Morgunblaðið - 03.01.1990, Side 26

Morgunblaðið - 03.01.1990, Side 26
26 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. JANÚAR 1990 Fjöldamorð á Grænlandi Kaupmannahöfn. Frá Nils Jörgen Bruun, fréttaritara Morgunblaðsins. ÁTJAN ára gamall piltur skaut sjö ungmenni til ólífís í bænum Narsaq á Suður-Grænlandi á nýársdagsmorgun. Áttunda'fórnarlambið særðist illa, en er ekki í lífshættu. Það gat sagt til morðingjans. Sama morgun fannst 22 ára gamall maður látinn í bænum Paamiut (Frederiksháb), einnig á Suður-Grænlandi. Hann hafði verið skotinn með haglabyssu í magann. Málið er enn óupplýst. Fjöldamorðið var framið í félags- heimili í bænum Narsaq þar sem nýársfagnaður stóð fram undir morgun. Níu manns voru á staðnum Nýtt pöndu- afbrigði Peking. Reuter. NOKKRIR vísindamenn í Kína halda því fram að fram sé kom- in nýtt risapönduafbrigði sem er brúnt og hvítt að lit. Hingað til hefur mönnum einungis ver- ið kunnugt um svartar og hvítar risapöndur. Á gamlárskvöld, fjórum mán- uðum eftir að risapönduhúnninn Bao Bei kom í þennan heim, breyttist svartur og hvítur feldur hans þannig að svörtu flekkimir urðu brúnir. Feldur birnunnar Dan Dan, móður Baos, er einnig brúnn og hvítur og héldu vísinda- menn að sá eiginleiki hennar væri afleiðing stökkbreytingar sem ekki myndi erfast. Litbrigði Baos þykja hins vegar benda til að fram sé komið nýtt afbrigði risapöndu. Risapöndur, sem líkjast björnum, eru mjög sjald- gæfar og eru heimkynni þeirra í Tíbet og suðvesturhluta Kína. Dan Dan og Bao Bei eru fyrstu risapöndurnar sem fundist hafa með feld sem ekki er hvítur og svartur. á sjöunda tímanum þegar deila kom upp milli 18 ára pilts og hinna átta sem eftir voru í samkvæminu. Hann hvarf á braut, en kom stuttu síðar aftur með riffil og skaut á fólkið af stuttu færi. Fimm létust þegar í stað eftir að hafa verið skotin í hnakkann. Það voru tvær konur, 19 og 26 ára gamlar, og þrír karlar, 18, 33 og 34 ára gamlir. Tvær stúlkur til við- bótar létust af sárum sínum á spítala í gær. Drápsmaðurinn, sem verið hefur undir eftirliti vegna fyrri afbrota sinna, var hnepptur í gæsluvarðhald í gær, og játaði hann á sig verknað- inn. Hann hafði farið heim til for- eldra sinna og var sofandi þegar lögreglan sótti hann. Þá fannst 22 ára gamall maður látinn í bænum Paamiut (Frederiks- háb) á nýársdagsmorguninn. Hann hafði verið skotinn i magann með haglabyssu í húsi einu í bænum. Hvorki hefur tekist að hafa upp á morðvopninu né morðingjanum. Að undanförnu hafa farið fram miklar umræður á Grænlandi um refsilöggjöf landsins. Hún þótti á undan sinni samtíð þegar hún var sett, en mjög hefur verið ýtt á það að undanförnu að löggjöfin verði hert. Gagmýnt hefur verið að allt of margir afbrotamenn slepþi með sektir þó að dómar yfir þeim hafi kveðið á um afplánun á stofnunum. Á árinu 1988 voru framin 18 morð á Grænlandi. Reuter Yaclav Havel, forseti Tékkóslóv- akíu, skömmu áður en hann flutti nýársávarp sitt. Vaclav Havel, forseti Tékkóslóvakíu, í nýársávarpi: Landið verði aftur í hring- iðu evrópskrar menningar Prag. Daily Telegraph. VACLAV Havel, hinn nýi forseti Tékkóslóvakíu, kynnti í nýársávarpi sínu almenna sakaruppgjöf, sem náð gæti til