Morgunblaðið - 03.01.1990, Blaðsíða 31
30
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. JANÚAR 1990
MORGUNBLAÐIÐ MlDVIKUDAGUR '3. JANÚAR 1990
fttíirrfmiiMalti
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Aðstoðarritstjóri
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Auglýsingastjóri
Árvakur, Reykjavík
HaraldurSveinsspn,
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Björn Bjarnason.
Þorbjörn Guðmundsson,
Björn Jóhannsson,
Árni Jörgensen.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Ágúst Ingi Jónsson.
Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar:
Aðalstræti 6, sírni 22480. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 83033. Áskrift-
argjald 1000 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 90 kr. eintakið.
Ræktun lands
og barna
Iáramótaboðskap sínum leggja
þjóðarleiðtogar áherslu á þau
mál er þeim þykir bera hæst í
samtíðinni. Margir beindu augum
sínum til Austur-Evrópu, þar sem
þjóðirnar eru að hefja erfiða ferð
frá kommúnisma til lýðræðis.
Hinn nýi forseti Tékkóslóvakíu,
Vaclav Havel, veitti nokkrum tug-
um þúsunda landsmanna sinna
sakaruppgjöf, vafalítið með
reynslu sína sem fangi í huga.
Og hann minnti á, að þjóð hans
hefði á sínum tíma verið andlegur
aflgjafi í Evrópu, og spurði, hvort
hún gæti ekki orðið það að nýju.
í góðu áramótaávarpi sínu
beindi Vigdís Finnbogadóttir for-
set íslands athygli sinni að ræktun
lands og þjóðar. Fór vel á því á
þessum tímamótum að beina at-
hygli þjóðarinnar að þeirri stað-
reynd, að ekki er allt fengið með
eftirsókn eftir einhveiju nýju, hitt
sé ekki síður mikilvægt að huga
að því sem við höfum, hlú að ný-
græðingi hvar sem hann fínnst
og tryggja honum hæfilegt um-
hverfí til að vaxa og þroskast.
Forseti sagði að landið og fólkið
væru mikilvægustu forsendur
framtíðar okkar. Og rökstuddi það
meðal annars með þessum orðum:
„Án byggilegs lands á fólk sér
enga framtíð. Ég ætla ekki að
fara mörgum orðum um það
hvernig við höfum á liðnum öldum
gengið um land okkar, jafnvel svo
að sumum hefur þótt horfa til
auðnar. Hins vegar vil ég minnast
þess að fyrir dyrum stendur
merkilegt átak í tengslum við sex-
tugsafmæli Skógræktarfélags ís-
lands, nú á nýbyijuðu ári, og er
kennt við ræktun landgræðslu-
skóga. En landgræðsluskógur er
skilgreindur sem allar þær land-
græðslu- og gróðurvemdarað-
gerðir, sem leiða til þess að örfoka
eða lítt gróið land verði klætt tijá-
gróðri að nýju, eða öðrum jurta-
gróðri sem bindur mold og býr í
haginn. Um gróður gildir hið sama
og um lífsyndi okkar, bömin. Ef
við viljum lifa það að sjá grósku-
ríkan árangur, þá verðum við að
byija strax, - það er aldrei hægt
að draga neitt á langinn sem varð-
ar ræktun.“
Þá minnti Vigdís Finnbogadótt-
ir á, að fyrir nokkru hafi verið
stofnuð samtök, sem eru til bráða-
birgða nefnd „Hjálpum börnum“
og eiga að vinna að barnaheill og
bættum hag barna hér á landi.
Og forseti vék að bömum með
þessum orðum:
„Við verðum að játa það fyrir
okkur sjálfum að böm okkar eru
afskipt. Við höfum verið svo
ánægð með allt það frelsi sem
okk’ nefur áskotnast og gengið
sv áköf til vinnu til að afla verð-
mætanna, án þess að láta þar á
móti koma ömggan umhyggju-
og uppeldisstað fyrir bömin, skóla
og námsstofnanir, að við höfum
gengið svo langt að láta börnin
ganga sjálfala. Það er eins og við
höldum að þau geti bjargað sér
sjálf, að þau læri af sjálfsdáðum
að tileinka sér verðmæti lífsins,
svo sem fróðleik ýmiskonar og
sjálfsaga. Þá höfum við gleymt
því, að ekki gátum við, sem nú
erum fullorðin, bjargað okkur sjálf
til uppeldis. Við fengum aðstoð,
okkar ræktun, þegar við vorum
börn og styrk til að nýta hana.“
Með þessum orðum snertir for-
seti íslands viðkvæma kviku þjóð-
félagsins, þar sem lifnaðarhættir
hafa verið að breytast á þann
veg, að hlutur fjölskyldunnar hef-
ur verið að víkja fyrir stofnunum,
einkum á vegum opinberra aðila.
