Morgunblaðið - 10.10.1989, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. OKTÓBER 1989
35
Bréf SOS barna-
þorpanna sent út
ÞESSA dagana er verið að bera
bréf frá landsnefind SOS barna-
þorpanna í hús víðsvegar um
land. Þetta eru alþjóðleg sanitök
til hjálpar munaðarlausum börn-
um sem starfað hafa í rúm 40 ár
í 47 þjóðlöndum.
ísland hefur nú fengið aðild að
þessum samtökum og starfar í sam-
vinnu við dönsku samtökin í Kaup-
mannahöfn og höfuðstöðvar sam-
takanna í Vínarborg.
_ íslensku nefndina skipa Ásgeir
Johannesson, forstjóri, Garðar,
Ingvasori, hagfr., Páll Sigurjónsson,
verkfræðingur, Torfi Olafsson,
Þórdís Bachmann, blaðamaður og
Ulla Magnússon, formaður nefnd-
arinnar.
Morgunblaðið/Kári Jónsson
Séra Gunnar Hauksson sóknarprestur messar á afmæli Núpskirkju.
50 ára vígsluaftnæl-
is Núpskirkju minnst
Núpi.
NY kirkja var vígð á Núpi sunnu-
daginn 17. september árið 1939.
Fimmtíu ára vígsluafmæli hennar
bar því uppá sama mánaðar- og
vikudag.
Séra Gunnar Hauksson sóknar-
prestur messaði í tilefni afmælisins
og sóknarnefnd kirkjunnar bauð til
kaffisamsætis á eftir.
Sigurgeir Sigurðsson, þáverandi
biskup yfir íslandi vígði kirkjuna.
Áður hafði á sama stað staðið lítil
timburkirkja frá árinu 1884.
Séra Eiríkur J. Eiríksson þjónaði
hinni nýju kirkju frá vígslu og fram
til 1960, að séra Stefán Lárusson tók
við. Séra Lárus Þ. Guðmundsson
þjónaði frá 1964 til 1988. Núverandi
sóknarprestur er séra Gunnar
Hauksson, sem einnig þjónar á Þing-
eyri.
Það kom fram í máli séra Gunn-
ars að kirkjan á Núpi þjónar nú órð-
ið öllum Vestfjörðum, því í'hana
sækja börn í sumarbúðum og á ferm-
ingarbarnamótum sem haldin eru í
Héraðsskólanum.
- KJ
Fiskverð á uppboðsmörkuðum 9. október.
FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði
Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar-
verð verð verð (lestir) verð(kr.)
Þorskur 73,00 60,00 66,41 7,926 526.381
Þorskur(smár) 39,00 39,00 39,00 0,176 6.864
Ýsa . 125,00 70,00 104,15 7,638 798.048
Ýsuflök 260,00 255,00 256,25 0,156 39.975
Karfi 44,00 39,00 42,51 3,325 141.386
Ufsi 41,00 21,00 38,86 4,155 161.474
Steinbítur 80,00 73,00 75,66 3,642 274.906
Langa 40,00 35,00 38,22 1,034 39.526
Lúða 320,00 130,00 206,68 1,157 239.129
Koli 60,00 31,00 33,98 0,438 14.900
Keila 32,00 20,00 29,73 1,179 35.049
Keila(ósL) 32,00 32,00 32,00 0,510 16.320
Kolaflök 130,00 130,00 130,00 0,090 11.700
Kinnar 89,00 60,00 71,14 0,084 5.976
Gellur 300,00 300,00 300,00 0,030 9.000
Hlýri 70,00 70,00 70,00 0,299 20.990
Háfur 5,00 5,00 5,00 0,038 190
Samtals 73,52 31,888 2.344.360
í dag verður seldur bátafiskur
FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík
Þorskur(sL) 80,00 48,00 67,58 26,784 1.810.112
Þorskur(smár) 52,00 52,00 52,00 0,111 5.772
Ýsa 125,00 '90,00 108,80 10,332 1.124.131
Ýsa(undirm.) 54,00 54,00 54,00 0,131 7.074
Ýsa(1-2n.) 85,00 85,00 85,00 0,258 21.930
Lýsa 33,00 31,00 . 32,36 0,430 13.916
Karfi 35,00 34,00 34,02 7,533 250.150
Ufsi 41,00 30,00 39,79 3,896 155.006
Lúða(smá) 325,00 285,00 317,56 0,086 ‘27.310
Skarkoli 44,00 44,00 44,00 0,160 7.040
Steinbítur 77,00 58,00 62,07 0,164 10.180
Samtals 69,06 49,705 3.432.620
Selt var úr Krossnesi og netabátum. í dag verður selt úr Jóni
Baldvinssyni, Amari o.fl., ufsi 15 t., þorskur 11 t., ýsa 11 t.,
steinbítur 2 t. o.fl.
FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf.
