Morgunblaðið - 22.11.1989, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUjR 22. NÓVEMBgR 1989
■ LONDON. Nytt alnæmibólu-
efni sem þróað hefur verið í Bret-
landi verður að öllum líkindum próf-
að á sjálfboðaliðum á næsta ári,
að því er breskur vísindamaður, dr.
Geoffrey Schild, sagði á sunnudag.
„Á aðeins einu ári eru menn orðnir
miklu bjartsýnni á það en áður að
unnt sé að búa til bóluefni gegn
alnæmi," sagði dr. Schild í viðtali
við PA-fréttastofuna í Bretlandi.
Hann sagði að ætlunin væri að
prófa nýja bóluefnið á nokkrum
tugum sjálfboðaliða. Eftir bólu-
setninguna yrði kannað hvort mót-
efni, sem veitt gætu vörn gegn al-
næmi, ef viðkomandi smitaðist,
væru th staðar í blóði hans.
■ KAÍRÓ. Mikill fjöldi egypskra
verkamanna, sem starfað hafa í
írak síðan á dögum Persaflóastríðs-
ins, streymir nú heim til Egypta-
lands vegna óánægju með nýjar
reglur um hámarksupphæð, sem
þeir mega senda heim til Egypta-
lands. Hefur fjöldaflótti þessi orðið
til þess að írösk stjórnvöld hafa lof-
að að greiða verkamönnunum sam-
anlagt úm það bil eina milljón
Bandaríkjadollara (63 ■ milljónir
ísl.kr.) á dag til að bæta þeim upp
það sem þeir telja sig hafa verið
svikna um. Við heimkomuna hafa
egypsku verkamennirnir borið Irök-
um illa söguna og meðal annars
sakað þá um hafa myrt nokkra
landa sinna, sem eftir urðu í Bagh-
dad.
Denis Healey.
■ LONDON. Verkamannaflokks-
þingmaðurinn Denis Healey, sem
nú er orðinn 72 ára gamall, sagði
á mánudagskvöld að hann ætlaði
að draga sig í hlé í breskum stjórn-
málum. Hann sagði í bréfi til stuðn-
ingsmanna sinna í Leeds í Norður-
Englandi, að hann mundi ekki bjóða
sig fram í næstu kosningum, heldur
vildi hann rýma fyrir sér yngri
manni. Healey gegndi um árabil
embættum varnarmálaráðherra og
fjármálaráðherra i ríkisstjórnum
Verkamannaflokksins. Hann hefur
verið talinn hafa alla burði til að
verða forsætisráðherra án þess að
ná því marki. Á efri árum hefur
hann notið óumdeildrar virðingar
sem reyndasti stjórnmálamaður
flokks síns og hefur nýlega gefið
út endurminningar, sem.hafa feng-
ið góðar viðtökur.
■ WELLINGTON. Á ráðstefiiu
um fiskveiðimál, sem nú stendur
yfir á Nýja-Sjálandi með þátttöku
20 landa við Suður-Kyrrahaf, hefur
reknetaveiði verið harðlega gagn-
rýnd. „Við teljum að reknetaveiðar
séu óábyrg veiðiaðferð frá vist-
fræðilegu sjónarmiði," sagði Geof-
frey Palmer, forsætisráðherra
Nýja-Sjálands, við setningu ráð-
stefnunnar á þriðjdag, en hann fer
einnig með umhverfismál í ríkis-
stjórninni. „Stjórnvöld, sem leyfa
að allt að 50 kílómetra langar neta-
lagnir myndi „dauðamúr" úti fyrir
ströndum landa sinna, bijóta með
því hafréttarlög," sagði Palmer.
■ VARSJA. Verðbolgan er kom-
in í 447% í Póllandi miðað við þró-
un verðlags þar í landi í október-
mánuði, samkvæmt upplýsingum
stjórnarinnar. Hækkun verðlags í
september jafngilti 269% verðbólgu
á ári. Verðbólgan í fyrra nam 74%.
Samdráttur varð í iðnaðarfram-
leiðslu seinni hluta október og þá
dró einnig úr verðhækkunum.
Þannig hækkuðu matvæli að jafn-
aði um 65% í október en þó aðeins
4,5% í síðustu viku mánaðarins.
c-23
Baskaþingmaður
myrtur í Madrid
Reuter
*
Drottning hlakkar til Islandsfarar
Fyrsti fundur neðri deildar breska þingsins eftir þinghlé var í gær
og var þá sjónvarpsmönnum heimilað í fyrsta sinn að taka myndir
í þingsalnum. Á myndinni sjást vélar þeirra fyrir ofan nokkra þing-
menn Verkamannaflokksins. Elísabet II Bretadrottning hélt hefð-
bundna setningarræðu sína og kynnti fimmtán ný stjórnarfrumvörp,
sem afgreidd verða í vetur, og búast menn við snörpum umræðum.
í upphafi ræðunnar sagðist drottningin hlakka til opinberra heim-
sókna sem hún afráðið að fara í á næsta ári til Nýja Sjálands, Is-
lands og Kanada.
Madrid. Reuter.
VOPNAÐIR menn réðust inn í veitingahús í Madrid á Spáni og skutu
baskneskan þingmann til bana á mánudagskvöld. Annar þingmaður
særðist alvarlega. Bensínsprengjum var kastað á banka og lestar-
stöðvar og allsherjarverkfall boðað í Baskahéruðunum í norðurhluta
landsins er morðinu var mótmælt í gær.
