Morgunblaðið - 03.01.1990, Qupperneq 33

Morgunblaðið - 03.01.1990, Qupperneq 33
33 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. JANÚAR 1990 Eigendur og smiðir farþegaferju Páls Helgasonar. Frá vinstri eru bræðurnir Karl, Páll og Rafn Pálssyn- ir, þá Páll faðir þeirra, Haukur Sveinbjarnarson í Samtaki, Snorri Hauksson teiknari og Sveinbjörn Grétar Hauksson bróðir hans sem vann einnig að hönnun. Samtak í Hafnarfirði smíðar stærsta plastbát hérlendis: 50 ferþega útsýnisfeija við Vestmannaeyjar „Stóreykur möguleika til ýmiskonar sjóferða,“ segir Páll Helgason Bátagerðin Samtak í Hafiiarfirði lauk fyrir skömmu smíði á skrokk stærsta plastbáts sem smíðaður hefiir verið hérlendis, en það er Páll Helgason ferðamálafrömuður í Vestmannaeyjum og fjölskyldufyrir- tæki hans sem lætur smíða bátinn. Báturinn er nær 14 metra langur og 4 metrar á breidd, teiknaður af Snorra Haukssyni í Samtaki, en báturinn er smíðaður til farþegaflutninga í útsýnisferðum og tekur nær 40 manns í sæti og alls um 50 farþega. Ganghraði verður 25-30 mílur. Sigurður Karlsson hannaði yfirbyggingu farþegarýmis og inn- réttingar farþegaferjunnar. 36 sæti eru í farþegasal, sem er yfirbyggð- ur, en utan dyra er einnig aðstaða fyrir farþega á efra og neðra þil- fari. Tvær Volvo Penta-vélar verða í bátnum, 358 hestöfl hvor. I bátn- um verða öll fúllkomnustu siglingatæki sem völ er á. „Það hefur legið fyrir töluvert lengi að mínu mati að það þurfi að gera stórátak í skoðunarferðum á sjó við Vestmannaeyjar," sagði Páll Helgason frá Vestmannaeyjum í samtali við Morgunblaðið. „Til þess þarf stóran og fullkominn bát sem allir sem nálægt honum koma geta verið hreyknir af. Hugmynd mín með smíði þessa báts er sem sagt að auka ferðamannastraum til Vestmannaeyja og þjónustu þar, lyfta henni á hærra plan með bát á heimsmælikvarða þannig að hver ferðamaður sem kemur til Vest- mannaeyja hafi þörf og ástæðu til þess að nýta þá þjónustu sem bátur- inn býður upp á. Ég fékk vin minn Sigurð Karlsson í Hveragerði, lista- mann, hönnuð og bóhem, til þess að spá í hlutina og útkoman varð sú að út úr Viking 900 bátnum frá Bátagerðinni Samtaki hf. í Hafnar- firði hannaði Sigurður yfirbygg- ingu og innréttingar í Viking 1300 farþegafetju, sem er breikkuð og lengd útgáfa af Viking 900. Verkið lofar meistarann. Minn draumur er sem sagt að búa betur að ferða- mannaþjónustunni í Eyjum og allir sem vinna að ferðamálum þar ættu að njóta góðs af því. Bátur af þess- ari gerð gefur ýmsa möguleika, aðstaða í gangmiklum yfirbyggðum bát gefur tækifæri til þess að sigla að öðrum eyjum í Vestmannaeyja- klasanum, til dæmis að Surtsey og Súlnaskeri. Skotferðir upp á land eru nú inni í myndinni með þessum bát auk hefðbundinna þátta eins og hellasiglinga, bjargfuglaskoðun- ar í nálægð. I Surtsey eru 11 mílur frá Heimaey og í Þorlákshöfn eru 42 rnílur og gangmikill vel búinn bátur býður upp á ýmislegt. Stjórn- arherrarnir hafa verið að velta fyr- ir sér byggingu nýs Heijólfs í 3-4 ár og enn er ekkert á hreinu, en ég var að velta fyrir mér smíði þessarar farþegafeiju í 3 mánuði og síðan tekur 7-8 mánuði að full- klára bátinn þannig að allt sem þarf er vilji og geta. Það er samt ekki þar með sagt að ráðamenn þjóðarinnar eigi að gefast upp í Heijólfsmálinu, þeir halda ugglaust áfram að velta fyrir sér þessu biýna hagsmunamáli Vestmanneyinga og annarra lands- manna sem ferðast tugþúsundum saman til Vestmannaeyja. Þessi nýi útsýnisbátur býður einnig upp á