Morgunblaðið - 28.11.1989, Side 18

Morgunblaðið - 28.11.1989, Side 18
18 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. NÓVEMBER 1989 Bókasöfn og rannsóknir eftir Guðrúnu Pálsdóttur Fámennið og vísindin í okkar litla og fámenna landi er erfitt að búa þannig að vísinda- mönnum að hæfileikar þeirra fái notið sín. Þrátt fyrir það hafa marg- ir þeirra náð að afla sér alþjóðavið- urkenningar fyrir vísindastörf. Þeir hafa tileinkað sér þacj helsta sem er að gerast í heiminum á sviði tækni og vísinda, jafnframt því sem þeir hafa sýnt frumkvæði og djörf- ung. Nýjustu fræðirita hafa þeir m.a. aflað sér með því að skrifa erlendum starfsbræðrum sínum og útgáfufyrirtækjum. Smám saman hafa þeir byggt upp sérhæfð bóka- og tímaritasöfn á vinnustöðum sínum, söfn sem nú eru ýmist köll- uð sérfræðisöfn eða rannsóknar- bókasöfn. Nú þykir sjálfsagt að hver vísindastofnun hafi að geyma gott safn fræðibóka og þó einkum tímarita, þar sem greinar um nýj- ustu rannsóknirnar birtast. Bókasafiiið — gluggi út í heiminn Háskólar eiga að vera vagga til- vonandi vísindamanna og kenna þeim að vinna að rannsóknum. Ef háskólanemendur hafa ekki áður kynnst bókasöfnum og lært að nota þau á þeim nú að vera það algjör nauðsyn. Á þessu hefur verið mis- brestur hér en er nú óðum að fær- ast í betra horf með aukinni mennt- un þeirra er á söfnunum starfa. Háskólabókasafn og starfsemin þar er kynnt öllum nýjum nemendum skólans. Nemendur í hinum ýmsu deildum fara líka í heimsóknir á stofnanir sem tengjast því fræða- sviði sem þeir hafa valið sér og sumir vinna að námsverkefnum á þeim. Margir hrista hausinn yfir fátækt safnanna og telja sig ekkert hafa þangað að sækja, þau séu svo lítil að eins gott sé að láta bara skyldubundnar námsbækur duga. Aðrir leggja ótrauðir á brattann og verða þess brátt áskynja að útsýnið af toppnum er hreint ekki svo slæmt. Það hefur nefnilega ekki allt að segja að bókin eða tímaritið sé í ákveðinni hillu, helst við lestrar- borðið. Hægt er að útvega greinar erlendis frá og úr öðrum íslenskum söfnum á tiltölulega skömmum tíma þar sem samstarf bókasafna í heim- inum er mjög gott. Bækur eru )án- aðar milli landa og greinar ljósritað- ar og sendar frá einu safni til ann- ars. Þannig bæta söfnin hvert ann- að upp og hérlendis hafa mörg söfn skipt á milli sín kaupum á dýrum en mikilvægum tímaritum. Tölvuleitir í fræðabönkum sívaxandi Erlendis hafa verið byggðir upp viðamiklir fræðabankar þar sem hinu ólíkasta efni er safnað saman á einn stað sem hægt er að tengj- ast með aðstoð tölvu og leita að ákveðnum upplýsingum. Háskóla- bókasafn og mörg bókasöfn íslenskra rannsóknastofnana geta tengst þessum bönkum og sparað þannig rannsóknarmanninum geysimikinn tíma við að afla sér heimilda vegna verkefnis sem hann er að vinna að. Til að skýra þetta betur er rétt að taka ítarlegt dæmi: Til Jóns Jónssonar læknis Ieitar sjúklingur með sjaldgæfa tegund krabbameins. Jón Jónsson hefur ekki meðhöndlað þennan ákveðna sjúkdóm í nokkur ár og vill gjaman endurnýja þekkingu sína á honum ■ og