Morgunblaðið - 21.10.1989, Blaðsíða 20
20F
Friðarverðlaun Nóbels:
Kínverjar arg-
ir út í norsk
stjórnvöld
Ósló. Reuter.
KÍNVERSK stjómvöld hafa hót-
að því að binda enda á öll efna-
hagsleg samskipti við Noreg ef
ráðamenn þjóðarinnar verða við-
staddir þegar Dalai Lama, and-
legur leiðtogi Tíbeta, veitir frið-
arverðlaunum Nóbels viðtöku í
desember. Kjell Magne Bonde-
vik, utanríkisráðherra Noregs,
sagði að ekki stæði til að láta
undan hótunum kínverskra
stjórnvalda. „Viðbrögð kínver-
skra stjórnvalda við úthlut.un
friðarverðlauna Nóbels 1989 til
Dalai Lama svipar til viðbragða
einræðisherrans Adolfs Hitlers
þegar þýski blaðamaðurinn Carl
von Ossietzky hlaut verðlaunin
1935,“ sagði Egil Arvik, for-
maður norsku nóbelsverðlauna-
nefndarinnar, í viðtali við Reut-
ers-fréttastofuna. Hitler mót-
mælti útnefningunni og meinaði
Ossietzky að veita verðlaunun-
um viðtöku. Ossietzky var and-
stæðingur Hitlers og sat í fang-
elsi árin 1931-32. Hann hlaut
friðarverðlaunin þegar hann sat
í fangabúðum nasista. Hitler
bannaði öllum Þjóðveijum með
lögum að taka við nóbelsverð-
launum, en sú reglugerð féll
sjálfkrafa úr gildi við lát einræð-
isherrans.
Kurt Waldheim:
Engar sannanir
finnastfyrir
stríðsglæpum
Lundúnum. Reuter.
BRESKA vamarmálaráðuneytið
hefur ekki fundið neinar sann-
anir fyrir því að Kurt Waldheim,
forseti Austurríkis, sé sekur um
stríðsglæpi í tengslum við morð
á sex breskum hermönnum, sem
þýski herinn náði árið 1944.
Margaret Thatcher, forsætis-
ráðherra Bretlands, fyrirskipaði
rannsókn í ráðuneytinu vegna
þessa máls og tók hún 18 mán-
uði. Rannsökuð voru tengslin á
milli Waldheims og sex breskra
hermanna, sem þýski herinn
náði á grísku eyjunni Alimnia.
Þeir voru yfirheyrðir og síðan
teknir af lífi. Niðurstaða rann-
sóknarinnar var að Waldheim
hefði ekki verið nógu hátt settur
í hemum til að geta afstýrt af-
tökunum. Waldheim hefur vísað
því á bug að hann hafi borið
ábyrgð á þeim.
Yfirmaður KGB:
Vill landamæra-
girðingarnar
burt
Moskvu. Reuter.
VLADÍMÍR Kijútsjkov, yfir-
maður sovésku leyniþjónustunn-
ar, KGB, sagði í gær að Sovét-
menn ættu að rífa niður
gaddavírsgirðingar á hluta sov-
ésku landamæranna. Kijútsjkov
sagði einnig að minnka bæri
bannsvæði á landamærum um
90%, eða úr 3,6 milljónum
ferkílómetra í 360 þúsund. Al-
menningi er bannað að fara inn
á þessi svæði sem liggja um 20
km út frá hinum 18.000 km
löngu sovésku landamærum.
Austur-Þýskaland:
Sovéskt umbóta-
tímarit leyft á ný
Austur-Berlín. Reuter.
STJORNVÖLD í Austur-Þýsfealandi hyggjast leyfa á ný söju og dreif-
ingu á sovéska mánaðarritinu Spútaik sem gagnrýnt hefúr Stalín-
tímabilið af mikilli hörku. Ritið var-bannað í nóvember síðastliðnum
og sagt boða andkommúnisma. Það seldist þá að jafnaði í um 180
þúsund eintökum í Austur-Þýskalandi. Talsmaður stjórnvalda sagði
í gær að fólk, sem flúið hefði land að undanfornu, gæti auðveldlega
sótt um léyfi til að snúa heim aftur.
Kommúnistastjórnin hefur heitið
því að auka ferðafrelsi til Vestur-
landa og tjáningarfrelsi í fjölmiðl-
um. Embættismenn segja að senn
fái allir Austur-Þjóðverjar vegabréf
og geti sótt um ferðaleyfi til vest-
urs án þess að tilgreina einhveija
sérstaka ástæðu fyrir ferðinni.
