Morgunblaðið - 03.01.1990, Page 29

Morgunblaðið - 03.01.1990, Page 29
.\tóRGUNBLAÐH) MIDVlKUDActóR ± JANÚAll 1990' 29 VÖRUR í VIRÐISAUKASKATTI: Samaverð stundum lægra! Nýmjólk, G-mjólk, undanrenna og léttmjólk lækka í veröi vegna endurgreiðslunnar. Þessi lækkun á að skila sér beint í vöruverðinu strax eftir áramótin. Neyslufiskuráað lækka í verði. Endurgreiðslan miðast við ferskan óunninn neyslufisk í heildsölu. Álagninginerfrjáls, og er mikilvægt að fisksalar og neytendurtaki höndum saman til að skattalækkunin skili sér í vöruverðinu. Tegundirnar sem lækkaeru: Ýsa, þorskur, ufsi,- steinbítur, karfi, langa, keila, lúða, koli, skata, skötuselur, rauðmagi og grásleppa. Vöruverð á ekki að hækka þegar virðisaukaskattur leysir söluskatt af hólmi nú um áramótin. Vissar vörutegundir lækka verulega og almennt vöruverð stendur í stað eða þokast niður á við. Með virðisaukaskatti breytist skatthlutfallið úr 25% í 24,5%. Þá hverfa einnig uppsöfnunaráhrif söluskatts í vöruverðinu því að virþisaukaskattur leggst aðeins einu sinni á sömu vöruna, óháð fjölda framleiðslu- og viðskiptastiga. Vöruverð á því alls ekki að hækka vegna kerfisbreytingarinnar. Þvert á móti ætti breytingin að leiða til lækkunar á almennu vöruverði. Vegna sérstakrar endurgreiðslu hefur skattbreytingin þau áhrif að neyslumjólk, ferskfiskur, kindakjöt og ferskt innlent grænmeti bera ígildi 14% skatts í stað 24,5% á öðrum vörum. Ef aðrir þættir, til dæmis álagningin, haldast óbreyttir geta skattaumbæturnar haft í för með sér að þessi matvæli lækka um allt að 7-9% strax eftir áramótin. vsktfo FJARMALARAÐUNEYTIÐ VIÐSKIPTARÁÐUNEYTIÐ Kindakjöt í heilum og hálfum skrokkum lækkar í verði frá afurðastöðvunum nú strax eftir áramótin vegna endurgreiðslunnar. Verðlækkun átil dæmis lambalærum, lærissneiðum, hrygg, kótilettum og súpukjöti er háð aðgæslu kjötkaupmannaog aðhaldi neytenda þvífrjáls álagning er áunninni kjötvöru. f Allt innlent grænmeti lækkar í verði, til dæmis kartöflur, sveppir, baunaspírur, gulrófurog gulrætur. Álagning er frjáls á þessari matvöru. Þess vegna er það ekki sístkomiðundir árvekni neytenda og aðgæslu verslunarmannaað endurgreiðslan skili séraðfullu í vöruverðinu. . -i • FYLGJUMST MEÐ - VEITUM AÐHALD Það er mikilvægt að almenningur veiti aðhald og beri saman verðlag fyrir og eftir áramót. VERÐLAGSSTOFNUN fylgist með því af fremsta megni að skattbreytingin um áramót leiði ekki til verðlagshækkunar, og að endurgreiðslan skili sér í lækkuðu verði þeirra innlendu matvæla sem hún tekur til. Ef þú verður var/vör við óeðlilegar verðhækkanir eftir áramótin, og ekki fást fullnægjandi skýringar hjá kaupmanninum, skaltu hafa samband við VERÐLAGSSTOFNUN. Hún kannar hvert tilvik og hefur sérstakt eftirlit með verðlagsbreytingum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.