Morgunblaðið - 16.12.1989, Side 41
41
Loðnulöndun á Raufarhöfn.
Morgunblaðið/Ólafsson
MORGUNBLAÐIÐ LAUQARDAGUR 16. DESEMBER 1989
SkoðanaJkönnun DV á fylgi stjórnmálaflokkanna:
47% óákveðnir
eða svara ekki
en í kosningunum. Enginn sem
spurður. var sagðist ætla að kjósa
Borgaraflokk eða Flokk mannsins.
Borgaraflokkur fékk 10,9% atkvæða
í síðustu alþingiskosningum 'og
Flokkur mannsins 1,6%.
DV gerði skoðanakönnunina í vik-
unni. I úrtakinu voru 600 manns.
NÆRRI helmingur þeirra sem DV leitaði til í skoðanakönnun á fylgi
stjórnmálaflokkanna, eða 47%, voru óákveðnir eða vildu ekki svara
spurningu um hvaða flokk þeir myndu kjósa ef kosið yrði nú. Tæp-
lega helmingur þeirra sem afstöðu tóku sögðust styðja Sjálfstæðis-
flokkinn, eða 49,4%, sem er 10% minna en í síðustu könnun DV en hátt
í tvöfald meira fylgi en flokkurinn fékk í síðustu alþingiskosningum.
Samkvæmt þessu fengi' Sjálfstæðisflokkurmn meirihluta þingmanná
ef kosið yrði nú.
Framsóknarflokkurinn á stuðning
20,8% þeirra sem afstöðu tóku í
könnuninni, það er rúmum 7% meira
en í könnun DV í október og 2%
meira en í síðustu alþingiskosning-
um. Alþýðubandalag styðja 11%, það
er 1% meira en í október en 2%
minna en í kosningunum. Kvenna-
lista sögðust 9,1% kjósa, það er svip-
að fylgi og í október en 1% minna en
í kosningunum. 6,9% þeirra sem af-
stöðu tóku sögðust myndu kjósa
Alþýðuflokk. Það er 1% meira en í
síðustu könnun DV en aðeins tæpur
helmingur af fylgi flokksins í síðustu
kosningum. Þjóðarflokkur á stuðn-
ing 1,6% þeirra sem afstöðu tóku,
það er heldur meira en í síðustu
kosningum og fengi flokkurinn
mann kjörinn á þing ef kosið yrði
nú samkvæmt útreikningi DV.
Frjálslyndir hægri menn fengju 0,6%
atkvæða og er það jafn mikið fylgi
og mældist í síðustu könnun blaðs-
ins. 0,6% segjast styðja Stefán Val-
geirsson. Það er tvöfalt meira en í
síðustu könnun en helmingi minna
Kringlan:
Bílastæðum
íjölgar um 850
BÍLASTÆÐUM við Kringluna
hefur fjölgað um 850 til að mæta
aukinni þörf í jólaösinni.
Aðstandendur Kringlunnar bjóða
viðskiptavinum sínum í jólainn-
kaupum aðgang að 850 bílastæðum
til viðbótar við þau 2.000 sem fyrir
voru. Er þetta gert í góðri samvinnu.
við borgaryfirvöld. Stæðin eru á
grasflöt norðan við Hús verslunar-
innar, í kjallara húss Sjóvá/Al-
mennra á lóð Morgunblaðsins, í
kjallara Kringlunnar 4—6 og á lóð
Verslunarskóla Islands.
Kindakjöt:
925 tonn seld-
ust í nóvember
ÁÆTLUÐ sala á kindakjöti í
nóvember var samtals um 925
tonn. Samkvæmt upplýsingum
frá Framleiðsluráði landbúnað-
arins seldust um 410 tonn af nýju
kjöti í mánuðinum, en um 515
tonn seldust af birgðum firá 1988.
Gert var ráð fyrir að selja um
800 tonn af kindakjöti frá 1988 á
sérstöku tilboðsverði í nóvember,
en þar sem salan var minni en búist
var við hefur verið ákveðið að til-
boðsverðið gildi áfram út desember.
Morgunblaðið/Þorkell
Gallar hafa komið í ljós á Læknagarði, húsi læknadeildar Háskóla íslands. Meðal annars hefúr enn
ekki verið gengið endanlega frá leiðslum úr gaskútum i gámi utan við húsið en til stendur að flytja þá
í sérstaka byggingu.
