Morgunblaðið - 03.10.1989, Side 33
MUOACIUl-CilíM ,aw.UWí4i’w£fei\li'tJíyiXtí* liKlAJðKUtíiíÖM
MORGUNBLAÐIÐ VEDSKEPTI/iffVlNNUIÍF ÞRIÐJUDAGUR 3. OKTÓBER 1989
33
Bandaríkin
*
Fyrírtæki Islendinga íFlórída
með 50 milljón kr. ársveltu
Frá Atla Steinarssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
THE CORNERSTONE, eða Hornsteinninn, heitir fyrirtæki í Altam-
onte Spring, einni af útborgum Orlando í Flórída, og er í eigu
íslenzks manns, Stefáns Jóhannssonar og bandarískrar konu hans,
Marion að nafhi. Fyrirtækið sérhæfir sig í lausn mannlegra vanda-
mála og meðal starfsmanna þess eru sérmenntaðir ráðgjafar, sálfræð-
ingur, læknir og prestur. Vöxtur og viðgangur fyrirtækisins hefúr
verið mjög hraður og á fimm ára afmæli þess 1. september sl. er
ársveltan komin yfir 800 þúsund dollara.
Fyrirtækið starfar nú í eigin hús-
næði. Þar er veitt viðtalsmeðferð,
en í sumum tilfellum er viðskipta-
vinum ráðlagt að leita sér aðstoðar
hjá völdum meðferðarstofnunum. í
um það bil helmingi tilfella er um
að ræða misnotkun eða ofnotkun
áfengis, en önnur vímuefni eru aðal-
orsök vandræðananna í tæplega
helmingi tilfellanna sem „Horn-
steinninn" glímir við. Bandaríkja-
menn leita sér einnig aðstoðar
vegna ýmiss annars konar óviðráð-
anlegrar óreglu eins og t.d. vegna
ofáts og spilafíknar svo dæmi séu
tekin.
Stefán Jóhannsson starfaði árum
saman að áfengisvarnarmálum á
íslandi áður en hann fluttist til
Flórída 1973. Menntun sína og
þjálfun á sviði áfengisvarnarmála
hlaut hann við ýmsar viðurkenndar
bandarískar stofnanir. Kona hans
er íslendingum einnig að góðu
kunn, en hún rak sjálfstæðan at-
vinnurekstur á þessu sviði á íslandi
um þriggja ára skeið, en hafði áður
m.a. verið ráðgjafi hjá Hazelden
stofnuninni í Minnesota. Stefán
hefur einnig lagt á ráðin um skipu-
lagningu áfengisvarnarmála í Póll-
andi og er enn á förum þangað í
október þeirra erinda fyrir pólsk
stjórnvöld.
Fyrir utan göngudeildarmeðferð
veitir The Cornerstone Institute
Ijölmennum starfsmannahópum
ijölþætta þjónustu og fer það mjög
í vöxt að stórfyrirtæki fái slíkar
stofnanir til að skipuleggja eða
veita starfsfólki sínu þá aðstoð er
það þarfnast vegna hinna ólíkustu
FLUGFÉLÖGIN SAS og Swissair
tilkynntu í fyrri viku að þau
myndu hefja samstarf á öllum
flugleiðum sínum til að búa sig
sem best undir aukna sam-
keppni, sem vænta má' í flugi
með tilkomu sameiginlegs mark-
aðar Evrópubandalagsins 1992
en þá verður opinberum hömlum
á flugi aflétt. Gert er ráð fyrir í
samstarfssamningi SAS og
Swissair að fyrst um sinn geti
félögin hvort um sig eignast 10%
hlut í hinu. Gangi samstarfið
mjög vel verður mögulegt að
auka eignarhlutana síðar meir.
Samstarf hefur verið með SAS
og Swissair í flugvélaviðhaldi og í
sambandi við farseðlabókanir. Sam-
eining áætlunarleiða hefur það í för
með sér að farþegar á leiðum SAS
komast til allra heimshluta með í
vandræða sem kunna að draga úr
vellíðan þess og starfsgetu.