Um áramótin veltu stjórnmála-
menn þeirri staðreynd fyrir sér,
að ekki hefur tekist að koma þeim
böndum á útgjöld ríkisins, sem
halda þeim innan hæfilegra
marka. Ekki er unnt að skilgreina
þann vanda til fulls og finna lausn
á honum, nema menn ræði af hisp-
ursleysi um einstaka útgjaldaliði
og velti því fyrir sér fordóma:
laust, hvort þeir eigi rétt á sér. í
því efni þarf að skoða þjóðfélags-
myndina alla og meðal annars
þann þátt, sem forseti gerði að
sérstöku umtalsefni og lýtur að
hag og uppeldi barna. Meðal ann-
ars með tilliti til þessa ber að
huga að eftirfarandi orðum for-
seta: „Þegar nú samfélag okkar
hefur þróast til þess að hveiju
heimili dugi ekki minna en tveir
til fyrirvinnu, ef sinna á kröfum
tímans, þá verður eitthvað annað
að koma í staðinn til leiðsagnar
og uppeldis. Þá verður með nýjum
hætti að tryggja öllum bömum
full mannréttindi.“
Og forseti minnti á, að á þessu
brýna máli eru fleiri hliðar en
þær, sem snúa að fjármálum og
afkomu, þegar hún sagði: „Við
verðum að gefa börnunum af tíma
okkar og reynslu og vinsamlegum
skilningi svo þau viti betur að
maður er manns gaman um leið
og þau kunni að vera ein með
sjálfum sér og afla sér gleði við
annað en það sem mölur og ryð
fá grandað. Og öll böm eiga
heimtingu á uppeldi til þess að
verða manneskjur í einu og öllu,
til þess að njóta samvista við aðra
en óttast þá ekki. Ekkert okkar
fær í vöggugjöf skemmdarfýsn
eða kunnáttu til ofbeldisverka.
Ekkert bam á skilið að alast upp
til slíkrar hegðunar."
Þessi áminning yigdísar Finn-
bogadóttur forseta íslands átti vel
við í upphafí árs 1990. Verði tek-
ið mið af henni verður þjóðlífið
betra.
31
„Þetta er það land sem
við þekkjum og unnum“
Ávarp forseta íslands, frú Vigdísar Finnbogadóttur, á nýársdag ^rnþe£f £nr fXSwí !vS
Góðan dag, góðir áheyrendur.
Ég óska landsmönnum öllum
gleðilegs nýárs með þeirri heilu von
að við megum nú líta til bjartari
tíma í íslensku þjóðlífi en verið
hafa um skeið. Framtíðarspá um
þjóðarhag leyfir okkur einnig að
trúa að svo sé og að við eigum nú
að baki örðugasta hjallann á nokkuð
torsóttri vegferð okkar á árinu sem
kvatt hefur og heyrir þegar sög-
unni til. Allt andstreymi í stórum
heimi er þó afstætt og mér er stund-
um, þegar við kveinkum okkur mik-
ið undan þungum róðri, sem ég
heyri vísnasmiðinn þylja:
Finnst mér oft er þrautir þjá
þulið mjúkt við eyra:
þetta er eins og ekkert hjá
öðru stærra og meira.
Þyngst er okkur ávallt að lifa
með sorg við ástvinamissi og um
þessi áramót sem fyrr minnumst
við þeirra sem ekki eru lengur hlut-
takendur í lífi okkar og vottum
þeim sem sárast sakna innilegan
samhug okkar.
„Svo rís um aldir árið hvert um
sig . . .“ kvað Jónas í nýárskvæði
sínu. Og enn verður sama undrið,
nýtt ár, eilífðin í endurtekningunni,
en samt eitthvað breytt. Sólin er
sú sama og í fyrra, og þó er sem
sitthvað hafi breyst í ljósi þessarar
sólar. Landið er hið sama og í fyrra
en samt nýtt og með einhveijum
hætti öðruvísi en fyrr. Og söm er
þjóðin sem landið byggir en þó hef-
ur ævinlega eitthvað breyst i fari
hennar og aðstæðum. Því á hveijum
tímamótum bíða okkar ný verk, nýr
vandi og oftar en ella ný gleði, -
sá vandi og sú gleði sem fylgir
þeirri vegsemd að vera íslendingur.