möguleika fyrir tiltekna hópa í einkaferðum með alls konar uppá- komum. Ferðir með okkur á heima- slóðinni kringum Heimaey hafa í vaxandi mæli notið vinsælda ráða- manna þjóðarinnar með erlenda gesti þar sem boðið er upp á veiting- ar og við höfum reynt að sníða ferð- irnar eftir óskum hvers og eins og ekki síður sinnt óvæntustu óskun- um sem oft eru skemmtilegastar. Þessi mál höfum við leyst í góðri samvinnu við veitingastaðina í Eyj- um. Túrisminn þar hefur nú slitið barnsskónum og er orðinn miklu þróaðri, en þetta hefst ekki nema Páll Helgason með góðri samvinnu allra og ég hef átt frábæra samvinnu við allar íslenskar ferðaskrifstofur og fjölda af erlendum ferðaskrifstofum, enda má segja að fjöldi fólks sem vinnur að ferðamálum sé orðinn fjölskyldu- vinir okkar sem stöndum að þessum rekstri, Ferðaþjónustu Páls Helga- sonar og Eyjabíls, en þetta eru fjöl- skyldufyrirtæki þar sem faðir, synir og tengdadætur starfa saman. Reyndar er það svo að f lestir hópar sem koma til Eyja hafa samband við okkur varðandi eitt eða annað í gistingu, ferðum og bílaleigu. Við rekum gistihúsið Heimi í Eyjum og eitt af því sem hefur verið sérstaklega skemmtilegt ■ í þessu starfi er að taka árlega á móti sívaxandi fjölda sk’ólabarna af fastalandinu, ungu fólki sem er svo mikið til fyrirmyndar að við fullorðna fólkið getum mikið af þeim lært. Ég er bjartsýnn á fram- tíðina, það er vor í lofti í ferðamál- um ef menn hafa vaðið fyrir neðan sig og vinna markvisst. Sérstaða Vestmannaeyja er mikil og sívax- andi áhugi fólks á að ferðast þang- að. Við Éyjamenn erum komnir í þá óskaaðstöðu að hvar sem ferðir til Islands eru seldar í heiminum geta menn einnig keypt ferðir til Vestmannaeyja." Helgi Benediktsson útvegsbóndi og athafnamaður í Vestmannaeyj- um lét á sínum tíma byggja stærsta tréskip sem smíðað hefur verið á íslandi. Fyrst Helga VE 333 um 1940, en þá byggðu Akureyringar tvo stærri báta. Helgi lét sér það ekki lynda og byggði þá Helga Helgason VE 343, eikarbát sem var um 240 tonn samkvæmt nútíma mælingum og stærra tréskip hefur ekki verið smíðað hérlendis og verð- ur vart smíðað því ný tækni hefur rutt sér rúms, m.a. plastbátasmíði þar sem Páll Helgason lætur nú byggja stærsta plastbát íslendinga hérlendis. Bátasmiðja Guðmundar í Hafnarfirði hefur nú tekið við skrokknum og mun ljúka öllum inn- réttingum og smíði bátsins í vetur. Matsveinninn með teikni- pennann í hönd í samtali við Morgunblaðið sagð- * ist Snorri Hauksson í Samtaki hafa hannað Viking 900 bátinn eftir að hafa farið erlendis til þess að skoða fjölda báta. „Viking 900 báturinn er fyrsti báturinn sem ég teikna, en eftir miklar vangaveltur og púsí úr línum sem okkur leyst bést á, þá varð niðurstaðan fiskibátur sem margir segja að sé með rennilegri línur en gengur og gerist um fiski- báta, enda lagði ég mikið upp úr stílnum jafnhliða sjóhæfni. Viking 1300 báturinn er síðan stækkaður upp úr 900 bátnum og það var Sig- urður Karlsson sem vann útlits- teikninguna á farþegarýminu og hannaði innréttingar og skipulag fyrir bátinn sem feiju. Á þessum bátum getum við haft mjög djúpan kjöl, sem eykur stöðugleika, minnk- ar rek, en þótt við minnkum kjölinn til þess að auka hraðann þá er Vik- ing 1300 mjög stöðugur. Öll þessi hönnun og teikningar hafa farið í gegnum hendur Siglingamálastofn- unar og við höfum smíðað tvo 900 báta og erum að smíða einn og auk ferju Páls er verið að spá í aðra svipaða.