Morgunblaðið - 03.01.1990, Side 39

Morgunblaðið - 03.01.1990, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. JANUAR 1990 39 stúlku, vingjarnlega eins og hennar var von og vísa. Minningarnar koma í hugann hver af annarri. Þegar drengirnir okkar fæddust sama árið og síðan fengum við sumarbústað- ina í landi Vatnsenda tveim árum síðar. Þar undum við okkur í 12 sumur og áttum góða daga, fóram í gönguferðir, sátum í sólinni og spjölluðum eða bara þögðum sam- an. Svo var farið saman í sunnu- dagsbíltúra og beijatínslu á haustin. A þessum tíma var flutt í sumar- bústaðina á vorin og dvalið sumar- langt. Þetta var yndisiegur og áhyggjulaus tími fyrir okkur og börnin sem urðu þijú hjá hvorri okkar. Þau nutu þéss að leika sér saman og taka þátt í öllu sem ver- ið var að gera. Svo var hún Lovísa svo notaleg og tilbúin að gera gott úr öllu. Þetta allt vorum við að rifja upp núna i haust eitt sinn sem ég kom til hennar á sjúkrahúsið. Auðvitað gerðist margt fleira á langri ævi en einhvern veginn er þetta efst í huga við þessi tímamót. Og nú er hún farin. Þangað sem leið okkar allra liggur að lokum. Það er gott að eiga góðar minningar um elsku- lega mágkonu. Ég vil að lokum þakka henni af heilu hjarta allar samverustundirnar og vona að við eigum eftir að hittast í landi eilífðar- innar þegar minn tími kemur. Eig- inmanni hennar, börnum og að- standendum öðrum votta ég mina dýpstu samúð, og megi minningin um elsku hennar til ykkar ylja ykk- ur um ókomin ár. Þórunn Sveinbjarnardóttir t Móðir mín og tengdamóðir, ÞÓRDÍS MAGNÚSDÓTTIR, Haðarstíg 18, lést 31. desember. Vilborg G. Guðnadóttir, Haukur Guðjónsson. t Móðir okkar, HALLFRÍÐUR Gl'SLADÓTTIR, lést á sjúkradeild Hrafnistu í Hafnarfirði að kvöldi nýársdags. Kolbrún Karlsdóttir, Hrafnhildur Björk Ólafsdóttir, Steinunn Inga Ólafsdóttir. t Gl'SLI GUÐMUNDSSON leiðsögumaðurog kennari frá Tröð, lést 29. desember. Anna M. Guðjónsdóttir, Valgerður Guðmundsdóttir og börn hins látna. t Faðir okkar, HJÁLMAR EYJÓLFSSON, Tjörn við Herjólfsgötu, lést í Borgarspítalanum á nýársdag. Gunnar Hjálmarsson, Ásta Hjálmarsdóttir, Jóhann Hjálmarsson. t Hjartkær fósturbróðir minn, ANDRÉS GUÐMUNDSSON frá Syðri-Gróf, til heimilis að Háaleitisbraut 93, lést TBorgarspítalanum aðfaranótt 30. degember. Fyrir hönd vina og vandamanna, Guðfinna Jónsdóttir. t Faðir okkar og tengdafaðir, GUNNAR ÁSGEIRSSON, Krosseyrarvegi 11, Hafnarfirði, lést að morgni nýársdags á St. Jósepsspítala, Hafnarfirði. Útförin auglýst síðar. Hallbjörg Gunnarsdóttir, Guðni V. Björnsson, Erla Gunnarsdóttir, Guðmundur Jafetsson. t Faðir minn, tengdafaðir, afi og langafi, DANÍEL VESTMANN, Álfhóisvegi 4, Kópavogi, sem andaðist 22. desember 1989, verður jarðsunginn frá Kópa- vogskirkju föstudaginn 5. janúar kl.13.30. Lilja Vestmann, Svavar Guðmundsson, barnabörn og barnabarnabörn. t Ástkær eiginkona mín og móðir okkar, EYGERÐUR PÉTURSDÓTTIR, Sæbraut 10, Seltjarnarnesi, sem lést að morgni 27. desember, verður jarðsungin frá Seltjarnar- neskirkju fimmtudaginn 4. janúar kl. 15.00. Benedikt Eiríksson, Pétur Benediktsson, Guðrún Benediktsdóttir og tengdabörn. Hjartkær eiginmaður minn, faöir okkar, sonur og bróðir, ÓLAFUR INGI JÓNSSON prentsmiðjustjóri, Sefgörðum 22, Seltjarnarnesi, sem andaðist 25. desember sl. verður jarðsunginn frá Neskirkju fimmtudaginn 4. janúar kl. 13.30. Blóm vinsamlegast afþökkuð, en þeim sem vilja minnast hans er bent á Krabbameinsfélagið. Sigrfður Sigurjónsdóttir, Anna Sigurborg Ólafsdóttir, Ingi Rafn Ólafsson, Sigurjón Ólafsson, Helga Guðjónsdóttir, Málfríður Jónsdóttir. Fyrirjól var það Lambada. Þróunin heldur áfram og nú taka við ný spor og ný tónlist „LAMBADANCA Meiriháttar ný spor frá Brasilíu og tónlistin í suður-amerískum stíl, s.s. „Lambadanca“ — „Mambolambadau - „Lambada merengue“ ásamt „Salsa“ og „Mambo“. Barna-, unglinga- og hjónahópar. 10 tíma námskeið. Mæting lx í viku eða 2x í viku, þitt er valið. Barnadansar: yngst 3-5 ára. Samkvæmisdansar: Suður-amerískir, latíndansar og standard dansar. Einnig gömlu dansarnir. Einstaklings- og parahópar. ATH! Tökum einnig að okkur kennslu úti á landi þar sem þess er óskað. 10 tima námskeið eða eftir samkomulagi. Rock’n roll: Eldhressir 10 tíma nám- skeið: Barna- (yngst 10 ára), unglinga- og hjónahópar. Kennslustaðir: Reykjavík: Skeifan 17 (Ford-húsið) Gerðuberg, Breiðholti KR-heimilið v/Frostaskjól Garðabær: Garðalundur Keflavík: Hafnargata 31 Vogar: Glaðheimar Innritun fyrir alla kennslustaði er í símum (91) 31360 og 656522 alla þessa viku frá kl. 13-19. Kennsla hefst mánudaginn 8. janúar. DAMSS Lœrðir kennarctr - Betri árangur F.Í.D. M. Dansskóli Auðar Haralds

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.