Því það er í senn gott til gæfu og
vandasamt að vera íslendingur.
Hafís við norðurstrendur landsins
er um þessar mundir enn einu sinni
að minna okkur á það, hvar við
erum stödd á hnettinum, þessi sami
hafís sem skáldin kváðu um, „lands-
ins forni fjandi", sem boðaði hart
vor, kannske hungur og neyð. Samt
skyldum við aldreí gleyma því að
aðstæður okkar nú eru allt aðrar
en formæðra okkar og -feðra til
þess að fást við vandann sem skap-
ast af óblíðri náttúru, aðeins ef við
viljum beita til þess þekkingu okkar
og samtakamætti en látum ekki
vanda lítillar þjóðar í stórum heimi
smækka okkur, beygja okkur, held-
ur hvetja okkur til að horfa framan
í veröldina og segja án yfirlætis en
líka án óhóf legs lítillætis: Hér erum
við og hér verðum við - því að hér
viljum við vera.
Við erum nátengdari þessu landi
en margar aðrar þjóðir ættlöndum
sínum, þótt sumir finni það ekki
fyrr en þeir eru farnir héðan og
horfa á það úr fjarlægð. Við gleym-
um því aldrei að við erum alin upp
í töfrabirtu hins íslenska sumars,
okkur finnst að við eigum þetta
land með einhveijum þeim hætti
sem engu Iíkist, ískalda jöklana líka
og hijóstrin öll. Þetta er landið sem
við tókum í arf og þess vegna er
það okkar Iand og við erum fólk
þessa Iands.
Þetta er það land sem við þekkj-
um og unnum. Og ekki aðeins landið
í heild: Átthagar eru stórt orð í vit-
und okkar, oftast stærra en fyrir
öðrum annars staðar í álfum. Að
sumu leyti kann það að stafa af
því að í átthögunum ber næstum
að segja hver blettur nafn sem við
þekkjum og talar til okkar á gegn-
særri tungu. BláfjöII og Jarlhettur,
Hveradalir og Hljóðaklettar, Jóru-
kleif og Ingólfsfjall - allt eru þetta
staðir sem bera okkur óm sögunnar
og náttúruskynjunar allt frá land-
námsöld. Of sjaldan gefum við því
líklega gaum hvern fjársjóð við eig-
um þar sem eru skiljanleg örnefni,
nöfn sem hvert barn getur séð í
gegnum án þess að leita flókinna
skýringa frá málvísindamönnum
eins og algengast er með öðrum
þjóðum. Þarna eins og annars stað-
ar sameinar tungan okkur, eflir
skilning okkar, gefur okkur óþijót-
andi umræðuefni, ekkert síður en
fámennið og frændræknin.
Oft látum við að því liggja að
landið sé stórt en þjóðin fámenn,
jafnvel of fámenn. Hugsanlega eru
þó menning okkar og siðvenjur þess
megnugar að leggja okkur mikla
líkn í þraut. Til dæmis er sennilegt
að hver venjulegur íslendingur
þekki miklu fleira fólk persónulega
- bæði lífs og liðið - en mönnum
tekst að komast yfir annars staðar
í heiminum. Lífs eða liðið sagði ég,
því engin þjóð sem ég þekki man
eins vel þá sem gengir eru og hin
íslenska, engin þjóð er jafn iðin við
að draga þá inn í umræðuna um
daginn og veginn með því að vitna
til þess hvað þeir sögðu og gerðu.
Þetta er éitt af einkennum menn-
ingar okkar og með þessum hætti
verður fámennið til að skerpa minni
okkar, gera kynslóðabilið marklítið
og um leið til að stækka þjóðina,
fjölga í því liði sem við vitum af
okkur til trausts og halds í tilver-
unni.
Og okkur er líka hollt að minn-
ast forréttinda sem fylgja því að
vera fámenn þjóð. Vissulega látum
við okkur lynda ýmiskonar misrétti
en fámennið ætti að gera okkur
kleift að byggja þjóðfélag okkar á
hugsjónum meira jafnréttis og
öflugri samhjálpar en stórþjóðirnar
eiga kost á, þar sem ávallt vofir
yfir að einstaklingurinn verði ekki
annað en peð í tafli sem enginn
hefur yfirsýn yfir.
