Morgunblaðið - 03.10.1989, Qupperneq 55

Morgunblaðið - 03.10.1989, Qupperneq 55
CSéí S390TOÍO .£ HÖ0A(IirUIlH4 OlQAJaMUOHOM MORGUNBLAÐIÐ PRIÐJUDAGUR 3. OKTÓBER 1989 Morgunblaðið/Árni Sæberg Óli Þ. Guðbjartsson, varaformaður Borgaraflokksins, í ræðustól á landsfundi flokksins um síðustu helgi. Til hægri er Júlíus Sólnes, sem kjörinn var formaður flokksins. Landsfundur Borgaraflokksins: Júlíus Sólnes var kjörínn formaður JÚLÍUS Sólnes var kjörinn formaður Borgaraflokksins á landsfúndi flokksins sem haldinn var um síðustu helgi. Hann hlaut 124 atkvæði, en Hilmar Haraldsson sem einnig gaf kost á sér í formannskjörinu hlaut 30 atkvæði. ÓIi Þ. Guðbjartsson var kjörinn varaformaður með 104 atkvæði, Ásgeir Hannes Eiríksson hlaut 49 atkvæði og Steinar Benediktsson 1 atkvæði. Guttormur Einarsson var kjörinn ritari flokks- ins með 100 atkvæði, næstur kom Brynjólfúr Jónsson með 34 atkvæði og Kristján Ingólfsson hlaut 18 atkvæði. Alls tóku 155 fúlltrúar þátt í atkvæðagreiðslu á landsfúndinum. í stjómmálaályktun Borgara- flokksins segir meðal annars að flokkurinn líti á það sem megin- verkefni við efnahagsstjóm næstu mánaða að vinna að því að ná nýjum áfanga í baráttunni við verðbólguna og skapa á þann hátt skilyrði til þess að ijúfa sjálfvirkni vísitöluvið- miðana. Flokkurinnn muni ótrauður halda áfram að beijast fyrir lækkun matvælaverðs, þannig að dregið verði úr skattlagningu ríkisins á matvæli. Þá segir að Borgaraflokk- urinn vilji afnema óþarfa höft og hömlur sem setji útflutningsverslun- inni og gjaldeyrisviðskiptum þröngar skorður, og flokkurinn vilji skapa hagstæðara rekstrarumhverfí fyrir útflutnings- og samkeppnisfyrirtæki. Samræming á verð- i tryggðum og óverð- tryggðum kjörum - segir Ásmundur Stefánsson um gagn- rýni á vaxtahækkun einkabankanna „Mér fínnst reyndar svolítið skemmtileg striðni í þessari ályktun frá Jökli á Höfn í Hornafirði, en auðvitað er málið alvarlegt. Það skiptir miklu máli að ná vöxtunum niður og við í verkalýðshreyfingunni höfúm lagt áherslu á að allar leiðir til þess verði reyndar. Eg hef offtar en einu sinni sagt að ég telji það koma fyllilega til greina að stjórnvöld gripi til beinna aðgerða til að lækka vexti, en slíkar aðgerðir verða að ná yfir allan fjármagnsmarkaðinn og þá sérstaklega til þeirra afffallavið- skipta sem tíðkast í landinu á gráa markaðnum," sagði Ásmundur Stef- ánsson, forseti AJþýðusambands íslands og formaður bankaráðs Al- Þýðubankans og Útvegsbankans, aðspurður um ályktun verkamannafé- lagsins Jökuls vegna nafnvaxtahækkunar einkabankanna um mánaða- mótin. Asmundur sagði að við vaxta- ákvarðanir yrði banki að taka mið af tvennu. Annars vegar af þeirri samkeppni sem hann ætti í við banka og aðra aðila á íjármagnsmarkaðn- um, eins og gráa markaðinn og skuldabréfasölu ríkissjóðs, og hins vegar að samræmi væri milli verð- tryggðra og óverðtryggðra kjara, bæði hvað snerti inn- og útlánshlið. Hækkun nafnvaxta nú væri til þess gerð að samræma verðtryggð og óverðtryggð kjör og væri tilkomin vegna aukinnar verðbólgu. Það væri ekki verið að hækka raunvexti á verðtryggðum kjörum sem væri meg- matriðið í þessu sambandi. Hins veg- ar væri ríkissjóður að hækka raun- vexti með skiptikjaratilboðum sínum að undanförnu, auk þess sem gefið sé í skyn skattfrelsi á skuldabréfum ríkissjóðs í 20 ár, þrátt fyrir fyrir- hugaðar breytingar á skattlagningu vaxtatekna. Aðspurður hvort það væri sam- rýmanlegt að gegna forystuhlutverki i verkalýðshreyfíngunni og að vera formaður bankaráðs einkabanka og hvort það gæti leitt til hagsmuna- árekstra, sagði Ásmundur það hugs- anlegt, en „annaðhvort verðum við að vera menn til að takast á við þann hagsmunaárekstur, sem getur falist í því að taka þátt í því sem gert er, eða við höldum okkur alveg til hliðar og höfum þar með ekki möguleika á að hafa áhrif á þróun- ina.