LANGUR byggingatími, auknar kröfúr og reynsla sem fengist hefúr
af Læknagarði liafa leitt í ljós galla á byggingunni og telur Orn
Bjartmars Pétursson forseti tannlæknadeildar Háskóla Islands að
sumir þeirra séu hættulegir en aðrir valdi mönnum óþægindum.
Að sögn Hallgríms Snorrasonar formanns Yfírsfjórnar mannyirkja-
gerðar á Landspítalalóð, hafa þegar farið fram nokkrar úrbætur.
Þá liggja fyrir tillögur að breytingum sem fallist hefúr verið á af
háffú notenda og vinnueftirliti og hefjast þær framkvæmdir á næst-
unni. Heildarkostnaður er áætlaður tæpar 6 milljónir króna, þar
af eru kostnaður við tengingar við gasgeymslu rúmlega 1,6 milljón-
ir sem ekki telst til kostnaðar vegna byggingagalla.
„Það eru ýmsir ágallar á bygg-
ingunni enda hefur töluverðum
tíma verið eytt í það undanfarna
mánuði að fara yfir þessar um-
kvartanir og ábendingar,“ sagði
Hallgrímur. Meðal atriða sem bent
hefur verið á er að gasleiðslur liggi
samhliða rafmagnsleiðslum, ryk
falli úr lofti og að gólfdúkur á
göngum sé úr ósléttu efni og því
ekki hægt að aka viðkvæmum
tækjum á milli herbergja. „Sum
þessara mála eru gamalkunn úr
umræðunni um tannlæknadeildina
og hafa verið tekin til meðferðar
áður en verið afgreidd með þeim
hætti sem tannlæknum hefur ekki
líkað. Á það sérstaklega við um
gólfdúkinn og plöturnar í loftinu
en gaslekinn og loftinntakið kom
ekki til umfjöllunar fyrr en á þessu
ári.“
Hallgrímur benti á að byggingin
er hönnuð á árunum eftir 1970 og
miðuð við þá staðla sem þá voru í
gildi en eru ekki lengur. „Bygging-
artíminn hefur reynst langur og
eins og oft er um opinberar bygg-
ingar þá eru þær teknar í notkun
smátt og smátt en ekki flutt inn í
fullbúið hús,“ sagði Hallgrímur.
„Byggingin er því enn í smíðum
og hefur ekki verið tekin endanlega
út. Þau atriði sem talað er um sem
hönnunargalla eru það í raun ekki,
heldur er fyrst og fremst um að
ræða auknar kröfur miðað við þær
sem farið var eftir þegar byggingin
var hönnuð."
Það er embætti húsameistara
ríkisins sem hefur hannað bygging-
una og sagði Garðar Halldórsson
húsameistari, að sum þeirra atriða
sem væru gagnrýnd væru til komin
vegna fjárskorts. Til dæmis hefur
í nokkur ár verið beðið eftir að
hægt yrði að ganga frá gas-
geymslu sem nú er í gámi utan-
húss. „Áður en húsið er hannað eru
menn yfirleitt með gaskútana inni
í húsunum en síðan verður stefnu-
breyting og við hönnun hússins
vildu menn vanda sig og mæta
auknu öryggi með því að setja
kútana út og leggja lagnir frá þeim
upp í gegn um húsið,“ sagði Garð-
ar. „Það er svo frágangur þessara
lagna sem menn vilja bæta með
því að setja á þá sérstaka skynj-
ara, sem gera vart við ef einhver
gasleki finnst og þá lokast sjálf-
krafa fyrir gasflæðið.“
Garðar sagði um kvartanir
vegna gólfdúksins, að hann hefði
fyrst og fremst verið valinn vegna
slitþols. Hann er í aðalinngangi,
stigagangi og á göngum inn á
hverri deild en ekki á vinnusvæð-
um. „Við unnum að þessu með
notendum hússins á þeim tíma og
þeim eða okkur kom ekki til hugar
að hann gæti valdið þeim vanda
sem síðar kom í ljós þegar vagnar
voru keyrðir á honum,“ sagði Garð-
Bræla á loðnunni
BRÆLA rak loðnuflotann í land í fyrri nótt, en síðustu dægrin
fóru 9 bátar í land með samtals 2.750 tonn. Þrátt fyrir að dregið
hafi fyrir tungl, grynnkaði loðnan ekki á sér og telja menn að
hlýsjávarlag haldi loðnunni fyrir neðan 60 til 70 faðma.