Dýrasta sameign okkar, landið,
tungan og minningamar, eflir okk-
ur öryggiskennd. Við erum ekki
rótslitin, við eigum okkur athvarf í
himingeimnum. En einnig í sameign
okkar, í nábýli okkar hvert við ann-
að, felast mótsagnir. Við höfum
kunnað að snúa bökum saman þeg-
ar mikið lá við en í næstu andrá
tökumst við á, gagnrýnum hvert
annað eins og lífið liggi við, erum
dómhörð og umburðarlynd á víxl,
og ekki alltaf auðvelt að koma auga
á rökvísina sem ræður því hvað
verður ofan á. Þetta getur orðið
böl, því við megum síst við því að
bíða „þrjóskir við garðinn“ eins og
segir í nýju Sturlungakvæði:
„meðan sveit okkar máist
í móðu sundrungar
út.“
Þegar við á áramótum reynum
að skyggnast fram í tímann hljótum
við að minnast þess að þetta eru
mikilvægustu forsendur framtíðar
okkar: Landið og fólkið.
Án byggilegs lands á fólk sér
enga framtíð. Ég ætla ekki að fara
mörgum orðum um það hvernig við
höfum á liðnum öldum gengið um
land okkar, jafnvel svo að sumum
hefur þótt horfa til auðnar. Hins
vegar vil ég minnast þess að fyrir
dyrum stendur merkilegt átak í
tengslum við sextugsafmæli Skóg-
ræktarfélags íslands, nú á nýbyij-
uðu ári, og er kennt við ræktun
landgræðsluskóga. En land-
græðsluskógur er skilgreindur sem
allar þær landgræðslu- og gróður-
verndaraðgerðir, sem leiða til þess
að örfoka eða lítt gróið land verði
klætt tijágróðri að nýju, eða öðrum
jurtagróðri sem bindur mold og býr
í haginn. Um gróður gildir það sama
og um lífsyndi okkar, börnin. Ef
við viljum lifa það að sjá gróskurík-
an árangur, þá verðum við að byija
strax, - það er aldrei hægt að draga
neitt á langinn sem varðar ræktun.
Jafnvel um miðjan vetur verður að
gera áætlanir um, hvernig standa
eigi að verki strax og tækifæri
gefst. Landið sem við nefnum ætt-
jörð okkar hefur oft leikið okkur
hart. Það hefur með öðru leitt til
þess að við höfum gengið harðara
að því en skynsamlegt hefði verið.
Vera okkar í landinu hefur ekki
samrýmst því að landkostir héldust.
En nú höfum við sem betur fer
gert okkur grein fyrir illri þróun
og viljum snúa við blaðinu. Færa
landinu aftur það sem frá því var
tekið. Og þá gefúm við sjálfum
okkur um leið þá gjöf að eiga miklu
betra land að una við.
Ég líkti saman tijárækt og upp-
eldi barna. Til lítils kemur okkur
að rækta upp örfoka land ef við
gleymum því að öll framtíð þjóðar-
innar veltur á þeim sem nú eru
börn. Ef okkur gleymist að hlúa
að þeim kemur landgræðsla fyrir
lítið. Fyrir nokkru voru stofnuð
tvenn samtök, annars vegar ís-
landsdeild alþjóðasamtaka um upp-
eldi barna áður en þau ná skóla-
skyldualdri OMEP og hins vegar
samtök sem til bráðabirgða eru
nefnd „Hjálpum börnum“ og vinna
eiga að barnaheill og bættum hag
barna hér á íslandi. Þessi samtök
stefna að þörfu átaki í aðhlynning-
armálum bama, - og mun nú
líklega margur spyija hvort eitt-
hvað skorti á að börnum sé sæmi-
lega sinnt á íslandi. Búum við ekki
við það lán að öll börn fá að borða
á íslandi og enginn gengur klæð-
laus? Vonandi er það rétt. Þó er það
nú svo að mörgum er hagur barna
í þessu vinnuþreytta þjóðfélagi mik-
ið áhyggjuefni og greinilega er
nauðsynlegt að finna leiðir til lausn-
ar. Við verðum að játa það fyrir
okkur sjálfum að börn okkar em
afskipt. Við höfum verið svo ánægð
með allt það frelsi sem okkur hefur
áskotnast og gengið svo áköf til
vinnu til að afla verðmætanna, án
þess að láta þar á móti koma ömgg-
an umhyggju- og uppeldisstað fyrir
börnin, skóla og námsstofnanir, að
við höfum gengið svo langt að láta
börnin ganga sjálfala. Það er eins
og við höldum að þau geti bjargað
sér sjálf, að þau læri af sjálfsdáðum
að tileinka sér verðmæti lífsins, svo
sem fróðleik ýmiskonar og sjálfs-
aga. Þá höfum við gleymt því, að
ekki gátum við, sem nú emm full-
orðin, bjargað okkur sjálf til uppeld-
is. Við fengum aðstoð, okkar rækt-
un, þegar við vorum börn og styrk
til að nýta hana.
