Morgunblaðið - 21.10.1989, Side 16
16
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. OKTÓBER 1989
Til hluthafa
Verslunarbanka íslands hf.
Hlutafjárútboð
Á aðalfandi bankans 18. mars 1989 var
bankaráði heimilað að hækka hlutafé
félagsins um allt að 100 milljónir króna.
Bankaráð hefur nú ákveðið að nýta
þessa heimild og eiga hluthafar rétt til
áskriftar í réttu hlutfalli við hlutaíjáreign
sína, eða 19,8%.
Forgangsréttur hluthafa rennur út 25.
október nk.
Útboðsgengi hinna nýju hlutabréfa
hefur verið ákveðið 1.40 og er greiðslu-
frestur til 10. nóvember nk.
Sömu reglur gilda um hin nýju hlutabréf
og annað hlutafé í bankanum.
Áskriftarskrá mun liggja framrni á aðal-
skrifstofu bankans, Bankastræti 5, frá 25.
september til 25. október nk. að báðum
dögum meðtöldum og verður hluthöf-
um jafnframt send áskriftarskrá.
Reykjavík, 19. september 1989.
VERSLUNARBANKI ÍSLANDS HF.
V6RSLUNRRBRNKINN
-uituuvi með fién !
Leiðrétting vegna athuga-
semdar forsætisráðuneytisins
við „utandagskrárumræðu“
eftir Pálma Jónsson
í Morgunblaðinu í gær birtast
athugasemdir Guðmundar Bene-
diktssonar, ráðuneytisstjóra i for-
sætisráðuneytinu, við orð mín í
umræðum utan dagskrár á Alþingi
sl. mánudag. Athugasemdir ráðu-
neytisstjórans lúta að því, að ég
hafi talið tvo starfsmenn ráðuneyt-
isins ráðna án heimilda, þ.e.a.s.
starfsmann, sem ráðinn var í stað
Magnúsar Torfa Ólafssonar og er
nú titlaður skrifstofustjóri, og
efnahagsráðgjafa forsætisráð-
herra.
Skemmst er af því að segja að
hvergi í ræðu minni kemur það
fram sem mín skoðun, að þessir
tveir starfsmenn hafi verið ráðnir
án heimilda. Athugasemdir ráðu-
neytisins eru því byggðar á mis-
skilningi, enda vissi ég ekki til að
sá mæti maður, Guðmundur Bene-
diktsson, hefði verið viðstaddur
umræðuna.
I hinni tilvitnuðu ræðu sagði ég
eftirfarandi:
„A síðustu árum hefur gætt
vaxandi tilhneigingar til 4>ess hjá
einstökum ráðherrum að snið-
ganga reglugerð um Stjórnarráð
Islands og ráða fleiri pólitíska að-
stoðarmenn til starfa en reglugerð-
in heimilar. í 14. gr. reglugerðar
við iög um Stjórnarráð íslands seg-
ir svo:
„Ráðherra er heimilt að kveðja
sér til aðstoðar, meðan hann gegn-
ir embætti, mann utan ráðuneytis-
ins sem starfi þar sem deildar-
stjóri, enda hverfi hann úr starfi
jafnskjótt sem ráðherra."
Ég fullyrði að þessi ákvæði
reglugerðarinnar eru nú sniðgeng-
in af emstökum ráðherrum.
Hæstvirtur forsætisráðherra hefur
sinn aðstoðarmann, svo sem hann
hefur fulla heimild til. Hann hefur
einnig nýlega ráðið blaðafulltrúa
ríkisstjórnarinnar í stað Magnúsar
Torfa Ólafssonar, sem að vísu ber
starfsheitið „skrifstofustjóri" og
eru þá tveir skrifstofustjórar í for-
sætisráðuneytinu. Þá hefur hann
einnig ráðið efnahagsráðgjafa sem
álitið hefur verið að væri efna-
hagsráðgjafi ríkisstjórnarinnar, en
á'Ém. Á
Pálmi Jónsson
„Skemmst er af því að
segja að hvergi í ræðu
minni kemur það fram
sem mín skoðun, að
þessir tveir starfsmenn
hafi verið ráðnir án
heimilda. Athugasemd-
ir ráðuneytisins eru því
byggðar á misskilningi,
enda vissi ég ekki til
að sá mæti maður, Guð-
mundur Benediktsson,
hefði verið viðstaddur
umræðuna.“
er nú titlaður efnahagsráðgjafi
forsætisráðherra.
A sama tíma hefur hæstvirtur
íjármálaráðherra ekki einungis
ráðið sér varaformann Alþýðu-
bandalagsins sem aðstoðarráð-
herra, heldur hefur hann einnig
ráðið sérstakan pólitískan efna-
hagsráðgjafa og sérstakan
pólitískan blaðafulitrúa. Hér er
vitaskuld um ótvírætt brot að ræða
á því ákvæði reglugerðar við iög
um Stjórnarráð íslands sem ég
DAGANA 20.-30.okt.
