Morgunblaðið - 21.10.1989, Side 18

Morgunblaðið - 21.10.1989, Side 18
am flaaörao .is suoaoíiaO'JAíI aiaAOHMUOHOM MORGUNBIjAÐIÐ LAUGARDAGUR -2H OKTOBER 1989 Ki’istimi G. Jóhannsson A sýnir í FIM-salnum KRISTINN G. Jóhannsson, list- málari, opnar sýningu í FIM- salnum Garðastræti 6, í dag laug- ardaginn 21. október klukkan 16. A sýningunni eru 22 ný olíumál- verk sem öll fjalla um landslag og náttúru landsins. Þetta er 17. einkasýning Krist- ins, en hann sýndi síðast að Kjarv- alsstöðum fyrir réttu ári. Nú í haust eru 35 ár liðin síðan hann hélt sína fyrstu sýningu á Akureyri. Þá hefur hann tekið þátt í fjölda samsýninga hér heima og erlendis. Sýningunni lýkur sunnudaginn 5. nóvember. Ráðstefiia Lífe og lands „VIÐ erum gestir og hótel okkar er jörðin.“ Út af þessum orðum Tómas- ar Guðmundssonar verður lagt á ráðstefnu, sem samtökin Líf og land efna til í Norræna húsinu á morgun, sunnudag. Fyrirlesarar á ráðstefnunni verða 11 talsins, fræðimenn, listamenn, blaðamenn og uppalendur. Þeir eru Jón Sigurðsson, ráðherra, Ingjaldur Hannibalsson, forstjóri Útflutnings- ráðs, Bjarni Reynarsson, landslags- arkitekt, Inga Þórsdóttir, næringar- fræðingur, Gunnar Helgi Kristins- son, stjórnmálafræðingur, Mikael Karlsson, heimspekingur, Margrét Pála Ólafsdóttir, fóstra, Páll Skúla- son, heimspekingur, Guðbergur Bergsson, rithöfundur og Matthías Jóhannessen, skáld og ritstjóri. Gestafyrirlesari á ráðstefnunni veróur Tarzie Vittachi, blaðamaður. Hanr. var um skeið framkvæmda- stjóri Asíudeildar Alþjóða blaðastofn- unarinnar og hefur verið fréttaritari og dálkahöfundur hjá virtum blöðum og tímaritum eins og The Econom- ist, The Sunday Times og News- week. Um skeið var hann yfirmaður Upplýsinga- og Almannadeildar Mannfjöldasjóðs SÞ og fram til 1988 var hann aðstoðarframkvæmdastjóri Barnahjálpar SÞ. Á ráðstefnunni ræðir hann um áhrif fjölmiðla á umhverfi og lífsstíl manna og skipt- ingu auðs í veröldinni. Norræna húsið ópnar kl. 13. Þá leika Bryndís Pálsdóttir og Helga B. Magnúsdóttir saman á fíðlu og píanó. Kl. 13.30 hefst ráðstefnan með ávarpi formanns Lífs og lands, Herdísar Þorvaldsdóttur; leikkonu. Fundarstjóri verður Jón Óttar Ragn- arsson, fyrsti formaður samtakanna. Ráðstefnan er öllum opin og aðgang- ur ókeypis. (Úr fréttatilkynningu) Myndlista- og handíðaskólinn: Alnæmissýning NEMENDUR í Myndlista- og handíðaskóla íslands sýna verk tengd alnæmi á sýningu sem opnar í anddyri Borgarspítalans í dag. Á sýning- unni er að fínna málverk og skúlptúra sem eiga það sameiginlegt að fjalla um alnæmi á einn eða annan hátt. Það eru fyrsta árs nemar í málun og annars árs nemar í skúlptúr sem standa fyrir sýningunni í samvinnu við landlæknisembættið. Nemendur í þessum hópum hafa kynnt sér sjúk- dóminn, hlýtt á fyrirlestra og heim- sótt rannsóknastofur. Að sögn Eddu Óskarsdóttur hjá Myndlista- og handíðaskólanum er þetta gert í til- efni 50 ára afmæli skólans og liður í sérstakri dagskrá af því tilefni. Svanborg Matthíasdóttir, kennari við skólann, sagði að málverkin á sýningunni væru mjög