allt að 30.000 fanga. Hann hvatti einnig til óháðrar rannsóknar á pólitískum glæpum, sem framdir voru á 41 árs valdatíma kommúnista í landinu og bitnuðu á „hundruðum þúsunda Tékka“. Forsetinn sagði að Tékkóslóvakía mætti aldrei aftur verða hjálenda nokkurs annars ríkis og kvaðst vona að landið kæmist að nýju í hringiðu andlegra strauma í Evrópu. Flestir þeirra, sem fengið hafa innan við þriggja ára fangelsisdóma, verða látnir lausir vegna sakarupp- gjafar forsetans. Þeir sem dæmdir hafa verið tii lengri fangelsisvistar þurfa ekki að afplána allt að helm- ingi dómsins. Sakaruppgjöfin nær þó ekki til þeirra, sem dæmdir hafa verið fyrjr morð, nauðgun eða rán. Forsetinn fór þess á leit við þjóðina að hún liðsinnti þeim, sem verða látn- ir lausir. Havel er fyrsti háttsetti embættis- maðurinn í Tékkóslóvakíu, sem vakið hefur máls á misnotkun kommún- istaflokksins á réttarkerfi landsins. Er Klement Gottwald, fyrsti forseti Tékkóslóvakíu eftir að kommúnistar Innritun daglega í sfma 38360 frá kl. 13-15 Kennsla hefst miðvikudaginn 10. janúar. Fjölbreytt og skemmtilegt kerfi fyrir alla aldurshópa, byrjendurog framhald. Framhaldsnemendur mæti á sömu tímumogáður. Afhending og endurnýjun skírteina í skól- anum þriðjudaginn 9. janúarfrá kl. 17-19. M: Búri alámliów Ballettskóli ik ^ Eddu ^ Scheving Skúlatúni 4 Laasir tírnr - þrælgott kerli MeAlimur í Fólagi fslenskra listdansara. náðu yfirráðum árið 1948, var við völd voru fjölmargir andófsmenn hengdir, fangelsaðir eða sendir í út- legð vegna stjórnmálaskoðana sinna. Aðrir sættu ofsóknum eftir að Var- sjárbandalagið réðst inn í landið árið 1968. Orðaval Havels bar vott um varkárni en hann tók þó skýrt fram að hann vildi að „sekt hinna ábyrgu“ yrði rannsökuð. „Við verðum að kom- ast að öllum sannleikanum," bætti hann við. Forsetinn hvatti þjóðina til að end- urheimta sjálfstraust sitt og stuðla að bættu siðferði í evrópskum stjórn- málum. „Það versta er að við búum við siðferðislega spillingu vegna þess að við höfum vanist því að tala gegn betri vitund. Við yöndumst alræðinu og áttum þannig þátt í því að styrkja það í sessi,“ sagði hann meðai ann- ars. Havel lagði áherslu á að Tékkar ættu við mikinn vanda að stríða í iðnaðar- og umhverfismálum, en sagði að erfiðast yrði þó að útrýma siðferðislegri spillingu. Hann sagði að hann myndi leggja höfuðáherslu á að tryggja frjálsar kosningar, bæta lífskjörin og koma á umbótum í menntamálum. „Land okkar má aldrei aftur verða hjálenda eða lítils megnugt frændríki nokkurs annars ríkis,“ sagði hann án þess að minnast berum orðum á Sovétrík- in eða innrás Varsjárbandalagsins árið 1968. „Land okkar er lítið en samt var það eitt sinn miðdepill and- legra strauma í Evrópu. Er ástæða til að ætla að slíkt geti ekki endjrtek- ið sig?‘f LAUSBLAÐA- MÖPPUR /rá Múlalundi... ... þær duga sem besta bók. Múlalundur Vinningstölur laugardaginn 30. des. '89 VINNINGAR FJÖLDI VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA 1. 5af 5 3 896.385 2. tlm 5 93.328 3. 4af5 169 4.763 4. 3af 5 5.507 341 Heildarvinningsupphæð þessa viku: 5.838.992 kr. UPPLÝSINGAR: SÍMSVARI 681511 - LUKKULÍNA 991002

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.