.Þessa aðstoð fengum við hjá full-
orðnum sem Ieiðbeindu og töluðu
við okkur og umgengust okkur eins
og þær manneskjur sem þeir vildu
að við yrðum, þjóðinni til gagns
þegar við eltumst. Öll börn eiga
rétt á þessari hjálp. Öll böm eiga
rétt á því að fá frá okkur fullorðn-
um uppeldi til að njóta þess að lifa,
hjálp til að sjá og nálgast það sem
gefur lífinu gildi. Þegar nú sam-
félag okkar hefur þróast til þess
að hveiju heimili dugi ekki minna
Frú Vigdís Finnbogadó'ttir
forseti Islands
en tveir til fyrirvinnu, ef sinna á
kröfum tímans, þá verður eitthvað
annað að koma í staðinn til leið-
sagnar og uppeldis. Þá verður með
nýjum hætti að tryggja öllum börn-
um full mannréttindi.
Ég tel líka að hér séu hyggindi
sem í hag koma - hvert skref sem
stigið er til að kenna börnum að
njóta andlegra verðmæta verður til
þess að þau geti betur aflað sér
hinna veraldlegu, án þess að mikla
þau fyrir sér. Við verðum að gefa
börnunum af tíma okkar og reynslu
og vinsamlegum skilningi svo þau
viti betur að maður er manns gam-
an um leið og þau kunni að vera
ein með sjálfum sér og afla sér
gleði við annað en það sem mölur
og ryð fá grandað. Óg öll börn eiga
heimtingu á uppeldi til þess að
verða manneskjur í einu og öllu, til
þess að njóta samvista við aðra en
óttast þá ekki. Ekkert okkar fær í
vöggugjöf skemmdarfýsn eða
kunnáttu til ofbeldisverka. Ekkert
barn á skilið að alast upp til slíkrar
hegðunar.
Þegar við um þessi áramót reyn-
um að sjá tilveru okkar, það að
vera Islendingar, í víðara sam-
hengi, hugsum við ekki síst til þess
hvers virði séreinkenni okkar, þjóð-
menning ökkar, er í heimsmenning-
unni. Heimsmenning og þjóðmenn-
ing: Þetta tvennt skarast alltaf, því
enginn er eyland. í þjóðmenning-
unni er ávallt margt að finna sem
er heimsmenning. Án þjóðmenn-
inga sem eru sjálfum sér trúar
væri engin heimsmenning. Og
mætti ég þá í leiðinni minna á þann
augljósa sannleik að heimurinn er
ekkert annað en við, hér og nú, og
að ábyrgð okkar er að bregðast á
hveiju augnabliki sem líður við því
hvernig hann er frá stund til stund-
ar. Á þetta höfum við verið átakan-
lega minnt í jólamánuði 1989. En
þar fyrir utan er þjóðmenning sér-
eign þjóðar, sem verður að fá að
hugsa sitt í ljósi þess hvar hún býr
á jarðhnettinum og í Ijósi þess sem
yfir haná hefur gengið. Þetta er
sú menning sem er séreign hverrar
þjóðar, auðlegð sem aldrei verður
frá henni tekin.
Vitundina um þessa auðlegð
sköpum við okkur í tungumálinu.
Þar erum við rík en megum þó
ekki láta þar við sitja. Hver og einn
rækti garðinn sinn segir í frægri
bók. Og það er til margs konar
ræktun. A nýliðnu ári var efnt til
málræktarátaks og er talið að hafi
lánast vel. En því átaki má ekki
vera lokið. Því má aldrei ljúka. Öll
ár í lífi þjóðarinnar verða að vera
málræktarár. Okkur getur ekki liðið
vel, við getum ekki eignast lífsfyll-
ingu í þjóðerni okkar, nema með
því að rækta tunguna sem best,
þetta orðríka, gagnsæja og lang-
minnuga tungumál, sameign okkar.