fjölbreytt: „Þegar við fengum þetta verkefni voru fyrstu hugmyndirnar mjög al- varlegar og snerust flestar um dauð- ann. En þegar krakkarnir lærðu meira um sjúkdóminn fóru áherslurn- ar að breytast og nú er tekið ýmis- legt í kringum alnæmi, svo sem for- dómar og biðin eftir niðurstöðu,“ sagði Svanborg. „Það er mjög gott fyrir krakkana að fá nasasjón af sýningu og þau hafa gott af því að vinna eftir ákveðnu þema. Það gerir meiri kröfur til þeirra og þau hafa lagt mikla vinnu í þessa sýningu," sagði Svanborg. Kristín Blöndal á þijú verk á sýn- ingunni. Tvö þeirra tengjast og þar reynir Kristín að líkja alnæmi við nátttúruöflin: „Það er eins og eitt- hvað sem blossar upp eftir að hafa verið undir rólegu yfírborðinu. Nokk- urskonar eldur í iðrum jarðar," sagði Kristín. Hún á einnig mynd sem sýn- ir þijá karlmenn hangandi á snúru sem heitir „Upp á þráð.“ „Hún á að tákna biðina og óvissuna og óttann. Kannski á hún einnig að tákna ein- hverskonar færiband sem sjúkling- amir eru á,“ sagði Kristín. Kristinn Harðarson, kennari í skúlptúr, sagði að nemendur sínir leituðust við að vekja upp spurning- ar. Viðfangsefni þeirra væri marg- þætt, til dæmis dauðinn, þjóðfélagið og viðhorf samfélagsins. „Það þarf ekki að vera auðvelt að skilja skúlpt-. úr. Takmarkið er að fá fólk til að hugsa og velta þessu fyrir sér,“ sagði Kristinn. „Ég held að það hafi tekist og verkin eigi eftir að vekja margar spurningar." Helgi Eyjólfsson á þijá skúlptúra á sýningunni sem eiga að tákna þjóð- félagið og viðhorf annarra. Einn skúlptúr hans er kassi sem er heill neðst en eftir því sem ofar dregur fækkar hliðunum uns aðeins grindin er eftir. „Þetta gæti verið ferill sjúk- dómsins eða viðhorf þjóðfélagsins sem lýkur með afhjúpun. Líklega má skilja þetta á marga vegu,“ sagði Helgi. Guðrún Hjartardóttir á tvo skúlpt- úra á sýningunni. Sá fyrri á að tákna sjúklinga en sá síðari feril sjúk- dómsins. „Við fengum þetta verkefni Yfírlitssýning á verkum Jóns Stefánssonar: Fimmtán þúsund gest- ir hafa séð sýninguna SÝNING á verkum Jóns Stefáns- sonar í Listasafiii Islands heíur hlotið mjög góða aðsókn og hafa um 15 þúsund gestir séð sýning- una. Henni lýkur sunnudaginn 5. nóvember. Að sögn Beru Nordal, forstöðu- manns Listasafns íslands, er hér einstakt tækifæri til að kynnast list Jóns, en yfirlitssýning á verkum hans hefur ekki verið haldin frá því að hann lést árið 1962. „Á sýn- ingunni eru fágætar perlur íslepskrar myndlistarsögu, en verk- in spanna allan feril Jóns, það elsta er frá 1910 og það yngsta frá 1960. Alls eru verkin 118 og eru sýnd í öllum sölum safnsins,1* segir Bera. Verkin eru fengin að láni hjá fjölmöpgum aðilum innanlands og utan. í fyrirlestrarsal er sýnd stutt heimildamynd um Jón eftir Osvald Knudsen, kvikmyndagerðarmann, og er þulur dr. Kristján Eldjárn. Safnið hefur gefið út myndskreytta bók um Jón með grein eftir dr. Olaf Kvaran listfræðing. Meðal annars efnis er umíjöllun Júlíönu Gottskálksdöttur, listfræðings, um tíu helstu myndir Jóns, ásamt við- tölum við listamanninn og