Morgunblaðið - 10.10.1989, Qupperneq 57
57"
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. OKTÓBER 1989
Starfsfólkið á Le Roi Dagobert, sitjandi frá hægri eru Ingibjörg Sig-
urðardóttir og Krislján Karl Guðjónsson, eigendur hótelsins, og til
vinstri Sigurður Sumarliðason, matsveinn. Fyrir aftan standa, frá
vinstri: Guðrún Tómasdóttir, Helene Metzen, Sólveig Hallgríms-
dóttir og Guðrún Sigurjónsdóttir.
Morgunblaðið/Ól.K.M.
Le Roi Dagobert hótelið, í bænum Grevenmacher á bökkum Mósel-ár.
APASPIL
Engir
venjuleg-
ir apar
Tveir bráðskarpir simpansar,
sem verið hafa í læri í Kyoto-
háskóla í Japan í 12 ár, sluppu laus-
ir nýlega og þóttu þeir hvorki verða
sjálfum sér né kennurunum sínum
til skammar með því. Annar þeirra,
kvenapinn Ai, stal eða fann lykil,
sem gekk að þremur lásum, og
þegar færi gafst laumaðist hún
burt ásamt vini sínum, honum Ak-
ira. Aparnir fóru þó ekki langt og
hafa líklega ætlað að snúa aftur
því þegar þeir náðust var Ai með
lykilinn uppi í sér. Myndin er af
Ai en japönskum vísindamönnum
hefur tekist að kenna þeim skötu-
hjúunum táknmál og ýmislegt ann-
að merkilegt.
FESTINGARJÁRN FYRIR BURÐARVIRKI
Þ.Þ0R6R(MSS0N&C0
ÁRMÚLA29, SlMI 38640
RÁÐSTEFNAUM
GÖNGUSEI0 AFR AMLEIDSLU
Á HÓTEL SÖGU, ÁTTHAGASAL,
LAUGARDAGINN 14. OKTÓBER 1989
DAGSKRÁ:
Fundarstjóri: Ingvi Hrafn Jónsson.
9.10 Ávarp: Valdimar Friðriksson, formaður Landssam-
bands íslenskra fiskeldisfræðinga.
9.20 Árni ísaksson, veiðimálastjóri: Gönguseiði og göngu-
seiðaframleiðsla.
9.45 Jón Kristjánsson, fiskifræðingur: Gönguseiðafram-
leiðsla við hinar sérstöku íslensku aðstæður.
Titilblað biblíunnar, með áritun
Halldóru, dóttur Guðbrands bisk-
ups Þorlákssonar.
Reykhólum, systursonui' Gísla
Magnússonar, og af árituninni er
ljóst, að móðir hans hefur gefið
honum bókina. Næsta áletrun í bibl-
íunni er Ingibjargar Halldórsdóttur
á Breiðabólsstað í Vesturhópi árið
1766, dóttur Halldórs Hallssonar
prests þar. Slóð bókarinnar glatast
síðan um aldarbil, en þá komst hún
í eigu sænska fræðimannsins og
bókasafnarans Rolf Arpi. Frá
Svíþjóð fékk Eiríkur Einarsson
arkitekt bókina, en hann átti mjög
gott safn gamalla íslenskra bóka.
Kona hans, frú Helga Helgadóttir,
hefur nú selt bönkunum fjórum
bókina.
Séra Ragnar Fjalar Lárusson
hefur haft milligöngu um kaupin.
Hann sagði, að nokkrir tugir ein-
taka bókai'innar hefðu varðveist,
en nokkur væru erlendis. Biblíufé-
lagið ætti eintak af Guðbrands-
biblíu, en það væri ekki heilt. Bók
frú Helgu væri hins vegar gott,
ófúið og faliegt eintak, endurbundið
á 19. öld. Ragnar sagði að þetta
væri eflaust eina eintakið af bibli-
unni, sem Halldóra Guðbrandsdóttir
hefur áritað og varðveist hefur og
varla sé önnur bók með hennar
nafni til. Hér sé því mikil saga á
bak við mikla bók.
Biblían v.erður í geymslu fram á
næsta vor, þegar Hið íslenska
biblíufélag heldur biblíusýningu í
tilefni 175 ára afmælis félagsins.
Það er elsta starfandi félag á
landinu. Um leið verður bókin vænt-
anlega afhent félaginu formlega til
eignar.
HVERVANN?
Vinningsröðin 7. október:
112-111-111-222
Heildarvinningsupphæð: 1.001.244 kr.
12 rétlir = 807.816 kr.
4 voru með 12 rétta - og fær hver 201.953 kr. í sinn hlut.
11 réttir = 193.428 kr.
96 voru með 11 rétta - og fær hver 2.014 kr. í sinn hiut.
10.05 KAFFIHLÉ
10.25 Logi Jónsson, lífeðlisfræðingur: Gæðamat seiða til
áframeldis.
10.45 Dr. Vigfús Jóhannsson, Veiðimálastofnun: Tilraunir
með stórseiðaeldi.
11.10 Dr. Össur Skarpbéðinsson: Kynþroska hængar í seiða-
eldi.
11.30 Umræður og fyrirspurnir.
12.15 MATARHLÉ
13.20 Sigurður Helgason, fisksjúkdómafræðingur: Atriði er
varða heilbrigði gönguseiða.
13.45 Jón Stefánsson, fiskeldisfræðingur: Reynsla af seiða-
eldi síðustu ára.
14.10 Sveinbjörn Odsson, stöðvarstjóri Vogalax: Mikilvægir
þættir í framleiðslu gönguseiða.
14.35 Helgi Kjartansson, framleiðslustjóri Lindarlax: Léleg
gönguseiði - áhrif og afleiðingar þeirra í strandeldi.
15.00 KAFFIHLÉ
15.25 Finnur Garðarsson, fiskifræðingur, framkvstjóri
Strandar hf.: Reynsla af gönguseiðum til matfiskeldis.
15.45 Umræður og fyrirspurnir.
16.40 Ráðstefnu slitið. (.
16.50 Mímisbar: Léttar veitingar í boði EWOS hf.
Öllum er heimill aðgangur, en eigendur og starfsmenn
fiskeldisstöðva eru sérstaklega hvattir til að mæta.
Þátttökugjald er kr. 1.500,- lnnifalið: Skriffæri og kaffi
og meðlæti síðdegis.
Nánari upplýsingar í símum 91-22930, 91-82247 Þröst-
ur og 91-642181 Valdimar.
LAHDSSAMBAHD fSLENSKRA FISKELDISFRÍEÐINGA
RENOLD
KEÐJUR, TANNHJÓL OG ÁSTENGI
HÖGG- OG TITRINGSPÚÐAR
Drifbúnaður hvers konar og
rafmótorar eru sérgrein okkar.
Allt evrópsk gæðavara. Veitum
tæknilega ráðgjöf við val á
drifbúnaði.
Það borgar sig að
nota það besta.
Þekking Reynsla Þjónusta
(FALKINN')
SUOURLANDSBRAUT 8 SÍMI84670