Morgunblaðið - 21.10.1989, Page 1
64 SIÐUR B/LESBOK
240. tbl. 77. árg.
LAUGARDAGUR 21. OKTÓBER 1989
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Flokksræði
lokið í Ung-
verjalandi
Búdapest. The Daily Telegraph, Reuter.
ÞING Ungverjalands hefur sam-
þykkt lög sem heimila starfsemi
óliáðra stjórnmálaflokka og hefur
þar með formlega verið bundinn
endi á eins flokks kerfi í landinu.
I gær voru síðan samþykkt Iög
vegna þingkosninga sem frani
eiga að fara eigi síðar en í júní á
næsta ári. Sósíalistaílokkurinn nýi
fordæmdi í gær innrás Sovét-
manna i Ungverjaland árið 1956.
Kosningalögin voru samþykkt með
286 atkvæðum gegn 20 en 24 þing-
menn sátu hjá. Nokkrir þingmenn
lýstu sig óánægða með afgreiðslu
málsins en fulltrúar Kommúnista-
flokksins og stjórnarandstöðunnar
náðu samkomulagi um fyrirkomulag
kosninganna nú í sumar. Þótti þeim
óánægðu þingheimi hafa verið lítill
sómi sýndur með þessu.
Lög um starfsemi óháðra stjórn-
málasamtaka voru samþykkt með
miklum meirihluta atkvæða á þingi
á fimmtudag og er þetta liður í
umbótaáformum valdhafa í Ungverj-
alandi. Þann 7. þessa mánaðar sam-
þykktu ungverskir kommúnistar að
leggja flokk sinn niður og stofna
þess í stað Sósíalistaflokk Ungveija-
lands en undanfarin 32 ár hafa
kommúnistar haft öll völd í hendi sér
á þingi. Raunar hafa a.m.k. sjö af
hvetjurú tíu þingmönnum jafnan ver-
ið félagar í flokknum.
Reszo Nyers, formaður Sósíalista-
flokksins nýja, lagði til á sínum tíma
að pólitískum hópum yrði áfram leyft
að starfa í verksmiðjum og á vinnu-
stöðum og naut þessi tillaga hans
þá stuðnings meirihluta flokks-
manna. Þingmenn samþykktu hins
vegar á fimmtudag lög sem banna
starfsemi slíkra hópa.
Ungverskir þingmenn voru jafn-
framt á einu máli um réttmæti þess
að komið yrði á fót sérstökum stjórn-
lagadómi til að fylgjast með því að
valdhafar bijóti ekki gegn nýrri
stjórnarskrá landsins. Slíkur dóm-
stóll starfaði í Ungveijalandi á árun-
um milli heimsstyijaldanna tveggja
en einræðisherrann Matyas Rakosi
lét leggja hann af árið 1948.
Ungverski sósíalistaflokkurinn
lýsti yfir því í gær að félagar í flokkn-
um gætu á engan hátt talist bera
ábyrgð á innrás Sovétmanna í landið
en þar til fyrr á þessu ári voru „gagn-
byltingarmenn" jafnan sagðir hafa
verið að verki er ungversk alþýða
reis upp gegn ofríki kommúnista
árið 1956.
Morgunblaðið/Jóhannes Long
Fagur rammi um leiklistina
„Þótt húsið sjálft sé vissulega mikið og fagurt er ljóst, að það
verður aldrei annað en rammi um það starf og þá sköpun, sem á
sér stað innan veggja,“ sagði Davíð Oddsson borgarstjóri við
vígslu Borgarleikhússins í gær að viðstöddu fjölmenni, Myndin
hér að ofan var tekin við vígsluathöfnina.
Blásarakvintett tók á móti Hallmar Sigurðsson, leikhússtjóri,
gestum í anddyri hússins, en há- Baldvin Ti-yggvason, fulltrúi
tíðardagskráin hófst með ræðu borgarstjóra í leikhúsráði og Sig-
borgarstjóra. Þá töluðu þeir urður Karlsson, formaður Leik-
félags Reykjavíkur. Kammersveit
Reykjavíkur undir stjórn Guð-
mundar Ó. Guðmundssonar, flutti
nýtt tónverk eftir Atla Heimi
Sveinsson, sem sérstaklega var
samið í tilefni vígslunnar. Fjöl-
margar kveðjur bárust til Leik-
félagsins auk ávarpa, en dag-
skránni lauk með flutningi Sin-
fóníuhljómsveitar íslands og Kórs
Langholtskirkju á hátíðarverkinu
Minni Ingólfs eftir Jón Þórarins-
son, undir stjórn Páls P. Pálssonar
og Jóns Stefánssonar. Kynnir
kvöldsins var Sigríður Hagalín.
