Morgunblaðið - 21.10.1989, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARBAGUR’ 21. OKTOBER 188914
Ljósmynda-
stækkanir í
Gallerí
Madeira
BJÖRGVIN Pálsson, „mynda-
smiður“, mun opna sýningu um
helgina hjá Gallerí Madeira, sem
starfrækt er í húsakynnum Evr-
ópuferða á Klapparstíg 25, 3.
hæð í Reykjavík.
Myndefnið sótti Björgvin til
Portúgals sl. sumar. Myndirnar eru
ljósmyndastækkanir unnar með
hinni sérstöku Gumbichromat-
tækni. Viðstaddir opnurt á sýning-
unni verða m.a. fulltrúar portú-
galskra ferðamálayfirvalda.
Sýningin verður opin um þriggja
vikna skeið alla virka daga milli
klukkan 8.30 og 18. Henni lýkur
föstudaginn 24. nóvember. Allar
myndimar eru til sölu.
Björgvin Pálsson er 34 ára gam-
all og starfar hjá sjónvarpinu. Hann
hefur fengist við ljósmyndun í 22
ár og titlar sig „myndasmið".
Baula hættir að
auglýsa ferðirnar
BAULA hf. hefúr ákveðið að
hætta að auglýsa að þeir, sem
safni 30 állokum afjógúrtdósum,
eigi möguleika á fjögurra daga
ferð fyrir tvo til Lúxemborgar.
Söfnun lokanna heldur þó áfram
og ferðin verður farin. Ekki hef-
ur verið tekin ákvörðun um það
af hálfú Verðlagsstofnunar hvort
fyrirtækið verður kært fyrir
auglýsingaraar.
Eins og skýrt var frá í blaðinu
í gær telur Verðlagsstofnun að
auglýsingar Baulu bijóti í bága við
lög um verðlag, samkeppnishömlur
og óréttmæta viðskiptahætti. I
frétt sem Morgunblaðinu hefur
borist frá Baulu hf. segir, að fyrir-
tækið hafi ákveðið að virða sjónar-
mið Verðlagsstofnunar, þó að
stofnunin sé einungis eftirlitsaðili,
en ekki úrskurðaraðili um lögmæti
auglýsinga. Því verða engar frek-
ari auglýsingar frá Baulu allt þar
til söfnuninni lýkur 15. nóvember.
Sólveig Guðmundsdóttir, lög-
fræðingur Verðlagsstofnunar, seg-
ir að ekki hafi verið tekin ákvörðun
um hvort til kæru kemur vegna
auglýsinganna.
Nýr Subaru
kynntur
SUBARU Legacy er nafn á nýjum
bíl, sem Ingvar Helgason hf kynnir
um helgina í sýningarsal fyrirtæk-
isins við Sævarhöfða í Reykjavík.
Bíllinn er ný hönnun og í sama
stærðarflokki og hinn hefðbundni
Subaru.
Legacy er fjórhjóladrifinn og
fæst með tvenns konar vélum, 1800
16 ventla og 2200 16 ventla. Bíllinn
kostar frá 1.340 þúsund krónum
miðað við afborgunarverð. Enn-
fremur verða sýndir um helgina
hinn hefðbundni Subaru Wagon,
Subaru Justy og Subaru „bitabox".
í tilefni af komu hins nýja bíls
kom hingað fulltrúi framleiðend-
anna, Ichira Arai. Bílarnir verða
sýndir almenningi á laugardag og
sunnudag klukkan 14.00 til 17.00.
Sigurbjöm Eldon Logason
Sigurbjörn El-
don Logason í
Hafnarborg
SÝNING Sigurbjörns Eldon
Logasonar á vatnslitamyndum í
Hafnarborg, Strandgötu, Ilafn-
arfirði hefiir verið framlengd tíl
sunnudagsins 22. október.
Sýningin er opin daglega frá
klukkan 14-19 e.h. Sýningin hefur
verið vel sótt og margar myndir
selst, segir í fréttatilkynningu.
Þetta er 6. sýning Sigurbjörns.
fslandsmót skáta
í keilu
Islandsmeistaramót skáta í
keilu verður haldið í Keiluhöll-
inni, Öskjuhlíð, sunnudaginn 22.
október klukkan 13.
Þetta er þriðja árið í röð sem
keppnin er haldin. Það er skátafé-
lagið Garðbúar sem stendur fyrir
keppninni og er keppt í tveimur
aldursflokkum: 11-15 ára og 16
ára og eldri. Öllum er fijálst að
koma og fylgjast með.
Lögreglan leitar
ökumanns
LÖGREGLAN í Reykjavík óskar
eftir að hafa tal af ökumanni,
vegna óhapps fyrir framan
prentsmiðjuna Odda við Höfða-
bakka á Artúnshöfða um klukk-
an 16 á miðvikudag.
