Morgunblaðið - 21.10.1989, Blaðsíða 4
MORÓutóBLÁÖro i,ACGÁáÉ)A’Gtfu '21. ‘ókírÖBEÍi íðb.1
Háskólaráð andmælir ráðstöfiin ^árveitingarvaldsins á sjálfeaflafé HÍ:
Lög um eignarskattsauka vegna
byggingarinnar þverbrotin
HÁSKÓLARÁÐ samþykkti á fundi sínum á fimmtudag ályktun, þar sem
eindregið er andmælt þeirri ráðagerð að Qárveitingarvaldið ráðstafi
sjálfsaflafé Háskóla íslands, svo sem gert sé ráð fyrir í íjárlagafrum-
varpi fyrir næsta ár. Sérstaklega andmælir ráðið því að 60 milljónir
af tekjum Happdrættis Háskóla Islands renni til framkvæmda við Þjóð-
arbókhlöðu á næsta ári, en einnig því að 15 milljónum skuli varið til
bóka- og timaritakaupa Háskólabókasafhs, sem hingað til liafi verið
kostuð af ríkissjóði, og að 12,5 milljónir skuli renna til tækjakaupa
stofnana, sem hafí sjálfstæðan fjárhag og óháðan HÍ.
Vigdís kaupir fyrsta K-lykilinn
Kiwanisfélagar selja um helgina K-lykla um land allt til hjálp-
ar geðsjúkum, undir kjörorðinu „Gleymum ekki geðsjúkum“.
Takmark þeirra er að selja 65 þúsund lykla og nota peningana
til að kaupa vernduð vernduð sambýli fyrir geðsjúka, sem eru á
leið út í lífið að lokinni endurhæfingu. Vigdís Finnbogadóttir,
forseti íslands, keypti fyrsta K-lykilinn og á myndinni tekur hún
við honum úr hendi Jóns K. Ólafssonar, formanns K-dagsnefhdar
Kiwanis. Vinstra megin er Bragi Stefánsson, fráfarandi umdæmis-
forseti Kiwanisumdæmisins á Islandi.
VEÐUR
Háskólaráð vekur athygli á því að
aldrei hafi verið gert ráð fyrir öðru
en að kostnaður við Þjóðarbókhlöðu
yrði greiddur úr ríkissjóði. Fram-
kvæmdir við bygginguna hafi sótzt
seint vegna féleysis, og hafí því á
það ráð verið brugðið að afla fjár
með lögum um sérstakan eignar-
skatt, sem lagður skyldi á 1987,
1988 og 1989, sem renna skyldi
óskiptur til byggingarsjóðs bókhlöð-
unnar. „Reyndin er þó sú að fjarri
fer að lögum þessum hafí verið fylgt
— þau hafa verið þverbrotin," segir
í áiyktun Háskólaráðs.
Ráðið vitnar í ýmis lög máli sínu
til stuðnings. í ályktuninni segir að
með lögum frá þessu ári um Þjóðar-
IDAG kl. 12.00:
Heimild: Veðurstofa Islands
(Byggt á veðurspá kl. 16.15 i gær)
VEÐURHORFUR I DAG, 21. OKTOBER:
YFIRLIT í GÆR: Um 500 km suður af Vestmannaeyjum er hæg-
fara 955 mb lægð en 1015 mb hæð er yfir Grænlandi. Heldur kólnar
í veðri norðvestantil á landinu.
SPÁ: Hvöss norðanátt með slydduéljum vestanlands, en hægari
noröaustan- og austanátt í öðrum landshlutum.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á SUNNUDAG OG MÁNUDAG:Norðan- og norðaustan-
átt, stinningskaldi eða allhvass. Skúrir eða siydduél um norðanvert
landið en bjartviðri sunnanlands. Hiti 2—5 stig.
