Morgunblaðið - 03.10.1989, Qupperneq 48
48
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. OKTÓBER 1989
Viðskiptatækni
Viöskiptaskólinn
Borgartúni 24, sími 62 66 55
HVERVANN?
TVÖFALDUR POTTUR
- næsta laugardag!
Vinningsröðin 30. september:
1X1-121-XX1-XX1
Heildarvinningsupphæð: 509.243 kr.
12 réttir = 356.472 kr.
Engin(n) var meö 12 rétta - og því er tvöfaldur pottur núna!
11 réttir = 152.771 kr.
19 voru með 11 rétta - og fær hver 8.040 kr. í sinn hlut.
fclk í
fréttum
TÓNLIST
Paul McCartney leggur land undir fót
Reuter
Paul McCartney tekur lagið í Drammen í Noregi. Tónleikarnir þóttu
framúrskarandi góðir og kváðu viðstaddir það lyginni líkast að
McCartney væri orðinn 47 ára. Af myndinni verður ekki annað ráð-
ið en að McCartney hafí endanlega lagt Höfher-fiðlubassanum og
tekið nútímalegri tól í þjónustu sína.
Bítilmennið heimsfræga Paul
McCartney er þessa dagana á
miklu tónleikaferðalagi um gjör-
valla heimsbyggðina. Er þetta í
fyrsta skipti í heil 13 ár sem
McCartney leggur land undir fót
og skemmtir aðdáendum sínum
með lúðrablæstri og söng.
Tónleikaferðin hófst í síðustu
viku í Noregi, nánar tiltekið í
Drammen eigi alllangt frá höfuð-
borginni Ósló. Sex þúsund manns
mættu á tónleikana og vakti það
athygli að unglingar jafnt sem
miðaldra aðdáendur McCartneys
þyrptust á staðinn til að beija
goðið augum. Viðtökurnar voru
mjög góðar og ekki spillti fyrir að
13 þeirra 27 laga sem McCartney
lék á tónleikunum voru frá
Bítlatímabilinu. Lög þessi eru
mörg hver löngu sígild en undir
tók í höllinni er McCartney söng
„Let It Be“, „Yesterday" og „Hey
Jude“. Nokkrir lýstu þó vonbrigð-
um sínum vegna þess að hljóm-
sveitin lét ógert að leika „Nor-
wegian Wood“. Aðrir bentu á að
mörg Bítlalögin hefðu aldrei áður
verið flutt á tónleikum en Bítlarn-
ir hættu að leika opinberlega árið
1966. Lög af nýjustu plötu
McCartneys „Flowers of Dirt“
hljómuðu einnig vel að sögn við-
staddra en platan þykir sú besta
sem McCartney hefur sent frá sér
í mörg ár.
Fimm undirleikarar eru með í
för en eiginkona McCartneys,
Linda, leikur á hljómborð. Á tón-
leikunum lék McCartney á gítar
og hljómborð auk bassans sem
hefur allt frá upphafi frægðarfer-
ilsins með Bítlunum verið aðal-
hljóðfæri hans.
Frá Noregi héldu Paul McCart-
ney og hljómsveit hans yfir til
Svíþjóðar en þau hyggjast einnig
heiðra Vestur-Þjóðveija, Frakka,
ítali, Hollendinga og Breta með
nærveru sinni. A næsta ári er för-
inni heitið til Austurlanda og
Bandaríkjanna auk Suður-
Ameríku.
SMITH & NORLAND
NÓATÚNI 4 • SÍMI 28300
SKILNAÐARMÁL
Goldie deilir um forræði
barna sinna við fyrrum
eiginmann
Leikkonan góðkunna Goldie
Hawn á nú í harðri baráttu um
forræði tveggja bama sinna. And-
stæðingurinn er fyrmm eiginmaður
hennar Bill Hudson, en sex ára
hjónabandi þeirra lauk árið 1982.
Þau áttu saman Oliver sem nú er
12 ára og Kate sem er 10 ára. Við
skilnaðinn samþykkti Hudson for-
ræði Goldie yfir börnunum, en hann
hafði mikil tengsl við þau sam-
kvæmt sáttmálanum. Hann mátti
hitta þau reglulega, hafa þau hjá
sér í mánuð á ári og hafa þau aðra
hvora helgi ef Goldie og bömin
væru stödd í Los Angeles eða ná-
grenni.
Nú er það svo, að Goldie og börn-
in em á ferð og flugi og búa auk
þess í Kolóradó og Hudson hefur
átt í brösum með að hafa uppi á
þeim. Auk þess svíður honum að
Goldie hefur búið um langt skeið
með leikaranum Kurt Russel og
eignast með honum eitt barn. Hud-
son er sem sé orðinn fullsaddur og
hefur stefnt fyrrum frú sinni fyrir
rétt. Krefst hann forræðis yfir börn-
unum. Mörg og stór orð hafa fallið
í deilunni, m.a. sakar Hudson Goldie
um að letja börnin til að hringja til
föður síns og auk þess reyni hún
að hindra að hann nái sambandi
við börnin. Hann hafi ekki haft
hugmynd um að hún ætlaði að
flytja frá Los Angeles þegar hann
ritaði nafn sitt á forræðisplaggið
um árið. Goldie segist aftur á móti
vita hver hin raunverulega ástæða
fyrir brölti Hudsons sé í ljósi þess
að hann hafi ekki sýnt bömum
sínum hinn minnsta áhuga allar
götur frá skilnaðinum. Þannig hafi
þá hagað til að Hudson fékk í sinn
LJÓSMYNDA-
ALBUM frá Múlalundi...
... vel geymdar verða
minningarnar
enn ánægjulegri.
Múlalundur
LU
<£>
z
5^
2
ZD
Q
Z
Œ