Morgunblaðið - 28.02.1990, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. FEBRÚAR 1990
29
Aftnæliskveðja:
Klemenz Jónsson
Fjórða hvert ár bætum við einum
degi við almanaksárið og köllum
hlaupársdag. Á þeim degi, 29. febr-
úar 1920, fæddist Klemenz Jónsson
leikari, sem vegna skorts á afmælis-
dögum heldur í dag upp á sjötugsaf-
mæli sitt.
Klemenz fæddist í Klettstíu í
Norðurárdal, sonur Jóns Jóhannes-
sonar bónda þar, og Sæunnar Klem-
ensdóttur konu hans. Klemenz lauk
prófi frá Héraðsskólanum í Reyk-
holti 1939 og kennarapróf við
Kennaraskóla Islands árið 1942.
Eftir tveggja vetra nám í leiklist
hjá Haraldi Björnssyni fór Klemenz
til framhaldsnáms í Royal Academy
of Dramatic Art í London og lauk
prófi árið 1948. Hann stundaði
einnig nám í skylmingum í London
og eftir heimkomuna rak hann
skyimingaskóla í Reykjavík frá ár-
inu 1948 til 1958. Klemenz var leik-
ari hjá Leikfélagi Reykjavíkur 1948
til 1950 en þá var hann ráðinn að
Þjóðleikhúsinu þar sem hann starf-
aði sem leikari, leikstjóri og blaða-
fulltrúi. Auk þessa stjórnaði Klem-
enz mörgum leiksýningum utan
Reykjavíkur og tók þátt í leikferð-
um út um land á sumrum. Þá var
Klemenz leiklistarstjóri ríkisút-
varpsins um árabil en hin síðari ár
hefur hann verið starfsmaður Dag-
blaðsins.
Það er af svo mörgu að taka í
lífshlaupi Klemenzar að þessi upp-
talning er ef til vill þegar orðin of
löng en þó verður ekki við hana
skilið svo að ekki sé getið mikilla
starfa að félagsmálum, en vegna
áhuga síns og eljusemi hefur hann
valist til forystu í mörgum félögum,
til dæmis í Ferðafélagi íslenskra
leikara og Starfsmannafélags
ríkisútvarpsins svo að eitthvað sé
nefnt. Klemenz hefur einnig um
áratugi verið virkur félagi í
Frímúrarareglunni.
Margar viðurkenningar hefur
Klemenz hlotið fyrir störf sín en
hér skal aðeins einnar til gamans
getið. Norska leikritaskáldið Thor-
björn Egner afhenti Klemenzi Jóns-
syni heiðursborgarabréf í Kard-
imommubænum fyrir frábæra leik-
stjórn á því vinsæla barnaleikriti.
Klemenz kvæntist 17. júní 1950
Guðrúnu Guðmundsdóttur og eiga
þau þrjú börn, en þau eru Olafur
Örn, f. 1951, hagfræðingur í Seðla-
banka íslands, kvæntur Ingu Valdi-
marsdóttur hjúkrunarfræðingi. Sæ-
unn, f. 1956, deildarstjóri í Lands-
bankanum, gift Haili Helgasyni
vélstjóra. Yngstur er svo Guðmund-
ur Kristinn, f. 1969, nemi í Há-
skóla íslands. Barnabörn Klemenz-
ar og Guðrúnar eru fímm.
Um þriggja áratuga skeið höfum
við hjónin búið í nánd við þetta
ágæta fólk og með okkur hefur
vaxið sú vinátta að aldrei verður
hún að verðleikum metin. Við höf-
um notið gestrisni þeirra og góð-
vilja og á milli heimila okkar hafa
legið gagnvegir. Nábýli okkar hefur
þó aldrei verið meira en í löngum
ferðum innanlands og utan.
Klemenz Jónsson er iðinn maður
og ann sér ekki hvíldar. Þegar við
höfum verið um kyrrt á ferðum
okkar vinnur hann gjarnan að gerð
þeirra útvarpsþátta um þjóðlegan
fróðleik sem hann er löngu lands-
þekktur fyrir. Efni í þessa þætti
sækir hann í fornsögur og gögn
allt fram til vorra daga en enginn
skyldi ætla að þættir hans verði til
án þrotlausrar umhugsunar og
vinnu.
