Morgunblaðið - 03.10.1989, Síða 41

Morgunblaðið - 03.10.1989, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. OKTÓBER 1989 41 Félagsheimili tónlistarmanna: „Litli draumurinn 10 ára“ eftir Jóhann G. Jóhannsson Nú eru liðin rétt 10 ár frá því að hópur tónlistarmanna kom sam- an ákveðinn í að reyna að bæta starfsvettvang sinn. Þessi hópur kallaði sig SATT — Samtök al- þýðutónskálda og tónlistarmanna. Eitt brýnasta málið, að mati sam- takanna, var að tónlistarmenn eign- uðust. félagsheimili. Að fengnu samþykki um aðild að féiagsheimilasjóði, með þeim rökum að skennntanaskatturinn, megintekjustofn félagsheimila- sjóðs, væri að mestu til orðinn vegna starfsemi tónlistarmanna, voru fest kaup á 240 rm húsnæði á Vitastíg 3, 3. hæð, Reykjavík. Á þessum 10 árum hefur oft nætt um þennan „litla draum“ um félagsheimili tónlistarmanna, sem á stundum hefur verið líkari martröð fyrir þá sem hafa verið i forsvari. Stjórn FT hefur reynt að gera markmið FT að veruleika: að Fé- lagsheimili tónlistarmanna verði miðstöð samskipta og upplýsinga- streymis milli tónlistarmanna um allt land. Með því að skipta hús- næðinu niður með færanlegum skil- rúmum (sjá teikningu) skapast fjöl- breytt aðstaða: Á. Æfingafaðstaðan fyrir ein- leikara, kóra og flokka hljóðfæra- leikara. B. Aðstaða til hljóðritunar í hljóð- . veri. C. Aðstaða til fundarhalda. D. Aðstaða til tónleikahalds og tónlistarkennslu. E. Aðstaða til skemmtanahalds þ.m.t.. veitingaaðstaða. F. Skrifstofuaðstaða fyrir hin ýmsu félög og samtök tónlistar- manna með ýmsum möguleikum, t.d. rekstri umboðsskrifstofu. Smátt og smátt hefur nánast fokhelt húsnæði FT breyst í félags- heimili sem býður upp á góðan sam- komu- og veitingasal, fijlibúið hljóð- Námskeið í skyndihjálp Reykjavíkurdeild RKI heldur námskeið í skyndihjálp fyrir al- menning. Það hefst á morgun, miðvikudaginn 4. október, klukk- an 20 og stendur í íjögur kvöld. Kvöldin, sem kennt verður, eru 4., 5., 10. og 12. október. Nám- skeiðið verður haldið í Ármúla 34 (Múlabæ). Öllum 15 ára og eldri er heimil þátttaka. Nánari upplýsingar og skráning þátttak- enda er á skrifstofu Reykjavíkur- deildarinnar á Öldugötu 4 á skrif- stófútíma. Á námskeiðinu verður m.a. kennd endurlífgun, stöðvun blæð- inga og margt fleira. Reynt verður að heimfæra hjálpina á aðstæður í byggð og óbyggð. Myndatökur frá kr. 6.500,- út októbermánuð, ölium tökum fylgja tvær prufustækkarnir 20x25 cm. Ljósmyndastofan Mynd sími 5 42 07 Ljósmyndastofa Kópavogs sími 4 30 20 ver, skrifstofu og setustofu. Nú vantar aðeins skilrúm (sem eru dýr) upp' á að veruleikinn samsvari teikningunni sem dregin var upp af fyrirhugaðri aðstöðu fyrir nokkr- um árum. Meira að segja flygillinn er þegar staðreynd. Opnun FT Félagsheimili tónlistarmanna var opnað með viðhöfn 24. okt. 1987, á fyrsta íslenska tónlistardeginum að viðstöddum fjölda góðra gesta, m.a. þáverandi og þá fyrrverandi menntamálaráðherra, sem áttu það sameiginlegt að hafa hvatt stjórnar- menn FT til að halda áfram með uppbyggingu félagsheimilisins í trausti þess að framlög úr félags- heimilasjóði væru á, næsta leiti. Þrátt fýrir góð orð hefui' lítið gerst og í dag er staðan sú að FT á inni umtalsverða Ijárhæð í félagsheim- ilasjóði sem hefur ekki getað staðið við skuldbindingar sínar sökum fjársveltis. Ekki bætir úr skák að inneign í sjóðnum er ekki verð- tryggð né ber vexti svo hún rýrnar hratt og örugglega. Gott væri fyrir fyrirtæki og einstaklinga að fá að skulda ríkinu á sömu kjörum. Þar sem núverandi menntamála- ráðherra og íjármálaráðherra hafa báðir lagt á það áherslu að vilja frekar reyna að efna þau loforð og skuldbindingar sem safnast hafa upp í tíð forvera þeirra, heldur en stofna til nýrra, er stjórn FT von- góð um að eftir margra ára bið sé röðin nú komin að Félagsheimili tónlistarmanna. 