“ _ á.j. Sovétmenn í toppformi FISKVERÐ A UPPBOÐSMORKUÐUM 2. janúar. FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar- verð verð verð (lestir) verð (kr.) Þorskur 77,50 60,00 68,61 8,977 615.868 Þorskur(umál) 49,00 49,00 49,00 0,990 48.510 Ýsa 122,00 48,00 100,83 8,400 847.000 Samtals 82,29 18,367 1.511.378 Selt var úr línu- og netabátum. í dag verðureinnig selt úr línu- og netabátum. Frá Gunnari Finniaugssyni, fréttaritara HIÐ ÁRLEGA áramótaskákjnót í Reggio Emilia á Norður-Ítalíu hófst 28. desember sl. Þetta er 32. mótið í röðinni og er það sterkara en nokkru simii fyrr. Meðalstig keppenda er vel yfir 2600 og er mótið í 16. styrkleika- flokki FIDE. Töfluröð keppenda er þessi: 1. Beljavski, 2. Ehlvest, 3. Port- isch, 4. Karpov, 5. Ribli, 6. De Firmian, 7. Margeir Pétursson, 8. Ivanchuk, 9. Andersson, 10. Georghiev, 11. Gurevich. Á upphaflegum lista keppenda voru þeir Salov og Ljubojevic. Þegar þeir heltust úr lestinni hljóp Ehlvest í skarðið. Ekki tókst að fá nægilega stigaháan keppanda á síðustu stundu og stendur tala keppenda því á. stöku. Þegar þetta er ritað er fimm umferðum lokið og er stað- an þessi (fjöldi tef ldra skáka er inn- an sviga): 1.-2. Éhlvest og Ivanchuk 3 (4), 3. Ribli 3 (5), 4. Karpov 2‘A (4) + biðskák, 5. Gurevich 2'A (5), 6. Margeir 2 (4), 7.-8. De Firmian og Georghiev 2 (5), 9. Andersson 1 'A (4) + biðskák, 10. Portisch 1 'A (4), 11. Beljavski 1 (4). Baráttan um efsta sætið kemur trúlega til að standa á milli Ivanc- huks, Karpovs og Ehlvests. Bæði Portisch og Beljavski hafa byijað illa. Morgunblaásins á N-Ítalíu. Þetta er sterkasta mót sem Mar- geir hefur teflt á og í fyrsta sinn sem íslenskur skákmaður tef lir hér. í fyrstu umferð tefldi Margeir með svörtu gegn De Firmian og lauk viðureigninni með jafntefli. Margeir sat yfir í annarri umferð og í þeirri þriðju tapaði hann með hvítu gegn Ivanchuk. Skák Margeirs gegn Georghiev í fimmtu umferð lauk í gær með jafn- tefli, eftir 66 leiki. Á gamlársdag átti Margeir í höggi við Andersson og hafði svart. Eftirfarandi staða kom upp eftir 27. leik svarts Hcd8. Ulf Andersson — Margeir Pétursson Andersson tókst snemma að ná frumkvæðinu og varð Margeir að tefla mjög nákvæmt til þess að halda í horfinu. Þegar hér er komið sögu er Margeir búinn að rétta hlut sinn og nú taldi Andersson að skák- in myndi leysast upp í jafntefli og lék: 28. Rb3? en brá illilega í brún þegar Margeir lék 28. - Hdl! Fram- haldið varð: 29. Hxdl - Dxc2, 30. Dd4 - Ðxb3, 31. Hd3 - Dxa4, 32. Dxb6 - Dal, 33. Kg2 - Dxb2, 34. Dxa5 - g6, 35. Db6 - Rc8, 36. Db7 - Dc2, 37. Hf3 - Hf8. Þrátt fyrir að svartur sé peði yfir er staðan jafntefli með bestu vörn 38. Db5? Ljótur afleikur. Eftir 38. He3 fellur b-peð svarts og staðan er jafntefli. 38. - De4! 39. h4 - Hd8, 40. Kh2 - e5, 41. He3 - Dd4, 42. Dxe5 - Dxe5, 43. Hxe5 - Hb8, 44. Hd5 - 15. Möguleikarn- ir eru auðvitað allir svarts megin en enn getur hvítur þó haldið jafn- tefli með réttri vörn 45. Hd2? Tap- ar leik og þar með skákinn. Rétt var 45. - Hdl eða 45. - Kg2. 45. - Kf7, 46. Kg2 - Ke6, 47. Kf3 - b3,- 48. Hb2 - Kd5, 49. Ke3 - Kc4, 50. Kd2 - IId8 og hvítur gaf. Þetta var eina tap Anderssons með hvítu á árinu 1989 og lauk skákinni aðeins nokkrum klukku- stundum áður en kirkjukiukkur boð- uðu komu nýs árs. Morgunblaðið Bjarni Farþegafeija Páls Helgasonar í Vestmannaeyjum, stærsti plastbátur sem hefur verið smíðaður á íslandi og tekur um 50 farþega, en hann verður sjósettur í apríl í vetur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.