Formaður blaðamannasambands
landsins, Eberhard Heinrich, sagði
í viðtali við vestur-þýska útvarps-
stöð að hann ætti von á grundvallar-
breytingum á allri ijölmiðlun í
landinu. Málgagn kommúnista-
flokksins, Neues Deutschland, sagði
í forystugrein í gær að kominn
væri tími til þess fyrir flokkinn að
hætta að stinga höfðinu í sandinn.
„Það verður að hætta sjálfbelgingn-
um og ijúfa þögnina um vandamál-
in.“
Reuter
Reagan-hjónin í Japan
RONALD Reagan, fyrrum Bandaríkjaforseti, og kona hans, Nancy,
komu í heimsókn til Japans í gær og verða þau þar í viku. Forsetinn
fyrrverandi verður sæmdur æðstu orðu Japana, Hinum mikla orðu-
borða æðstu reglu tryggðablómsins, fyrir að efla tengsl Bandaríkja-
manna og Japana.
Noregur:
Umsókn um EB-aðild ekki á
dagskrá næstu fjögur árin
sagði Jan P. Syse forsætisráðherra í stefiiuræðu sinni
Ósló. Frá Rune Tiraberlid, fréttaritara Morgunblaðsins.
EKKI er á dagskránni að sækja um aðild að Evrópubandalaginu
næstu flögur árin, sagði Jan P. Syse, forsætisráðherra Noregs, í
stefnuræðu sinni í norska Stórþinginu á fimmtudag. Syse sagði það
engu að síður á stefhuskrá ríkissljórnar borgarlegu flokkanna,
Hægriflokksins, Miðflokksins og Kristilega þjóðarflokksins, að auka
fríverslun milli Evrópubandalagsins (EB) og Fríverslunarbandalags
Evrópu (EFTA). Steftiuræðan kemur til umræðu í næstu viku.
Til þess að skapa atvinnulífinu innar má nefna aukið framlag til
tali við M’tenposten að hann væri
„vinur ísraels". Bondevik sagðist
ekki sjá ástæðu til að hitta Yasser
Arafat, leiðtoga PLO, en Thorvald
Stoltenberg, fyrrum utanríkisráð-
herra, átti viðræður við Arafat fyrr
á árinu. „Við munum leggja meiri
áherslu á rétt ísraels og nauðsyn
til að búa við öryggi innan viður-
kenndra landamæra," sagði Bonde-
vik.
nýjan grundvöll boðaði Syse skatta-
lækkanir bæði hjá fyrirtækjum og
einstaklingum. Hátekjuskattur á
einstaklinga myndi lækka innan
tveggja ára úr 62% í 56%. Syse
sagði vel koma til greina að taka
upp tvö skattþrep á virðisauka-
skatti sem nú er undantekninga-
laust 20%. Helstu matvörur yrðu
þá í lægri flokknum. Syse boðaði
aðgerðir til að stytta biðtíma eftir
sjúkrahúsvist en nú bíða 100.000
Norðmenn eftir plássi. Hann sagði
að ríkisstjórnin hygðist leyfa starf-
rækslu einkasjúkrahúsa en ríkis-
stjórn Verkamannaflokksins lagðist
ætíð gegn slíku.
Meðal stefnumála ríkisstjórnar-
löggæslu. Norski forsætisráðherr-
ann sagði að átak til styrktar byggð
úti á landi væri eitt af forgangs-
verkefnum ríkisstjórnarinnar.
Ábyrgð yrði sýnd við nýtingu fiski-
stofna til þess að byggja upp fyrir
framtíðina. Nefndi hann sérstak-
lega þorskstofninn í Barentshafi.
Aukin áhersla yrði á umhverfis-
vernd og almenningssamgöngur
yrðu efldar með ýmsum hætti eink-
um úti á landi.
Kjell Magne Bondevik, hinn nýi
utanríkisráðherra Noregs og leið-
togi Kristilega þjóðarflokksins, gaf
í gær í skyn að stefnubreyting yrði
gagnvart Frelsissamtökum Pal-
estínu, PLO. Bondevik sagði í við-
Sovétríkin:
Ritstjóra flokksmál-
gagnsins vikið frá
Moskvu. Reuter.
VIKTOR Afanasjev, ritsljóra sovéska flokksmálgagnsins Prövdu,\ar
vikið frá á fimmtudag. Hann hefur verið talinn styðja harðlínumenn
í flokknum. Nýlega sakaði hann önnur dagblöð um æsifréttamennsku
og sagði þau aldrei viðurkenna að eitthvað hefði verið vel gert í
sögu Sovétríkjanna. Við stöðu Afanasjevs tekur ívan Frolov sem
verið hefúr ráðgjafi Míkhaíls Gorbatsjovs forseta.