Við viljum ekki að fyrir íslenskri
tungu fari eins og latínu, að afkom-
endur okkar verði að setjast á skóla-
bekk og nálgast hana sem fram-
andi tungu til að geta lesið um
okkur sjálf. Við verðum að láta það
renna okkur í merg og bein að hvert
orð sem gleymist er glataður sjóð-
ur, ómissandi lykill úr stórri lykla-
kippu, hvert örnefni innstæða á
minningabanka með góðum vöxt-
um.
Þá þurfum við einnig að tryggja
það að þeir sem við taka kunni að
tileinka sér bækur, haldi áfram að
lesa okkar eigin bækur um okkar
eigin veruleika og kunni og skilji
ljóð okkar. Ég hef lengi verið þeirr-
ar trúar að ljóð þjóðarinnar varð-
veiti svo vel ótal orð og blæbrigði
í ríkidæmi tungunnar sem stöðugt
er í hættu að glati purpurafaldi
sínum. Og ljóð er auðvelt að læra
- þau seitlast inn í minnið og efla
til lesturs annars efnis sem á sama
hátt er verðmætt. Við vitum að
samkeppnin um tómstundirnar
harðnar og að hætt er við að bók-
lestri fari aftur. Við það yrðum við
til muna fátækari. Því það verður
seint ofmetið hve mjög það auðgar
hvern mann að hafa vanist því að
lesa.
Vitað er fyrir margvíslegar rann-
sóknir að lestrarvenjur mótast
snemma, eða áður en börn eru 11
til 12 ára. En hver lítur eftir því
að börn okkar læri að umgangast
bókina sem ómissandi þátt í dag-
legu lífi, sem ætti ekki að vera
bundinn skyldu heldur er sjálfsagð-
ur réttur barns sem elst upp í þessu
landi. Og hver getur séð til þess
að ljóðið taki þátt í því að rótfesta
tunguna og ríkidæmi hennar með
þeim virka hætti sem við helst vild-
um? Að engir múrar rísi milli þeirra
sem fara með bókmenntaarfinn og
rækta hann og hinna sem á stund-
um þykjast láta sér fátt um finnast.
Þorsteinn skáld frá Hamri segir:
Köllumst því á
annað veifið!
þú og ég
og maðurinn sem fullyrðir stundum að sér
leiðist ljóð;
og hver veit
nema maður sem fullyrðir að sér leiðist ljóð
geti þrátt fyrir það .
nært okkur
á ljóði lífs síns
sært okkur
við ljóð alls lífs
dag og dag.
Góðir landsmenn. Ég hef eins og
stundum áður látið mér tíðrætt um
ræktun lands og lýðs. Skilji þó eng-
inn orð mín svo að ég geri lítið úr
því sem á þeim sviðum hefur verið
unnið hingað til. Þar hefur oft ver-
ið lyft grettistökum. En á hveijum
tíma ber okkur skylda til að byggja
á þeirri þekkingu sem við vitum
besta og sannasta. Okkur ber ávallt
að vera reiðubúin að endurskoða
starfsaðferðir okkar, jafnt í land-
rækt sem mannrækt. Við lifum tíma
svo stórstígra breytinga að margir
jafna til byltingar. Án þess að gera
okkur sek um óleyfilega bjartsýni
getum við meira að segja haldið
því fram að þjóðir heimsins muni á
nýjum áratug snúa sér að ræktun
og uppbyggingu með stórfengleg-
um hætti. Stórbætt sambúð ríkja
og ríkjablakka leiðir til þess að stig-
in eru merkileg skref í þá átt að
skera niður vígbúnað, fækka eyð-
ingarvopnum. Með því móti er dreg-
ið að miklum mun úr líkum á því
að styijaldir bijótist út manna í
milli. Um leið verða til nýir mögu-
leikar á því að semja sátt í stríði
mannkynsins gegn móður náttúru,
sem alltof lengi hefur staðið og
haft hörmulegar afleiðingar. Heim-
urinn gerir sig nú líklegan til að
hrista sem víðast af sér fjötra, til
að höggva eldflaugaskóg og snúa
orku sinni og hugviti að því að
vernda náttúrulegt umhverfi
mannsins, - snúa við blaði, hreinsa
mengunarkaunin, rækta upp, láta
sár foldar gróa. Það er trú mín og
von og ósk, að á þessu ári og þeim
næstu munum við sjá vakningu um
allan heim, samstillt átak til að
bæta það sem við höfum óvart eða
viljandi rifið niður eða eyðilagt,
átak til að byggja upp jörðina sem
við göngum á og manninn sjálfan.
