Morgunblaðið - 22.11.1989, Síða 37
• • • MÓRÖÚNBLAÐÍÐ MÍÐVÍKIÍDAíitíít: 2^! NÓVÍÍfcdÉR Í9&9 '
ELDHUSKRÓKURINN
Girnileg „græn“ terta
Ef ykkur langar að breyta til
og bjóða upp á öðruvísi ávaxtat-
ertu í afmælinu, saumaklúbbnum
eða spilaklúbbnum, þá ættuð þið
að prófa þessa lystugu kívítertu.
Tertan er mjög bragðgóð, og
hana má jafnt nota með kaffi og
sem eftirrétt, þá til dæmis með
kældu freyðivíni!
I tertuna þarf:
Deig:
175 g hveiti,
100 g smjör eða smjörlíki,
tsk. salt,
2 msk. sykur,
1 msk. mjólk.
Fylling:
75 g marsípan,
1 peli rjómi,
2 eggjarauður,
2 msk. flórsykur,
4-5 kívíávextir.
1. Hnoðið saman hveiti, smjör
eða smjörlíki, salt og sykur og
vætið í með mjólkinni. Látið
standa í kæliskáp í um 1 klukku-
stund.
2. Rífið kalt marsípan á grófu
riíjárni. Stífþeytið helminginn af
ijómanum og hrærið út í hann
marsípani, eggjarauðum og sigt-
uðum flórsykri. Afhýðið 2 kívíá-
vexti og músið þá með gaffli.
Hrærið músinni út í íjómajukkið
og bætið jafnvel smávegis af flór-
sykri út í hræruna til viðbótar ef
kívíið er í súrara lagi.
3. Fletjið út smjördeigið — sem
búið er að vera að minnsta kosti
klukkutíma í kæliskáp — og klæð-
ið með því að innaTt smurt tertu-
fat eða tertudisk með kanti. Klem-
mið mjóar álpappírsræmur með-
fram kantinum svo deigið sígi
ekki meðan á bakstri stendur.
Bakið tertubotninn í um 15 mínút-
ur í 200 gráðu heitum ofni (180
gráðu heitum blástursofni), takið
svo úr ofninum og íjarlægið álst-
rimlana. Hellið fyllingunni í og
bakið áfram í 15-20 mínútur við
180 gráðu hita (160 gráður í
blástursofni).
4. Látið tertuna næstum alveg
kólna áður en þið takið hana var-
lega úr forminu. Hafi tertan verið
bökuð í tertudiski er hún látin
kólna niður, enda þarf þá ekki að
taka hana úr diskinum. Þeytið
afganginn af ijómanum og sprau-
tið honum meðfram kantinum og
í rákum þvert yfir tertuna. Af-
hýðið hina tvo kívíávextina, skerið
þá í sneiðar eftir löngunni og legg-
ið sneiðarnar þétt saman milli
ijómarákanna.
Hugmynd:
Ef þetta á að vera lúxus-terta
þá bragðbætið fyllinguna með um
3 matskeiðum af sætu sérríi eða
portvíni, en látið þá 1 msk. af
maisenamjöli í, því annars þykkn-
ar kremið ekki nóg. Svo er ekki
verra að bera með skál af ískæld-
um þeyttum ijóma að auki.
Verði ykkur að góðu,
Jórunn
Brids
Arnór Ragnarsson
Bridsfélag TálknaQarðar
Ævar Jónasson og Jón H. Gíslason
sigruðu í þriggja kvölda Butler-
tvímenningskeppni sem nýlega er lokið.
Hlutu þeir 137 stig eða jafnmörg og
Björn Sveinsson og Ólöf Ólafsdóttir.
Ævar og Jón sigruðu í leiknum milli
paranna og töldust því sigurvegarar.
Haukur og Þórður urðu þriðju með
131 stig, Guðlaug og Kristín fjórðu
með 113 stig og Egill óg Brynjár
fimmtu með 111 stig.
