Morgunblaðið - 28.02.1990, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 28.02.1990, Blaðsíða 1
48 SIÐUR B 49. tbl. 78. árg._________________________________MIÐVIKUDAGUR 28. FEBRÚAR 1990 _______________________Prentsmiðja Morgunbiaðsins Reuter HAVEL HEIÐRAR MINNINGU SAKHAROVS Vaclav Havel, forseti Tékkóslóvakíu, (t.h.) tók tíma frá opinberum erindagjörðum meðan hann dvaidist í Moskvu til þess að votta hinum kunna sovéska andófsmanni Andrej Sakharov virðingu sína. Fór hann í gærmorgun að leiði hans í fylgd ekkju Sak- harovs, Jelenu Bonner (t.v.). Báðir sættu á sínum tíma ofsóknum af hálfu yfirvalda kommúnista vegna baráttu sinnar fyrir- auknum mannréttindum. Mandela tekið sem þjóðhetju í Zambíu Lúsaka, Zambíu. Reuter. SUÐUR-afríska blökkumannaleið- toganum Nelson Mandela var tek- ið sem þjóðhetju er hann kom til Lúsaka í Zambíu í gær til við- ræðna við leiðtoga ríkja sem um- lykja Suður-Afríku og helstu forvígismenn Afriska þjóðarráðs- ins (ANC). Mandela sagði við komuna til Lúsaka, að pólitískar umbætur í Suður-Afríku að undanförnu væru viss áskorun fyrir ANC. Til þess að samtökin gætu tekið þátt í því að stuðla þar að frekari breytingum þyrftu þau aðstoð erlendis frá, m.a. fjárframlög. Næstu daga munu Mandela og aðrir leiðtogar ANC móta stefnu samtakanna í fyrirhuguðum viðræð- um við suður-afrísk stjórnvöld. Hann mun einnig eiga viðræður við fulltrúa ýmissa Samveldisríkja meðan hann dvelst í Zambíu, m.a. Joe Clark, ut- anríkisráðherra Kanada. Clark segist hafa lagt að fulltrúum ANC að af- lýsa vopnaðri baráttu sinni gegn stjórn hvíta minnihlutans í Suður- Afríku. Kvaðst hann mundu gera hið sama í viðræðum sínum við Mand- ela, en blökkumannaleiðtoginn hefur sagt að vopnaðri baráttu verði ekki hætt fyrr en neyðarlögum hefur ver- ið aflétt og pólitískum föngum sleppt. Æðsta ráð Sovétríkjanna: Samþykkt að stórauka völd forseta landsins Moskvu. Reuter. EFTIR harðar deilur samþykkti Æðsta ráð Sovétríkjanna í gær frum- varp er felur í sér að Míkhaíl Gorbatsjov, forseta, verði fengin mjög aukin og víðtæk völd. Andstæðingar breytinganna sögðu þær eiga eft- ir að fæða af sér einræðisherra en Gorbatsjov sagði þær nauðsynlegar til þess að tryggja framgang perestrojku og hraða umbótum. Til þess að frumvarpið verði að lögum þarf fulltrúaþingið að samþykkja það og hefúr þingið verið kallað saman í því skyni 12.-13. mars nk. Með samþykkt þess mun forseti fá framkvæmdavald í fyrsta skipti í sögu Sovétríkjanna. Samkvæmt frumvarpinu fær for- seti völd til þess að grípa til herlaga A-Þýskaland: Möppufjöll hjá Stasi Austur-Berlín. dpa. TALSMAÐUR borgaralegrar nefndar, sem hefur með hönd- um að leysa upp austur-þýsku öryggislögregluna, Stasi, sagði í gær, að í höfuðstöðvum hennar væru svo fjallháir haugar af skjalamöppiun, að væru þær lagðar hlið við hlið næðu þær 100 km langan veg. Nefndin, sem er skipuð 90 mönnum, efndi til blaðamanna- fundar í Austur-Berlín í gær og kom þar fram, að enn hefði að- eins unnist tími til að skoða möppur, sem svöruðu til „fjög- urra kílómetra". í skjölunum eru alls kyns upplýsingar um hagi manna, um það hvernig þeir hafi kosið í kosningum og jafn- vel um kynferðislíf þeirra. eða lýsa yfir neyðarlögum. Einnig gera þau ráð fyrir því að hann geti gert tillögur til Æðsta ráðsins um skipan eða brottvikningu forsætis- ráðherra, forseta hæstaréttar og annarra háttsettra embættismanna. Ennfremur að hann fái völd til að gera alþjóðasamninga og lýsa yfir hernaði verði Sovétríkin fyrir árás. Samkvæmt frumvarpinu verður forseti Sovétríkjanna í framtíðinni kosinn í beinum, leynilegum kosning- um til fimm ára í senn. En til þess að koma