Morgunblaðið - 03.10.1989, Qupperneq 16
16
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. OKTOBER 1989
Galdraofsóknir nútímans
Stefán Valgeirsson
bera jafnan ábyrgð á löggjal'ar-
starfi, sem ríkisstjórnin vinnur að.
Þessi ábyrgð er annars eðlis en
ábyrgð stjórnarandstöðuþing-
manna. Þingflokkar stjórnarflokk-
anna vinna skipulega og stundum
með aðstoð ráðuneytanna að því
að fara yfir lagafrumvörp. Við
stjórnarmyndunina taldi ég mér
skylt að reyna að fylgjast sem best
með. Sérstök aðstoð var því nauð-
synleg. Eins og á stóð var ekki
hægt að mynda þessa ríkisstjórn
nema að mín Samtök styddu hana.
Hefðum við valið þann kostinn að
taka ráðuneyti þá hefði fylgt því
margt starfsfólk og öllum þótt það
sjálfsagt. Þá hefðu ráðherrar orðið
tíu en ekki níu, eins og þeir urðu.
Sú leið sem við kusum að taka
ekki ráðuneyti kostaði því ríkissjóð
mikið minna en sérstakt ráðuneyti
hefði gert þrátt fyrir aðstoðarmann-
inn. Allar upphrópanir um að við
höfum verið keypt er því hreint
rugi, sennilega áhrif frá bjór ef
ekki enn sterkari drykk.
fjölmiðlanna freyðivín
flata slógu krata.
Það er hvorki glens né grín
ef greyin hætta að rata.
Höíundur er nlþingismaður
Samtakajafnréttis og
félagshyggju fyrir
Norðurlandskjördæmi eystra.
I nánu samstarfi við netagerðarmenn og sjómenn er rannsakað
hvernig veiðarfæri fara í sjó og hvernig fiskur hagar sér
gagnvart þeim.
Við framleiðsluna beitum við háþróaðri tækni nútímans og
ströngu gæðaeftirliti.
Árangurinn er vara sem stenst alla samkeppni
Þistilfjörður:
1100 lömb seld á riðusvæði
Garði, Þistilfirði.
TÍÐARFAR hefur verið nokkuð
gott í haust. Grös standa vel enda
greri seint í vor og fáar frostnæt-
ur komið ennþá. Dilkar koma
vænir af fjalli. Álftir og gæsir
hafa það gott til heiða og eru þar
í þúsundatali. Mikið sást af rjúpu
í fyrstu göngum en hún er nú að
hverfa.
Slátrun stendur nú yfir á Þórshöfn
þar sem áætlað er að lóga 11-12.000
fjár úr Svalbarðs-, Sauðanes- og
Skeggjastaðahreppum. Auk þess 3
bæjum úr Presthólahreppi sem áður
höfðu haft sín viðskipti við Kópa-
sker, en þar er nú sauðfjárslátrun
hætt þrátt fyrir gott sláturhús.
1.100-1.200 lörhb hafa verið seld
frá bæjum í Svalbarðs- og Sauðanes-
hreppi á riðusvæði austan og vestan
við okkur.
Hrútasýning var 1. október á
Gunnarsstöðum. Þar voru sýndir 15
veturgamlir hrútar úr Svalbarðs-
hreppi og 26 fullorðnir og fengu
flestir 1. verðlaun enda margirþeirra
afburða fallegar og vel gerðar skepn-
ur. Aðaldómari var Sigurgeir Þor-
geirsson, ráðunautur hjá Búnaðarfé-
lagi íslands.
Mannlífið gengur sinn vanagang
hér við Þistilfjörðinn, skólinn á Sval-
barði tekinn til starfa, þar ei-u nú
18 nemendur og er þeim ekið dag-
lega í skólann. Annað félagslíf fer
væntanlega í gang í vetur þegar tími
og tíðarfar leyfa.
- Björgvin
Freyðivín íjölmiðla
eftir Stefán
Valgeirsson
Þegar ég lít yfir skrif sumra
dagblaðanna síðustu daga og þær
missagnir og rógburð sem þar veð-
ur uppi um undirritaðan kemur mér
í hug vísa sem ég orti og birti þeg-
ar fulltrúar Alþýðuflokksins og
ýmsir fjölmiðlar ætluðu að æru-
meiða Ólaf heitinn Jóhannesson
fyrrum forsætisráðherra.
„Hiigsanabrengl og hálfsögð orð
er hrakmanna skjól og vígi.
Daglega þjóðar bera á borð
blöð þessi, róg og lygi.
Er ekki að fremja ærumorð
illvirki á lægsta stigi?“
Ég verð þó að játa að skrif Jónas-
ar Kristjánssonar ritstjóra og blaðs
hans um stöðu mína og störf hljóma
eins og lofsöngur í mínum eyrum
þegar ég tek mið af skrifum hans
um landbúnaðinn og raunar lands-
byggðina í heild á liðnum árum.
Mér hefur ekki verið það ljóst fyrr
en nú hvað þessir aðilar telja mig
hættulegan andstæðing. Annars
hefðu þeir tæpast þyrlað upp eins
miklu moldviðri um mig sem skrif
þeiiTa gleggst bera vitni um. Ég
vona sannarlega að ótti þeirra reyn-
ist ekki ástæðulaus.
Tvennt kemur mér þó á óvart.