Sjá ræðu borgarstjóra á
miðopnu.
Könnunarviðræðum embættismanna EFTA og EB lokið:
Mikill vilji til frekari við-
ræðna um náið samstarf
Brusscl. Frú Kristófer M& Kristinssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
FULLTRUAR aðildarríkja
Fríverslunarbandalags Evrópu
(EFTA) og framkvæmdastjórnar
Evrópubandalagsins (EB) luku
könnunarviðræðum sinum um
svonefnt evrópskt efiiahagssvæði
Bandaríkin:
Þjóðfáninn enn í brennidepli
Washington. Reuter.
ÖLDUNGADEILD Bandaríkjaþings felldi í gær breytingartillögu
við stjórnarskrána um aukna vernd þjóðfánans. Breytingartillag-
an var Iögð fram að frumkvæði George Bush Bandaríkjaforseta
og þykja úrslit atkvæðagreiðslunnar áfall fyrir forsetann sem
gert hefur virðingu fyrir þjóðfánanum að einu af sínunt helstu
baráttumálum.
Forsaga málsins er sú að
Hæstiréttur Bandaríkjanna úr-
skurðaði í júní síðastliðnum að
maður nokkur sem kveikt hafði í
bandaríska fánanum í pólitísku
skyni hefði verið í fullum rétti til
þess arna. Vísaði hæstiréttur til
ákvæða í stjórnarskránni um mál-
frelsi.
Úrskurður hæstaréttar hleypti
af stað hörðum deilum og Bush
hvatti til breytingar á stjórnar-
skránni. Sú breyting þurfti sam-
þykki beggja þingdeilda. Þingið
hefur þess í stað samþykkt lög
um verndun fánans sem ganga
ekki jafn langt og forsetinn vill.
hér í Brussel í gær. í sameigin-
legri niðurstöðu stjórnarnefndar
viðræðnanna kemur fram mikill
vilji til frekari viðræðna með náið
samstarf og samráð að markmiði.
Samþykki ríkisstjórnir aðild-
arríkjanna tillögur embættis-
mannanna hefjast formlegar
samningaviðræður EFTA og EB á
næsta ári.
Formlegum fundi stjórnarnefnd-
anna lauk um hádegi í gær en eftir
hann var ákveðið að freista þess að
ná samkomulagi um sameiginlega
niðurstöðu viðræðnanna, sem hófust
í mars síðastliðnum. Tókst það eftir
þriggja klukkustunda fund. Þykir
það benda til ótvíræðari vilja til sam-
komulags en menn höfðu vænst.
Á blaðamannafundi fulltrúa EFTA
og EB kom fram, að helstu fyrirvar-
ar í niðurstöðunum varða búsetu- og
atvinnufrelsi, ljármagnsflutning og
landbúnaðar- og fiskveiðistefnu EB.
Hansjörg Renk, talsmaður EFTA,
sagði að fríverslun með fisk hlyti í
framtíðinni að verða hluti hins evr-
ópska efnahagssvæðis. Ýmis málefni
eru enn óafgreidd, svo sem aðild og
áhrif EFTA á ákvarðanir innan EB
og lögsaga EB-dómstólsins.
EFTA-ráðherrar fjalla um þessar
niðurstöður könnunai'viðræðnanna á
fundi sem haldinn verður undir for-
sæti Jóns Baldvins Hannibalssonar,
utanríkisráðherra, í Genf 27. október
næstkomandi. Afstaða ríkisstjórna
EB verður mótuð á leiðtogafundi
bandalagsins í Strassborg í desem-
ber, en Francois Mitterrand, Frakk-
landsforseti, kemur tii fundar við
íslerísk stjórnvöld í Reykjavík 7. nóv-
ember. Endaleg ákvörðun um fram-
haldið á að liggja fyrir eftir sameigin-
legan ráðherrafund EB og EFTA í
Brussel eða Strassborg 19. desember
næstkomandi.