Morgunblaðið - 21.10.1989, Qupperneq 43
^3
MORGUNBLAÐIÐ
IÞROTTIR LA l 'G A RI) AG L' R £ 1. ÖKTÓBER 1989
FIMLEIKAR / HEIMSMEISTARAMÓTIÐ
HANDKNATTLEIKUR / LANDSLIÐIÐ
I
I
(
(
i
í
Tap gegn Sviss
MT
Íslenska landsliðið í handknattleik tapaði í gær fyrir því svissneska,
18:22 í borginni St. Gallen í Sviss. Staðan í leikhléi var 12:9 fyrir
Sviss. Þetta var fyrsti leikurinn í fjögurra þjóða móti sem fer fram
um helgina. í gærkvöldi léku einnig Sovétríkin og Austur-Þýskaland.
Sovétmenn fóru með sigur af hólmi, 28:24 (14:10). íslendingar mæta
Sovétmönnum í dag og Austur-Þjóðverjum á morgun.
KNATTSPYRNA / EM U-21
„Ekki raunhæft
að gera sér
miklar vonir“
HEIMSMEISTARAR
Heimsmeistaramótið í fimleikum stendur nú yfir í Stuttgart
í Vestur-Þýskalandi. Sovétmenn hafa verið sigursælir á
mótinu; þeir sigruðu í vikunni í liðakeppni karla og kvenna og
hafa einnig tryggt sér gullverðlaun í einstaklingskeppninni, þar
sem lagðar eru saman einkunnir úr æfingum á einstaka áhöld-
um. Úrslitin urðu ljós í karlakeppninni á fimmtudag. Þar var
það Igor Korobtsjínský sem stóð uppi sem sigurvegari, landi
hans Valentin Mogilny varð annar og Li Jing frá Kína þriðji.
Kvennakeppninni lauk í gær og þar röðuðu Sovétmenn sér í
þijú efstu sætin: Svetlana Bogínskaya varð í fyrsta sæti, Na-
talya Latsjenova önnur og Olga Strageva þriðja. Á myndinni
að ofan sést Sovétmaðurinn Igor Korobtsjínský, til vinstri, fagna
sigri sínum. Með honum á myndinni er Li Jing frá Kína, er
hlaut bronsið. Á myndinni hér til hliðar er sigurvegarinn í
kvennaflokki, Svetlana Bogínskaya. Lokastöðu efstu fimmtán
keppenda hjá körlum og konum má sjá hér neðar á síðunni.
Keppni lýkur í Stuttgart um helgina. Þess má geta að sýnt
verður beint frá mótinu í íþróttaþætti Ríkissjónvarpsins í dag.
- segirGuðni Kjartansson, þjálfari,
um leikinn gegn Vestur- Þjóðverjum
ÚRSLIT
Handknattleikur
1. deild kvenna 18:15
2. deiíd karla Pram-ÍBK 18:17
Blak
1. deild kvenna UBK-HK 8:0
Fimleikar
Iloimsmeistaramótíd
Svetlana Bogínskaya frá Sovétríkjunum varð
í gær heimsmeistari kvenna í fimleikum. Sové-
skar stúlkur urðu í þremur efstu sætunum,
en Sovétmenn unnu einnig liðakeppnina bæði
i karia- og kvennafiokki. Efstar í kvennakeppn-
inni, þar sem lagðar eru saman einkunnir eft-
ir æfingar á öllum áhöldunum, urðu þessan
Stig
1. Svetlana Bogínskaya, SovétnTq...39.900
2. Natalya Latsjenova, Sovétríkjunum .39.862
3. Olga Strageva, Sovétiikjunum....39.774
4. Cristina Bontas, Rúmeníu........39.762
5. Yang Bo, Kina...................39.687
6. Chen Cuiting, Kína..............39.662
7. Brandy Johnson, Bandan"kjunum...39.574
8. Sandy Woolsey, Bandarílqunum....39.475
9. Barbel Wielgoss, A-Þýskalandi...39.449
10. Choe Gyong-hui, NorðurKóreu.....39.399
11. Wendy Bruce, Bandaríkjunum......39.386
12. Daniela Silivas, Rúmeníu........39.312
13. Eva Rueda, Spáni................39.286
14. Kim Gwang-suk, Norður-Kóreu.....39.211
15. MihoShinoda,Japan...............39.148
Keppni karlanna lauk á fimmtudag. Sovét-
maðurinn Igor Koroblsjínsky vaið heimsmeist-
ari. Lagaðar eni saman einkunnir fyiir æfing-
um á öllum áhöldum, eins og l\já konunum.