10 ára afmæli „litla draumsins" myndi þá breytast í sigurhátíð. FT - staðan í dag Eitt mesta vandamálið sem við hefur verið að glíma (utan fjár- skorts) frá opnun FT hefur verið óskyld starfsemi á 1. og 2. hæð í sama húsi. Sú starfsemi hefur ekki átt samleið með rekstri FT og hefur staðið í vegi fyrir nauðsynlegum úrbótum á útliti hússins og sam- eign, en hvoru tveggja virkar afar fráhrindandi á fólk og hefur staðið FT mjög fyrir þrifum. I vor gerðust hins vegar þau gleðitíðindi að nýir aðilar gerðu 10 ára leigusamning við eigendur 1. og 2. hæðar í þeim tilgangi að koma upp stað þar sem hvers konar lifandi tónlistarflutn- ingur verður í öndvegi. Hugmyndin er sú að koma upp tónlistarkrá á 1. hæð, en á 2. hæð verði aðstaða til tónleikahalds í 250 manna sal með veitingaaðstöðu, upptökumöguleikum og aðstöðu til beinna útsendinga á vegum út- varpsstöðva. Nú er unnið af fullum krafti við að hanna hæðirnar og innan skamms heljast framkvæmd- ir við breytingar á útliti hússins og aðkomu. Happdrætti FT - dregið 23. okt. ’89 Þegar stjórn FT fékk upplýsingar Úr sal Félagsheiniilis tónlistarmanna. um hvað stæði til á 1. og 2. hæð fylltist hún bjartsýni að nýju, því hún sá í hendi sér að með jiessum breytingum yrðu forsendur fyrir rekstri FT allt aðrar og betri. Því var ákveðið að bretta upp ermarnar og freista þess að koma fjármálum félagsheimilisins á réttan kjöl með því að efna til skyndihappdrættis. I happdrættinu átti að draga 18. júní sl., en ákveðið var að fresta drætti til 23. okt. nk. m.a. vegna þess að fólk ruglaði almennt saman happdrætti Samtaka um byggingu tónlistarhúss og happdrætti FT með þeim afleiðingum að illa gekk að selja miða FT. Happdrætti FT var svo aftur komið af stað á íslensku dögum í Miklagarði og Kaupstað í Mjódd, en þar komu tónlistarmenn fram á vegum FT í tengslum við sölu happ- drættismiða með góðum árangri. Nú verður haldið sleitulaust áfram og er mikið lokaátak í undir- búningi til að selja það sem eftir er af upplaginu sem er aðeins 5.000 miðar. Áðalvinningur í happdrætt- inu er Skoda Favorit 1990 að verð- mæti kr. 435.000 og ferðavinningur frá ferðaskrifstofunni Atlantik að verðmæti kr. 75.000, en auk þess er fjöldi annarra vinninga í boði. Heildarverðmæti vinninga er um 1.000.000. Miðinn kostar kr. 1000. Það er einlæg von stjórnar FT, en í henni sitja Bjarni Marteinsson formaður og Stefán Edelstein, Jó- hann G. Jóhannsson, Wolfgang Stross og Þorkell Sigurbjörnsson, að tónlistarmenn, samtök og félög tónlistarmanna og allt áhugafólk um íslenskt tónlistarlíf sameinist nú í hressilegu lokaátaki um að koma „litla draumnum" endanlega í höfn á 10 ára afmælinu. Þeir aðilar sem vilja verða að liði geta haft samband við form. FT, Bjarna Marteinsson, Arkitektastof- unni við Austuivöll, Stefán Edel- stein, Tónmenntaskóla Reykjavíkur og Jóhann G. Jóhannsson í síma 21461. Höfúndur er tónlistar- og myndlistarmaður. íbúðarhótelið Oasis, vetrardvalarstaður í Mallorkasól. Tómstundanámskeið og vetrardvöl eldri borgara á Mallorka Hœgt er að velja um 2, 3 eða 5 mánuði í sólinni Spœnska - enska - myndlist - tréskurður - bókband - Ijósmyndun - postulínsmálun - fatahönnun - handprjón - matreiðsla - minjagripagerð - dans og bridge námskeið. í