Afanasjev, sem er 66 ára gam- 1976 er Leoníd Brezhnev var við
all, tók við stöðu sinni hjá Prövdu
Óveður gæti torveldað björg-
unarstarfið í San Francisco
Talið er nú að innan við 120 manns hafi farist
San Francisco. Reuter.
Björgunarstarfið vegna landskjálftans í San Francisco og norður-
hluta Kaliforníu hélt áfram í gær en óvíst var um framhald þess þar
sem spáð var stormi og úrfelli næstu tvo daga. Veðurfræðingar spáðu
því einnig að hitinn yrði nálægt frostmarki og yrði það til að auka
enn vanlíðan þeirra þúsunda manna sem misst hafa heimili sín. Ótt-
ast hefúr verið að um 270 manns hafi farist í skjálftanum en sú tala
lækkaði verulega í gær og var þá talið að innan við 120 manns
hefðu beðið bana.'
Embættismenn kváðust óttast að
úrfelli myndi torvelda björgunar-
starfið og skapa hættu fyrir björg-
unarmenn. Þeir höfðu einnig
áhyggjur af því að vatn kæmist
niður í loftgötin, sem enn eru í
rústunum, og drægi þannig enn
frekar úr líkunum á því að nokkur
fyndist á lífi. „Við vonum að enginn
þjáist lengur í rústunum, en við
höldum áfram að leita á meðan enn
er einhver von um að mannslífi
verði bjargað," sagði einn björgun-
armanna í Santa Cruz. 18 lík hafa
fundist undir hraðbrautinni sem
hrundi á milli San Francisco og
Oakland. Engum hefur verið bjarg-
að frá því snemma á miðvikudag.
Embættismenn sögðu í gær að
svo virtist sem færri bílar hefðu
verið á hraðbrautinni sem hrundi
en talið var. Óttast var að um 250
manns hefðu farist á hraðbrautinni
en embættismenn sögðu að mikil-
vægur hafnaboltaleikur liða frá San
Francisco og Oakland, sem var haf-
inn þegar skjálftinn varð, hefði að
öllum líkindum orðið til þess að
umferðin um brautina hefði verið
minni en venjulega. Lisa Covington,
talsmaður björgunarsveitanna á
svæðinu, sagði að búast mætti við
því að tala látinna yrði innan við
120 þegar upp yrði staðið.
Tryggingarfélög hafa áætlað að
tjónið af völdum skjálftans hafi
verið um þrír til fjórir milljarðar
dala. Þó er talið að sú tala hækki
þegar öllum upplýsingum hefur ver-
ið safnað saman. Murray Lawrence,
forstjóri Lloyd’s tryggingarfélags-
ins í Lundúnum, sagði að stór hluti
þeirra bygginga og mannvirkja sem
skemmdúst hefði verið ótryggður.
Mikið tjón varð á svæði sem nefn-
ist Bryggja fiskimannsins, en bygg-
ingarnar þar eru yfirleitt lágt metn-
ar.
Svo kann að fára að rífa þurfi
60 byggingar í Marina-hverfinu í
San Francisco og um 8.000 íbúar
þess geta ekki snúið til íbúða sinna
fyrr en eftirlitsmenn hafa tekið
ákvörðun um hvort rífa eigi þær.
Um 201 íbúð og 72 byggingar
fyrirtækja eyðilögðust í Santa Cruz
og nágrenni, þar sem jarðskjálftinn
átti upptök sín. Um þúsund íbúar
svæðisins misstu heimili sín.
völd og sama ár varð hann félagi
í miðstjórn kommúnistaflokksins. I
síðasta mánuði varð Pravda að biðj-
ast afsökunar á því að birt var frá-
sögn ítalsks blaðs af drykkjuslarki
umbótasinnans Boris Jeltsíns á
ferðalagi hans um Bandaríkin ný-
verið.
Gorbatsjov kallaði í síðustu viku
á sinn fund helstu ritstjóra Iandsins
og las þar mönnum pistilinn. Hann
taldi blöðin ekki nógu uppbyggileg
og sagði þau eiga að sinna betur
því sem vel væri gert. Hann minnti
þó jafnframt á að hjá sumum gætti
of mikillar afturhaldssemi og sátu
hóparnir hnípnir á víxl undir ákúr-
unum.
Viktor Afanasjev
Reuter