Bridsfélag Akureyrar
Lokið er 8 umferðum af 18 í sveita-
keppni félagsins, Akureyrarmóti. Spil-
uð er tvöföld umferð, 2—16 spila leikir
á hveiju kvöldi. Röð efstu sveita er nú
þessi:
Hermann Tómasson 165
Grettir Frímannsson 152
Örn Einarsson 149
DAGUR 136
GunnarBerg 130
Stefán Vilhjálmsson 123
Ormar Snæbjörnsson 101
Bridsfélag Breiðfirðinga
Nú er lokið 10 umferðum af þrettán
í aðalsveitakeppni félagsins, og er
keppni mjög hörð um efstu sætin. Ein-
ar sex sveitir koma til greina enn sem
sigurvegarar í þessari keppni. Tvær
sveitir eru reyndar jafnar í efsta sæti,
en staðan eftir 10 umferðir er þannig:
Salsha 182
Elís R. Helgason 182
HansNielsen 176
Ólafur Týr Guðjónsson 171
Guðjón Bragason 169
Sigmar Jónsson 163
HelgiNielsen 158
Ingibjörg Halldórsdóttir 153
Krislján Sigurgeirsson 150
Næsta fimmtudagskvöld fellur spila-
mennska niður hjá félaginu vegna
Reykjavíkurmóts í tvímenningi. Ellefta
og tólfta umferðin verða spilaðar 30.
nóvember.
Myndatökur fró kr. 7.500.-
til jóla.
Öllum tökum fylgja tvær
prufustækkanir, 20x25 cm.
Ljósmyndastofan Mynd,
sími 5 42 07,
Ljósmyndastofa Kópavogs,
simi 4 30 20.
Hótel Akranesmótið
Áformað er að endurvekja Hótel
Akranesmótin, og mun mót verða hald-
in þann 9. desember nk. (laugardag).
Spilaður verður barómeter, hámark 30
pör og 2 spil milli para. Spilað verður
um peningaverðlaun sem samtals eru
125.000 kr. Fyrstu verðlaun verða
50.000, önnur 30.000, þriðju 20.000,
37
fjórðu 15.000 og fimmtu verðlaun
10.000 krónur. Spilagjald verður kr.
2.300 á spilara, eða 4.600 á parið.
Vegna takmarkaðs fjölda í þetta mót
er spilurum bent á að skrá sig hið
fyrsta. Skráning í mótið er í síma BSÍ,
689360, eða hjá Guðmundi Ólafssyni í
93-13097, eða Hreini Björnssyni í
símum 93-12585 (h) og 93-12950 (v). "
IDE -huröirnar frá Bústofni meö fræstum
„fullningum“ prýöa heimilið og gefa því viröu-
legan blæ. Þær fást gegnheilar eöa meö
„frönskum“ gluggum, sem hleypa birtu á milli
herbergja. Frönsku hurðirnareru einnig fram-
leiddar tvöfaldar.
Huröirnarfaravel í nýtízku húsakynnum sem
og til endurnýjunar í eldri húsum. Þær eru því
hvarvetna aölaðandi og hagnýt lausn.
Arkitektar og iönaöarmenn hafa lokið lofs-
oröi á hurðirnar fyrir vandaða smíöi.
Tré er lifandi efni, sem rakastig loftsins hefur
áhrif á. IDÉ-hurðirnareru hannaöarog smíöað-
ar til aö þola 70% sveifluaukningu á rakastigi.
• Huröarfleki samlímdurog karmurúrmassívri
furu eða greni með innfræstum spjöldum.
• Allirkarmar m/þéttilista
• Allar hurðir fulljárnaðar meö sterkum, sér-
smíöuðum lömum.
• Allar breiddir fáanlegar af ýmsum gerðum.
• Veröiö er vitaskuld hagstætt eins og á öllu
ööru hjá BÚSTOFNI.
Biöjiö um bækling.
Komdu í Kringluna ú óvenjulega
símasýningu Pósts og símo
Þér er hér með boðið á símasýningu Pósts og síma dagana 22. til
25. nóvember á 2. hæð í Kringlunni.
Við verðum með nýja og fullkomna síma og símsvara til sýnis
og sölu og þú færð að vita allt um Sérþjónustu í stafræna símakerfinu
og Almenna gagnaflutningsnetið. Komdu á símadaga í Kringlunni 22. til 25.
nóvember. Þú hefur
örugglega gaman
afþví.
POSTUR OG SIMI
Við spörum þér sporin.