Morgunblaðið - 21.10.1989, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. OKTOBER 1989
29
Heillandi haustlauf
Vetur gengur
í garð
Blóm vikunnar
Umsjón: Ágústa Björnsdóttir
145. þáttur
Okkur félögum j GÍ er það vissulega fullkunnugt
hversu lipurlega Ólafur Björn Guðmundsson beitir
einatt penna sínum í þágu fél&gsins enda hefur
hann í ómunatíð ritstýrt Garðyrkjuritinu og einnig
fréttábréfínu Garðinum með sæmd og prýði. Margt
huggunarorðið hefur hann látið falla þegar óhag-
stætt veðurfar og viðlíka óáran hefur steðjað að
hijáðu garðyrkjufólki. Þá hefur hann ekki síður lát-
íð óspart í ljós gleði sína þegar vel gengur lijá áður-
nefndum hópi manna.
Fyrir tveim áratugum birtist eftir hann eftirfar-
andi „vetrarhvöt" í Garðinum, gæti hún einsvel
hafa verið skrifuð þessa dagana því greinilega hef-
ur það árið verið votviðrasamt sumar:
„Nú er vetur að ganga í gárð og livað skal segja
oss garðræktarmönnum hér sunnan- og vestanlands
til huggunar eftir svona sumar? Líklega er best að
segja sem fæst, en snúa sér strax að því að hugsa
fyrir næsta sumri, sem ábyggilegá verðui' betra —
því verra getur það varla orðið. Að minnsta kosti
ætla ég að biðja ykkur þess lengstra orða, að missa
ekki kjarkinn þó á móti blási í bili. Heldur skulum
við taka undir með skáldinu og kyija þá gömlu
stöku, sem vafalaust oft hefur verið kveðin á ís-
landi þegar illa áraði:
Við skulum ekki víla hót,
það varla léttir trega.
Það er þó alltaf búningsbót
að bera sig karlmannlega.
Bjartsýnin er engum nauðsynlegi'i en þeim sem
við garðrækt fást. Mörgum þótti jiví týra á tíkar-
skottinu þegar einn af fyrirmönnum í ræktunarmál-
um höfuðborgarinnar lét hafa það eftir sér í blaða-
viðtali í sumar að „mjög erfitt væri að rækta upp
plöntur hér í Reykjavík". Þótti mörgu áhugafólki
um garðrækt þar höggva sá er hlífa skyldi og að
ástæða væri til að telja kjark í menn en að draga
úr honum með hrakspám og svartsýnistali og þess-
um ummælum viljum við í stjórn GÍ mótmæla. Hér
er hægt að rækta furðumargt, það sanna liinir
mörgu og sífjölgandi skrúðgarðar í Reykjavík og
nágrenni. Að vísu skiptast á skin og skúrir eins og
gengur. Ekkert er fyrirfram gefið og ekkert verður
með vissu reiknað út — en það gerir ekki garðyrkj-
una minna heillandi viðfangsefni.
En snúum okkur nú að næsta sumri og nú lítum
við út í garð: Haustlaukarnir eru vonandi komnir í
sinn moldarbeð, þeir þurfa nefnilega svolítið að átta
sig í moldinni, mynda rætur og koma ser fyrir áður
en frost setjast að þeim fyrir alvöru. Í snjóleysinu
hér sunnanlands hefði nú verið gott að vera búinn
að dreifa góðu lagi af laufi, lyngi eða lausum mosa
á jörðina yfir laukunum til að veija þá fyrir mesta
frostinu. Slíka sæng kunna þeir vel að meta. í stein-
beðinu er gott að skýla viðkvæmari jurtum með
léttu lyng- eða laufskýli, eða með glerplötum sem
lagðar eru yfir þær á milli steinanna.
Vonandi hafið þið munað eftir að taka inn og
hengja til þerris ýmsa blómstöngla, strá og fleira
sem getur verið til hinnar mestu prýði í stofum inni
allan veturinn og sem ekkert gefur eftir ýmsu er-
lendu skreytingarefni sem innflutt er. ó.B.G.“
Andrea Kristjáns-
dóttir, Risabjörgum,
Hellissandi - Minning
Fædd 19. deseniber 1899
Dáin 15. október 1989
Hún Andrea amma er dáin.
