma að vinna og innan
við fermingu var hún farin að vinna
í frystihúsi sem KEA rak hér þá.
Hún giftist 31. desember 1945
Ingólfi Baldvinssyni frá Grímsey.
Þau áttu saman 5 börn sem eru:
Áslaug, gift Sóphusi Jóhannssyni
verzlunarmanni í Kópavogi, Sigrún,
t
Ástkær unnusti minn, sonur okkar og bróðir,
EINAR STEFÁN EINARSSON,
lést af slysförum þann 1. október sl.
Hílda Julnes,
Einar Friðfinnsson, Lóa Henný Ólsen,
systkini hins látna og aðrir aðstandendur.
T Hjartkær eiginmaður minn, faðir okkar og bróðir, t
PÉTUR ÞORVALDSSON
cellóleikari, Bróðir okkar,
Rauðalæk 40, MAGNÚS GÍSLASON,
lést aðfaranótt 1. október í Borgarspítalanum. Skarphéðinsgötu 16,
er látinn. Útför hans fer fram nk. fimmtudag, 5. október, kl. 10.30
Erla Steingrímsdóttir, í Fossvogskapellu.
Viðar Pétursson, Þorvaldur Pétursson,
Inga Lára Pétursdóttir, Laufey Pétursdóttir, Systkinin.
Valborg Þorvaldsdóttir.
t
Litli drengurinn okkar,
GRÉTAR ELFAR KARLSSON,
Hjallavegi 1f,
Njarðvík,
lést þann 24. september.
Útförin hefur farið fram frá Útskálakirkju.
Innilegar þakkir til allra þeirra, sem auðsýndu okkur samúð og
vinarhug af þessu tilefni.
Karl Friðriksson,
Eydís Grétarsdóttir.
t
Móðir okkar, stjúpmóðir, tengdamóðir, amma og lamgamma,
ÓLÖF EGILSDÓTTIR
frá ísafirði,
Hátúni 12,
Reykjavik,
lést í Landspítalanum 30. september.
Anna Sigurðardóttir,
Ólafur Finnbogason,
Sigurður Georgsson,
Róshildur Georgsdóttir,
Þuríður Georgsdóttir,
Jóna Georgsdóttir, Kristinn Magnússon,
Hafdi's Hallgrímsdóttir, Tony Sandy,
barnabörn og barnabarnabörn.
Viljir þú minnast lótins vinar,
samstarfsmanns eða ættingja og votta aðstand-
endum samúð, bendum við þér ó minningarkort
SVFI. Við sendum einnig minningakort til útlanda
sé þess óskað, á dönsku, ensku eða þýsku.
Gjaldið er innheimt með gíró.
Slysavarnarfélag íslands, sími [91) 27000.
t
Eiginkona mín, móðir okkar og amma,
AÐALHEIÐUR ÁRNÝ ÁRNADÓTTIR,
lést 20. september sl. Jarðarförin hefur
farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Benedikt Egilsson og börn,
Þórunn Pálmadóttir, Aðalsteinn Ásgeirsson,
Bergljót Pálmadóttir,
Jón A. Pálmason,
Gerður Pálmadóttir,
Aðalheiður Pálmadóttir,
Hildigunnur Pálmadóttir,
og barnabörn.
Gestur Benediktsson,
Elsa Baldvinsdóttir,
gift Kára Ólfjörð kennara í Ólafs-
firði, Sigurður Pétur vélgæzlumað-
ur í HO, kvæntur Margréti Ólafs-
dóttur, búsett í Ólafsfirði, Frímann
togarasjómaður, kvæntur Sigríði
Aðalbjörnsdóttur, Óli Hjálmar iðn-
verkamaður, kvæntur Snjólaugu I
Kristinsdóttur, búsett í Ólafsfirði.
Þá átti Ingólfur eina dóttur af fyrra
hjónabandi, en hann var ekkjumað-
ur er þau Hildigunnur giftust. Þessi
dóttir er Guðrún Margrét, maður
hennar er Gísli Friðfinnsson, búsett
í Ólafsfirði.
Þó svo að missir Ingólfs, barn-
anna og Guðrúnar sé auðvitað
mestur, veit ég að bræður hennar,
tengdafólk og systkinabörn harma
hana ekki síður, því mér fannst allt-
af sérstakur tónn hjá þeim þegar
þau töluðu um „Hillu frænku“.
Nú að leiðarlokum fylgja henni
biessunaróskir allra hennar fjöl-
mörgu vina og ég veit að hinir sem
farnir voru á undan hafa fagnað
henni vel. Þó ég kveddi Hillu dauð-
vona, mun ég geyma minningu
hennar í huga mér eins og hún
áður var, hress og glöð og ég veit
að þannig hittumst við aftur á
sínum tíma.
Elsku Ingólfur og þið öll sem nú
syrgið sárt, góður Guð styrkji ykkur
á komandi tímum og eigið öll dýpstu
samúðarkveðjur frá okkur hjónun-
um á Syðri-Á.
Ingibjörg Guðmundsdóttir.
Hún Hilla vinkona er látin. Það
er erfitt að sætta sig við þá köldu
staðreynd að hún sé horfin sjónum
okkar, hún sem alltaf var svo sterk
og kát, þessvegna átti maður von
á því að hún mundi sigrast á þess-
um erfiða sjúkdómi, en því miður
hafði hann betur.
Ég hef aldrei kynnst stærri per-
sónuleika en henni, sístarfandi, glöð
og hress og hafði tíma fyrir allt og
alla. Hún var eins og blessuð sólin,
gaf frá sér birtu og yl hvar sem
hún kom. Óneitanlega finnst manni
skammdegið dekkra núna og eigin-
girnin nær tökum á manni og mað-
ur spyr, af hveiju fékk hún ekki
að vera lengur hjá okkur, hún sem
gaf svona mikið af sér. Það hlýtur
að vera að Guð hafi ætlað henni
stórt hlutverk fyrst hann tók hana
frá okkur svona fljótt. í litla bænum
okkar Ólafsfírði er sjónarsviptir að
svona glaðlyndum og sterkum per-
sónuleika. Mér er óhætt að segja
það að engan hef ég þekkt eins
vinmargan og Hillu og það segir
sína sögu. Ég vildi segja svo margt
en hugurinn er fullur af trega og
þá eru orð svo fátækleg. Ég bið
góðan Guð að vera með elsku Hillu,
einnig Ingólfi, börnum ykkar og
öllum ömmubörnunum. Ég man hve
hún var glöð þegar hún varð lang-
amma, eins og yndisleg unga-
mamma. Vængirnir breiddust yfir
alla hennar nánustu og miklu fleiri
fengu skjól undir hennar verndar-
væng.
Ég þakka Guði þá gjöf að hafa
fengið að kynnast elsku Hillu og
þakka henni fyrir allt og allt. Minn-
ingin verður eins og ljós í huga
mínum um ókomna framtíð.
Guð veri með þér í sorg þinni,
Ingólfur minn og þinum nánustu.
Kolla