framhaldi af vinsælli vetrardvöl margra eldri borgara á Mallorka síðastliðinn vetur, verður nú í fyrsta sinn efnt til vetrardvalar þar sem starfrækt verða fjölbreytt tóm- stundanámskeið. Kennsla fer fram í tvo tíma í senn, og verða einstakar valgreinar teknar fyrir ýmist tvo eða þrjá daga vikunnar. Hægt er að velja um námsgreinar jafnt til fróð- leiks, gagns og skemmtunar, þann- ig að allir ættu að geta fundið eitt- hvað við sitt hæfi. 1 tungumálum er hægt að velja um spænsku og ensku auk þess sem kennd er menn- ingar- og listasaga miðjarðarhafs- landanna. í tómstundagreinum er meðal annars hægt að velja um myndlist, tréskurð, bókband, ljós- myndun, postulínsmálun, teiknun, fatahönnun, handprjón, mat- reiðslu og bridgenámskeið. Vetrardvöl á hóteli með fœði eða í 2ja herbergja vel búnum íbúðum Vetrardvalargestir geta valið að dvelja á góðu hóteli miðsvæðis í höfuðborginni Palma, þar sem innifalið er morgunverðarhlaðborð og margréttaður kvöldverður. Rúmgóðar setustofur og sjón- varpsherbergi eru á götuhæð, auk veitingastaða, bjórstofa og salar- kynna þar sem dansað er flest kvöld. í stórum garði hótelsins eru tún, sígræn tré og stór sundlaug þar sem hótelgestir eiga kost á að taka þátt í morgunleikfimi. Auk alls þessa eru í hótelinu verslun og læknastofa. Vetrardvalargestir eiga þess einn- ig kost að búa á glæsilegu íbúða- hóteli með gestamóttöku og full- kominni hótelþjónustu. Þar eru veitingasalir, barir, setustofur, sjónvarps- og spilaherbergi og 9000 m2 garður með risastórum útisund- laugum. Einnig er stór upphituð innisundlaug. Ibúðunum cr skipt í svefnherbergi og stofu sem er með fullbúinni eldunaraðstöðu og eru sólsvalir út af báðum herbergjum. Appelsínuuppskera í janúarl Þeir sem taka þátt í vetrarsól með tómstundanámskeiði fara til Mallorka með beinu Ieiguflugi 28. október eða 3. janúar og koma aftur 20. desember eða 6. apríl. Þá verður sérstök jólaferð 20. desem- ber til 3. janúar. Vetrarveðrið á Mallorka er ákaflega milt og nota- legt. Þar ríkja yfirleitt hlýir suð- lægir vindar frá nálægum Afríku- ströndum og Sahara, enda byrjar appelsínuuppskeran í janúar. Mallorka var orðin vetrarparadís rika fólksins í Evrópu fyrir meira en 150 árum þegar Jónas Hall- grímsson var upp á sitt besta og tónskáldið Chopin dvaldi þar og gaf Mallorka nafnið „paradís á jörð“. Kostar minna en að búa heima hjá sér Verðið á vetrardvalarferðunum er mjög hagstætt vegna góðra samninga. Með flugferðum, dval- arkostnaði, fararstjórn og heilsu- gæslu kostar vetrardvölin frá kr. 1190.- á dag i íbúð og frá kr. 1460.- á dag á hóteli með fæði (gengi 26/4 ’89 — 5 mán.). Hægt er að greiða vetrardvöiina með tryggingabótum ellilífeyrisþega í gegnum banka. Fulltrúar frá Félagi eldri borgara hafa skoðað alla þá aðstöðu sem boðið er upp á á Mallorka. Islensk fararstjórn — Heilsugæsla — Stórt íslenskt bókasafn Allir vetrardvalargestir njóta þjónustu þar sem trúnaðarlæknir og íslenskur hjúkrunarfræðingur annast heilsugæslu. Á staðnum er stórt islenskt bókasafn auk þess sem íslensku blöðin liggja frammi. Á skemmti- og spilakvöldum eru ís- lensku fréttirnar sýndar öðru hvoru ásamt öðru efni á mynd- snældum. Þá gefst kostur á þátt- töku i fjölbreyttum skemmti- og skoðunarferðum m.a. til Madrid, Barcelona, Andorra og Rómar. Nánari upplýsingar um vetrar- dvölina og tómstundanámskeið eldri borgara á Mallorka veitir Sig- rún í síma 91-15331 eða Guðríður °g Ægir á skrifstofu Félags 'eldri borgara i síma 91-28812.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.