Morgunblaðið - 03.10.1989, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. OKTOBER 1989
19
Rússar tregir til frek-
ari freðfiskkaupa:
Framleiðsla
beinist inn á
aðra markaði
„ÞAÐ felst í því visst tjón í við-
skiptunum við Sovétmenn, að
ekki skuli hafa fengist íjárveit-
ing þar eystra til kaupa á 5.500
tonnum af freðfíski til viðbótar
því, sem áður var um samið til
afhendingar á þessu ári. Það
þýðir að vinna á þennan markað
leggst niður hér á landi um
nokkurra mánaða skeið og
framleiðslan beinist þess í stað
inn á nýja markaði. Sú markaðs-
sókn er reyndar jákvæð, þó hún
sé á kostnað viðskiptanna við
Sovétríkin," segir Gylfi Þór
Magnússon, einn framkvæmda-
stjóra SH, í samtali við Morgun-
blaðið.
Morgunblaðið hefur áður greint
frá því, að umsamin sala á freð-
fiski héðan til Sovétríkjanna á
þessu ári hafi numið 9.700 tonn-
um, eða tæplega helmingi þess,
sem kveðið er á um í rammasamn-
ingi um viðskipti milli þjóðanna.
Fulltrúar SH og Sambandsins hafa
undanfarna mánuði unnið að
samningi um sölu 5.500 tonna til
viðbótar, en þau viðskipti hafa
strandað á ijárveitingu frá yfir-
stjórn Sovétríkjanna til sjávarút-
vegsráðuneytisins og Sovrybflot.
Gylfi þór segir, að í þessum
samningi sé fyrst og fremst um
að ræða ufsa, karfa og gráiúðu,
en markaður sé fyrir þessar afurð-
ir viða um heim, meðal annars í
Evrópu, Bandaríkjunum og Japan.
Því beinist framleiðsla á þessum
fisktegundum meira inn á þessa
markaði en áður. Afleiðingin verði
svo aftur sú, svo ekki verði um
birgðasöfnun að ræða, að vinnsla
þessara fisktegunda á sovézka
markaðinn leggist niður. Það sé
slæmt því vinnsla af þessu tagi
hafi verið hefðbundinn þáttur í
vinnslu frystihúsa á íslandi og
geti mögulega haft neikvæð áhrif
á viðskiptin við Sovétríkin.
Búizt er við að í novembermán-
uði verði gengið frá samningum
um sölu freðfisks til Sovétríkjanna
á næsta ári.
ÍTÖLSK
V I K A
í KRINGLUNNI
28. sept. - 7. okt.
Italskar vörurjyiískusýningar
Tónlist B Kaffihús U ítalskur
matur U Ferðakynningar H
OGetraun, vinningur: ferb fyrir
tvo til Ítalíu U
Þ.Þ0RGRÍMSS0N &G0
WARMA
PLAST
ÁRMÚLA 1 6 OG 29. S. 38640
Þjónustusíminn veitir
viðskiptavinum banka
um land allt nýjustu
upplýsingar um
stöðu tékkareikninga
Ný staða strax: Einfalt og Þægilegt:
Þjónustusíminn er tölvu-
væddur símsvari í Reikni-
stofu bankanna. Hann veitir
þér upplýsingar um nýjustu
stöðuna á tékkareikningi
þínum og 20 síðustu
færslur. Leyninúmer tryggir
að aðeins þú getur fengið
upplýsingar um eigin
reikning. Þjónustusíminn
svarar þér greiðlega allan
sólarhringinn.
Rétt staða strax kostar eitt
símtal. Allir hringja í sama
símanúmerið: (91)
62 44 44
úr næsta tónvalssíma,
hvaðan sem er — heima
eða erlendis
Nú þarftu ekki
lengur að bíða eftir
reikningsyfirliti eða hringja
í bankann.
Næst þegar þú átt leið í
bankann þinn skaltu velja
leyninúmer sem veitir
þér aðgang að Þjónustu-
simanum.
ÞJPINIUSTU
wsmm
BEHSl LÍÞdA
BAiNJKA UIVI LAMO ALLT
Fáðu þér kynningarbækling
og settu þig í samband strax.
Vertu í beinu sambandi við Þjónustusímann og bú veist alltaf hvar þú stendur
62 44 44
BEIIM LÍIMA
BAIMKA UM LAIMD ALLT