Að 1. þingmaður Suðurlands Þor-
steinn Pálsson skuli lepja upp rugl-
ið úr Alþýðublaðinu og DV, eins
og hann gerir í Morgunblaðinu 24.
september, því hann veit betur. Mér
sýnist líka að hann muni hafa næg
verkefni að kljást við innan sinna
eigin raða nú um stundir. Mér kem-
ur líka á óvart að leigupennum Jón-
asar Kristjánssonar og kratanna
skuli hafa yfirsést að bæta við fjár-
lagatölunni um 78 milljörðum við
þá 37,5 milljarða, sem þeir segja
að ég ráðstafi. Hvort tveggja er
jafn rökrétt.
Ég tel rétt að upplýsa eftirfar-
andi vegna þessara skrifa:
1. Ég var kosinn í bankaráð
Búnaðarbankans og í stjórn Stofn-
lánadeildar landbúnaðarins frá 1.
janúar 1985 til fjögurra ára og
skipaður formaður af Matthíasi
Bjarnasyni þáverandi bankamála-
ráðherra.
2. Ég var kosinn í stjórn Byggða-
stofnunar eftir síðustu kosningar
af þáverandi stjórnarandstöðu og á
þar sæti þar til næstu kosningar
til Alþingis hafa farið fram. For-
maður stjórnar Byggðastofnunar
er Matthías Bjarnason alþingismað-
ur. Staða mín í þessum stofnunum
gat því ekki breyst í sambandi við
myndun núverandi ríkisstjórnar.
3. Formaður stjórnar Silfur-
stjörnunnar er og hefur verið Björn
fremst fjármagnað fiskeldisfyrir-
tæki, Framkvæmdasjóður og
Byggðasjóður. Forráðamenn Silfur-
stjörnunnar leituðu fyrst eftir lán-
um hjá Framkvæmdasjóði en fengu
neitun. Því mun hafa verið borið
við að staðsetningin væri ekki innan
þeirra svæðis.
8. Menn frá Byggðasjóði hafa
haft eftirlit með framkvæmdum hjá
SilfurStjörnunni.
9. Við Gunnar Hilmarsson erum
bræðrasynir, en ég hef ekki heyrt
það fyrr að við Trausti Þorláksson
værum frændur.
10. Það var forsætisráðherra sem
bauð formennskuna í Atvinnu-
tryggingasjóði og benti á Gunnai'
Hilmarsson _sem æskilegan mann í
það starf. Ég hygg að fáir lands-
byggðarmenn hafi frekar viljað fá
annan mann í þá formennsku.
11. Ég gerði kröfu um að fá
aðstoðarmann sem hefði svipuð
laun og aðstoðarmenn ráðherra ef
ég tæki ekki ráðuneyti. Við því var
orðið. Hvar hann er vistaður er mál
ríkisstjórnar.
12. Sé það siðleysi að stuðla að
því, að byggja upp atvinnurekstur
á landsbyggðinni ekki síst þar sem
mesta hættan er á byggðaröskun,
hvað þá heldur ef menn hætta eign-
um sínum til slíkra uppbygginga,
þá er merking þess orðs orðin önn-
ur en áður var. Athyglisvert er að
sömu aðilar telja okurvextina eðli-
lega viðskiptahætti, sem sagt sið-
lega athöfn að féfletta fyrirtæki og
einstaklinga eins og gert hefur ver-
ið rúm tvö síðustu árin.
Margir hafa haft samband við
mig út af þessu moldviðri, sem
þyrlað hefur verið upp í kringum
mig. Það er undrunarefni flestra
þeirra hvers vegna Alþýðublaðið
rýkur nú upp með þessar árásir þar
sem það fór ekki leynt að ég fékk
þennan aðstoðarmann í sambandi
við stjórnarmyndunina. Að athug-
uðu máli skilja menn hvað hér er
á ferðinni ekki síst eftir leiðara-
skrif Jónasar Kristjánssonar í DV
23. september. Það ætti að vera
öllum ljóst að þær kvaðir fylgi
stjórnaraðild alþingismanna að þeir
„Sé það siðleysi að
stuðla að því að byggja
upp atvinnurekstur á
landsbyggðinni ekki
síst þar sem mesta
hættan er á byggða-
röskun, hvað þá heldur
ef menn hætta eignum
sínum til slíkra upp-
bygginga, þá er merk-
ing þess orðs orðin önn-
ur en áður var.“
Benediktsson oddviti Sandfells-
haga.
4. Það eru bankastjórar Búnaðar-
bankans sem ákveða öll útlán úr
bankanum.
5. Stjórn Stofnlánadeildar land-
búnaðarins ákveður lánareglur sem
landbúnaðarráðherra svo staðfestir.
Framkvæmdastjóri hennar og
a.m.k. einn bankastjóri ákveða útl-
án. Ef álitamál koma upp eru þau
afgreidd á stjórnarfundum.
6. Öll lán úr Byggðasjóði eru
afgreidd á stjórnarfundum, í flest-
um tilvikum kemur tillaga um af-
greiðslu mála frá framkvæmda-
stjóra í samráði við formann og
e.t.v fleiri stjórnarmenn. Lán til
Silfurstjörnunnar hafa verið sam-
þykkt með 6 atkvæðum, er undirrit-
aður hefur setið hjá.
7. Tveir sjóðir hafa fyrst og
TÖLVUSKÓU STJÖRNUNARFÉLAGS ISLANOS
TÖLVUSKÓU GlSLA J. JOHNSEN
Þú öðlast grunnþekkingu
á tölvum og hæfni
til að nota þær af
öryggi.
Kvöldnámskeið
10. okt. — 1. des.
kl. 19.30—22.30
til skiptis 2-3 kvöld í viku
í Ánanaustum 15, Reykjavík
Leiðbeinandi: Ólafur H. Einarsson.
SKRÁNING í SlMHM 621066 06 641222.