Morgunblaðið - 16.12.1989, Page 26
26
MORGUNBLAÐIÐ LAUGÁRDAGÚR 16. DESEMBER 1989
JÓLATILBOÐ:
Sterkari,
Stólar fró
6.500,-1
létlari og
þægilegri
húsgögn!
Jólatllboðsverð
ó stól oo tölvuborði.
Aðeins kr. 13.900,—
- og rrveð Wldorpl6tu
kr 15.350,-
-WCl T STEINAR
STALHUSGAGMAGERD
Smiöjuvegi 2 • Smiðjuvegi 5 • 200 Kópavogi
S 91-46600 • Fax: 91-45200
JÓLAGJÖFIN HENNAR
^PiiADy
Nútímá lausn á þekktu vandamáli.
Epilady er fyrir nútímakonur.
Fjarlægir óæskileg hár .af fótleggjum
betur og varanlegar en áður hefur þekkst.
Sundaborg 9, sími 681233.
Fæst í snyrtivöruverslunum,
apótekum og raftækjaverslunum.
Sjávarbyggð undir Jökli
Að loknum róðri. Myndin er af Snæfellsnesi og er birt í bókinni Sjáv-
arbyggð undir Jökli.
eftir Jón Böðvarsson
Undanfarin ár hafa birst nokkr-
ar bækur og tímaritsgreinar um
byggðasögu. Misjafnar eru
ritsmíðar þessar að efnisvali, efni-
stökum, umfangi og gæðum en
eiga flestar sammerkt að ritunar-
og prentkostnað greiða sveitarfé-
lög eða fjölmenn samtök sem geta
með áskriftargjöldum ráðið við
fjárhagsvanda. Undantekning er
bókin Saga Fi-óðárhrepps, fyrra
bindij eftir Eirík Guðmundsson,
Jón Ama Fi-iðjónsson og Ólaf Ás-
geirsson, sem út kom 1988. Að
henni stendur Átthagafélag Fróð-
hreppinga sem í reynd mun vera
nokkrir brottfluttir Fróðhrepping-
ar með Ólaf Kristjánsson í Ólafsvík
í fylkingarbijósti.
FVóðárhreppur er mjög fámenn-
ur og telja má víst að hann hverfi
innan skamms úr tölu sjálfstæðra
sveitarfélaga. Aðstandendur bók-
arinnar töldu æskilegt að skrá
sögu byggðarlagsins áður en sú
stund rennur upp af átthaga-
tryggð og sökum þess að fyrr á
öldum var Fróðárhreppur þéttbýll
og söguríkur. Umsvif í útgerð vom
mikil og gustur lék um héraðs-
höfðingja sem þar voru búsettir.
Margt gerir Sjávarbyggð undir
Jökli að sérstæðu byggðarsöguriti.
Fyrst skal nefnt að bókarhöfundar
eru þrír. Þeir skipulögðu ritverkið
sameiginlega og höfðu samvinnu
um rannsókn heimilda — í sjálf-
boðavinnu og heita rná. Við bókar-
samningu skiptu þeir með sér
verkum en lásu yfir hver hjá öðr-
um og samræmdu áður en loka-
hönd var á lögð. Slík vinnubrögð
hafa ekki tíðkast til þessa í sagn-
fræðaritun hérlendis. Bókin er
fyrsta úttekt á sjávarbyggð á ís-
landi sem felur í sér félags- og
hagsögulega lýsingu og greiningu
á sama byggðarlagi í þúsund ár.
Þótt hún sér staðbundin rannsókn
hefur hún víðtækt gildi á landsvísu
og leiðir margt nýtt í ljós.
Hér er ekki ætlun að ritdæma
en vakin skal athygli á að bókin
hefur hlotið góðar viðtökur les-
enda og umsagnir, sem birst hafa,
eru afar jákvæðar.