breytingunum sem fyrst í höfn lagði flutningsmaður frum- varpsins, Vladímír Kúdijavtsev, varaforseti sovésku vísindaakadem- íunnar, til að í fyrstu atrennu kysi Æðsta ráðið forsetann til fjögurra ára og að þeim loknum fengi þjóðin að velja hann. Hermt er að þetta muni tryggja Gorbatsjov áframhald- andi völd. Róttækir fulitrúar í Æðsta ráðinu vildu stytta fyrsta kjörtímabil forsetans í tvö til þijú ár en að þeim tíma liðnum yrðu nýir stjórnmála- flokkar og fylkingar tilbúnin til að bjóða fram. Vildu þeir einnig fá meiri tíma til að ræða um frum- varpið, tvo til þijá daga, en Gorbatsj- ov, sem stýrði fundi, neitaði og keyrði málið í gegn á einum degi. Ástæðan fyrir því að ráðamenn í Kreml vilja auka völd forseta mun m.a. vera sú, að talið er að hægt hefði verið að koma í veg fyrir blóð- ug þjóðaátök í Azerbajdzhan og Tadjíkístan hefðu stjórnvöld gripið fyrr í taumana, en forsetinn hefur ekki haft völd til þess. Ennfremur þykir stjórnkerfið of klunnalegt í vöfum eftir breytingar sem gerðar voru á því í fyrra og því sé þörf fyr- ir valdamikinn leiðtoga. Ósammála um opnun lofthelgi Ottawa. Reuter. SAMKOMULAG náðist ekki um opnun lofthelgi á ráð- stefnu NATO og Varsjár- bandalagsríkjanna, sem lauk i Ottawa í Kanada í gær. Ákveðið var að boða til nýs fundar í Búdapest í apríl nk. Tilgangur ráðstefnunnar var að ná samkomulagi um gagn- kvæmt eftirlitsflug yfir lands- svæði ríkja NATO og Varsjár- bandalagsins. John Hawes, fulltrúi Bandaríkjanna, gaf til kynna í gærkvöldi að vegna andstöðu Sovétmanna í ýmsum atriðum hefðu vonir manna um að af undirritun gæti orðið í maí dofnað verulega. Hermt er að þeir hafi einangrast frá öðr- um ríkjum. Leggjast þeir m.a. gegn notkun hátæknibúnaðar í fyrirhuguðu eftirlitsflugi þar sem þeir telja að NATO-ríkin ráði yfir háþróaðri tækjum en þeir sjálfir. Fulltrúar NATO segja eftirlitsflugið þjóna eng- um tilgangi fái þeir ekki að nota mælitæki sem safnað geti upplýsingum í vondu veðri eða að næturlagi. Spáð áframhaldandi ofsa- roki í Norðvestur-Evrópu París, Haag, Hamborg og Kaupmannahöfn. Reuter. FRANSKA veðurstofan gaf í gær út viðvörun um áframhaldandi ofsa- rok í norðvestanverðri Evrópu með allt að 130 kilómetra vindhraða á klukkustund. Einnig var spáð ofsaveðri við Miðjarðarhaf og allt að 150 km vindhraða. I Hollandi var flóðvarnargörðum lokað meðfram allri ströndinni. Þar er nú mesta flóðahætta frá því á árinu 1953. Á mánudag fórst hátt á fjórða tug manna í norðvestanverðri Evrópu í flóðum og ofsaveðri, þar af ellefu í í Vestur-Þýskalandi og níu í Frakk- Reuter Vegna fióða sigla íbúar bæjarins Towyn í Wales bátum þar sem þeir eru vanir að aka um í bílum. Klofdjúpt vatn erá götum bæjarins. landi. í Hamborg hækkaði vatnsyfir- borð um 3,5 metra og sá aðeins á þök bíla sem lagt hafði verið á hafn- arsvæðinu. Spáð var áframhaldandi hvassviðri, en minnkandi vindstyrk. Feijusiglingar lögðust niður milli dönsku eyjanna og sjór flæddi yfír láglendi á Vestur-Jótlandi. Engir mannskaðar eða alvarleg slys urðu, en vegasamband rofnaði og rafmagn fór víða af. Aðfaranótt þriðjudags unnu yfir 60 slökkviliðsmenn sleitulaust að því að hemja skógareld við bæinn Juden- burg í Austurríki, skammt frá júgó- slavnesku landamærunum. Eldurinn kviknaði þegar tré féll á háspennu- streng. Á mánudag slösuðust þrír Austurríkismenn í veðurofsanum, vegir lokuðust, hús og bílar skemmd- ust og rafmagn fór víða af. Hollendingar standa nú frammi fyrir mestu flóðahættu frá árinu 1953, þegar varnargarðar gáfu sig og 2.000 manns fórust. Um tveir þriðju hlutar landsins liggja fyrir neðan sjávarborð.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.