VEITUM VIÐ 15% staðgr.afsl.
í GJAFAVÖRUDEILD <10% greiðsluk.afsl.
0G 25% staðgr.afsl. AF ALLRIVÖRU
FRA MARIMEKK0 • 20% greiðsluk.afsl. • Opið kl. 1000-1600 á laugad.
AÐEINS GÆÐAMERKISEM ALLIR ÞEKKJA
<S)
marimekko
steltan
of denmark
iittalaOnuutajarvi
karel
FATNAÐUR-CJAFAVÖRUR
LAUGAVEGI 13 - S. 62 45 25
vitnaði til áðan og spyija má, hvort
það sé stefna hæstvirtrar ríki.s-
stjórnar að hvert ráðuneyti fyrir
sig hafi sérstakan efnahagsráð-
gjafa og hvert ráðuneyti fyrir sig
liafi líka sérstakan blaðafulltrúa
og að þessir starfsmenn komi til
viðbótar hinum pólitísku aðstoðar-
mönnum ráðherra?“
Ef þetta er lesið í heild sést, að
þau orð sem ég lét falla um starfs-
menn forsætisráðuneytisins eru
nauðsynlegur aðdragandi og til
þess ætluð að gefa þeim fuilyrðing-
um mínum aukinn þunga, að ijár-
málaráðherra hafi brotið ákvæði
reglugerðar við stjórnarráðslögin
þegar hann réð til sín, auk sérs-
taks aðstoðarmanns, pólitískan
efnahagsráðgjafa og pólitískan
blaðafulltrúa. Ég tel þetta svo
skýrt orðað að ekki þurfi að mis-
skilja og undrast það að sjá at-
hugasemdir í löngu máli við það,
sem á einum stað er kallað „hug-
leiðingar Pálma Jónssonar" og
ekki er fótur fyrir. Þarflaust er
einnig að vitna til ríkisstjórnar
Gunnars Thoroddsen í þessu máli,
en þá var Þórður Friðjónsson efna-
hagsráðgjafi ríkisstjórnarinnar en
ekki aðeins forsætisráðherrans.
Á hinn bóginn segi ég í ræðu
minni, um starfsmann sem ráðinn
var í stað Magnúsar Torfa Ólafs-
sonar, að hann hafi „starfsheitið
skrifstofustjóri og eru þá tveir
skrifstofustjórar í forsætisráðu-
neytinu". Ég hafði ekki fleiri orð
um. Ég tel hins vegar vafasamt
að hafa tvo skrifstofustjóra í litlu
ráðuneyti og kemur það ekkert
málinu við hvqrt skrifstofustjórinn
heitir Gísli Árnason eða Helga
Jónsdóttir, eliegar hvort hann skuli
vera löglærður eða ekki. Það skipt-
7ir heldur ekki máli þótt Ragnhildur
Helgadóttir hafi „brotið ísinn“, en
benda má á þann mismun þessara
tveggja ráðuneyta, að samkvæmt
starfsmannaskrá eru heimilaðar
stöður á aðalskrifstofu forsætis-
ráðuneytisins 11 og alls á vegum
ráðuneytisins 32, en á aðalskrif-
stofu menntamálaráðuneytis 45 og
alls á vegum þess ráðuneytis
5.033.
Að lokum vil ég fagna þeirri
viðurkenningu forsætisráðuneytis-
ins sem felst í því, að engin athuga-
semd er gerð við þann kafla ræðu
minnar, sem íjallaði um ráðningu
á þeim deildarstjóra ráðuneytisins,
sem starfar utan veggja þess sem
aðstoðarmaður Stefáns Valgeirs-
sonar.
Höfiwdur er alþingismadur
Sjálfstæðisilokks fyrír
Norðuríandskjördirmi vestra.
Tónleikar
Tónlistar-
skólans í Há-
teigskirkju
HLJÖMSVEIT Tónlistarskólans
í Reykjavík heldur sína fyrstu
tónleika á þessuni vetri í Há-
teigskirkju á morgun, sunnu-
daginn 22. október.
Á efnisskránni eru tvö verk,
Sinfónía nr. 6 í D-dúr eftir Joseph
llaydn og Sinfónía nr. 2 í B-dúr
eftir Franz Schubert. Stjórnandi
hljómsveitarinnar að þessu sinni
er Kjartan Óskarsson. Tónleikarnir
hefjast klukkan 17 og standa í
u.þ.b. eina klukkustund.
Aðgangur er ókeypis og öllum
heimill.
(Fréttatilkynning)