Morgunblaðið - 03.01.1990, Side 36

Morgunblaðið - 03.01.1990, Side 36
36 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. JANIJAR 1990 ATVIMMII Sendill óskast Óskum eftir að ráða sendil á ritstjórn Morgunblaðsins strax. Vinnutími frá kl. 9-17. Upplýsingar á ritstjórn Morgunblaðsins, Aðalstræti 6, 2. hæð. JKíiygmWaiMfo SVÆÐISSTJÓRN MÁLEFNA FATLAÐRA REYKJAVlK Deildarþroskaþjálfar og meðferðar- fulltrúar Sambýli í Laugarás óskar að ráða deildar- þroskaþjálfa í hlutastarf nú þegar eða eftir samkomulagi. Aðrir með uppeldismenntun koma til greina. Upplýsingar gefur Sóley í síma 13005. Sambýli í Breiðholti óskar eftir deildarþroskaþjálfa í 68% starf nú þegar eða eftir samkomulagi. Einnig ósk- ast meðferðarfulltrúí í 63% starf nú þegar. Upplýsingar gefur Kristín í síma 79978. Sambýli í Fossvogi óskar að ráða deildarþroskaþjálfa í hluta- starf nú þegar. Aðrir með uppeldismenntun koma til greina. Upplýsingar gefur Guðný í síma 678402. RÁÐCJÖF OC RÁÐNINCAR Skrifstofustarf Við leitum nú að starfsmanni fyrir innflutn- ingsfyrirtæki til að sinna alhliða skrifstofu- stöfum. Gerð er krafa um haldgóða reynslu í bókhaldsstörfum og getu til að setja upp rekstrarstöðu með reglulegu millibili. Þekk- ing á tölvuvinnslu svo sem ritvinnslu og töflu- reikni æskileg. Upplýsingar veitir Einar Páll Svavarsson hjá ráðningaþjónustu Ábendis. Ábendi, Engjateigi 9, sími 689099. Opið fráki. 9-16. Sölusamtök lagmetis er útflutningsfyrirtæki í eigu 10 lagmetisverk- smiðja víðs vegar um landið. Fyrirtækið er sem stendur að endurskipuleggja rekstur sinn. Hluti af því er að fyrirtækið óskar eftir að ráða solustjora og fjármálastjóra til starfa sem fyrst. Um þæði störfin gildir að starfsmennirnir verða að hafa gott vald á ensku og a.m.k. einu Norðurlandamáli, geta unnið sjálfstætt og skipulega. Umsækjendur um starf sölustjóra verða að hafa reynslu af sölustörfum, helst við út- flutning. Nokkur ferðalög erlendis fylgja starfinu. Umsækjendur um starf fjármálastjóra skulu hafa menntun og reynslu af stjórnun fjár- mála. Skriflegum umsóknum skal skilað til Garðars Sverrissonar, framkvæmdastjóra SL, í síðasta lagi 8. janúar nk. Með allar umsókn- ir verður farið sem trúnaðarmál. Sölusamtök lagmetis, lceland Waters Corporation, Síðumúla 37, 108 Reykjavík. Frá Fræðsluskrif- stofu Austurlands- umdæmis Laus er staða skólasálfræðings við skrifstof- una. Umsóknarfrestur er til 20. janúar nk. Nánari upplýsingar gefur fræðslustjóri í síma 97-41211. jmqiöMms Ræsting Við viljum ráða mann strax til ræstinga í verksmiðjunni hálfan daginn eftir hádegi. Upplýsingar gefur Hulda Björg á skrifstof- unni, Barónsstíg 2-4, milli kl. 9.00 og 16.00, ekki í síma. Starfskraftur óskast tvo daga í viku til sölustarfa í listmunaversl- un. Gott lundarfar, heiðarleiki og aðlaðandi framkoma skilyrði. Æskilegur aldur 32-38 ára. Þarf að geta hafið störf sem fyrst. Umsóknum skal skila til auglýsingadeildar Mbl. fyrir 8. janúar merktum: „Rösk(ur) - 6234“. Ný forvarnar- og endurhæfingarstöð sem hefur starfsemi í Reykjavík í byrjun mars, óskar eftir að ráða áhugasama íþrótta- kennara, hjúkrunarfræðinga, sjúkraþjálfara eða aðra með sambærilega menntun, sem hafa áhuga á að skipuleggja og stjórna nám- skeiðum á vegum stöðvarinnar. Um er að ræða hlutastörf eða einstök verkefni. Frekari upplýsingar veitir Hilmar Björnsson í síma 84389 eftir kl. 19 næstu daga. Reykjavík Hjúkrunarfræðingar — sjúkraliðar — starfsfólk Hjúkrunarfræðinga vantar nú þegar á fastar vaktir og til afleysinga. Ýmsir möguleikar með vaktir koma til greina. Sjúkraliðar óskast til starfa nú þegar. Starfsfólk vant aðhlynningu óskast til afleys- inga í janúar. Möguleiki er á barnaheimili. Upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri, ída Atladóttir, sími 35262 eða hjúkrunarfram- kvæmdastjóri, Jónína Nielsen, sími 689500. „Au pair“ - Bonn Stúlka á aldrinum 18-25 ára óskast sem fýrst til sænskrar fjölskyldu í Bonn (V-Þýskalandi). Tvö börn (2ja og 4ra ára) eru á heimilinu. Auk gæslu barnanna þarf viðkomandi að taka þátt í hefðbundnu heimilishaldi. Þýsku- eða sænskukunnátta nauðsynleg. Sérherbergi og bíll til umráða. Möguleiki á þýskunámskeiði. Læknisþjónusta. Laun 400,- DM á mánuði. Sumarleyfi 1990 (Austurríki, Svíþjóð, Bretland) innifalið. Vinsamlegast hringið í frú Annie Ryden, sími 9049-2-225-17500, Max-Ernst Weg 19, 5309 Meckenheim, B.R.D. Afgreiðslustarf Starfskraftur óskast í gjafavöruverslun. Tungumálakunnátta nauðsynleg. Upplýsingar um aldur og fyrri störf sendist auglýsingadeild Mbl. merktar: „Áhugasöm - 12698“. Atvinna - sælgæti Vanur maður óskar eftir vinnu í sælgætis- gerð. Áhugasamir leggi inn nöfn og símanúmer á auglýsingadeild Mbl. fyrir 9. janúar merkt: „Sælgæti - 6233“. Hafnarfjörður Hjúkrunarfræðingar Hjúkrunarfræðingar óskast til starfa. Næturvaktir, 70% starf. Kvöld- og helgar- vaktir á hjúkrunardeildum og dvalarheimili. Upplýsingar gefur hjúkrunarforstjóri í síma 54288. Heilsugæslustöðin Borgarnesi Starf sjúkrabifreiðastjóra er laust til umsóknar. Starfinu fylgir eftirlit með fasteign. Laun skv. launakerfi opinberra starfsmanna. Umsóknum skal skila til framkvæmdastjóra stöðvarinnar fyrir 20. janúar nk. Stjórnin. mÉ Viðsklpta-ogMálaskóllnnhf. v Við erum ungt og öflugt fyrirtæki á hraðri uppleið og okkur vantar gott fólk. Hjá okkur er fullt af hressu og skemmtilegu fólki bæði í námi og starfi, og það er gaman að vera hjá okkur. Nú erum við að leita að fleiri starfskröftum til að slást í hópinn. Stöðurnar, sem nú á að fylla, eru: Sölumenn Okkur vantar starfsmenn í markaðsdeild, fulla af áhuga, sjálfstrausti og lífsgleði. Um er að ræða sölu- og námsráðgjöf á þeim námskeiðum, sem skólinn hefur uppá að bjóða. Um er að ræða mikla vinnu og góð laun í takmarkaðan tíma. Móttökustjóri Móttökustjórinn er fyrsta andlit skólans út á við og þarf að hafa þægilega og góða fram- komu, geta unnið sjálfstætt og undir álagi. Þar sem móttökustjórinn okkar er einnig gjaldkeri skólans, þarf viðkomandi að vera töluglöggur og ábyggilegur aðili. Vinnutími er frá kl. 09.00 til 17.00. Kaffi og útréttingar Starfið er frá kl. 7.30 til 17.00 alla virka daga og felst í því að annast kaffi og eldhússtörf. Einnig verður um léttar útréttingar að ræða. Viðkomandi þarf þess vegna að hafa bíl til umráða. Við erum að leita að manneskju, sem er glansandi af sjálfstrausti, góðri fram- komu og snyrtimennsku. Kaffi - kvöldvaktir Um er að ræða vaktir á kvöldin og á laugar- dögum. Starfið felst í því að annast kaffiveit- ingar og léttar ræstingar. Viðkomandi þarf að vera ábyrgðarfullur, með góða framkomu og snyrtilegur. Ef þú hefur áhuga á að takast á við eitthvað af þessum störfum og hefur það sem til þarf, þá leggðu inn umsókn á auglýsinga- deild Mbl., merkta: „V - 7605“ fyrir 6. janúar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.