Þorskur 96,00 35,00 67,25 30,188 2.030.167
Ýsa • 108,00 50,00 93,54 37,920 3.547.025
Karfi 43,00 26,00 37,81 8,891 336.213
Skarkoli 68,00 35,00 58,57 3,119 182.685
Skata 90,00 86,00 89,17 0,316 28.178
Sandkoli 35,00 35,00 35,00 0,380 13.300
Lýsa 20,00 20,00 20,00 0,072 1.440
Langlúra 24,00 24,00 24,00 0,134 3.216
Ufsi 40,00 15,00 38,12 12,497 476.370
Steinbítur 57,00 15,00 45,55 2,221 101.167
Langa 44,00 15,00 37,21 7,171 266.804
Lúða 300,00 150,00 215,39 0,386 83.140
Keila 30,00 10,00 19,93 12,482 248.736
Hlýri 40,00 40,00 40,00 0,039 1.560
Háfur 11,00 11,00 11,00 0,036 396
Skötuselur 108,00 108,00 108,00 0,010 1.080
Svartfugl 40,00 40,00 40,00 0,002 80
Blálanga 44,00 44,00 44,00 0,198 8.712
Samtals 63,16 116,062 7.330.269
Selt var úr Þresti KE, Víði KE, Reyni GK. Ólafi GK og Eldeyjar-
boða GK. í dag verður selt úr linu- og netabátum, um 30 t. af
þorski og ýsu.___________________________________
Svanir eftir Jón Stefánsson.
Mynd mán-
aðarins í
Listasafni
MYND októberniánaðar í Lista-
safni íslands er olíumálverkið
Svanir eftir Jón Stefánsson, sem
sýnt er á umfangsmikilli yfirlits-
sýningu málarans sem stendur i
safninu fram til 5. nvember.
Myndin er máluð árið 1935 og
var sama ár brúðargjöf íslenska
ríkisins til Ingiríðar prinsessu og
Friðriks krónprins Dana.
Ingiríður drottning hefur góð-
fúslega lánað myndina á sýning-
una. Málverkið sem' er stórt í snið-
um, 131x202 sm hangir nú í sal 1
í safninu.
Leiðsögnin „Mynd mánaðarins"
fer fram í fylgd sérfræðings á
fimmtudögum klukkan 13.30.
Aðgangur að sýningunni er
ókeypis og leiðsögnin öllum opin.
Listasafn íslands er opið alla
daga, nema mánudaga, klukkan
11-17. Veitingastofa er opin á
sama tíma.
Lögreglan leitar
vitna
LÖGREGLAN í Reykjavík óskar
eftir að hafa tal af þeim sem sáu
umferðaróhapp á Suðurlands-
braut síðastliðinn laugardag.
Kona ók bifreið sinni, af gerð-
inni Nissan Sunny, vestur Suður-
landsbraut um klukkan 11.45 á
laugardag. Þegar hún kom að
Faxafeni var bíl ekið þaðan inn á
brautina. Konan telur að bíllinn
hafi verið dökkblár, af amerískri
gerð og með fjögurra stafa R-
númer. Til að forðast árekstur
hemlaði konan, en bíll hennar lenti
á ljósastaur og skemmdist talsvert.
Ökumaður hins bílsins ók á brott
og beygði inn Álfheima. Hann er
beðinn um að hafa samband við
slysarannsóknardeild lögreglunnar
í Reykjavík, sem og aðrir þeir, sem
kunna að hafa séð óhappið.
Leiðrétting
í seinni grein Guðjóns Friðriks-
sonar sagnfræðings um Klapp-
arstíg sem birtist í Lesbók Morgun-
þlaðsins 30. september misritaðist
föðurnafn Kristins Guðnasonar.
Beðist er velvirðingar á því.
Morgunblaðið/Svemr
Bæjarins besti fiskur, Hafnar-
stræti 5.
Ameríska bókasafnið:
Afgreiðslutím-
inn lengdur
AFGREIÐSLUTÍMI Ameríska
bókasafnsins á Neshaga 16,
Reykjavík, var lengdur þann 1.
október sl. Safnið er nú opið frá
klukkan 11.30 til 18 alla virka
daga eða klukkutíma lengur en
verið hefur í sumar.
Hlutverk Ameríska bókasafnsins
er fyrst og fremst að veita íslensk-
um almenningi aðgang að hvers
kyns upplýsingum um Bandaríkin.
Mikilvægi skóla-
stefnu í náttúru-
fræðikennslu
GUNNIIILDUR Óskarsdóttir
æfingakennari flytur fyrirlestur
á vegum Rannsóknarstofnunar
uppeldis- og mennlamála er
nefiiist: Mikilvægi skólastefiiu í
náttúrufræðikennslu, í dag,
þriðjudag, kl. 16.30.
