Morgunblaðið - 21.10.1989, Side 40
4d
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. OKTÓBER 1989
4
MCBAAfm
Með
morgnnkaffinu
Hann veit eitthvað um
yfirforingjann.
HÖGNI HREKKVÍSI
/,FARPU ÖT ME£> ROSUE> OM LE/E?
03 pÖ str-Vkor/ip HEI/MAN."
Hægar framkvæmdir
Taska
Þessir hringdu . .
Hraðahindranir
nauðsynlegar
Guðmundur hringdi:
„Nokkur umræða hefur verið
um svonefndar hraðahindranir í
Velva'kanda að undanförnu og
sýnist sitt hveijum. Ég vil taka
undir með þeim sem benda á að
hraðahindranir geta verið óþægi-
legar fyrir ökumenn og þær fara
ekki vel með bílana nema ekið sé
mjög hægt yfir þær. En hraða-
hindranir eru nauðsynlegar, það
held ég að ekki sé hægt að deila
um. Staðreyndin er nefninlega sú
að of margir ökumenn flýta sér
of mikið og gefa sér ekki nægan
tíma til að komast á leiðarenda.
Meðan ekki verður breyting þar
á verður að beita öllum tiltækum
ráðum til að hindra hraðakstur
þessa fyrirferðarmikla minni-
hluta.“
Daufur bakgrunnur
Kona hringdi:
„Ég vil hvetja Ríkissjónvarpið
til að láta myndatökumenn sína
fara og taka myndir í sveitum og
sjávarplássum landsins og nota
þær sem bakgrunn í fréttatímum
sjónvarpsins. Það er hálf ömurlegt
að horfa á fréttirnar og sjá alltaf
þennan steindauða bakgrunn aft-
an við fréttamennina".
Óskar Guðmundsson hringdi:
„Mér þykja vegaframkvæmd-
irnar við Suðurlandsbraut ganga
seint. Önnur akreinin, frá Álf-
heimum og niður að Hallarmúla,
hefur verið lokuð síðan í júní.
Hvað er verið að gera þarna og
hvenær verður þessu lokið?“
Góð skemmtun
Haukur Friðriksson hringdi:
„Ég vil þakka Lionsklúbbnum
Ægi fyrir góða skemmtun í Hát-
úni 14 laugardaginn 14. október."
Hjól
Ljósblátt 10 gíra Superia kven-
hjól með bognu stýri var tekið
fyrir utan Stigahlíð 26 14. októ-
ber. Þeir sem geta gefið upplýs-
ingar um hjólið vinsamlegast
hringi í Sigrúnu í síma 29358 eða
84051.
Veski
Gult veski með blómamyndum
týndist fyrir utan Borgina að-
faranótt 8. október. Finnandi er
vinsamlegast beðinn að hringja í
Ingibjörgu í síma 688297 eftir kl.
17.
Svört taska tapaðist í Lækjar-
tungli þann 6. október. í henni
voru tvær lyklakippur önnur blá
en hin svört, rautt seðlaveski með
skilríkjum o. fl. Finnandi vinsam-
legast hringi í síma 19802.
Svört Pumataska með skóm og
íþróttafötum tapaðist í Hafnar-
fírði. Finnandi er vinsamlegast
beðinn að hringja í Kristinn Pál
í síma 53388.
Hanskar
Svartir kvenleðurhanskar töp-
uðust 5. október, líklega milli
Droplaugarstaða og
Heilsuverndarstöðvarinnar.
Finnandi er vinsamlegast beðinn
að hringja í síma 16904.
Silfurarmband
Silfurarmband fannst í verslun-
inni Tess við Dunhaga og getur
eigandinn vitjað þess þar.
Rykfrakki
Sá sem tók ljósan rykfrakka í
misgripum föstudagskvöldið 13.
október er vinsamlegast beðinn
að koma frakkanum til starfsfólks
Fógetans eða hringja í síma
14368.
Er mark takandi á sljörnuspeki?
Til Velvakanda.
Ég er einna af mörgum áskrif-
endum Morgunblaðsins. Ég hef því
fylgst með einum af mörgum þátt-
um í blaðinu þar með talið Stjörnu-
spekiþætti Guðlaugs Guðmunds-
sonar. En undanfarna daga hefur
verið farið í heilsu Bogamannsins
og fl. Og þegar maður les þetta
kemur ýmislegt fram sem virðist
koma heim og saman við vissa per-
sónuleika. Mig langar því til að
beina þeirri spurningu til Guðlaugs
hvort eitthvað sé hér á ferðinni sem
taka mætti mark á.
