Morgunblaðið - 03.10.1989, Side 37

Morgunblaðið - 03.10.1989, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAQUfi Á QKTQ,BER 1989 37 gnæfði með stíl sínum alla aðra. En það viidi Marivaux til, að hann í upphafi ferils síns lenti í slagtogi með ítölskum farandleikflokki og fór að skrifa fyrir hann leikrit. Verk sín skrifaði hann jafnan fyrir leikflokka og ákveðna leikara, fyrri hluta æfinnar fyrir ítaiska flokkinn og síðar fyrir franska flokka. Áhrif þessa komu vel fram í leiksýningun- um í Iðnó og dæmunum sem leikin voru með fyrirlestri Jeans-Claude Penchenats. I leikritinu Þrælaeyjan kemur t.d. fyrir hin hefðbundna per- sóna úr ítölsku leikjunum „arlequin“, sem er allt annar „arlequin" en sá hefðbundni. Og sést þar vel hvernig Marivaux umskapaði þessa persónu sem og aðrar fastmótaðar persónur farsaleikja, sem hann nýtti sér. I öðru leikritinu sem hér var sýnt, Sveitakonunni, kom svo vel fram hvernig hann, seinna á ævinni, mót- aði leikpersónur sínar í samræmi við líf sitt í París og umgengnina við hefðarfólk í salonum borgarinnar. Frönsku leikflokkarnir voru þá frek- ar úr hópi ríka fólksins, sem lék sér að því að setja upp leikrit í höllum. En þeim hefðbundnu persónum um- breytir hann líka. Og er þá kominn þessi stíll sem nefndur hefur verið Marivaux-stíll, sem gaman var að kynnast nú. Marivaux var undanfari stjómar- byltingarinnar frönsku, en leikrit hans draga samt upp mynd af því sem maður getur ímyndað sér að hafí verið geijun í samfélaginu fyrir þau umbrot, og eru þau því nú dreg- in fram í tilefni 200 ára afmælis stjórnarbyltingarinnar. Hefur fyrsta leikritið, Þrælaeyjan, sem hér var sýnt í Iðnó á mánudagskvöld eflaust verið valið með tilliti til þess. Þar verða skipreika á grískri eyju hús- bóndi og þræll hans og húsmóðir og ambátt hennar, en eyju þessari er stjórnað af frelsingjum, sem ætla að kenna ríka fólkinu betri siði í um- gengni við þjónustufólk sitt með því að láta þau skipta um hlutverk. Var leikritið mjög hreint og skilmerkilega sett upp, dregið hreinum línum. Úr Þrælaeyjunni, leikararnir Bénédicte Wenders, Samuel Bonnafil og Michel Toty í hlutverkum sínum Arlequin Amaults Lecarpentiers, sem lék þrælinn, einstaklega skemmtilega leikinn. Og andstæðan í ambáttinni, sem Francoise Miquelis lék, mjög vel fram sett. Sveitakonan, sem leikin var eftir hlé, ijallar um auðugu konuna utan af landi, sem vill allt til vinna að sýnast ekki sveitaleg þegar hún kem- ur til heimsborgarinnr og verður því auðveld bráð auralausra spjátrunga af báðum kynjum í samkvæmislífinu. Þama koma, eins og annars staðar í leikritum þeirra tíma og iðulega í óperum, við sögu þjónar og þjónustu- stúlkur, sem aðstoða húsbændur sína í ástarmálum og ná svo líka sjálf saman. í þessu leikriti er efnisþráður flóknari og persónur fleiri, sem sýndi vel hve jafngóðir leikararnir eru. Þar kemur fram mismunandi talsmáti hefðarfólks borgarinnar og þjónustu- fólks úr sveitinni og nutu sín þar-vel leikhæfileikar Hélenar Philipe í kostulegu hlutverki hinnar sveitalegu fylgdarkonu „Sveitakonunnar" í borginni. Hve fjölhæfir leikararnir í þessum leikflokki em, kom vel fram í hinum ýmsu hlutverkum sem þau fyrirvara- laust brugðu sér í með fyrirlestrinum og í samlestrinum á síðasta leikrit- inu, Arfurinn. Þó varð Michel Toty í hlutverki markgreifans og nokkrum smámyndum eftirminnilegur senu- þjöfur. En leikurinn fjallaði sem svo mörg önnur verk Marivauxs um ást- ina og hugarástand þeirra ástföngnu í langvinnum flækjum, áður en þeir réttu ná allir saman. Séu sýningarnar teknar allar sam- an, er augljóst hve þjálfaður þessi 14 manna leikflokkur