Fimmtán ára piltur hljóp út á
götuna og skall utan í fólksbifreið.
Okumaðurinn, sem var kona, ræddi
við hann, en þá taldi hann sig vera
ómeiddan. Síðar kom í ljós að pilt-
urinn er handarbrotinn. Konan er
beðin um að hafa samband við
slysarannsóknadeild lögreglunnar í
Reykjavík.
Umræðufimdur í
Rannsóknastofti-
un uppeldismála
UMRÆÐUFUNDUR um efni fyr-
irlestra Gunnhildar Óskarsdótt-
ur æfingakennara og Hafþórs
Guðjónssonar framhaldsskóla-
kennara verður haldinn þriðju-
daginn 24. október.
Umræðustjóri verður Jón Torfi
Jónasson dósent. Fundurinn verður
haldinn í Kennaraskólahúsinu við
Laufásveg og hefst klukkan 16.30.
Öllum er heimill aðgangur.
Morgunblaðið/Bjami
Ichira Arai og Ingvar Helgson við einn nýju bílanna
Bjarni Lárentíusson, formaður sóknarnefiidar, mæðgurnar Kristín
Cecilsdóttir og Kristborg Haraldsdóttir og séra Gísli H. Kolbeins.
Sunnudags-
morgungöngur
Sunnudagsmorgungöngur
heljast á ný í byijun vetrar hjá
Náttúruverndarfélagi Suðvest-
urlands en félagið stóð fyrir
þeim í vetur er leið.
Gönguferðimar. verða stuttar.
Lagt verður af stað kl. 10.00 frá
brottfararstað. Gengið verður með
stuttu stansi á nokkrum stöðum
og komið til baka eftir 114 til 2 tíma.
í göngunni verður hugað að nátt-
úrufari, sögu og örnefnum svæðis-
ins. Öllum er heimil þátttaka.
Fyrsta morgungangan verður
um Elliðaárdal. Lagt verður af stað
frá inngangi Árbæjarsafns á morg-
un, sunnudag, kl. 10.00 og gengið
um Elliðaárdalinn og Elliðaár-
hólmana en þetta svæði er hluti
af Bláfjallaleiðinni.
Spurninga-
keppni grunn-
skóla
ÞRAUTALENGING 1989,
spurningakeppni grannskóla
Reykjavíkur, hefst á mánudag
klukkan 20.30 og verður þá
keppt á 6 stöðum.
Átján grunnskólar taka þátt í
keppninni. Á mánudag verður
keppt í félagsmiðstöðvunum Árseli,
Frostaskjóli, Fjörgyn, Tónabæ,
Þróttheimum og í Hólabrekku-
skóla. Þrír skólar keppa á hveijum
stað. Þann 30. október klukkan
20.30 fara fram undanúrslit í Árs-
eli og Tónabæ og úrslitakeppnin
verður í Broadway 9. nóvember
klukkan 15.
Hús brann við
V atnsendablett
Húsið Brattholt við Vatnsenda-
blett 173 brann í snemma gær-
morgun. Húsið var mannlaust.
Eldsupptök eru óljós.
Fyrirlestur og
kynning í Odda
FYRIRLESTUR og kynning á
tæki sem notað er til „greining-
ar“ á ’Tíffræðilegri orku“ (bio
energetic) og fleira verður í
stofú 101 í Odda, Háskólanum,
fimmtudaginn 26. október
klukkan 23.30.
Tækið er kallað „samræmingar-
þýðandi“ (Harmonic Translator) og
má meðal annars nota til að
„greina“ samræmi milli svokallaðra
orkustöðva (chakras).
Greiddur aðgangseyrir gildir
sem afsláttur á fyrstu greiningu
með tækinu. Fyrirlesari verður
Leifur Leopoldsson.
Sýning á aftnæli
trésmiða
Trésmiðafélag Reykjavíkur
verður 90 ára í desember nk. í
tilefiii afmælisins verður ýmis-
legt gert og á laugardag 21.
október klukkan 14 verður opn-
uð sýning á frístundaiðju félags-
manna í húsakynnum félagsins
á Suðurlandsbraut 30.
Sýnendur eru 18, sá yngsti 38
ára og sá elsti hátt á níræðisaldri.
Sýningin gefur skemmtilega mynd
af áhugamálum félagsmanna og
tómstundaiðju, en m.a. eru á sýn-
ingunni málverk, teikningar, út-
skurður, bókband, glermyndir,
brúður, ljósmyndir, frímerkjasöfn
og söfn annarra muna.
Samkór Trésmiðafélagsins mun
koma fram á meðan sýningin
stendur, en við opnunina á laugar-
dag ætla félagar í Lúðrasveit
verkalýðsins að leika nokkur lög.