Auk ráðgjafaþjónustunnar rekur
The Cornerstone Institute mikla
bókaverzlun, þar sem lögð er
áhersla á að hafa á boðstólum allar
bækur sem Qalla um mannleg
vandamál á hvaða sviði sem er.
Sendir bókabúðin bókalista og pant-
anir um allan heim. Heimilisfang
fyrirtækisins er: The Cornerstone,
400 Matiland Avenue, Altamonte
Springs, Florida 32701.
mesta lagi einni millilendingu. í dag
á það t.d. ekki við á leiðum félags-
ins til Afríku, Miðausturlanda, Ind-
lands og Pakistan. Swissair heldur
uppi mililu flugi til þessara heims-
hluta. Á sama hátt bjóðast far-
þegum Swissair miklir og góðir
tengimöguleikar til Norður-Evrópu,
Suður-Ameríku og Bandaríkjanna
eftir sameiningu flugleiðanna. Mið-
að er við að hún verði um garð
gengin á næsta ári. Telja flugfélög-
in að sparnaður verði af sameiningu
flugleiðanna og er gert ráð fyrir
að hann nemi a.m.k. 30 milljónum
dollara á næsta ári og um 90 millj-
ónum dollara innan fárra ára.
Auk sameinginu flugleiða munu
SAS og Swissair auka samstarf er
varðar kynningarstarf og hótel,
flugeldhús og ferðaskrifstofur í eigu
félaganna.
Flug
SAS og Swissair
sameina flugleiðir
Stokkhólmi. Frá Erik Liden, fréttaritara Morgunblaðsins.
Pakkalausnir á söluvanda
Bjarna Sigtryggsson
íslenskur iðnvarningur hefur allt-
af átt erfitt uppdráttar, einkanlega
á íslandi. Það þarf ekki endilega
að vera sökum þess að varningurinn
sé verri en hinn innflutti, þótt svo
hafi óneitanlega oft verið. Hitt er
öllu líklegra að umbúðirnar hafi
þarna ráðið meiru en menn hafi
grunað. Því þótt íslenskir iðnrek-
endur hafi lengst af verið hugsjóna-
menn um framleiðslu, þá hafa þeir
ekki verið markaðsmenn að sama
skapi, og það er varla hægt að segja
að iðnhönnun njóti hér enn sömu
virðingar sem hagnýt fræðigrein
og aðrir þættir framleiðsluferilsins.
Sala á hugbúnaði fyrir einkatölv-
ur tók mikinn kipp þegar hún færð-
ist úr verslunum einkaumboðs-
manna í í almennar hugbúnaðar-
og tölvuvöruverslanir og varð þar
aðgengileg í hillum rétt eins og
hver önnur pakkavara í kjörbúðum.
Þegar í þessar aðgengilegu hillur
kom skipti máli að innihaldið væri
í vel útlítandi pakka, sem freistaði
kaupandans við nánari skoðun.
Þessir pakkar urðu fljótt hið staðl-
aða útlit hugbúnaðarins, því einn
lítill og fátæklegur disklingur í
umslagi getur aldrei gefið sömu
fyrirheit og litprentaður pakki af
nokkurri þyngd og umfangi.
Svipað hefur reyndar verið að
gerast í verslun með alls kyns heim-
ilistæki og húsbúnað á síðustu
árum, eftir að stórmarkaðirnir tóku
að auka vöruval sitt. Litprentaðir
Þannig
veröa um-
búðirnar
ásamt aug-
lýsingum
mikilvægt
verkfæri í
markaðs-
setningu
vörunnar
pakkar og kassar úr bylgjupappa
eru nú utan um allt frá brauðristum
upp í garðsláttuvélar, enda eru
glæsiprentaðar myndir af ijúkandi
grillsteik mun sölulegri umbúðir um
útigrill en það að láta glóðarsteiki-
pönnuna standa kalda og nakta án
matar né ilms á gólfi eða í hillu
verslunarinnar.