Fari svo, kann að blasa við okkur
ný og mennskari framtíð á þessum
síðasta áratug aldarinnar en okkur
hefur dreymt um að undanförnu. í
raunsærri bjartsýni höfum við þá
fulla ástæðu til að segja af sannfær-
ingarkrafti:
Gleðilegt nýár, gifturíka framtíð.
Guð blessi land vort og þjóð.
Hjörtur Pálsson hlaut
Utvarpsverðlaunin
„Fyrir þann sem áður hafði skáldskap sinn í hjáverkum frá öðrum
áberandi störfum, en hefúr nú nokkur ár stundað ritstörf ein og sjaldn-
ast átt laun vís um mánaðamót kemur sér hvort tveggja vel, efnismun-
ir og óvænt uppörvun andans", sagði skáldið Iljörtur Pálsson, er hann
tók á gamlársdag við styrk úr Rithöfundasjóði Ríkisútv^rpsins úr hendi
formanns sjóðsstjórnar, Jónasar Kristjánssonar. I ár er styrkurinn 350
þúsund krónur. Ennfremur sagði Hjörtur: „Það er eitur í beinum flestra
höfunda að tala um fóstrin sín eða ófæddu börnin, en gjarnan vildi ég
að mér auðnaðist að vinna handartak í þágu lífs og lriðar með því sem
úr pennanum flýtur - og mega tala með því rödd mannúðar á máli
fegurðar. Það er ósk og draumur.“
Morgunblaðið/Þorkell
Hjörtur Pálsson tekur við rithöfundarstyrk Ríkisútvarpsins úr hendi
Jónasar Kristjánssonar, formanns sljóðssljórnar.
Nítján sæmdir fálkaorðunni
FORSETI íslands sæmdi á nýársdag, samkvæmt tillögu orðunefnd-
ar, eftirtalda Islendinga heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu:
Það lá því beint við að spyija verð-
launahafann að hveiju hann væri að
vinna nú. En Hjörtur hefur átt drjúg
dagsverk víða á ritvellinum. Fjórða
ljóðabók hans kom út fyrir 4 árum
og auk þess hefur hann gefið út á
vegum Menningarsjóðs sagnfræðiri-
tið Alaskaför Jóns Ólafssonar,
ferðabækur m.a. Martins Hansens
og Ahlmans og þýtt mikið, m.a. 8
bækur Nobelshafans Singers. Þetta
eru 15-20 bækur, flestar unnar með
fullu starfi hjá Ríkisútvarpinu í 20
ár. En síðustu 5-6 árin hefur hann
helgað ritstörfunum einum.
Nú kvaðst Hjörtur vera að vinna
að ævisögu, sem kemur væntanlega
út í haust, þótt ekki vildi hann enn
upplýsa hvem þar væri um að ræða.
Því komi sér ákaflega vel að fá slíka
aðstoð sem verðlaunin eru, þótt þau
dreifist á fleiri verkefni. En draumur
hans er fyrst og fremst að geta sinnt
ljóðgerðinni. Ekki er þó ákveðið enn
hvort einnig kemur út Ijóðabók eftir
hann í haust.
í ræðu sinni hafði Jónas Krist-
jánsson vakið athygli á því að nokk-
ur ár eru liðin síðan ljóðskáld hefur
hlotið styrk úr þessum sjóði og vel
væri við hæfi að styrkinn hljóti að
þessu sinni ljóðskáld á góðum aldri,
- sem að vísu hafi lagt nokkra stund
á fleiri greinar bókmennta, sagði
m.a.: „Ég hygg að í ljóðagerð hafi
íslenskar bókmenntir risið einna
hæst í nútímanum, á 19. og 20. öld.
Og ég hygg að ástæðan sé sú að þar
er þráðurinn óslitinn aftur til eld-
fornra tíma, jafnvel eldri en íslands
byggð. Skáldin byggja beint á gam-
alli hefð og „aga mál sitt við stuðl-
anna þrískiptu grein,“, jafnframt því
sem þau sækja vökvun í erlenda
ljóðastrauma á hveijum tíma“. En
Jónas hafði m.a. gert að umtalsefni
för sína á sl. ári á vit Vestur-íslend-
inga, m.a. til heimilis Stephans G. í
Markerville og vitnað í orð Sigurðar
Nordals um hann: „Hann varð ham-
ingjumaður á því að vaka, vinna og
vaxa. Andvokur geta orðið okkur tær
og óþorrin heilsuslind, þegar mest á
reynir, af því að við stöndum þar
augliti til auglitis við skáld sem í lífi
sínu stóðu við hvert orð í ljóðunum.“
-E.Pá.