er, þekkir vel verk og stíl Marivauxs og persónurn- ar eru vel heima í ijölbreyttum hlut- verkum hans, sem þau bregða sér í. Og hlýtur að skrifast að stórum hluta á reikning leikstjórans. Ekki er hægt að taka út og telja upp leik- arana, enda tilgangslaust. En sýn- ingar franska leikflokksins frá Campagnol-leikhúsinu voru mikill fengur fyrir þá íslensku leikhúsgesti sem þeirra nutu, svo og kynnin við nýjan höfund frá 18. öld, sem fæstir höfðu áður þekkt, og ekki síður meðferð nútíma landa hans á þessum verkum. í landi, sem á svo stutta leiksögu, víkkar það sjóndeildar- hringinn. SIEMENS Góður og ódýr þurrkari! • Stórt lúguop og stór lósía. • Öryggislæsing og kæling í lok þurrkunar til að forðast krumpur. • Tekur 4,5 kg. að þvotti. Sérlega hagkvæmur og sparneytinn þurrkari. Verð: kr. 35.800,- SMITH &NORLAND NÓATÚNI 4 • SlMI 28300 m targtmWI 3» Áskriftarsíminn er 83033 OD <J1 ■U o Rafvirki Við viljum ráða rafvirkja í þjónustudeild okkar. Starfið felur í sér viðgerðir á Siemens- heimilistækjum og ýmsum öðrum raftækjum. Við leitum að ungum og röskum manni, sem hefur áhuga á þægilegum, mannlegum sam- skiptum og vilja til að veita góða þjónustu. Þeir, sem hafa áhuga á ofangreindu starfi, eru beðnir um að senda okkur eiginhandar- umsókn, ásamt meðmælum, ef þau eru fyrir hendi, fyrir 9. október nk. ----SMITH& ____________________ NORLAND Pósthólf 519, 121 Reykjavik ■ Nóatúni 4 • Simi 28300 Ritari Félagasamtök vilja ráða starfskraft til almennra skrifstofustarfa. Ensku- og dönskukunnátta nauðsynleg. Umsóknir sendist auglýsingadeild Mbl. fyrir kl. 17.00 í dag, merktar: „Ritari - 7847“. Söngfólk Getum bætt við nokkrum góðum söngkröft- um í kór Seljakirkju. Á verkefnaskrá vetrarins eru mörg áhugaverð verk, kirkjuleg og verald- leg. Upplýsingar gefur organisti kirkjunnar Kjart- an Sigurjónsson í síma 45968. Löglærður fulltrúi óskast til starfa nú þegar við opinbera stofn- un í Reykjavík. Um er að ræða fjölbreytt innheimtu- og lög- fræðistörf. Laun eru samkvæmt launakerfi opinberra starfsmanna. Viðkomandi þarf að hafa bifreið til umráða. Greiddur er bifreiða- styrkur. Umsóknum ber að skila til auglýsingadeildar Morgunblaðsins fyrir hádegi 10. október ’89 merktum: „Lögfræði-99“. Atvinna óskast Þrítug kona óskareftirvel launuðu skrifstofu- starfi strax. Hefur 13 ára reynslu við almenn skrifstofustörf. Tilboð sendist auglýsingadeild Mbl. merkt: „AT-2825". 1. vélstjóri óskast á rækjutogara sem frystir aflann um borð. Upplýsingar í síma 91-626630 á skrifstofu- tíma og í síma 91-46676 á kvöldin. Bakari Bakari óskar eftir vinnu. Tilboð sendist auglýsingadeild Morgunblaðs- ins merkt: „B-7131". St. Jósefsspítali, Hafnarfirði Röntgentæknar athugið! Staða röntgentæknis við röntgendeild spítal- ans er laus til umsóknar. Um er að ræða hlutastarf en fullt starf kemur til greina. Æskilegt væri að umsækjandi gæti byrjað 15. október eða eftir nánara samkomulagi. Nánari upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri í síma 54325 og deildarröntgentæknir í síma 50966 (16). Starfskraftur óskast strax til starfa hjá aðila í ferðaþjón- ustu við farmiðasölu og upplýsingaþjónustu. Vaktavinna. Framtíðarstarf. Smávegis tungu- málakunnátta er skilyrði. Einnig vantar starfskraft til almennra af- greiðslustarfa. Vaktavinna. Umsóknir sendist auglýsingadeild Mbl. fyrir hádegi miðvikudag, merktar: „Starfskraftur - 7747“. Veitingahús Aðstoðarfólk óskast í sal á aldrinum 20-40 ára. Nánari upplýsingar á staðnum frá kl. 15.00- 18.00 þriðjudag til fimmtudags. Bjórhöllin hf., Gerðubergi 1, Gréta Pétursdóttir. r

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.