öðlast vitneskju um nýjustu rannsóknir og meðferð. Hann hefur ekki tíma til að leita í tímaritum bókasafns Landspítalans og snýr sér því til bókasafnsfræðingsins sem gerir tölvuleitir. Sá síðarnefndi leitar í hinum alþjóðlega læknis- fræðilega gagnagrunni Medline og fær undireins upp á tölvuskjáinn hve margar greinar eru til í þeim grunni um þessa tegund krabba- meins. Hægt er að skoða heiti greinanna, sjá hver skrifaði, hvar þær birtust og lesa stuttan útdrátt. Jón velur þær greinar sem honum líst best á og starfsmenn safnsins útvega þær sem ekki eru í tímarit- um á bókasafni Landspítalans. Hægt er að senda beiðni um ljósrit með aðstoð tölvu og ef Jóni Jóns- syni bráðliggur á getur hann fengið greinar í póstfaxi samdægurs er- lendis frá. Yfirleitt dugir þó venju- legur póstur. Árvekniþjónusta til að fylgjast með Nú myndu flestir meðaljónar vera ánægðir með árangurinn en Jón okkar veit að þarna á bókasafn- inu er hægt að fá aðra þjónustu, árvekniþjónustu, sem er í því fólgin að fylgst er með nýjum greinum um ákveðið efni og viðkomandi lát- inn vita. Með einni skipun í tölv- unni geymir hún leitina og gerir Guðrún Pálsdóttir „Á söftium flestra íslenskra rannsókna- stofiiana vinnur nú fólk sem er sérhæft í að skrá þekkingu á skipulegan hátt og miðla henni. Is- lenskir vísindamenn taka enn virkan þátt í að byggja þessi söfii upp, bæði með stöðug- um ábendingum um ritakaup og eigin rit- verkum.“ hana reglubundið í hvert skipti sem nýtt efni er sett inn í grunninn. Jón fær þannig inn á borð til sín skrá yfir greinar um sjúkdóminn jafnóð- um og þær birtast. Þannig er bóka- safnið upplýsingamiðstöð tengd öðrum slíkum. Oft eru upplýsingaleitir „hand- virkar", þ.e. leitað er í gögnuni safnsins — útdráttarritum —, farið í gegnum eidri heimildaleitir og fylgst með efni ákveðins tímarits fyrir vísindamahn sem veit að í því birtast sennilega greinar er varða hans rannsóknarsvið. Hin hraðfara tækni hefur svo fært inn á bóka- söfnin myndbönd og geisladiska sem geta geymt ógrynni upplýsinga og eru nú sem óðast að leysa prent- uð útdráttarrit af hólmi. Markviss þekkingaröilun... ’ Dæmi um hve svona heimildaleit- ir geta sparað rannsóknaraðila tíma, fé og fyrirhöfn er það þegar vísindaménn þurfa að hefja rann- sóknir á nýju fræðasviði. Má þar t.d. nefna rannsóknir í fiskeldi sem á mörgum sviðum eru í burðarliðn- um hérlendis vegna fjársveltis og' aðstöðuleysis. Er það í litlú sam- ræmi við það ofurkapp sem lagt er í framkvæmdir. Erlendis hefur víða verið lögð áhersla á fiskeldisrann- sóknir og hafa menn hér því getað lagt upp með góða þekkingu á hin- um ýmsu vandamálum er upp kunna að koma. Fyrir kemur að menn finna fáar ritaðar heimildir um rannsóknir svipaðar þeim sem þeir ætla að gera. Skýringar geta m.a. verið þær’ að: 1) eldri rannsóknir hafi verið gerðar fyrir það löngu að tölvutæk- ir gagnagrunnar nái ekki svo langt aftur í tímann (fæstir ná lengra aftur en til 1968-70), 2) leit sé ómarkviss (verkefnið sé ekki nógu vel skilgreint) og 3) þetta afmark- aða svið hafi ekki