TAKN:
Heiðskírt
y, Norðan, 4 vindstig:
* Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
* / *
/ * / * Slydda
/ * /
# * *
* * * * Snjókoma
■J0 Hitastig:
10 gráður á Celsius
SJ Skúrir
*
V E1
— Þoka
= Þokumóða
’ , ’ Súld
OO Mistur
—J- Skafrenningur
Þrumuveður
m VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að ísl. tfma hiti veður Akureyri 5 rigning Reykjavík 7 súld
Bergen 16 alskýjað
Helsinki 10 þokumóða
Kaupmannah. 13 þokumóða
Narssarssuaq +6 þokuruðningur
Nuuk +2 snjókoma
Osló 11 súld
Stokkhólmur 13 þokumóða
ÞórshÖfn 10 skýjað
Algarve 22 skýjað
Amsterdam 14 skúr
Barcelona 22 skýjað
Berlín 17 mistur
Chicago 2 snjókoma
Feneyjar 14 þokumóða
Frankfurt 13 rigning
Glasgow 10 skúr
Hamborg 13 rigning
Las Palmas 26 heiðskírt
London 15 hálfskýjað
Los Angeles 19 alskýjað
Lúxemborg 13 skýjað
Madrid 15 mistur
Malaga 23 skýjað
Mallorca 24 skýjað
Montreal 5 skúr
New York 17 skúr
Orlando 8 léttskýjað
París 16 skýjað
Róm 18 hálfskýjað
Vín 12 mistur
Washington 12 skúr
Winnipeg *5 heiðskírt
bókhlöðu og endurbætur menningar-
bygginga sé framangreind stefna
áréttuð; að myndaður skuli sjóður
sem varið skuli til að standa straum
af kostnaði við endurbætur á húsa-
kosti menningarstofnana og stuðla
að vemdun gamalla bygginga. í upp-
hafí skuli þó veija sjóðnum til þess
að ljúka byggingu Þjóðarbókhlöð-
unnar. Meðal tekna sjóðsins sé gert
ráð fyrir sérstökum eignarskatti og
framlagi úr ríkissjóði samkvæmt
fjárlögum hveiju sinni. í ákvæði til
bráðabirgða sé tekið fram að þar til
byggingu Þjóðarbókhlöðu sé lokið
skuli sérstakur eignarskattur sam-
kvæmt lögunum renna til hennar
eftjr því sem þörf krefji.
, í lögum frá 1973 sé Háskólanum
veitt einkaleyfi til rekstrar happ-
drættis, með tilteknum skilyrðum.
Meðal þeirra sé að ágóða skuli varið
til að reisa byggingar „á vegum
Háskóla íslands." í lögum frá 1969
um Landsbókasafn íslands sé gert
ráð fyrir því að Háskóli íslands varð-
veiti Háskólabókasafn í Landsbóka-
safni undir yfírstjóm landsbókavarð-
ar er ný Þjóðarbókhlaða skapi skil-
yrði til þess, jafnframt því sem stofn-
anir Háskólans hafi söfn í sinni
vörzlu. „Er af þessu ljóst að Þjóðar-
bókhlöðubyggingin er ekki reist „á
vegum“ Háskólans í þeim skilningi,
sem gert er ráð fyrir í lögum um
happdrætti Háskólans," segir í álykt-
uninni. „Ályktanir Alþingis og fram-
angreind lög um eignarskattsauka
sýna ennfremur ótvírætt að ætlun
löggjafans hefur ekki verið sú að
Þjóðarbókhlöðubyggingin væri ko-
stuð af eigin aflafé Háskólans.“
Háskólaráð segir að framkvæmd-
afé Háskólans sé nú eingöngu hagn-
aður af HHÍ. Happdrættið hafi notið
slíkrar velvildar almennings að flest-
ar byggingar skólans hafí risið fyrir
framiög hans, sem sé einsdæmi um
ríkisháskóla. „Ef ráðamönnum tekst
að draga þetta fé inn í ríkissjóð og
ráðstafa því að eigin vild — að gera
happdrætti Háskólans í reynd að
ríkishappdrætti — er hætta á að það
glati þeirri velvild og tiltrú sem það
hefur notið meðal almennings í
landinu," segir Háskólaráð og áréttar
í lokin að fyrirætlan sú, sem lýst sé
í fjárlagafrumvarpinu, sé atlaga að
sjálfstæði Háskólans. „Háskólaráð
heitir á þingmenn að hrinda þessari
atlögu og treystir á stuðning allra
landsmanna," ályktar ráðið að lok-
um.