Efstir urðu þessir.
Stíg:
1. Igor Korobtsjínsky, Sovétríkjunum ....59.25
2. Valentin Mogilny, Sovétríkjunum..59.15
3. LiJing.Kína......................58.80
4. Yukio Iketani, Japan.............58.70
4. Andreas Wecker, A-Þýskalandi.....58.70
6. Vladimir Artemov, Sovétríkjunum..58.55
7. Li Ge, Kína......................58.50
8. Marius Gherma....................58.45
8 Gyula Takacs, Ungveijalandi.......58.45
lO.Yuri Chechi, ítaUu................58.30
10. Sylvio Kroll, A-Þýskalandi.......58.30
12. Toshiharu Sato, Japan............58.25
13. Sven Tippelt, A-l’ýskalandi......57.90
14. Csaba Fajkusz, Ungveijalandi.....57.85
15. Paolo Bucci, Italíu..............57.70
KORFUBOLTI
Útlendingarnir í úrvalsdeildinni
FIBA-leyfin komin
AUir útlendingarnir hjá úrvalsdeildarliðunum í körfubolta, sem hingað
til hafa leikið skv. bráðabirgðaleyfi stjórnar KKÍ, hafa nú fengið
formlegt leyfi frá alþjóða sambandinu, FIBA, til að ieika hér á landi,
skv. upplýsingum sem Morgunblaðið aflaði sér í gær. Undanskilinn er
að vísu Patrick Releford hjá Njarðvíkingum, en eins og fram kom í blaðinu
í gær hefur liðið sem hann var hjá í Argentínu farið fram á það við
Njarðvikinga að þeir greiði 5.000 bandaríkjadali, upphæð sem samsvarar
um 310.000 kr. íslenskum, til að hann verði löglegur. Hann leikur því
ekki með liði UMFN á morgun gegn Reyni, en allir hinir útlendingamir
verða á ferðinni.
„EINS og ávallt reynum við að
gera okkar besta. Vandamálið
er hins vegar að strákarnir eru
ekki íleikæfingu — íslandsmót-
inu lauk fyrir meira en mánuði
— og því er ekki raunhæft að
gera sér miklar vonir,“ sagði
Guðni Kjartansson, þjálfari U-
21 landsliðsins íknattspyrnu
við Morgunblaðið í gærkvöldi
aðspurður um leik liðsins gegn
Vestur-Þjóðverjum í Evrópu-
keppninni, sem verður ytra á
miðvikudag.
Íslenska liðið heldur til Vestur-
Þýskalands á mánudag. Þjóð-
veijar hafa þegar tryggt sér sigur
í riðlinum og þátttökurétt í loka-
keppninni, eru með níu stig, en ís-
lendingar eru í öðru sæti með sex
stig. Finnar eru með þrjú stig og
Hollendingar tvö, en þeir leika á
sama tíma í Hollandi.
Liðið er skipað sömu leikmönnum
og fyrir leikinn gegn Hollendingum
11. október, nema hvað Alexander
Högnason kemur aftur inn fyrir
Þormóð Egilsson, sem verður 17.
maður. Eftirtaldir leikmenn fara því
til Vestur-Þýskalands:
Markverðir:
Olafur Gottskálksson .........ÍA
Adolf Óskarsson..............ÍBV
Aðrir leikmenn:
Haraldur Ingólfsson...........í A
Alexander Högnason............ÍA
Baldur Bjarnason...........Fylki
Rúnar Kristinsson.............KR
Þorsteinn Halldórsson.........KR
Heimir Guðjónsson.............KR
Kjartan Einarsson............ÍBK
Eyjólfur Sverrisson.........UMFT
Ólafur Kristjánsson...........FH
Þórhallur V íkingsson..........FH
Steinar Adolfsson.............Val
Einar Páll Tómasson..........Val^
Ólafur Þórðarson............Brann
Kristinn R. Jónsson..........Fram
I dag verður síðasti æfingaleikur
liðsins og verður leikið gegn U-18
ára liðinu á Fylkisvelli kl. 13.