Augnablik sannleikans
Þá skiptir það líka méira máli
nú en fyrr að umbúðir taki að sér
hlutverk sölumannsins, því sjálfsaf-
greiðsla verður almennt útbreiddari
og ákvörðun um kaup er oft tekin
á augnabliki sannleikans, þegar
kaupandinn er einn með vöru sinni.
Enda færist það í vöxt að verslanir
stilli aðeins upp kössum með varn-
ingi, en taki hann ekki upp.
Þá skiptir það líka máli að um-
búðirnar séu traustvekjandi. Það
gefur til kynna að varningurinn í
þeim sé gæðavara. Þannig verða
umbúðirnar ásamt auglýsingum
mikilvægt verkfæri í markaðssetn-
ingu vörunnar.
Sú þróun að pakka heimilistækj-
um í bylgjupappa og gjarnan í
steyptan innri pakka úr frauð-
plasti, sem nær lögun tækisins,
hefur haft mikil áhrif á útlit kass-
anna. Áður voru flestir aðeins úr
brúnum bylgjupappa, og á þá í
mesta lagi stimplaðar fáorðar upp-
lýsingar um innihaldið. Nú eru
kassarnir hins vegar komnir í hillur
verslananna og því eru þeir orðnir
skrautlega litprentaðir. Þá fer
prentunin fram áður en pappinn er
settur saman, og ytra byrði bylgju-
pappans því gert úr litprentuðum
örkum, en pappinn síðan stansaður
í viðkomandi kassagerð. En þetta
var tæknilégt innskot.
Draumar í lit
Meginmálið er það að umbúðirn-
ar gegna nú veigameira hlutverki
en fyrr í því að lita draum neytand-
ans, ýta þannig undir þörfina og
skapa þar með eftirspurn. Helst
strax á sölustað.
Kynningarfundui
um bnlhönnunarstaöla
Byggingastaðlaráð og félagsmálaráðuneytið
halda kynningarfund í tilefni af útgáfu íslenskra
þolhönnunarstaðla mánudaginn 9. október 1989
kl. 13.10-17.00 í Borgartúni 6.
Allir, sem hafa með þolhönnun bygginga að
gera, eru sérstaklega hvattir til þess að mæta
á fundinn.
Þátttaka óskast tilkynnt til staðladeildar Iðn-
tæknistofnunar íslands í síma 687000 fyrir 6.
október 1989.
Nýjungar
í Ethernet tengingum
Fimmtudaginn 5. október kl. 14.00 verður fyrir-
lestur um Ethernet á snúnum vírum „Twisted
Pair“ í fundarsal Hótels Loftleiða.
Fyrirlesarinn er hollenskur eðlisfræðingur, Jos
de Klein, sem starfar sem yfirmaður tækniþjón-
ustu SynOptics í Evrópu.
Fyrirlesturinn tekur u.þ.b. þrjár klukkustundir
með kaffihléi.
Aðgangseyrir er kr. 1.000,-. Þátttaka tilkynnist
til Sigríðar Friðjónsdóttur í síma 687220.
Leiðandi á sínu sviði
H ÖRTÖLVUTÆKNI ^jj
Tölvukaup hf.
Skeifan 17,108 Reykj*avík, sími 687220.
Fræðandi,
skemmtileg
og hagnýt
ensku-
námskeið
VIÐSKIPTAENSKA
Námskeið hefjast 12 október. Lengd 45 tímar.
ENSK VERSLUNARBRÉF
Námskeið hefjast 12. október. Lengd 20 tímar.
EINKANÁMSKEIÐ
Námskeið hefjast í byrjun október. Þú ákveður tímann.
S AMT ALSN ÁMSKEIÐ
Námskeið hefjast 9. október. Lengd 30 tímar.
ENSKULEIKNII og II
Námskeið hefjast 9. október. Lengd hvors námskeiðs
72 tímar.
Innritun stendur yfir.
k A\
Málaskólinn
BORGARTÚNI 2 4, SÍMI 62 6 6 5 5