Sýningin verður opin á skrif-
stofutíma virka daga klukkan
10-17 og á sunnudögum klukkan
14-18.
(Fréttatilkynning)
Tónleikar 1
Kristskirkju
TÓNLEIKAR í tilefhi 60 ára
vígsluafmælis Dómkirkju Krists
konungs, Landakoti, verða í
kirkjunni nk. sunnudag kl. 17.00.
Verkin sem leikin verða eru
Choral fyrir orgel eftir Cesar
Franck, Einleikssónata fyrir lág-
fiðlu eftir Max Reger og Kvintett
fyrir klarínettu og strengi eftir
W.A. Mozart. Hljóðfæraleikarar
eru Úlrik Ólason sem leikur á org-
el, Sigurður I. Snorrason á klarí-
nettu, Zbigniew Dubik á fiðlu,
Andrzej Kleina á fiðlu, Dariusz
Korcz á lágfiðlu og Malgorzata
Kuziemska-Slawek á selló.
Aðgangur er ókeypis og eru all-
ir velkomnir.
Fyrirlestur í
boði félagsvís-
indadeildar
DR. URI Davis flytur opinberan
fyrirlestur í boði félagsvísinda-
deildar mánudaginn 30. október
og hefst hann klukkan 17.15 í
stofú 101 í Odda.
Dr. Davis hefur kennt við ýmsa
háskóla, sfðast háskólann í Exeter
og hefur enn tengsl við þann skóla
(Honors research Follow). Nú er
hann forstöðumaður ráðgjafastofn-
unar „The Jerusalem and Peace
Service". Dr. Davis hefur skrifað
fjölda greina og bóka. Fyrirlestur-
inn nefnist: „The Israeli Palestian
Conflict: Possibilities for a Peaceful
Solution based on Principles of
Westem Democracy“. Hann verður
fluttur á ensku og er öllum heimill
aðgangur.
(Fréttatilkynning)
GUNNAR Kristinsson hcldur
sýningu á myndum og styttum í
Galleri „einn-einn“ við Skóla-
vörðustíg 4A.
Myndirnar eru unnar innan hug-
taksins „Antlitz-Saga“, en antlitz
er gamalt orð og þýðir andiit og
hefur að geyma tengsl við trúar-
brögð.
Gunnar skráir sögur í andlit með
þessum myndum sínum og gengur
út frá þeirri hugmynd að saga sé
Gáfu ljós í
kirkjusal
NÝLEGA gáfú Kristín Cecils-
dóttir, böra hennar og tengda-
börn minningargjöf um Harald
ísleifsson, eiginmann og föður,
til nýju kirkjunnar í Stykkis-
hólmi. Gefa þau öll ljósin í
kirkjusalinn.
Var tilkynnt um gjöfina 27. sept-
ember sl. á fæðingardegi Haralds,
en hann lést 31. mars 1985.
Heildarneyslan
skiptir sköpum
Morgunblaðinu hefur borist
eftirfarandi fréttatilkynning frá
Áfengisvarnarráði:
Að gefnu tilefni vill Áfengisvarn-
arráð vekja athygli á vafasömum
fréttaflutningi ýmissa fjölmiðla um
þá gifurlegu aukningu áfengis-
neyslu sem orðið hefur í landinu
frá 1. mars í vor.
Aðalatriði málsins er að sjálf-
sögðu að heildameysla hreins
vínanada hefur aukist meira
síðustu mánuðina en dæmi eru til
hérlendis undanfarna áratugi.
Tjónið, sem áfengi veldur, ræðst
af heildameyslu en ekki því í hvers
konar formi það er drukkið.
Neysla áfengis minnkaði milli
áranna 1987 og 1988. Sterk efna-
hagsleg rök hníga áð því að haldið
hefði áfram að draga úr henni á
árinu 1989 ef sala bjórs hefði ekki
komið til. Þá er rétt að hafa í huga
að fyrstu tveir mánuðir þessa árs
voru „bjórlausir".
Full ástæða er til að varað sé
við því heilsutjóni og þeirri verð-
mætasóun sem líklegast er að sigli
í kjölfar aukinnar áfengisneyslu.
til í hveiju andliti og að hver og
einn beri ábyrgð á henni.
Opnun sýningarinnar er í dag,
laugardag, klukkan 16, en við opn-
unina verður frumflutt tónverk eft-
ir Gunnar sem heitir: „Mundu að
af vatni ert þú kominn og að vatni
munt þú aftur verða.“
Sýningin er 14. einkasýning
Gunnars, en hann hefur sýnt í
Mið-Evrópu ogá íslandi. Hún
stendur til 2. nóvember og er opin
alla daga klukkan 14-18.
(Fréttatilkynning)
Gunnar Kristinsson við verk sín.
Gunnar Kristinsson sýnir
<r