Fyrirlesturinn verður haldinn í
Kennaraskólahúsinu við Laufás-
veg. Öllum er heimill aðgangur.
(Fréttatilkynning)
Bæjarins besti
fiskur í hjarta
borgarinnar
OPNAÐUR var á dögunum veit-
ingastaðurinn Bæjarins besti
fiskur í Hafnarstræti 5.
Eins og nafnið bendir til er boð-
ið upp á fiskrétti sem ávallt eru
unnir úr ferskum fiski og fer mat-
seðill dagsins rnikið eftir því hvað
er á boðstólum af ferskum fiski
hveiju sinni. Á hveijum morgni er
hráefnið keypt fyrir veitingastað-
inn. Veitingastaðurinn er frekar
lítill en er smekklega innréttaður.
Tekur hann um þijátíu manns í
sæti.
Aðaláherslan er lögð á fiskrétti
en líka matarmiklar samlokur,
pasta og salatdiska. Staðurinn hef-
ur vínveitingaleyfi.
(Fréttatilkynning)
Athugasemd fi*á skipadeild SIS
Morgunblaðinu heíur borist
eftirfarandi _ athugasemd frá
skipadeild SÍS við frétt í Morgun-
blaðinu varðandi safiisendinga-
þjónustu skipafélaganna.
1. Sambærileg þjónusta og sú sem
um er fjallað hefur verið veitt af
Skipadeild Sambandsins um árabil
og þá byggð á ákveðnum vöruteg-
undum í hverju tilfelli, þ.e.a.s. vör-
um hefur verið safnað í gáma af
Skipadeild, öllum viðkomandi aðil-
um til hægðarauka.
2. Samkvæmt umræddri reglugerð
getur ríkistollstjóri heimilað flutn-
ingsmiðlurum skiptingu ótollaf-
greiddra safnsendinga — en samt
sem áður séu vörurnar áfrarn á
ábyrgð farmflytjenda. Þarna virðist
stangast á hagræðingar-hugmyndir
viðkomandi og ábyrgðarþáttur
farmflytjenda.
3. í tilfelli áfalla í flutningi og
mögulegra bótakrafna, tengist
verðmæti viðkomandi vöru og
ábyrgðarþáttur skipafélags á mörg-
um stöðum. Þar af leiðandi hefur
verðmæti varningsins áhrif á flutn-
ingsgjaldið í hveiju tilfelli — þ.e.
ekki er sama hvað í gámnum er —
þjónustan er byggð á tengdum
kostnaði.
4. Verulegum flárhæðum hefur
verið varið af hálfu skipafélaganna
til uppbyggingar sérhannaðra vöru-
geymslna hérlendis til aukinnar
þjónustu fyrir inn- og útflytjendur.
I umræddum hugmyndum felst
hugsanleg/væntanleg fjölgun vöru-
geymslna sem þá yrðu í höndum
fleiri aðila. Er slíkt í þágu neytenda
— lækkar það vöruverðið?
Skipadeild Sambandsins telur sig
hafa og geta veitt fyllilega sam-
keppnishæfa þjónustu og þá er um
ræðir í áðurgreindu fyi'irkomulagi.
Með samnýtingu síns alþjóða þjón-
ustunets og fyrirliggjandi tækja og
búnaðar, á að nást fram lægri heild-
arframleiðslukostnaður per einingu
en með umræddum hugmyndum.
Því til áréttingar má benda á síauk-
inn fjölda viðskiptaaðila, smárra
sem stórra, sem nýtt hafa sér al-
hliða flutningaþjónustu Skipadeild-
arinnar.
Handbók vinnustaðarins kom-
in út breytt og endurbætt
HANDBÓK vinnustaðarins er
komin út hjá Menningar- og
fræðslusambandi alþýöu í þriðja
sinn mikið breytt og endurbætt.
I bókinni er meðal annars að finna
lög sem snerta vinnustaði og rétt-
indi og skyldur launafólks og stjórn-
enda á vinnustöðum. Birtir eru
margir dómar sem varða samskipti
launafólks og atvinnurekenda. Þá
er að finna í bókinni skráyfir aðild-
arfélög Alþýðusambands Islands og
ýmsar upplýsingar um stai'f og
skipulag ASI. Sérstakir kaflar eru
meðal annars um lífeyrismál, al-
mannatiyggingar, alþjóðamál,
samningamál, málefni neytenda,
húsnæðismál og vinnuvernd.
í fréttatilkynningu frá útgefanda
í tilefni af útgáfu bókarinnar segir
ennfremur: „Handbók vinnustaðar-
ins er tvímæialaust gagnlegt og
handhægt rit fyrir starfsmenn stétt-
arfélaga, trúnaðarmenn á vinnustöð-
HANDBDK
vinnustallar'ms
um, verkstjóra, starfsmannastjóra
og aðra sem fara með mannaforráð
og alla þá sem vilja kynna sér lög
og rétt.“