hugleið- ingum hans um myndlist. Sjálfsmynd Jóns Stefánssonar, máluð árið 1937. Tveir yfírskoðunarmenn harma trúnaðarbrest Vísa ftdlyrðingn um trúnaðarbrest á bug, segir Geir H. Haarde TVEIR af þremur yfirskoðunar- mönnum ríkisreikninga hafa sent frá sér yfirlýsingu „að gefnu til- efni“ þar sem þeir harma að gögn úr fórum yfirskoðunarmanna skuli hafa borist einum fjölmiðli áður en formleg skýrsla þeirra og - Ríkisendurskoðunar var lögð fram fyrir sjö vikum og síðan hefur maður vart hugsað um annað, “ sagði Guð- rún. „Við lærðum mikið um sjúk- dóminn og það breytti viðhorfum okkar og að sjálfsögðu viðfangsefni. Við hugsum ekki aðeins um sjúkling- á Alþingi. Þriðji yfirskoðunarmað- urinn, Geir H. Haarde, vísar á bug fullyrðingu um trúnaðarbrest, hann segist hafa haft fulla heimild il að veita upplýsingarnar. Yfirskoðunarmennirnir Lárus Finnbogason og Sveinn G. Hálf- dánarson segja í yfirlýsingu sinni: inn heldur einnig um svo margt ann- að sem tengist alnæmi," sagði Guð- rún. Sýningin verður opnuð í dag kl. 14 og stendur til 29. október. „Við teljum að okkur beri að starfa óháð pólitískum skoðunum að yfir- skoðuninni og leggja hlutlaust mat á það er við komumst að í því starfi. Við lítum svo á að gögn sem við fáum í hendur og upplýsingar sem okkur berast í skoðunarstörf- um okkar séu trúnaðarmál þar til við höfum komið þeim á framfæri við Alþingi. Fráhvarf frá þeirri stefnu teljum við trúnaðarbrest. Við hörmum að gögn úr fórum yfirskoð- unarmanna skulu hafa borist einum fjölmiðli áður en formleg skýrsla okkar og Ríkisendurskoðunar var lögð framá Alþingi. Jafnframt lýs- um við því yfir að þau eru ekki frá okkur komin." „Það hefur hvergi farið dult að ég lét fréttamanni ríkissjónvarpsins í té upplýsingar og skýrslu yfirskoð- unarmanna sem birtist í fréttatíma sjónvarpsips kvöldið áður en skýrsl- unni var útbýtt á Alþingi," sagði Geir H. Haarde. „Til þess hafði ég að sjálfsögðu fulla heimild í krafti þess umboðs sem Alþingi hefur veitt mér sem yfirskoðunarmanni á grundvelli ákvæða í stjórnarskrá. Fullyrðingum um trúnaðarbrest er því algerlega vísað á bug. Frétta- maður ríkissjónvarpsins var eini fjölmiðlamaðurinn, sem falaðist eft- ir þessum upplýsingum og eins og skýrslan sjálf ber með sér var frétt sjónvarpsins í einu og öllu rétt. Það má gjarnan koma fram að frétta- maðurinn hafði ákveðnar vísbend- ingar um efni skýrslunnar sem bæði voru réttar og rangar og ég taldi sjálfsagt að reyna að tryggja að ef frétt birtist um málið á annað borð þá væru eingöngu í henni stað- reyndir en ekki getgátur annarra manna. Ég harma að félagar mínir í yfir- skoðunarstörfum sem undirrita skýrsluna með mér skuli hafa látið undan pólitískum þrýstingi með yfirlýsingu sinni, sem er til þess eins ætlaður að draga athygli frá mikilvægum atriðum í efni skýrsl- unnar og gera birtingu hennar að aðalatriði." á Borgarspítala Morgunblaðið/Bjami Helgi Eyjólfsson og Guðrún Iljarlardóttir við skúlptúra sína á vinnu- stofu Myndlista- og handíðaskólans.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.