Morgunblaðið - 21.10.1989, Side 21
21
M,0ff9UNB|I4Ðip þAUGAKDA^UR ,21. OKTÓijEK 19,89 .
Spurning lögð fyrir Kremlarfræðinga
Iutcrnational Herald Tribune.
EFNAHAGSMÁL í Sovétríkjunum eru í ólestri, ríkjasambandið sagt vera
að leysast upp í átökúm þjóðanna, framtíð kommúnismans í Austur-
Evrópu ótrygg. Sérfræðingar í málefiium Kremlverja eru ekki á einu
máli um stöðu og framtíð Míkhaíls Gorbatsjovs Sovétforseta. Dagblaðið
International Herald Tribune lagði eftirfarandi spurningu fyrir nokkra
Kremlarfræðinga: „Er Gorbatsjov kominn að fótum fram?“
Er Gorbatsjov kominn að fótum fram?
Alec Nove, hagfræðiprófessor við
Glasgow-háskóla: „Pólitísk staða
hans er greinilega sterk. En efna-
hagsmálin eru í kreppu og enn verri
viðureignar eru þjóðernisvandamál-
in, Gorbatsjov gerir sér fulla grein
fyrir þessu. Síðustu mannaskipti í
stjórnmálaráðinu, helstu valda-
stofnun landsins, styrktu Gorbatsj-
ov í sessi og enginn augljós arftaki
er sjáanlegur. Þess vegna verður
að álykta að Gorbatsjov sé traustur
í sessi.“
Marshall I. Goldman, kennir við
Harvard-háskóla: „Það er hann að
mínu áliti. í mars 1987 sagði ég
að það kæmi mér á óvart ef hann
entist í fjögur ár. Ég gerði hins
vegar- ekki ráð fyrir að-ástandið
yrði svona slæmt þegar á þessu ári.
Maðurinn er snillingur í að snúa
sig út úr vandamálunum en kreppan
fer nú svo ört vaxandi að ég efast
um að hann finni björgunarleið út
úr henni. Hann er í sárri þörf fyrir
árangur í efnahagsmálunum en
ekkert virðist ganga honum í hag-
inn núna.“
Michel Tatu, Sovétsérfræðingur
franska dagblaðsins Le Monde:
„Gorbatsjov hefur heldur sótt í sig
veðrið pólitískt séð að undanförnu.
Þverstæðan er sú að almennt
ástand í Sovétríkjunum er afar
slæmt en völd Gorbatsjovs hafa
orðið traustari.
Hann hefur sem stendur farið
hægar í sakirnar en áður en stapp-
ar þó enn stálinu í umbótasinnana.
Ástandið er mjög ótryggt en ég
held að líkurnar séu Gorbatsjov
fremur í hag en áður.“
Peter Reddaway, prófessor í al-
þjóðastjórnmálum við George Was-
hington-háskólann í Washington:
„Það kæmi mér alls ekki á óvart
ef honum yrði sparkað einhvern
tíma á næstu árum. Hann hefur
af djörfung reynt að gera nýja
Æðsta ráðið að grundvelli valda
sinna í staðinn fyrir Kommúnista-
flokkinn. Mesta hættan er að Gorb-
atsjov verði eins og lús milli tveggja
nagla og glati áhrifum sínum á
báðum þessum vígstöðvum; ég
hygg að það sé að gerast núna.“
John Edwin Mroz, forstöðumaður
Rannsóknarstöðvar í öryggismálum
austurs og vesturs í New York: „Ef
átt er við hvort hætta sé á því að
völd Gorbatsjovs séu í hættu í ná-
inni framtíð eða veruleg stefnu-
breyting verði gerð þá hallast ég
að þeim sem telja að svo sé ekki.
Ég tel verkfall námamannanna
marka tímamót. Þegar tekist hefur
að virkja almenning betur í þágu
perestrojku en leiðtogana sjálfa
held ég að búið sé að leysa úr læð-
ingi þjóðfélagsöfl sem treysti stöðu
Gorbatsjovs."
John Hardt, efnahagsmálasér-
fræðingur hjá Rannsóknarstofnun
Bandaríkjaþings: „Skipið mér með
nokkrum fyrirvara í hóp bjartsýnis-
manna. Hann hefur lagt fram skyn-
samlega áætlun um pólitískar og
efnahagslegar umbætur og náðst
hefur allgóður árangur hvað snertir
hið fyrrnefnda.
Gorbatsjov er ekki hagfræðingur
en hann er líklegur til að viður-
kenna -staðreyndir og hefur við hlið
sér aðstoðarmenn sem geta sagt
honum hvað þær merkja."
Charles Woolf, stjórnandi rann-
sókna á alþjóðlegum efnahagsmál-
um hjá Rand-stofnuninni í Kali-
forníu: „Ég held að Gorbatsjov sé
að komast í þrot en hann er þraut-
seigur baráttujaxl, hugmyndaríkur
og fádæma ráðsnjall.
Að minni hyggju þarf að hrinda
í framkvæmd skyndilegum og um-
fangsmiklum endurbótum á verð-
myndunarkerfinu í Sovétríkjunum
— koma á frjálsri verðmyndun til
að hægt sé að sjá hvaða fyrirtæki
þurfa að færa út kvíarnar og hvaða
fyrirtæki eiga að leggja upp laup-
ana.“
A markaði eldhúsinnrettinga
tekur HTH enn af skarið
Þetta færðu fyrir 135.000 kr.
HTH 3200 er ný eldhús-
innrétting úr lútuðum aski.
Vönduð gœðaframleiðsla
ó viðráðanlegu verði.
Við veitum ráðleggingar
byggðar á reynslu og
kappkostum að viðskipta-
vinurinn fái góða þjónustu.
HTH -innrétting
eykur verðgildi
íbúðarinnar og er því
kjörin fjárfesting fyrir
framtíðina.
Skynsamleg
fjárfesting
^ innréttingahúsiö
Háteigsvegi 3, Reykjavík. Sími 27344. Opið á laugardögum.
HTH. Nýir tímar. Nýjar hugmyndir.