Kanada;
Erfiðleikar
í laxeldinu
Washington. Frá ívari Gudmundssyni,
fréttaritara Morgunbladsins.
Stærsta laxeldisfyrirtæki . í
Kanada, Royal Pacific Seafarms í
Bresku Kólumbíu, getur ekki stað-
ið í skilum með afborganir af rúm-
lega 200 milljón kr. láni, sem fall-
ið er í gjalddaga.
The Black & Decker
PROFESSIONALSI slípirokkur verð-frá kr. 14.122
HORKUTÓL
slipirokkur verð frá kr. 7.744
VANDLATA
# BIACK&DECKER
Sjónarvottar sögðu að tveir
menn, annar þeirra með hettu yfir
höfðinu, hefðu hafið skothríð á sjö
þingmenn Herri Batasuna (HB), er
þeir sátu að snæðingi í veitingahús-
inu. HB er róttækur flokkur Baska
og talinn stjórnmálaarmur aðskiln-
aðarhreyfingarinnar ETA. Einn
þingmannanna, Jose Muguruza,
lést á sjúkrahúsi og annar, Ignacio
Esnaola, er í lífshættu. Talsmenn
flokksins höfðu skýrt frá því að
þingmennirnir myndu taka þátt í
störfum þingsins eftir að hafa snið-
Svíþjóð:
Fjölgar í
verkfalli
kennara
Stokkhólmi. Frá Erik Liden, fréttaritara
Morgfunblaðsins.
Kennaraverkfallið í Svíþjóð
nær nú til 17.000 kennara. Fyrir
viku lögðu um 10.000 háskóla-
menntaðir kennarar niður vinnu
og á mánudag bættust í hópinn
7.000 kennarar, sem tilheyra
öðrum samtökum. Vegna þessa
hefúr rúmlega hálf milljón nem-
enda litla sem enga kennslu.
Deilurnar snúast um kaup og
kjör og hvað háskólamenntaða fólk-
ið varðar ekki síst um þá fyrirætl-
an, að hámarkslaun allra kennara
verði þau sömu án tillits til mennt-
unar. Kennararnir, sem lögðu niður
vinnu á mánudag, eru félagar í
samtökum fólks í skrifstofu- og
stjórnunarstörfum, TCO, en þau
hafa í meginatriðum fallist á tillögu
um nýjan kjarasamning. I dag,
miðvikudag, kemur í ljós hvort
kennarar hafa samþykkt hann og
er þess beðið með mikilli eftii-vænt-
ingu.
Verði samningurinn felldur ætla
háskólamenntaðir kennarar að gera
hlé á verkfallinu og setjast aftur
að samningaborðinu við hlið TCO
en verði hann samþykktur segjast
þeir tilbúnir til að halda aðgerðun-
um áfram í langan tíma. Ingvar
Carlsson forsætisráðherra sagði á
þingi háskólamenntaðs fólks, sem
var haldið á mánudag, að deilan
yrði ekki leyst með lögum.
gengið þau í tíu ár til að knýja á
stjórnvöld um að hefja samninga-
viðræður við Baska. Flokkurinn
missti eitt þingsæti en hélt ijórum
í kosningunum til neðri deildar
þingsins 29. október og er með þijá
þingmenn í efri deildinni.
Felipe Gonzales forsætisráðherra
fordæmdi morðið og sagði það til-
ræði við lýðræðið í landinu. Tals-
menn HB skelltu hins vegar skuld-
inni á stjórnarflokkinn og ýmsa
aðra flokka, sem þeir sögðu hafa
komið upp vopnaðri sveit til að ráð-
ast á baskneska aðskilnaðarsinna.
Oþekktur maður hringdi í bask-
neska fjölmiðia og lýsti morðinu á
hendur sér í nafni GAL, leynilegrar
dauðasveitar sem sökuð er um að
hafa myrt 27 ETA-liða á árunum
1983-87. Grunur leikur einnig á að
menn innan ETA, sem andvígir eru
viðræðum við stjórnvöld, hafi myrt
þingmanninn.
Árásin á mánudag var gerð er
þess var minnst að fjórtán ár voru
liðin frá því Francisco Franco hers-
höfðingi, fyrrum einræðisherra
landsins, lést. Þann dag voru einnig
fimm ár liðin frá því atkvæðamikill
baskneskur þingmaður, Santiago
Brouard, var myrtur.
Fjárhagserfiðleikar fyrirtækisins
hafa orðið til þess, að helstu frammá-
menn í stjórn þess hafa sagt af sér.
Var sala á hlutabréfum fyrirtækisins
í kauphöllinni í Vancouver stöðvuð
eftir að þau höfðu fallið verulega í
verði
Á síðasta ári var velta fyrirtækis-
ins rúmlega hálfur milljarður ísl. kr.
en í upphafi þessa árs varð það að
taka rekstrarlán, sem var heldur
meira en ársveltan. Fyrirtækið er að
mestu í eigu Evrópumanna.
ÖLL TÆKIERU í STÁLKÖSSUM
SÖLUSTAÐIR UM ALLT LAND
SINDRAAaSTÁLHF
BORGARTÚNI 31 SÍMI -62 72 22