KORFUBOLTI
Snæfell
leikur í -
Grundarfirði
Snæfellingar hafa ákveðið að
leika heimaleiki sína í 1.
deildarkeppninni í körfuknattleik
í hinu nýja og glæsilega íþrótta-
húsi í Grundarfirði. Þeir hafa æft
þar þrisvar í þessari viku, en húsið
'var opnað um sl. helgi.
Snæfell hefur hingað til leikið
heimaleiki sína í Borgarnesi.
„Þetta er algjör byltlng. Húsið er
mjög gott,“ sögðu gömlu lands-
liðsmennirnir úr Val, þeir Kristján
Ágústsson, þjálfari Snæfells og
Ríkharður Hrafnkelsson, fyrirliði
Snæfellinga.
Leikmenn Snæfells, sem hafa
hingað til æft í gamla íþróttahús-
inu í Stykkishólmi, koma til með
að æfa í íþróttahúsinu í Grundar-
firði einu sinni til tvisvar í viku í
vetur. Fyrsti heimaleikur liðsins
verður á morgun í Grundarfirði
kl. 14. Reiknað er með að rútu-
ferðir verið frá Stykkishólmi á
leikinn.
FRJALSIÞROTTIR
Bylting á ársþingi FRÍ?
NOKKUÐ Ijóst er að á árs-
þingi Frjálsíþróttasambands
Islands, sem haldið verður
eftir rúman mánuð, verður
gerð tilraun til að koma allri
núverandi stjórn frá völdum.
Líklegt er að Magnús Jakobs-
son, KR-ingur, bjóði sig fram
í formannsembættið gegn
Ágústi Ásgeirssyni, núverþ
andi formanni.
Magnús sagði í samtali við
Morgunblaðið í gærkvöldi,
að hann væri að hugsa málið og
að hann hefði heldur „volgnað"
en hitt. Heimildir blaðsins herma
að Magnús hafí þegar lýst því
yfir að hann muni gefa kost á sér
í formannsembættið.
„Það er hópur fólks úti á landi
sem vill breytingar — á stjórninni
sjálfri og staðsetningu manna í
henni. Það er vilji fyrir því að
fólk utan af landi komi inn í
stjómina."
Magnús sagði að hugmyndin
væri að fá samþykkta skipulags-
breytingu. „Hugmyndin er ekki
að fjölga í stjóminni, heldur að í
henni sitji einn fulltrúi úr hveijum
fjórðungi og þrír að auki héðan
af Reykjavíkursvæðinu, sem
væntanlega myndu skipa fram-
kvæmdastjórn sambandsins.
Þetta er sú hugmynd sem efst er
á baugi hjá landsbyggðarfulltrú-
um.“ Magnús staðfesti að þeir
sem ætla að leggja fram þessar
breytingar stefni að því skipta
alveg um stjóm. Hann var spurð-
ur hvort það væri ekki vantraust
á þá stjórn sem nú situr:
„Bæði og — ég hef heyrt um
menn sem vilja ekki sitja áfram
í henni, en í raun verða aðrir að
svara því hvort þetta er vantraust
á núverandi stjórn. Því hefur ver-
ið ýt.t að mér að undanförnu að
gefa kost á mér — fnimkvæðið
er ekki mitt. Ég held að frum-
kvæðið sé norðan úr landi; og
menn af Suðurlandi, Vesturlandi
og einnig af Reykjavíkursvæðinu,
eru þessum breytingum fylgj-
andi,“ sagði hann.
Magnús sagði, aðspui-ður, að
sér fyndist víðtæk samstaða um
þessar hugmyndir. „Ég veit ekki
um eitt og eitt héraðssamband,
en eftir hringingum til mín að
dæma er mikill meirihluti fyrir
þessu. Ég veit að Norðlendingar,
allt frá Húnaþingi til Þingeyjar-
sýslu, hafa fundað tvisvar um
málið,“ sagði hann, og nefndi
einnig til. sögunnar fulltrúa frá
UÍA, Úifljóti og HSK. Magnús
sagði fólk kvarta yfir að núver-
andi stjórn hefði ekki haft nægi-
lega mikið samband við lands-
byggðina. „Það er álitlegur hópur
sem er tilbúinn að standa að
þessu,“ sagði Magnús — og því
sagðist hann líkurnar á því að
hann gefi kost á sér í formanns-
embættið, hafa aukist undanfarna
daga.