I aldagömlu þorpi í Suður-Frakk-
landi, þar sem akrar sólblómanna
sýnast endalausir, situr Klemenz
og les Brennu-Njálssögu. í huga
hans eru að fá á sig mynd atburðir
sem hann býr í búning til flutnings
fyrir þá sem vilja hlusta á þjóðlegan
fróðleik. í súld og rigningu sitjum
við í sumarhúsi að Eiðum austur á
Héraði og Klemenz blaðar í gömlum
skjölum þar sem hann leitar að
söguþræði í gömlu sakamáli.
Þessu höfum við hjónin kynnst í
ferðum okkar með Klemenzi og
Guðrúnu á erlendri grund og hér á
landi en ein er þó sú mynd sem
skýrust er af Klemenzi. Af litlum
miða í lófa sér les hann vísu eða
brot úr kvæði. Hann hrífst af hugs-
un eða hrynjanda en Klemenz þarf
ekki að leita í orðasmiðju annarra
svo hagur er hann í eigin orðasmíð.
Við hjónin óskum Klemenzi til
hamingju með afmælið og þökkum
honum og Guðrúnu samfylgdina en
óskum okkur sjálfum að við eigum
enn langa samfylgd með þessum
góðu vinum.
Klemenz dvelst um þessar mund-
ir erlendis.
Hilmar Biering
AUGL YSINGAR
\ TILBOÐ - ÚTBOÐ
01ÚTBOÐ
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h.
Vatnsveitu Reykjavíkur, óskar eftir tilboðum
í renniloka (solid vedge gate valves).
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri,
Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík.
Tilboðin verða opnuð á sama stað, fimmtu-
daginn 29. mars 1990 kl. 14.00.
INNKAUPASTOriMUN REYKJAVIKURBORGAR
Frikirk|uvec|i 3 Sinn 25800
tJRARIK
A 1 RAFMAGNSVEITUR RlKISINS
Utboð
Rafmagnsveitur ríkisins óska eftir tilboðum
í að byggja aðveitustöðvarhús við Rimakot
í Austur-Landeyjum.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofum Raf-
magnsveitna ríkisins við Dufþaksbraut 12,
Hvolsvelli, og Laugavegi 118, Reykjavík, frá
og með fimmtudeginum 1. mars 1990, gegn
kr. 10.000 skilatryggingu.
Tilboðum skal skila á skrifstofu Rafmagns-
veitna ríkisins á Hvolsvelli fyrir kl. 14.00 mið-
vikudaginn 14. mars 1990 og verða þau þá
opnuð í viðurvist þeirra bjóðenda, sem þess
óska.
Tilboðin séu í lokuðu umslagi, merktu
„RARIK 90001 aðveitustöð við Rimakot".
Reykjavík, 22. febrúar 1990.
Rafmagnsveitur ríkisins.
CJRARIK
RAFMAGNSVEITUR RlKISINS
Utboð
Rafmagnsveitur ríkisins óska eftir tilboðum
í eftirfarandi:
RARIK-90002: Háspennuskápar, 11 og 19
kV, fyrir aðveitustöð Rangárvöllum og
Smyrlu.
Opnunardagur: Fimmtudagur 22. mars 1990,
kl. 14.00.
Tilboðum skal skila á skrifstofu Rafmagns-
veitna ríkisins, Laugavegi 118,105 Reykjavík,
fyrir opnunartíma og verða þau opnuð á
sama stað áð viðstöddum þeim bjóðendum
er þess óska.
Útboðsgögn verða seld á skrifstofu Raf-
magnsveitna ríkisins, Laugavegi 118, 105
Reykjavík, frá og með fimmtudegi 1. mars
1990 og kosta kr. 500,- hvert eintak.
Reykjavík, 27. febrúar 1990.
Rafmagnsveitur ríkisins.
Q| ÚTBOÐ
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h.
Hitaveitu Reykjavíkur, óskar eftir tilboðum í
pípúundirstöður.
Um er að ræða 275 pípuundirstöður og 27
pípustýringar fyrir 500 mm og 600 mm pípu
í steyptan hitaveitustokk.