Eftirtaldir bátar hafa tilkynnt hamar 200 og Björn Jónsdóttir
um afla frá því árdegis á fimmtu- 300 tonn til Þórshafnar, Súlan 250
dag: Sjávarborg 450, Albert 450 til Krossaness og Vikurberg 200
og Erling 100 tonn til Raufar- til Siglufjarðar með rifna nót efti.r
hafnar, Guðmundur Ólafur 500 til hval.
Ólafsfjarðar, Húnaröst 300, Þórs-
ar. „Hvað loftplöturnar varðar þá
hef ég ekki fengið nein fullnægj-
andi rök fyrir að rykið komi úr
plötunum. Það eru ýmsir aðrir
möguleikar fyrir hendi eins og utan
frá lóðinni sem ekki hefur fengist
fé til að ljúka við frágang á. Ég
hef trú að þetta geti verið ástæðan
þó svo að ég sé ekki viss en sams-
konar plötur eru í loftunum á efri
hæðum hússins, þar sem ekki hafa
komið fram athugasemdir."
Nokkur ár eru síðan tannlækna-
deildin flutti inn í húsið en rann-
sóknarstofur læknadeildar á þriðju
og fjórðu hæð voru teknar í notkun
í fyrra og á þessu ári. Eftir er að
ganga frá rými í kjallara og hluta
suðurkjarna byggingarinnar. Sam-
kvæmt kostnaðaráætlun sem gerð
hefur verið er gert ráð fyrir að
kostnaður vegna breytinga á loft-
ræsikerfi verði kr. 277 þús., kostn-
aðúr vegna þrýstiloftskerfis verði
rúm 1,6 milljón, kostnaður vegna
gaslegna rúmar 2,5 milljónir, vegna
rafkerfis kr. 350 þús., kostnaður
við nýjan dúk 1,1 milljón og máln-
ing á loftplötur kr. 50 þús. Bygg-
ingarkostnaðurinn er greiddur af
Háskóla Islands og ráðast fram-
kvæmdir af ráðstöfunarfé háskól-
ans hveiju sinni.
Ákveðið hefiir verið að setja upp
gasskynjara og neyðarrofa við
gasleiðslurnar á hverri hæð.
Hefur vinnueftirlitið samþykkt
að raf- og gaslagnir liggi í lagna-
skáp ef skápar verða opnaðir
niður við gólf.
Starfsmenn Þjóðleikhússins
hlynntir tillögu um endurbætur
LEIKARAR og tæknimenn Þjóðleikliússins telja tillögu byggingar-
nefndar um framkvæmdir í fyrsta áfanga endurbóta á húsinu
gera það að betra leikhúsi bæði fyrir flyljendur leiklistarinnar
og leikhúsgesti. Hafa félög starfsmanna sent frá sér stuðningsyfir-
lýsingu við framkvæmdirnar með óskum um að þær nái sem fyrst
fram að ganga og skora jafnframt á stjórnvöld að samþykkja til-
lögu nefiidarinnar.
Í frétt frá Þjóðleikhúsinu segir
að, fundarhöld og skoðanaskipti
hafi átt sér stað meðal starfs-
manna í rúmt ár um breytingar
á starfi og byggingu hússins.
Þijár nefndir hafa verið skipaðar
af menntamálaráðherra og hafa
þær allar átt nokkra fundi með
starfsmönnunum, þar sem ítarleg-
ar umræður og skoðanaskipti
hafa farið fram. Hefur einnig ver-
ið tekið tillit til skýrslu leikhús-
byggingarsérfræðingsins Miklos
Ölveczkys um ástand hússins og
möguleika á endurbótum.
Eftir fund í Leikarafélagi Þjóð-
leikhússins var samþykkt stuðn-
ingsyfirlýsing við framkvæmda-
áætlun byggingarnefndar. Er
vonast til að stuðningurinn geti
orðið til þess að auðvelda nefnd-
inni framkvæmdir, svo breyting-
arnar nái fram að ganga á tilskild-
um tíma. Þá lýsti fundur í Félagi
Tæknimanna yfir eindreignum
stuðningi við teikningar, verk-
þáttaröð og tímaáætlun bygging-
arnefndar.
Aiiknar kröfur á bygging-
artíma kalla á breytíngar
Aætlaður kostnaður við breytingar á Læknagarði tæpar 6 milljónir