Morgunblaðið - 03.01.1990, Blaðsíða 46
46
MORGUNBLA©!?) MIÐVIKUDAGUR 3. JANÚAR 1990
STJÖRNUSPÁ
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þér hættir til að láta óþolinmæðina
leiða þig í gönur, en annars verður
dagurinn góður. Hagur fjölskyld-
unnar blómstrar og það er bjart
fram undan.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Félagslífið glæðist á ný. Þú hagn-
ast fyrir milligöngu góðs vinar, en
í kvöld er hætta á að þú blandir
þér í fjármálaeijur. Þú færð góðar
fréttir úr fjarlægð.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þú stígur á stokk og strengir stór
heit fyrir nýja árið. Þú ætlar þér
mikið. Haltu samt friðinn við þína
nánustu í kvöld.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí) >“$8
Þér gengur vel að vinna með öðr-
um i dag. Þér býðst að takast ferð
á hendur. Láttu áhyggjur af starf-
inu ekki koma þér úr jafnvægi.
Taktiiiífinu með ró eftir vinnu.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Eyðsiusemi afkomanda þíns getur
farið í taugarnar á þér. Þú ert á
réttri leið í skipulagningu fjármála
þinna. Spilltu ekki góðu kvöldi
með karpi.
Meyja
(23. ágúst - 22. september) M
Þú færð heimboð frá vinum og
rómantíkin er allsráðandi hjá þér
íi dag. Neyttu meðan á nefinu
stendur, en sittu ekki heima.
Vog
(23. sept. - 22. október)
Þér býðst tækifæri í viðskiptum,
en það er of snemmt að taka stór-
ar ákvarðanir. Varastu óþolin-
mæði. Kapp er best með forsjá.
Sporódreki
(23. okt. - 21. nóvember)
Vertu úti með bömunum. Heppi-
legur dagur til stefnumóta. Farðu
varlega í peningamálum og eyddu
ekki í hugsunarleysi um efni fram.
Bogmaóur
(22. nóv. - 21. desember)
Þú ættir að taka þér frí með fjöl-
skyldunni, en varastu að ráðskast
með annað fólk. Forðastu að vekja
deilur.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þú ert ánægður i dag og fullur
áhuga. Varaðu þig á þeirri áráttu
þinni að vilja ævinlega eiga síðasta
orðið. Annars áttu á hættu að
særa þá sem næst þér standa.
Vertu þolinmóður og hlustaðu vel
á það sem aðrir segja.
Vatnsberi
(20. janúar - 18. febrúar) ðh
Þó að gott tækifæri sé innan seil-
ingar hjá þér í dag geturðu enn
jklúðrað því með karpi um pen-
inga. Það er vænlegast fyrir þig
að vinna í kyrrþey.
Fiskar
(19. febrúar - 20. mars) ^
Það er ekki tímabært að taka stór-
ar ákvarðanir í dag. Taktu þátt í
félagslífi og hugaðu að þínum
innstu hjartans málum.
Afmælisbamið er sjálfstæður
einstaklingur, fæddur til forystu.
Það fer sínar eigin leiðir, en kemst
að raun um að gifturíkast er að
eiga góða samvinnu við annað
fólk. Það á margvísleg hugðarefni
’og verður að gæta þess að dreifa
kröftunum ekki um of. Það getur
hvort heldur er freistað gæfunnar
á hinum pólitíska vettvangi eða
klifið metorðastigann í starfi.
Meðal uppáhaldsviðfangsefna eru
ritstörf og kennsla.
Stjörnusþána á aö lesa sem dœgra-
dvól. Sþár af þessu tagi byggjast
iekki á traustum grunni visinda-
legra staðreynda.
GARPUR
}/)NÞie, þú EnrókutJu okmr.
HEMt- EM ÉG Bfj VtSS UM AO
FtHhlUM ST/iE) HAUM PÉt^ Ah t
SMAFOLK
L0OK, PIP VOU 5EE THAT?
OURTEACHER UIA5 UJAlTlNé
IN HER CAR, ANP HER BOYFRIENP
PIPN'T 5H0U) UP...
Horfðu, sástu þetta? Kennarinn okk-
ar var að bíða í bílnum sínum og-
kærastinn hennar kom ekki...
SHANEí n
CÖM6 8ACK,
5HANEÍ
5EE75HE5
PRIVIN6
AU)AV
ALONE...
Sjáðu, hún er að aka ein í burtu ...
Shane! Komdu aftur, Shane!
Hún heitir ekki Shane!
BRIDS
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Hindrunarsagnir hafa oft þau
áhrif að pína mótherjana í hörð
geim, sem þeir hefðu látið eiga
sig óáreittir. Þetta á ekki síst
við þegar opnað er á „veikum
tveimur".
Austur gefur; NS á hættu.
Norður
♦ G32
V ÁG95
♦ Á7643
+ 2
Vestur Austur
♦ 84 ♦ KD10965
¥K7 V62
♦ D985 ♦ KG
♦ ÁK1095 +D43
Suður
♦ Á7
♦ D10843
♦ 102
♦ G876
Vestur Norður Austur Suður
— — 2 spaðar Pass
Pass Dobl Pass 4 hjörtu
Pass Pass Pass
Vestur spilar út laufás, en
skiþtir síðan yfir í spaðaáttu.
Sagnhafi verður að eigna vestri
hjartakónginn, helst annan, og
svo verður hann einhvern veginn
að gera sér mat út tíglinum.
Það gengur ekki að drepa á
spaðaás og spila trompi tvisvar.
Þá vantar eina innkomu í blind-
an til að hægt sé að nýta sér
5. tígulinn. A hinn bóginn má
heldur ekki dúkka tígul strax,
því þá spilar austur spaða og
skapar makker sínum slag á
trompkónginn.
Vandinn er leystur með því
að dúkka fyrsta spaðann og
henda síðan tígultaparanum nið-
ur í spaðagosa. Þá er nægur tími
til að taka trompin og fríspila
tígulinn.
Umsjón Margeir
Pétursson
Þessi stutta skák var tefld á opnu
móti í Frunze í Sovétríkjunum í
sumar. Hvítt: Aleksandrov,
Svart: Ilinsky (2.340). Gamalind-
versk vörn, 1. d4 — Rf6, 2. c4 —
d6, 3. Rc3 - Bf5!?, 4. f3 - e5,
5. e4 - exd4, 6. Rd5 - Rxd5,
7. cxd5 - Bd7, 8. Re2? - c5, 9.
dxc6 .(framhjáhlaup) 9. — Rxc6,
10. Rxd4 — d5! (Svartur hefur
náð frumkvæðinu.) 11. Rxc6 —
bxc6, 12. éxd5 — Bb4+, 13. Bd2
— 0-0, 14. Bxb4 — Dh4+, 15. g3
- Dxb4+, 16. Dd2 - Hfe8+, 17.
Be2 - Dc5, 18. Hdl?
18. - Hxe2+!, 19. Dxe2 - He8,
20. Dxe8+ — Bxe8 og hvítur
gafst upp nokkrum leikjum síðar.
Þetta var býsna laglega teflt á
svart. Hann náði að slá andstæð-
ing sinn út af laginu með sjald-
séðri byrjun og síðan kom hver
sleggjuleikurinn í kjölfar þess
næsta.