áður verið rann- sakað. (Liðir 2 og 3 eiga jafnt við um „handvirkar" leitir.) Sumir leita til þess eins að fá grun sinn um liö 3 staðfestan og verða allra manna kátastir ef ekkert finnst — þeir eru þá frumhetjar að kanna ókunn mið. ... og miðlun þekkingar Bókasöfn háskóla og rannsókna- stofnana eru fyrst og fremst upplýs- ingamiðstöðvar. Þar er stöðugt afl- að nýrra rita í stað þeirra sem úreld- ast og reynt að fylla upp í eyður með ritaskiptum, lánum milli safna og með því að leita í fræðabönkum. Á söfnum flestra íslenskra rann- sóknastofnana vinnur nú fólk sem er sérhæft í að skrá þekkingu á skipulegan hátt og miðla henni. íslenskir vísindamenn taka enn virkan þátt í að byggja þessi söfn upp, bæði með stöðugum ábending- um um ritakaup og eigin ritverkum. Söfnin geyma niðurstöður hinna íslensku rannsókna og byggja upp íslenska fræðabanka sem þau svo miðla úr. Þangað sækir almenning- ur og vísindamenn sem vita að söfn- in tengja þá við íslenskan fræða- heim og alþjóðlegan heim þekking- ar og framfara. Höfundur er bókasafnsfneðingur við Rannsóknastofnun landbúnaðarins. Vísindamenn eiga hér greiðan aðgang að nýjustu fagtímaritum. VIÐ MÚRINN eftir Birgi ísl. Gunnarsson Það var síðla vetrar 1963. Ég var staddur í Vestur-Berlín, ungur maður, ásamt nokkrum félögum. Múrinn var þá 1 árs gamall. Ég gleymi því aldrei þegar við gengum að múrnum og tilfinning óhugnaðar og undrunar hríslaðist niður eftir bakinu. Þó hafði maður lesið um þetta allt, en eins og endranær var sjón þarna sögu ríkari. Yfir í Austur-Berlín Við létum þó ekki staðnæmast við þetta eitt, heldur fórum í gegn- um Checkpoint Charlie fótgangandi inn í Austur-Berlín. Við fórum að kvöldlagi úr iðandi mannlífí og ljósadýrð Vestur-Berlínar inn í dimmar, fáfarnar götur Austur- Berlínar. Mest áberandi vegfarend- ur voru lögreglumenn með stóra Scháfer- eða Dobermanhunda. Munurinn á öllu yfirbragði var ótrú- legur. Þessi reynsla varð mér mjög eftirminnileg. Mér fannst það með ólíkindum þegar heim kom, að á íslandi væru harðar deildur um ágæti sósíalismans og sæluveröld- ina í Austur-Evrópu. Árið áður hafði . þekktur Alþýðubandalags-. maður ritað í Þjóðviljann eftir heim- sókn sína í Austur-Þýskalandi orð- rétt: „En fullyrt er að yfirleitt hafi almenningur í Austur-Þýskalandi orðið því feginn að freistingin var frá þeim tekin og andi léttar en áður.“ Að taka freistinguna Þetta var hin opinbera skýring valdhafanna í Austur-Þýskalandi á byggingu múrsins. Að taka freist- inguna frá fólkinu. Það er stutt síðan einn af þingmönnum Alþýðu- bandalagsins vildi láta banna kred- itkort á Islandi af því að þau væru of mikil freisting fyrir fólkið. Við þekkjum orðalag sósíalistanna sem alltaf vilja hafa vit fyrir fólkinu og verð ég þó að viðurkenna að hér er ólíku saman að jafna. Um svipað leyti voru allmargir íslenskir sósíalistar við nám í Aust- ur-Þýskalandi. Þeir komu heim og héldu áfram að boða sósíalisma þótt þeir hefðu kynnst af eigin raun þeim alþýðubandalögum sem höfðu tögl og hagldir í sósíalistaríkjunum í Austur-Evrópu. Á