Ég hef hingað til ekki haft mikla
trú á þessu. En það kemur margt
heim og saman í Bogamannsmerk-
inu við viss áhugamál mín og annað
kemur heim og saman við mig per-
sónulega séð og ýmislegt fleira.
Bogamaður
Víkverji skrifar
Kunningi Víkveija sem býr í Graf-
arvogi hafði nýlega orð á því
hversu starfsmenn gatnamálastjóra
Reykjavíkurborgar væru fljótir að
ganga frá gangstéttum og götum í
hverfinu. Stjórnun þessarar borgar-
stofnunar væri greinilega mjög
áhrifamikil og lipurð starfsmanna við
brugðið. Nefndi hann máli sínu til
stuðnings, að hann hefði spurt á
hverfismiðstöð gatnamálastjóra
hvort hægt væri að laga kantstein
fyrir framan hús sitt, þannig að auð-
veldara væri að aka bílum heim að
húsinu. Viðbrögð starfsmanna hefðu
verið slík að daginn eftir hefðu þeir
lokið þessu verki án frekari vafninga.
XXX
Víkveiji h.efúr, eins og aðrir lands-
menn, fylgst með undirbúningi
þess að íslandsbanki taki til starfa
eftir næstu áramót. Nú er komið
fram yfir miðjan október og ennþá
hefur ekki verið skýrt frá því hvar
aðalstöðvar hins nýja banka verða.
Ráðamenn bankans hafa velt fyrir
sér þeim möguleika að byggja yfir
höfuðstöðvarnar, en slík framkvæmd
væri hins vegar mjög á ská við þann
raunveruleika sem blasir við í
íslensku efnahagslífi, t.d. stendur
skrifstofuhúsnæði autt um allar triss-
ur í borginni. Ekki er bætandi á það
offramboð. Víkveiji heyrði mjög at-
hyglisverða hugmynd á_ lausn þess
húsnæðis„vanda“ sem Islandsbanki
er í. Tvær flugur yrðu slegnar í einu
höggi með því að Islandsbanki keypti
nýja Sambandshúsið við Kirkjusand.
Stærð hússins myndi henta bankan-
um mjög vel og Sambandið þyrfti
að losa sig við eignir í stói-um stíl.
Víkveiji er þess viss, að Sambands-
menn gætu vel þrengt að sér og
yrðu guðs lifan^i fegnir að losna við
þessa miklu tjárfestingu, auk þess
sem þeir myndu bæta ímynd sína
meðal almennings verulega, sem ekki
virðist vanþörf á.
xxx
V íkveiji var staddur norður í
Skagafirði árið 1963 þegar jarð-
skjálfti reið þar yfir, sem mældist
um 7 stig á þann fræga Richter-
kvarða. Það er einn mesti jarð-
skjálfti sem mælst hefur á seinni
árum hér á landi og ívið meiri en
jarðskjálftinn núna í San Francisco.
íbúar San Francisco eiga því samúð
Víkveija óskipta, því sjaldan hefur
hann orðið eins hræddur á ævi sinni
og í Skagatjarðarskjálftanum tyrir
26 árum. Það er óhugnanleg tilfinn-
ing að fínna og sjá landið bylgjast
undir fótum sér. Jarðskjálftum af
þessari stærðargráðu fylgir einnig
gríðarlegur hávaði, þannig að allt
hjálpast að til að magna upp skelfileg
augnablik. Flestir sem upplifa svona
skjálfta lýsa þeim á svipaðan hátt,
það er eins og sprengjum sé varpað
við fótmál manns. Allar aðstæður
hér á landi eru sem betur fer aðrar
og betri en í stórborginni San Franc-
isco. Byggingar á jarðskjáiftasvæð-
um hér á landi era að jafnaði lágreist-
ari og betur hannaðar, þannig að
jarðskjálfti sem mælist 7 stig hér á
landi getur várt valdið sama usla og
við höfum séð af myndum frá San
Francisco. Þar af leiðandi finnst
Víkveija óvarlegt að jafna saman
skjálftanum núna í San Francisco og
hugsanlegum Suðurlandsskjálfta,
séretaklega hvað' varðar áhrif slíks
skjálfta á höfuðborgarsvæðinu.
Slíkan samanburð hefur mátt sjá frá
sérfræðingum á þessu sviði. Það er
illa gert að magna upp hræðslu við
Suðurlandsskjálfta, jafnvel þótt það
þjónaði þeim tilgangi, að liðka til
með fjárveitingar til jarðskjálftamæl-
inga og almannavama. Ekki er þó
Víkveiji að mæla með því að skellt
verði skollaeyrum við aðvörunum
jarðeðlisfræðinga. En að jafna saman
byggingum og aðstæðum í Reykjavík
og San Francisco fínnst Víkveija
ekki sérlega vísindalegt.