Ágúst Bjarnason, fv. skrifstofu-
stjóra, Reykjavík, riddarakrossi fyr-
ir störf að söngmálum.
Almar Grímsson, lyfsala, for-
mann Krabbameinsfélags íslands,
Hafnarfirði, riddarakrossi fyrir
störf að_ heilbrigðismálum.
Frú Ásdísi Sveinsdóttur, Egils-
stöðum, riddarakrossi fyrir störf að
fræðslu- og félagsmálum kvenna.
Frú Auði Laxness, Gljúfrasteini,
Mosfellsbæ, riddarakrossi fyrir
störf að menningarmálum.
Baldvin Ti-yggvason, sparisjóðs-
stjóra, Reykjavík, stórriddarakrossi
fyrir störf að menningar- og spari-
sjóðsmálum.
Boga Pétursson, fv. verkstjóra,
Akureyri, riddarakrossi fyrir störf
að æskulýðsmálum.
Eyþór Þórðarson, fv. kennara,
Neskaupstað, riddarakrossi fyrir
störf að skóla- og félagsmálum.
Friðrik Pálsson, forstjóra,
Reykjavík, riddarakrossi fyrir störf
að markaðsmálum sjávarútvegsins.
Garðar Cortez, óperusöngvara,
Reykjavík, riddarakrossi fyrir störf
að tónlistarmálum.
Guðmund Guðmundsson (Erró),
listmálara, París, riddarakrossi fyrir
málaralist.
Jón Tómasson, fv. stöðvarstjóra,
Reykjavík, riddarakrossi fyrir emb-
ættis- og félagsmálastörf.
Ólaf Skúlason, biskup, Reykja-
vík, stjörnu stórriddara fyrir störf
að kirkjumálum.
Óla M. ísaksson, verslunarmann,
Reykjavík, riddarakrossi fyrir störf
að atvinnumálum.
Pálínu Ragnheiði Kjartansdóttur,
forstöðukonu, Hveragerði, riddara-
krossi fyrir störf að manneldismál-
um.
Pétur Sigurgeirsson, biskup,
Reykjavík, stórkrossi fyrir störf að
kirkjumálum.
Dr. Sigríði Þ. Valgeirsdóttur,
prófessor, Reykjavík, riddarakrossi
fyrir störf að uppeldis- og kennslu-
málum.
Sigurð Magnússon, fram-
kvæmdastjóra ÍSI, Reykjavík, ridd-
arakrossi fyrir störf að íþróttamál-
um fatlaðra.
Sveinbjörn Sigurðsson, bygg-
ingameistara, Reykjavík, riddara-
krossi fyrir störf að byggingamál-
Hannes hafði svart í skákinni
gegn Lago og tefldu þeir Kóng-
Indverska vörn. Hannes fórnaði
skiptamun í miðtaflinu og vann
skákina örugglega í 35 leikjum.
í 11. umferð mótsins tapaði
Hannes fyrir Georgy Serper.
Hannes hafði hvítt í skákinni og
| upp kom Sikileyjarvöm. Hann
Dr. Þuríði J. Kristjánsdóttur,
prófessor, Reykjavík, riddarakrossi
fyrir störf í þágu kennaramenntun-
fórnaði snemma skiptamun fyrir
sókn, en sóknin gekk ekki alveg
upp og gaf Hannes skákina eftir
29 leiki. 112. umferð tapaði Hann-
es fyrir Englendingnum Demetrius
Agnos. Hannes hafði svart og
missteig hann sig í miðtaflinu og
gafst upp eftir 31 leik.
(Frcttatilkynning frá orðuritara)
Hannes Hlífar varð í
sjöunda til tólfta sæti
Arnhem. Prá Þráni Vigfússyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
HANNES Hlífar Stefánsson vann Spánverjann Miguel Lago í 13.
og síðustu umferð Evrópumeistaramóts unglinga 20 ára og yngri
sem tefld var í gær. Hannes varð í 7.-12. sæti á mótinu með 7,5
vinninga, en Sovétmaðurinn Gregory Serper vann mótið næsta
örugglega. Hann hlaut 10,5 vinninga, en næstu menn, þeir A. Dre-
ev og Z. Hracek, fengu 9 vinninga.