“ Ásmundur sagði að til margra ára hefðu verið uppi kröfur um það í verkalýðshreyfingunni að hún gerði sig meira gildandi á þessu sviði. Hingað til hefði hreyfingin rekið Al- þýðubankann, sem væri lítill banki, og hefði því takmörkuð áhrif, en með þáttökunni í íslandsbanka skapaðist aðstaða til að beita sér frekar á þess- um vettvangi og það skipti mjög miklu að verkalýðshreyfíngin gegndi forystuhlutverki um hvernig staðið yrði að sameiningunni. Markmið Al- þýðusambandsins með þessu væru í fyrsta lagi að einstaklingar njóti sanngjarnra kjara í bankakerfinu, þar með talið að vaxtamunur næðist niður og kostnaðurinn við bankakerf- ið. í öðru lagi að tryggja stofnunum á vegum verkalýðshreyfingarinnar, til dæmis lífeyrissjóðunum, trausta þjónustu og í þriðja lagi að hafa nokkuð um það að segja hvaða þjón- ustu atvinnuvegimir fengju í banka- kerfinu á hveijum tíma. „Þegar leit- ast er við að uppfylla fleiri en eitt markmið í einu er auðvitað hætta á alls konar hagsmunaárekstrum. Það er eitthvað til að takast á við og það er alls ekki rangt heldur þvert á móti sjálfsagt að gagnrýni komi fram, eins og sú sem nú kemur frá Hornfirðingum," sagði Ásmundur Stefánsson. Yfírskoðunarmenn ríkisreiknings 1988: Telja ekki ástæðu til frekari afskipta Morgunblaðinu hefúr borizt efftirfarandi yfírlýsing frá yfirskoðun- armönnum ríkisreiknings 1988. Yfirlýsing þessi er til komin vegna áfengisúttektar þáverandi Qármálaráðherra, Jóns Baldvins Hanni- balssonar, og send var á einkaheimili á Ránargötu í Reykjavík. í yfirlýsingunni segir, að með því að áfengi þetta hafi verið endur- greitt á fúllu útsöluverði og hlutaðeigandi ráðherra hafi beðizt velvirðingar á mistökum sinum sé staðfest að ekki hafi verið um opinbera risnu að ræða í umræddu tilviki. Telja yfirskoðunarmenn ekki ástæðu til frekari afskipta af þessu máli af sinni hálfú. Yfirlýsingin fer hér á eftir: Yfir- skoðunarmenn ríkisreiknings 1988 rituðu ríkisendurskoðanda bréf hinn 26. september sl. og gerðu grein fyrir grunsemdum sínum varðandi 106 flöskur af áfengi sem þáverandi fjármálaráðherra pant- aði og lét senda á einkaheimili við Ránargötu í Reykjavík í maí 1988. Yfirskoðunarmenn fóru þess á leit við ríkisendurskoðanda að hann aflaði skýringa á umræddri áfengisúttekt, gerði viðeigandi ráðstafanir væri grunur um mis- notkun á rökum reistur og sæi þá jafnframt til þess að áfengið væri endurgreitt á fullu útsöluverði. Einnig var óskað eftir því að ríkis- endurskoðandi léti gagnskoða hvort um fleiri sambærileg tilvik gæti verið að ræða á síðasta ári hjá þessu ráðuneyti eða öðrum. Yfirskoðunarmönnum barst svar ríkisendurskoðanda við þessu bréfi í dag, 2. október. Þar segir: „Með bréfí, dags. 26. september sl., óskið þér eftir að ég afli skýr- inga á úttekt á 106 flöskum af áfengi, sem þáverandi fjármála- ráðherra, nú utanríkisráðherra, gerði þann 6. maí 1988. Strax og ég hafði móttekið bréf yðar ritaði ég utanríkisráðherra bréf, sem ég boðsendi honum, ásamt afriti af bréfi yðar. Utanríkisráðherra svaraði bréfi mínu samdægurs, og hafið þér fengið sent ljósrit af því svari. Þann 28. september sl. barst bréf frá utanríkisráðherra til mín og yðar þar sem hann skýrir m.a. frá því að hann hafí þann dag greitt til ÁTVR áfengisúttekt þá, er þér óskuðuð skýringa á. — Greiðslan fór fram á þann hátt er þér tölduð réttan í bréfl yðar, þ.e. á útsölu- verði í dag. — Tel ég því ekki ástæðu til frekari aðgérða af hálfu Ríkisendurskoðunar vegna um- ræddrar áfengisúttektar. Að ósk yðar fer nú fram sérstök skoðun á áfengisúttekt ráðuneyt- anna árið 1988.