Samtals 18 tonn af stáli.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri,
Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík, gegn kr. 10.000,-
skilatryggingu. Tilboðin verða opnuð á sama
stað þriðjudaginn 13. mars 1990 kl. 14.00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR
Frikirkjuvegi 3 Simi 25800
SJÁLF5TJEDISPLOKKURINN
F É I. A G S S T A R F
Akranes
Fundur veröur í fulltrúaráöi sjálfstæðisfélaganna á Akranesi í Sjálf-
stæðishúsinu, Heiöargerði 20, föstudaginn 2, mars kl. 20.30.
Fundarefni:
Tillaga uppstillingarnefndar um framboðslista Sjálfstæðisflokksins
við bæjarstjórnarkosningarnar á Akranesi á vori komanda.
Fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna áAkranesi.
Kópavogur - Kópavogur
Sjálfstæðiskvennafélagið Edda
Öskudagsfundur verður haldinn miðvikudaginn 28. febrúar kl. 20.30
í Sjálfstæðishúsinu, Hamraborg 1, 3. hæð. Konur á framboðslista
flokksins mæta á fundinn. Þórdís Pétursdóttir kynnir Stjórnmála-
skóla Sjálfstæðisflokksins. Kaffiveitingar.
Allar sjálfstæðiskonur velkomnar.
Stjórnin.
Hafnfirðingar
Bjór í eitt ár. Hefur ástandið versnað?
Hefur bjórinn bjargað veitingarekstri i Hafnarfirði?
Fundur Stefnis vegna þess að eitt ár er liöiö frá afléttingu bjórbanns
verður haldinn í Sjálfstæðishúsinu við Strandgötu kl. 20.30 fimmtu-
daginn 1. mars.
Hafnfirðingar, mætum og ræðum málið ásamt viðkomandi aðilum
úr veitingarekstri og víðar og könnum hvort áhrifin hafa orðið til
góðs eða ills.
Stjórn Stefnis.
Tálknafjörður
Fundur verður haldinn i kaffistofu Þórs-
bergs miðvikudaginn 28. febrúar kl. 20.30.
Þorvaldur Garðar Kristjánsson mætir á
fundinn og ræðir um stjórnmálaviðhorfið
og byggðamál.
Sjálfstæðisfólk, fjölmennið.
Sjálfstæðisfélag Tálknafjarðar.
Egilsstaðir
Fundur í Sjálfstæðisfélaginu á Egilsstöðum verður i Valaskjálf mið-
vikudaginn 28. febrúar kl. 21.00.
Fundarefni: Undirbúningur bæjarstjórnarkosninganna.
Stjórnin.
Stjórnmálaskóli
Sjálfstæðisflokksins
Kvöld- og helgarskóli
Helgarnámskeið fyrir sjálfstæðis-
konur íVestmannaeyjum
Dagskrá:
Laugardagur 3. mars:
Kl. 11.00-12.00 Ræðumennska og fundarsköp:
Bjarndis Lárusdóttir.
Kl. 12.00-12.30 Matarhlé.
Kl. 12.30-15.00 Ræðumennska - framhald.
Kl. 15.00 Kaffihlé.
Kl. 15.30-18.00 Greinaskrif:
Þórunn Gestsdóttir.
Sunnudagur 4. mars:
Kl. 10.00-12.30 Ræðumennska og fundarsköp:
Bjarndis Lárusdóttir.
Kl. 12.30 Matarhlé.
Kl. 13.00-16.00 Greinaskrif:
Þórunn Gestsdóttir.
Kl. 16.00 Kaffihlé.
Kl. 16.30-18.00 Basjarstjómarkosningar:
Sigurður Jónsson, bæjarfulltrúi.
Við höfum skömm á
skattastjórnum
Opinn fundur um skattamál verður haldinn á Hótel Borg fimmtudag-
inn 1. mars kl. 17.00 undir fyrirsögininni: Við höfum skömm á skatta-
stjórnum.
Erindi flytja:
Þuríður Pálsdóttir, Ólafur B. Thors, Kristján Guðmundsson, Geir H.
Haarde og Halldór Blöndal. Fundarstjóri verður Davíð-Stefánsson.
Allir, sem fengið hafa nóg af skattpiningu ríkisstjórnar Steingríms
Hermannssonar, eru velkomnir á fundinn.
Samband ungra sjálfstæðismanna,
Málfundafélagið Óðinn,
Landsmálafélagið Vörður
og verkalýðsráð Sjálfstæðisflokksins.