Vetrarfundur orkuveitusambandanna:
Mótniæli vegna dráttar
á útgáfu reglugerðar
„í GREINARGERÐ í frumvarpi til
laga um virðisaukaskatt kom
skýrt fram að eyða skuli áhrifum
skattsins á upphitunarkostnað
íbúðarhúsnæðis. Orkuveitusam-
böndin telja brýnt að svo verði
gert,“ segir í ályktun sem sam-
þykkt var á sameiginlegum vetr-
arfúndi Sambands íslenskra hita-
veitna og Sambands islenskra raf-
veitna, sem haldinn var á Hótel
Loftleiðum síðastliðinn fimmtudag
og iostudag. í ályktuninni segir
einnig að fundurinn mótmæli
harðlega þeim drætti sem orðið
hafi á útgáfú reglugerða um virð-
isaukaskatt.
„Trúlega er allt að fjórfaldur mis-
munur á kostnaði við húshitun og
hann er mun meiri en á raforku-
verði,“ sagði Ingólfur Hrólfsson, for-
maður Sambands íslenskra hita-
veitna, í samtali við Morgunblaðið.
„Það þarf margt að gera til að
hægt verði að innheimta virðisauka-
skatt um næstu áramót, ég tala nú
ekki um ef staðið verður við það
fyrirheit í greinargerð með frumvarpi
um skattinn að eyða áhrifum hans á
upphitunarkostnað íbúðarhúsnæðis.
Til dæmis yrði mikil vinna að að-
skilja íbúðar- og atvinnuhúsnæði,
sérstaklega hjá hitaveitum, og víða
þyrfti að breyta innheimtuforritum,"
sagði Ingólfur.
Hafiiargörður:
Ekið á stúlku
á gangbraut
12 ÁRA gömul stúlka lærbrotn-
aði illa þegar ekið var á hana á
gangbraut á Hjallabraut í Hafn-
arfirði á fimmtudagsmorgun.
Stúlkan var á leið í skóla og hjól-
aði yfir gangbraut á Hjallabraut
skammt frá Miðvangi. Okumanni
bílsins tókst ekki að hemla í tæka
tíð og er það meðal annars rakið
til hálku, að sögn lögreglunnar.
María Rögnvaldsdóttir
í Bolungarvík látin
Bolungarvík.
MARIA Rögnvaldsdóttir, elsti
íbúi Bolungarvíkurkaupstaðar,
lést í Sjúkrahúsi Bolungarvíkur
í gær á 99, aldursári.
María var fædd á Svarfhóli í
Álftafirði 13. janúar 1891 og voru
foreldrar hennar þau Kristín Guð-
mundsdóttir og Rögnvaldur Guð-
mundsson frá Uppsölum í Seyðis-
firði.
María giftist Óiafi Halldórssyni
frá Hesti í Hestsfirði, hann lést
árið 1973. María og Ólafur bjuggu
á nokkrum stöðum við Isafjarðar-
djúp til ársins 1930 er þau settust
að hér í Bolungarvík. Þau-María
og Ólafur eignuðust 15 börn þar
af sex sinnum tvíbura. 13 bama
þeirra eru enn á lífi og eru afkom-
endur þeirra hjóna nú orðnir 192.
María Rögnvaldsdóttir var vel
ern allt fram á þetta ár, hún fylgd-
ist ævinlega vel með öllu og var
María Rögnvaldsdóttir
dugleg að sækja mannafundi þá er
voru að hennar skapi. - Gunnar