Þórarinn Þórarinsson, fyrrver-
andi ritstjóri, ber Sjávarbyggð
undir Jökli saman við Eyrbyggju,
sem að nokkru fjallar um forna
merkisatburði í Fróðárhreppi og
segir:
„Fyrra bindi Fróðárhrepps sögu,
sem kom út á þessu ári, er frá-
bært rit vegna vandaðrar sagn-
fræðilegrar vinnu og alþýðlegs og
viðfelldins frásagnarstíls. Þar er
því ekki ofmælt að hún lofar meist-
ara sína eins og Eyrbyggja. Hún
sýnir og sannar, að íslendingar
eiga enn góða sagnamenn." Síðar
„Fróðárhreppur er
mjög fámennur og telja
má víst að hann hverfi
innan skamms úr tölu
sjálfstæðra sveitarfé-
laga. Aðstandendur
bókarinnar töldu æski-
legt að skrá sögu
byggðarlagsins áður en
sú stund rennur upp af
átthagatryggð og sök-
um þess að fyrr á öldum
var Fróðárhreppur
þéttbýll og söguríkur.“
í ritdómi Þórarins segir að höfund-
ar eigi þakkir skildar „fyrir vandað
verk sitt, er sómir sér vel við hlið
bestu rita um íslandssögu í hvaða
bókaskápi sem er. Frágangur bók-
arinnar er vandaður.“
Ólafur Elímundarson segir í
ítarlegum ritdómi í tímaritinu
Sögu 1989:
„Ekki er að efa að höfundum
hafi tekist það sem þeir hugðust
gera að „rannsaka vandlega ...
byggð og mannlíf í Fróðársveit frá
landnámi...“ og að gera „nokk-
urs konar þversnið af sögu ís-
lands“, sem stuðli að þvi að varpa
„nýju ljósi á þjóðarsöguna. Meira
mun að vísu þurfa, en þessi bók
er áreiðanlega dijúgt lóð á þá
vogarskál."
Útgáfukostnaður þessa stór-
virkis hefur reynst útgefendum
þungur baggi. Bækur sem þessi
seljast yfirleitt hægt. Með góðri
söluskoipu um síðustu áramót
náðist um helmingur kostnaðar við
ritun og útgáfu verksins. Síðan
hefur sala verið umtalsverð en þó
ekki nægt til þess að greiða vexti
af eftirstöðvum. Haldi fram sem
horfir mun takast að hindra að
skuldin vaxi en hún verður jöfn
og nú þegar upplag þrýtur.
Snæfellingar, ættaðir undan
Jökli, eru fjölmennir og dreifðir
um land allt. Sýni þeir uppruna-
slóðum sínum þá ræktarsemi að
kaupa bókina vinnst margt. Þeir
eiga í vændum marga ánægju- og
fróðíeiksstund við lestur merkirits
og hindra jafnframt þá hneisu að
umtalsvert fjártjón verði einu
verkalaun manna sem með lofs-
verðum stórhug hafa bjargað sögu
sveitar sinnar frá gleymsku. Selj-
ist bókin nú fyrir kostnaði tryggja
kaupendur einnig útgáfu síðara
bindis sem, vel er á veg komið en
vart mun dagsljós sjá að öðrum
kosti.
Höfundur er ritstjórl lönsögu
íslendinga.
Skíðavörumarkaúur - skíðaferúir
í hjarta borgarinnar (Steindórshúsið, Hafnarstræti 2)
Barnaskíðapakkar verð frá kr. 9.850.- Fullorðinsskíðapakkar verð frá kr. 18.530.-
Unglingaskíðapakkar verð frá kr. 13.220.- Gönguskíðapakkar verðfrákr. 8.240.-
Mikið úrval af skíðavdrum og skíðaferðum
Jólagjöfin í ór - gjafabréf Flugleiða til ferðalaga:
Skóla- og útskriftarferðir -
Brúðkaupsferðir - Sumarleyfisferðir
OPIÐ í KVÖLD TIL KL. 22.00.
FLUGLEIDIR
Sportmarkaðurinn
Hafnarstræti 2 Skipholti 50c
króakr æ
Ihíiantnrd t-Sád 6i-,1O-£0 J "