Morgunblaðið - 03.10.1989, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 03.10.1989, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3, OKTÓBER. 1989 Að velja sér sjónarsvið eftirBjörn S. Stefánsson Þegar erlendir öryggismálasér- fræðingar koma til að kynna sér örygismál landsins spyija þeir fyrst hvernig þjóðin sé stödd með eigin fæðu í þrengingum. Svo hefur sagt mér starfsmaður öryggismála- nefndar alþingis. Vegna hnattstöðu landsins er ekki nema von, að slík spurning sé efst í huga þeirra, enda á varla nokkurt ríki eins langt að sækja aðföng og ísland. Annars eru slík mál ekki verkefni öryggis- málanefndar, heldur athuganir og kynning á hervörnum og vígbúnaði. Lester Brown, forstöðumaður rannsóknarstofnunarinnar World- watch Institute í Washington lét þau boð út ganga á útmánuðum síðastliðinn vetur, að þurrkar í vor og sumar í Norður-Ameríku munu leiða til þess að Bandaríkin yrðu ekki aflögufær með korn. Afíeið- ingarnar yrðu alvarlegar fyrir þau meira en 100 lönd sem kaupa korn frá BNA. Þegar svo stæði á gæti kornverð þre- eða fjórfaldazt, en það hristi grunnviði heimsbúskap- arins og ylli einstökum óróa í heim- inum. Brown lét þess getið, að þá nægðu kornbirgðir heimsins ein- ungis til 60 daga, að kornuppskera í heiminum hefði dregizt saman um 14% síðan 1984 og að kreppa vegna „Þeir sem ætla sér mik- inn hlut og ábyrgð varðandi öryggi þjóðar- innar hljóta fyrst af öllu að gera grein fyrir hvernig tryggja skuli fæðuöflun þjóðarinnar í þrenginum.“ umhverfisspjalla og matarskorts ógnaði mannkyninu og krefðist við- bragða eins og ófriður væri. í fyrra urðu miklir þurrkar í BNA og uppskerubrestur. Það kom þá í veg fyrir vandræði að kornbirgðir voru nægar frá árinu 1987, en þær gegnu upp. Nú fór svo að ekki urðu jafnmiklir þurrkar og ekki uppskerubrestur. Við sem höfum þetta sjónarsvið um fæðuöflun í heiminum eigum ekki auðvelt með að taka þátt í fyrirferðarmikilli fjölmiðlaumræðu um verð á innfluttum matvælum, þar sem viðhorfið virðist vera það að kaup á erlendum matvælum séu eins örugg og auðveld og að skreppa í næstu búð. Við teljum slíkt viðhorf þröngt, og við þröngsýnt fólk er erfitt að ræða. Við Ólafur Ólafsson landlæknir birtum greinargerð í blaðinu 20. júlí sl. um fæðuöflun á þrenginga- tímum. Við bentum á að stjórnvöld hefðu vanrækt fyrirmæli laga í þessum efnum, þ.e.a.s. hagvarna- ráð fyrirmæli laga um almanna- varnir og Framleiðsluráð land- búnaðarins ákvæði í búvörulögum. Við reifuðum þar í hveiju styrkur þjóðarinnar og veikleiki væri fólg- inn. Því tek ég þetta mál upp nú, að Samband ungra sjálfstæðismanna ályktaði um aukna þátttöku íslands í vörnum landsins á þingi sínu í sumar (Mbl. 23. f.m.). Ennfremur ályktuðu þeir um fijálsari verzlun með landbúnaðarafurðir miili ríkja. Ég sé hins vegar ekki að þeir hafi vikið að þessu grundvallaröryggi þjóðarinnar, því öryggi sem aðrar þjóðir hafa ekki ábyrgzt þjóðinni. Við því er að búast að slík sam- tök vilji aimennt vinna að fijálsari milliríkjaverzlun. Hitt er jafnvíst að öryggi þjóðar verður ekki tryggt með lögmálum fijálsra viðskipta, hvorki varnir hennar né viðbúnað- ur. Þeir sem ætla sér mikinn hlut og ábyrgð varðandi öryggi þjóðar- innar hljóta fyrst af öliu að gera grein fyrir hvernig tryggja skuli fæðuöflun þjóðarinnar í þrengin- um. Það væri glæframennska að láta það undir höfuð leggjast. Höfundur er dr.scient. og stundar þjóðfélagsrannsóknir. Þýskur kostagripur: Ryðvarið hástyrksstál í yfirbyggingu Um endinguna þarf ekki að efast, Hvíslandi hljóðlátur á ferð % Ákaflega sparneytinn Unaðslegur í akstri # Listrænn í útliti ■ 8 f . •••"« SIEMENS -gæði STÓRGLÆSILEG NÝ ÞVOTTAVÉL FRÁ SIEMENS! Enn á ný ryður Siemens brautina í þróun og hönnun heimilistækja. í þetta skiptið með nýrri þvottavél, sem slegið hefur í gegn og mun vafalaust verða öðrum þvottavélaframleið- endum fyrirmynd, því að hér er á ferðinni sannkölluð tímamótavél í hönnun og notkun tölvustýribúnaðar, sem býður upp á nýja og betri þvottaaðferð en áður hefur þekkst. Mikil fjölbreytni.í þvottakerfum, þeytivinding í áföngum og þrír mismunandi vinduhraðar skapa nánast óendanlegt svigrúm fyrir allan þvott, sérhvert óhreinindastig hans og þann hámarkshita sem hann þolir. Sjálfvirkur magnskynjari skammtar vatn inn á vélina í samrærrii við magn og gerð þvottar og það kerfi sem er [ gangi og aðlagar þannig vatnsnotkunina sjálfkrafa því sem þvegið er. Sérþróuð þvottatromla með þremur áföstum vatns- hripum heldur vatninu á stöðugri hreyfingu og tryggir þannig jafnt gegnumstreymi á vatni um þvottinn. Þessi nýjung sér til þess að þvotturinn fær bestu hugsanlegu meðhöndlun. SIWAMAT PLUS 4200 uppfyllir allar ítrustu kröfur og óskir sem gerðar eru til þvottavéla nú á dögum. Hún er mjög þægileg í notkun með aðgengilegt, upplýst stjórnborð. (tarlegur leiðarvísir á íslensku og greinargóð tafla yfir öll möguleg þvottakerfi vélarinnar fylgja með. Þær miklu gæðakröfur sem gerðar voru við þróun hennar og framleiðslu tryggja auk þess auðvelt viðhald og langa endingu. Gæði á gæði ofan frá SIEMENS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.