Mig langar að minnast hennar
með fáeinum orðum en minnin-
garnar hrannast upp og það er
af svó mörgu að taka.
Það var á haustdögum árið
1976 að tilvonandi eiginmaður
minn kynnti mig fyrir ömrnu sinni.
Eg var bæði kvíðin og örlítið feim-
in eins og oft vill verða þegar
verið er að kynnast inn í nýja fjöi-
skyldu, en sá kvíði reyndist
ástæðulaus, frá fyrstu stundu
umvafði hún niig með umhyggju
sinni og hlýju sem varði fram til
síðustu stundar.
Það var ómetanlegt fyrir mig
að hafa kynnst henni Andreu
ömmu, hún var aldamótabarn,
hafði lifað tímana tvenna enda
hafsjór fróðleiks um liðna tíma,
stálminnug var hún fram á síðustu
stundu og fylgdist vel með í
nútíma þjóðfélagi, það var ekki
komið að tómum kofunum hjá
henni hvort heldur voru fréttir
dagsins eða nýjustu verðhækkanir
á matvörum.
Lengst af ævi sinnar bjó
Andrea ásamt Björgvini manni
sínum að Risabjörgum á Helliss-
andi, en Björgvin lést fyrir all-
mörgum árum eða stuttu eftir að
undirrituð var kynnt fyrir þeim
hjónum. Andrea hélt þó áfram að
búa að Risabjörgum eftir lát
Björgvins og þaðan er gott að
minnast hennar. Hlý og fagnandi
tók hún á móti okkur þegar við
heimsóttum hana og kjötsúpan
beið tilbúin í pottinum. Ég vissi
það fyrir víst að hér á árum áður
var mikið um að vera hjá þeim
hjónum því gestagangur var ætíð
mikill og öllum vel tekið.
Heimili og fjölskylda voru
Andreu alit, hún var vakandi sem
sofandi yfir velferð allra, hún
hafði ávallt tíma fyrir okkur,
hvatti okkur og studdi svo við
bakið á okkur þegar á reyndi. Hún
hafði margt að segja og af henni
lærðum við um lífið og tilveruna.
Dóttursonur hennar, Björgvin
Andri, minnist ömmu .sinnar með
hlýju og kærleika og biður um að
koma á framfæri þakklæti fyrir
allt sem hún var honum. Orð eru
fátækleg þegar slík öndvegiskona
er kvödd. Elsku Andreu ömmu
þakka ég af heilum hug fyrir allt
sem hún var mér og fjölskyldu
minni.
Megi hún hvíla í friði. Guð veri
með henni.
Sigrún Júlíusdóttir
\ALK3L YSINGAR
SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN
FÉLAGSSTARF
Hafnarfjörður
Fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna í
Hafnarfirði
Fundur um framboðsmál til bæjarstjórnar verður haldinn i Sjálfstæð-
ishúsinu, Hafnarfirði, mánudaginn 23. október nk. kl. 20.30.
Stjórn fulltrúaráösins.
Norðurlandskjördæmi
eystra
Aðalfundur kjördæmisráðs verður haldinn á Dalvík laugardaginn 28.
október í Víkurröst og hefst kl. 9.30 f.h.
Dagskrá:
1. Skýrsla stjórnar og gjaldkera.
2. Stjórnmálaályktun, umræður og afgreiðsla.
3. Við upphaf þings: Halldór Blöndal, alþingismaður.
4. Kl. 12.00 sameiginlegur hádegisverður.
5. Sveitastjórnarmál - sveitastjórnarkosningar. Fjögur erindi.
Umræður.
6. Kosningar, ákvörðun árgjalds.
7. Önnur mál.
Stjórn kjördæmisráðs.
Kópavogur - Kópavogur
Sjálfstæðiskvennafélagið Edda
Aðalfundur félagsins verður haldinn þriðju
daginn 31. október kl. 20.30 í Sjálfstæðis
húsinu, Hamraborg 1, 3. hæð.
Gestur fundarins verður Ásthildur Péturs
dóttir.
Dagskrá fundarins:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Kaffiveitingar.
3. Spilað verður bingó.
Sjálfstæðiskonur fjölmennið.
Stjórnin.
