Morgunblaðið - 03.01.1990, Blaðsíða 57
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. JANÚAR 1990
+
5«^
i
*
«
i
i
i
i
i
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
691282 KL. 10—12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
Þessir hringdu
Slæmt fordæmi
Lesandi hringdi:
„Eg hef komist að því að sam-
kvæmt verlista sem liggja skal
frammi hjá Áfengis- og tóbaks-
verslun ríkisins verður ekki um
neina lækkun að ræða á áfengi
þrátt fyrir tilkomu virðisauka-
skatts. Þetta sama ætti þá einn-
ig að eiga við um innflytjendur
og kaupmenn, fyrst ríkisfyrir-
tæki sýnir þetta fordæmi. Það
eru ekki allir jafnir gagnvart
skattalögunum.“
Mataruppskriftir
Ingibjörg Baldursdóttir -
hringdi:
„Getur einhver bent mér á bók
með mataruppskriftum fyrir syk-
ursjúka? Ég hef reynt að ná sam-
bandi við Skrifstofu sykursjúkra
að undanförnu en það er alltaf
símsvari sem svarar. Er engin'
starfsemi á þessari skrifstofu
lengur.“
Mengun
R.S. hringdi: „Ég vil taka
undir með þeim sem vilja fækka
þingmönnum og það er sjálfsagt
að fækka ráðherrunum einnig.
Fyrir skömmu var stolið bíl sem
lítið barn var í og hefði þar get-
að farið illa. Þetta sýnir að ís-
lendingar stunda þann ósið að
skilja bílinn sinn eftir í gangi og
ætti að kenna fólki að drepa á
bílunum meðan það verslar. Það
er mikið um það hér í götunni
minni að bílar séu skildir eftir í
gangi og veldur þetta mikilli
mengun. Loks langar mig til að
minnast á skellinöðrurnar. Það
ætti að banna þessi hávaðasömu
farartæki.“
Goð þjónusta
Guðrún hringdi:
„Ég var með fjölskyldu minni
í Miðbænum fyrir jólin og við
komum við hjá Hlöllabátum til
að fá okkur snarl. Þarna er gott
úrval: súpur, áleggsbakkar o. fl.
iog er maturinn mjög góður. Þá
er starfsfólkið þarna lipurt og
skemmtilegt.“
Gleraugu
Brún plastgleraugu í bláu
hulstri, kringlótt og frekar lítil
með beinum spöngum, töpuðust
í Miðbænum 28. desember.
Finnandi er vinsamlegast beðinn
að hringja í síma 34408.
Coca cola
Sigurður Bjarnason hringdi:
„Ég er mikill Coka cola
diykkjumaður en í byijun desem-
ber fann ég breytingu á bragðinu
af þessum ágæta drykk. Fyrst
hélt ég að þetta væri bara vit-
leysa í mér og fór nokkrar versl-
anir en alls staðar var drykkur-
inn kominn með annað bragð
sem ég kann alls ekki við. Ég
vil því spyija hvar ég fái mitt
gamla góða „kók“.
Nm 06 GLÆSILEGT ÆFINGASVEfil
JUDO
NÝ BYRJEN DANÁMSKEIÐ
ERU AD HEFJAST
s. Þjálfari er Michal Vachun. fyrrverandi
^ ^ þjálfari tékkneska landsliðsins.-
Innritun og frekari upplýsingar
alla virka daga frá kl. 16-22
síma 627295
*
Ast er ...
... að segja honum hve
myndarlegur hann er.
TM Reg. U.S. Pat Off. —all rights reserved
• 1989 Los Angeles Times Syndicate
Hvað borðum við í dag?
■w, 1VÍJ POLLUX
Þú afsakar. Ég verð að
fara núna. Konan mín er
orðin svo þreytt i herðun-
um...
-1
HÖGNI HREKKVÍSI
A/UKILL LEIKUR l'HONUAI.'
CÆ