Morgunblaðið - 21.10.1989, Page 35
MQRElflHMftfBP. ItAíjqARlLASHB/^l.
M
fclk í
fréttum
MÓÐURÁST
Tony á hauk í horni
Breski hnefaleikarinn Tony Wil-
son á sannarlega hauk í horni.
Hafi honum ekki verið það ljóst
fyrir svo sem hálfum mánuði, veit
hann það sannarlega núna. Tony
var að kljást við landa sinn Steve
McCarthy og fór hallloka, en
mamma gamla gat ómögulega
kyngt því, svipti af sér skó með
pinnahæl, klöngraðist upp í hring-
inn og lét McCarthy finna fyrir
hælnum. Og það mátti ekki seinna
vera, þar sem Wilson var að falli
kominn, en svo rækilega lúskraði
móðir hans á keppinautnum, að
blæddi undan og kappinn McCarthy
flýði í ofboði inn í búningsklefa!
Varð nú uppi fótur og fit. Kven-
skörungurinn var dreginn sprikl-
andi úr hringnum og dómarar
reyndu árangurslaust að fá McCart-
hy til þess að koma aftur til leiks
og ljúka honum. Hann tók það ekki
í mál, lagði ekki í tvíeykið harð-
skeytta. Hann taldi sig eiga alls
kostar við strákinn, en við möm-
muna réði hann ekkert. Það lá við
uppþoti er dómararnir dæmdu Wil-
son sigurinn! Hann var nú ekkert
sérstaklega hress að leikslokum,
sagði að móðir sín hefði fylgst með
öllum viðureignum hans síðustu tíu
árin, en aldrei hefði bólað á ofbeldis-
hneygð hennar fyrr.
Þessi mynd af Sykurmolunum birtist í einu þekktasta vikuriti Frakka-
lands Le nouvel Observateur.
LE NOUVEL OBSERVATEUR
Sérstök kynning á
Sykurmolunum
Tricr. Frá Steingrími Sigurgeirssvni. frcttaritara Morgunbiaðsilis.
Franska tímaritið Le nouvel Obs-
ervateur kynnir íslensku hljóm-
sveitina Sykurmolana á tveimur
síðum með stórri litmynd í hefti
sínu fyrir 5.-11. október. Er þetta
óvenjumikill uppsláttur af hálfu
blaðsins þegar um popphljómsveit
er að ræða. Astæða greinarinnar
er tónleikaferð Sykurmolanna um
Evrópu, en hljómsveitin mun m.a.
halda þrenna tónleika í Frakklandi,
í París 30. október, í Saint-Brieuc
2. nóvember og í Lyon þann 13.
nóvember. Blaðamaður tímaritsins,
sem er eitt hið þekktasta í Frqkkl-
andi, hefur ferðast með Sykurmol-
unum til Islands og lýsir hann landi
og þjóð samhliða kynningu á hljóm-
sveitinni. Hælir hann hljómsveitinni
fyrir tónlist sína og frumleika og
segir hana vera talsmann hinnar
„stirðnuðu“ æsku Reykjavíkur.
„Ég er 23 ára gömul og bý ein
ásamt þriggja ára gömlum syni
mínum. Það er mjög algeng staða
á eyjunni, einstæðar mæður eru
fjölmargar. Á íslandi byijar maður
að drekka og sofa hjá 13—14 ára
gamall. Þar á eftir verður þetta að
vana.“ Með þessari lýsingu Bjark-
ar, söngvara Sykurmolanna, hefst
greinin í Le nouvel Obsevateur.
Eftir að hafa útskýrt nafnvenjur
íslendinga snýr blaðamaðurinn sér
að því að lýsa íslenskri æsku sem
hann segir vera að farast úr leiðind-
um. Lýsir hann föstudagskvöldi í
miðbæ Reykjavíkur þar sem ofur-
ölvi unglingar velta um eftir að
hafa innbyrt drykkinn brennivín
sem bruggaður sé úr kartöflum og
kúmín. Leiði þessi lýsi sér einnig í
því hvernig íslenskir unglingar
flykkist til „meginlandsins" á sumr-
in eða fari í nám erlendis. Þrátt
fyrir allt finnist Islendingum hins
vegar vænt um landið sitt og séu
útlendingar einungis óverulegur
hluti íbúa.
Andstætt norrænum frændum
sínum reyni íslendingar að varð-
veita hinar skandinavísku hefðir
sínar. Reki stjórnvöld stranga
verndarstefnu í þeim tilgangi að
vernda hið sérstaka hugarfar þjóð-
arinnar. Til dæmis sé til sérstök
nefnd er hafi það hlutverk að búa
til nýyrði fyrir ýmis engil-saxnesk
hugtök tengd nútíma samfélagi.
Þannig hafi verið búið til orð fyrir
enska orðið „computer" (tölva) sem
þýði „vél sem les sannleikann út
úr tölum“, og orðið „eyðni“ yfir
hinn alræmda sjúkdóm, en það
merki „sjúkdómurinn sem deyðir
án þess að vörnum verði við komið“.
ÓMAR UPPÁ NÝT
meö samtíöina í spéspegli
ogspriklandigalsa!
ómar Ragnarsson,
Helga Möller, Hemmi Gunn,
Leynigestur o.fl.
USTAGÓÐUR MATSEDILL (Val á réttum.)
MIÐAVERÐ <m. mat) 3600 kr. Húsið opnar kl. 19
KOSTABOÐ: Aðgöngumiði með mat og gi&ting i eina
nótt i tveggja manna herbergi með morgunmat 5150 á mann.
(Gildir jafnt fyrir borgarbúa sem aöra landsmenn )
Pontunarsimi; Virká daga tra kl. 9-17. s 29900
Fóstud oglaugard eftir kl. 17. s 20221.
EINSDÆMI .
sérumfjöriö
ÞJÓÐA R
DANSLBKUR 23.30-03
HÓTEL SÖGU \L ^ ^