“ Með því að áfengi þetta hefur nú verið endurgreitt á fullu útsölu- verði og hlutaðeigandi ráðherra beðist velvirðingar á mistökum sínum er staðfest að ekki var um opinbera risnu að ræða í umræddu tilviki. Telja yfirskoðunarmenn ekki ástæðu til frekari afskipta af þessu máli af sinni hálfu. Frá því bréf yfírskoðunarmanna var skrifað hefur utanríkisráðherra sent ríkisendurskoðanda tvö bréf með skýringum sínum og er hinu síðara jafnframt beint til skoðunar- manna. Þar er m.a. farið fram á ýmsar upplýsingar um framkvæmd þessara mála á liðnum árum og varpað fram spurningum um hvemig verja megi risnufé ráð- herra. Einnig er óskað samstarfs við yfirskoðunarmenn um að móta skýrar reglur um þessa fram- kvæmd. Af þessu tilefni vilja yfirskoðun- armenn taka fram að þeir eru kjörnir af Alþingi til að yfirfara ríkisreikning ársins 1988. Þeir hafa þannig ekki til meðferðar útgjöld er stofnað hefur verið til fyrir 1988. Hlutverk yfirskoðunarmanna er ekki að setja reglur um t.a.m. meðferð risnufjár eða kaup á áfengi fyrir opinbera aðila heldur fara þeir einvörðungu með endur- skoðunar- og eftirlitshlutverk á gmndvelli gildandi laga og reglna á hveijum tíma. Það er á verksviði ríkisstjórnarinnar en ekki yfirskoð- unarmanna að setja reglur um kaup opinberra aðila á áfengi á kostnaðarverði. Um samstarf skoðunarmanna og einstakra ráð*-'^ herra í því efni getur því eðli máls- ins samkvæmt ekki orðið að ræða. Yfirskoðunarmenn geta sam- kvæmt ákvæðum stjórnarskrár, hver um sig, tveir eða allir, krafist að fá í hendur allar þær skýrslur eða skjöl sem þejm þykir þurfa í störfum sínum. Ábyrgð þeirra er síðan gagnvart Alþingi en ekki handhöfum framkvæmdavalds, sem eftirlitshlutverk þeirra beinist þvert á móti að. Þeir munu því ekki taka upp bréfaskipti við ein- staka ráðherra um störf sín eða. starfshætti. Þeim sem vilja kynna sér athugasemdir yfírskoðunar- manna fyrri ára er hins vegar bent - á að þær hafa verið birtar á Al- þingi með ríkisreikningum hvers árs fyrir sig. Aftur á móti skal rifjað upp að í bréfi yfirskoðunarmanna til ríkis- endurskoðanda er sérstaklega ósk- að eftir því að gagnskoðað verði hvort áfengiskaupaheimildir hafi verið misnotaðar í fleiri tilvikum á síðasta ári. Vinnur ríkisendurskoð- un að þeirri athugun. Yfírskoðun- armenn hafa nú einnig óskað eftir því að ríkisendurskoðun taki tiV^ athugunar önnur atriði í bréfi ut- anríkisráðherra er máli þykja skipta. I skýrslu sinni til Alþingis um endurskoðun ríkisreiknings 1988, sem væntanleg er síðar í þessum mánuði, munu yfirskoðunarmenn gera grein fyrir athugasemdum sínum við núgildandi heimildir til áfengiskaupa á kostnaðarverði, sem og við önnur atriði í ríkisreikn- ingum er ástæða þykir til að taka til meðferðar." GeirH. Haarde, Lárus Finnbogason, Sveinn L. Hálfdánarson. Ráðstefna um Fiskvinnsluskólann og fagmenntun í fiskiðnaði á íslandi Fiskiðn, fagfélag fiskiðnaðarins, boðar til ráðstefnu um Fiskvinnsluskólann og fag- menntun í fiskiðnaði. Ráðstefnan verður haldin fimmtudaginn 5. október 1989 á hótel Holiday Inn í Reykjavík. Hún mun standa frá kl. 10.00 til 16.00 með klukkustundar hléi í hádeginu. Aðgangseyrir verður kr. 500 á mann. Um 10 fyrirlesarar munu flytja erindi á ráðstefnunni um Fiskvinnsluskólann og fræðslumál fiskiðnaðins. Þeir eru: Sigurður B. Haraldsson, skólastjóri Fiskvinnsluskólans í Hafnarfirði, Hulda Arnsteinsdóttir, skólastjóri Fiskvinnsluskólans á Dalvík, Jón Þórðarson, Háskólanum á Akureyri, Ágúst Elíasson, Samtökum fiskvinnslustöðva, Guðmundur Magnússon, Háskóla íslands, Jón Gunnarsson, forstj., íslenskum gæðafiski, Kristján Loftsson, f.h. útgerða frystitogara, Stefán Ólafur Jónsson, frá menntamálaráðuneytinu, Gylfi Gautur Pétursson frá sjávarútvegsráðuneytinu, Gísli Jón Kristjánsson, formaður Fiskiðnar. Fundarstjóri verður Sverrir Guðmundsson ráðgjafi hjá lcecon. FAGFÉLAG FISKIÐNAÐA RINS

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.