þeim tíma sögðu þeir okkur hinum aldrei satt um ástandið eins og það var í þessum ríkjum sósíalismans. Það skrifuðu þeir.Ueyniakýrslumtil flokksbrodda á íslandi. Og Þjóðviljinn, sem enn þann dag í dag titlar sig sem mál- gagn sósíalisma, talaði þegar best Iét í háifkæringi um það sem þarna var að gerast. Innrás Sovétmanna í Tékkóslóvakíu var þegar hér var komið sögu enn ekki orðin stað- reynd. Eftir þá innrás sagði einn af forustumönnunum í þessari fylk- ingu íslenskra sósíalista og þeirra menningarleiðtogi: „Þetta verði lengi notað.“ Moggalygi Tilhneigingin til að færa allt til betri vegar, afsaka í eigin huga og gagnvart öðrum allt svínaríið var með ólíkindum. „Moggalygi" var vinsælt slagorð hjá íslenskum sósí- alistum þegar verið var að segja satt um ástandið í austantjaldslönd- unum. í dag hijóta menn að spyija: „Hveijir höfðu rétt fyrir sér?“ Og auðvitað verða íslenskir sósíalistar að svara þeirri spurningu hreint út undanbragðalaust. Fyrir 18 mánuðum var ég aftur staddur í Vestur-Berlín og nú með konu minni. Við fórum að múrnum og sama tilfinningin og áður gagn- tók mig. Nú voru víða blóm við múrinn og minnismerki til að minn- ast þeirra sem reyndu að flýja vest- uryfir. en. voru drepnir _að skipun Birgir ísleifúr Gunnarsson „Maður spurði sjálfan sig hvernig getur þetta gerst? Þetta er sama gatan, sama borgin, sama fólkið, sama þjóð- in. Samt eru þetta tveir ólíkir heimar.“ stjórnmálaleiðtoga sósíalista í Aust- ur-Berlín. Við hjónin ákváðum að ganga yfir til Austur-Berlínar og eyða þar hluta úr degi. Við fórum í gegnum víghreiðrið á Checkpoint Charlie, stóðum lengi í biðröð en að lokum vorum við stödd í Austur- Berlín. Sama borgin, sama fólkið Enn var munurinn á borgarhlut- unum ótrúlegur. Maður fór úr ys og þys hins fjölbreytta mannlífs í Vestur-Berlín yfir í fátæklega, þunglamalega og drungalega Aust- ur-Berlín. Þó varstu alltaf í sömu borginni. Checkpoint Charlie liggur í gegnum hlið á múrnum sem hlað- inn hefur verið þvert yfir Friedrich Strasse og gatan ber sama nafn báðum megin. Maður spurði sjálfan sig hvernig getur þetta gerst? Þetta er sama gatan, sama borgin, sama fólkið, sama þjóðin. Samt eru þetta tveir ólíkir heimar. Heimur vest- ræns frelsis og heimur sósíalism- ans. í raun var það tilviljun hvoru megin fólkið lenti. Þetta voru óraunveruleg strik á korti, en samt áttu þau eftir að skipta sköpum. Ráða örlögum heillar kynslóðar sem lenti austan við múrinn. Við geng- um þarna götu eftir götu, fundum veitingastað, fengum okkur að borða og fengum hlýlegt viðmót afgreiðslufólksins, en þegar við komum út og ég vildi halda áfram göngunni, sagði konan mín: „Ég get þetta ekki lengur. Það er í mér slíkur óhugur að ég verð að komast héðan.“ Við fórum eftir sömu leið til baka, framhjá vopnuðu vörðun- um sem skoðuðu vegabréf okkar af stakri nákvæmni og yfir okkur gnæfðu varðturnar þar sem sátu hermenn með Rambo-byssur. Við önduðum léttar þegar yfir var kom- ið. Höfundur er einn af alþingismönnum Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.