Akranes
Bæjarmálefni
Fundur um bæjar-
málefni verður hald-
inn í Sjálfstæðis-
húsinu við Heiðar-
gerði sunnudaginn
22. október kl.
10.30.
Bæjarfulltrúar Sjálf-
stæðisflokksins
mæta á fundinn.
Sjálfstæðisfélögin á Akranesi.
Aðalfundur
sjálfstæðisfélagsins Ingólfs,
Hveragerði
verður haldinn laugardaginn 21. október á
Hótel Örk, ráðstefnusal, kl. 17.00.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Önnur mál.
Kl. 19.00.
Mæting á enska barnum fyrir sjálfstæðisfólk og maka þeirra.
Kl. 20.00.
Sameiginlegur kvöldverður.
Árni Johnsen mætir með gitarinn og stjórnar fjöldasöng.
Helgi Þorsteins og Kristinn Kristjáns þenja nikkurnar.
Sýnum samstöðu og mætum öll.
Stjórnin.
Aðalfundur Týs
Aðalfundur Týs,
FUS i Kópavogi,
verður haldinn í
Hamraborg 1, 3.
hæð, föstudaginn
27. október kl.
19.30.
Dagskrá:
1. Kosning for-
manns og stjórnar.
2. Lagabreytingar.
3. Önnur mál.
Sérstakir gestir fundarins verða Birgir Ármannsson, nýkjörinn for-
maður Heimdallar og Davið Stefánsson, formaður SUS.
Bcðið verður upp á léttar veitingar að fundi loknum. Félagar fjölmennið.
Stjórn Týs.
Akranes
Aðalfundur Þórs, FUS á Akranesi, verður haldinn sunnudaginn 22.
október 1989 kl. 14.00 í Sjálfstæöishúsinu á Akranesi. Fundurinn
verður á 2. hæð i Sjálfstæðishúsinu.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Kosning stjórnar. Stjórn Pórs.
smá auglýsingor
Féíagslíf
□ GIMLI 598923107 - 1
□ MlMIR 598910237=1 Atk Frl
Skíðadeild Víkings
Vetrarkaffi verður sunnudaginn
22. október kl. 15.00 í skíöa-
skála deildarinnar. Nýir og gaml-
ir félagar velkomnir.
Stjórnin.
FERÐAFELAG
ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU3
SÍMAR11798 og 19533.
Dagsferð sunnudaginn
22. október:
Kl. 13.00 Vifilsfell.
Ekið í áttina að Jósepsdal og
gengið frá mynni dalsins upp
fjallið. Létt gönguferð, frábært
útsýni. Verð kr. 800,-.
Mikið er af óskiladóti á skrif-
stofunni, sem komið hefur úr
sæluhúsunum eftir sumarið.
Hægt er að nálgast óskilamuni
milii kl. 09.00-17.00 virka daga
á Öldugötu 3.
Brottför i dagsferðina er frá
Umferðarmiðstöðinni, austan-
megin. Farmiðar við bil. Fritt fyr-
ir unglinga að 15 ára aldri.
Ferðafélag islands.
Hvítasunnukirkjan
Ffladelfía
Almenn bænasamkoma í kvöld
kl. 20.30. Allir velkomnir.
[Blj Útivist
Sunnudagur 22. okt.
Ný og spennandi gönguleið um
hrikalegt landslag vestur af
Sveifluhálsi: Köldunámur -
Lambafellsgjá. Brottför kl. 13
frá Umferðarmiðstöð, bensín-
sölu. Einnig er hægt að koma í
rútuna i Hafnarfirði og á Reykja-
nesbraut við kirkjugarð.
Ath.: Góður skófatnaður er
nauðsynlegur í allar Útivistar-
ferðir!
KIUM&KI UK ISW I9S9
90 ðr lyrir .cstu iMjrili
KFUMog KFUK
Samkomuþrenna
Samkoma i kvöld á Amt-
mannsstíg 2b kl. 20.30.
Upphafsorð: Helga Sigríður
Þórsdóttir. Vitnisburður:
Magnea Sverrisdóttir. Ræðu-
maður: Séra Karl Sigurbjörns-
son. Sönghópur syngur. Mikill
almennur söngur.
Allir velkomnir.