Morgunblaðið - 16.12.1989, Qupperneq 49

Morgunblaðið - 16.12.1989, Qupperneq 49
G8C1 MoáÖöMiíÍAÖiÐ ^öÖiööiBöé láí’BéáMföyÉÍi' fós9 8% Það er puð að staðsetja Bjartmar Hljómplötur Sveinn Guðjónsson Það er ófrávíkjanlegt lögmál að eftir því sem smellirnir eru hærri þeim mun erfiðara er að endurtaka þá. „Sumarliði er íullur“ var býsna hár smellur, en samt tókst Bjartmari Guð- laugssyni að yflrgnæfa hann með „Týndu kynslóðinni", sem líklega er í hópi vinsælustu laga á þessum áratug. Tvö ár eru nú liðin síðan það lag kom út og Bjartmari hefur enn ekki tekist að slá því við, og skal engann undra. En þótt Bjartm- ari takist ekki að endurtaka „súpersmell“ sinn á nýju plöt- unni „Það er puð að vera strák- ur“, er ekki þar með sagt að þar sé ekki að finna ýmsa áhugaverða punkta. Fyrir það fyrsta er Bjartmar mun tónvissari á þessari plötu en fyrri plötum sínum. Hann er hætt- ur að lafa í tóninum eins og hann átti til áður og er það mikil fram- för. Hljóðfæraleikur er j öruggum höndum þeirra Ásgeirs Óskarsson- ar og Björgvins Gíslasonar svo og útsetningar og upptökustjórn. Þeir félagar eru báðir orðnir liðtækir hljómborðsleikarar og þykir greiniiega gaman að pæla í þeim möguleikum sem hljóðgervlarnir bjóða upp á, bæði í tóni og hljóð- hverfingum (hljóðeffektum??)! Þó bregður víða fyrir gamla góða „Popps- þelinu“, sem yljar um hjartaræturnar. Samt hefði ég kosið að heyra aðeins meira í gam- aldags gítar hjá virtúósnum Björg- vini, því þar er hann á heimavelli þar sem fáir standa honum á sporði. En ég má bara ekki orðið heyra í hljóðgei-vlum, þá hrekk ég í Saklás og líklega stafar þessi fælni mín bara af því að sjálfur er ég að verða dálitið framorðinn. Svo oft hefur Bjartmari verið hælt fyrir texta sína að ekki þarf að endurtaka það hér. Eins og fyrri daginn tekst honum á þess- ari plötu að klæða lög sín í mynd- rænan búning þannig að maður hefur gaman af þeim, þótt þau séu kannski ekkert sérstök út frá fag- legu sjónarmiði. Lögin bera það nefnilega sum með sér, að þau eru samin af manni sem er sjálfur ekki mikill hljóðfæraleikari. Það .sem ég held þó að hái Bjartmari mest er að það er eins og hann sé ekki búinn að ákveða hvað hann ætlar að verða þegar hann er orð- inn stór! Ætlar hann að syngja fyrir börn, unglinga eða fullorðna? Ætlar hann að verða gamanví- snasöngvari eða poppari? Eða er hann kannski að reyna að sameina þetta allt eins og honum reyndar tókst með „Týndu kynslóðinni“. Það þessu leyti er það talsvert puð að staðsetja Bjartmar í heimi dæg- urtónlistarinnar og ég held að ég geri ekki frekari tilraun til þess nú. ■ FÖTLUÐ börn og unglingar sýna brúðuleikhús og helgileik í nýju íþróttahúsf fatlaðra í Hátúni 14 á morgun klukkan 14.30. María Eiríksdóttir stjórnar. Um helgina stendur einnig yfir í íþróttahúsinu sýning á tölvuunnum myndverkum Harðar Björnssonar, en andvirði myndanna rennur til byggingar íþróttahússins. Þ.ÞDRGRÍMSSON &C0 TOpARMA PLAST ÁRMÚLA 1 6 OG 29, S. 38640 SKEMMTILEG MYNDABOK SEM ÖRVAR MÁLÞROSKANN Myndaspjall veitir uppalendum ómetanlegt tækifæri til að spjalla við börnin um hluti sem þau kannast við úr umhverfi sínu. Bókin hefur að geyma mörg hundruð orð og litmyndir sem auka orðaforðann og skerpa athyglina. fl TÍJCHÁB33SCÁBIW FYRSTA orðabókin mín ORÐABOK FYRIR BORNIN ÍSLENSK-ENSK-DÖNSK Fyrsta orðabókin mín eftir Richard Scarry. Yfir 1000 bráðskemmtilegar litmyndir prýða þessa bók og gera málanámið að lifandi og áhugaverðum leik. Um leið hjálpar bókin yngstu börnunum að þekkja umhverfi sitt. Bókin kemur að ómældum notum við að kenna byijendum að stafa og lesa. > FALLEGAR OG ÞROSKANDI BÆKUR FYRIR ÞAU ALLRA YNGSTU I sveitinm, Batur, hús og bíll, Leikföngin mín og Húsið mitt eru harðspjaldabækur ætl- aðar yngstu börnunum. Stórar og skýrar mynd- ir auðvelda barninu að þekkja hlutina og auka andlegan þroska sinn í skemmtilegum leik. FYRSTU AR BARNSINS Bókin Fyrstu ann mm varðveitir dýrmætar stundir frá fyrstu árum barnsins og veitir Ijölskyldunni ómetanlega skemmtun. Þetta er ný, falleg og litprentuð bók, blá fyrir drengi og bleik fyrir stúlkur. Þessi bók verður örugglega skoðuð aftur og aftur. Heiða í borginm og Heiða kemur heim eru þriðja og ljórða bókin í hinum geysivinsæla barnabókaflokki um Heiðu og Pétur. Hér eru þessar frábæru sögur endursagðar á góðu máli með skýru letri. Fyrri bókin er um dvöl Heiðu í Frankfurt hjá Klöru vinkonu sinni en í þeirri síðari segir frá því þegar Heiða snýr aftur í sveitina til afa og fagnaðarfundunum sem þar verða. SETBERG
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.