Morgunblaðið - 28.02.1990, Qupperneq 18
18
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. FEBRÚAR 1990
---Rás 1 —Rás 2 * Bylgjan
Stjarnan -Eft Emm ° AöalslöBin
Borgarráð:
Laun borgarstjóra þau
sömu og forsætisráðherra
Unnið að löndun úr Kap VE.
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
Hrognafrysting
að heflast í Eyjum
Vestmannaeyjum.
57.000 tonnum af loðnu hefur verið landað í Eyjum á þessari
vertíð. Ekki hefur verið tekið á móti afla síðustu daga þar sem
þrær hafa verið fiillar og bræðslurnar reyna að hafa eitthvert
þróarrými þegar hrognafrysting hefst en búist er við að hún
hefjist í dag.
Guðmundur VE og Kap VE
komu til Eyja í nótt með loðnu
sem skipin fengu út af Malarrifi
á Snæfellsnesi og átti að reyna
að kreista hrogn úr förmum
beggja skipanna.
í gær hafði verið landað 25.000
tonnum í Fiskimjölsverksmiðju
Einars Sigurðssonar en Fiski-
mjölsverksmiðjan í Vestmanna-
eyjum hafði tekið á móti 32.000
tonnum. Grímur
hlustað á Rás 2,. 62% á Rás 1, 43%
á Bylgjuna, 29% á Aðalstöðina 19%
á Stjörnuna og 16% á Effemm. Flest-
ir sögðust hlusta á Rás 2 frá kl.
7-12, 13.30-15 og kl. 16-19. Mest
var hlustað á Rás 1 frá kl. 12.45-13.
Ekki reyndist marktækur munur á
hlustun á Bylgjuna og Rás 2 á öðrum
tímum.
Otvarpshlustun 21 febrúar 1990
SVÆDI ALLRA STÖÐVA. HÖFUÐBS, REYKJANES
%
25 ---------------------------------------
Á FUNDI borgarráðs í gær, var
lagt fram svar borgarstjóra
vegna fyrirspurnar frá Alfreð
Þorsteinssyni varaborgarfúlltrúa
Framsóknarflokksins um laun og
önnur hlunnindi borgarstjóra.
í svari Davíðs Oddssonar borgar-
stjóra segir: „Föst laun borgarstjóra
eru hin sömu og forsætisráðherra á
hveijum tíma eins og margoft hefur
komið fram opinberlega. Hann fær
ekki greidda yfirvinnu.
Samkvæmt áralangri venju fær
borgarstjóri greidd nefndarlaun
hafnarstjórnarmanns. Borgarstjóri
situr í stjóm Landsvirkjunar og fær
greidd stjórnarlaun sem slíkur. Borg-
arstjóri situr ekki í öðrum launuðum
stjórnum eða ráðum. Borgarstjóri
fær ekki greidd laun sem kjörinn
fulltrúi í borgarstjórn, borgarráði né
sem formaður borgarráðs. Slíkt mun
hins vegar tíðkast í mörgum hinna
minni kaupstaða og mun vera skýr-
ingin á því, hvers vegna bæjarstjórar
þeirra hafa margir hveijir mun hærri
heildarlaun en borgarstjóri höfuð-
borgarinnar.
Borgarstjóri hefur embættisbifreið
til afnota. Vélamiðstöð leggur skrif-
stofu embættisins til þijár bifreiðar,
sem eru allar í almennri notkun á
skrifstofunni. Fólksbifreið þeirri,
R-612, sem borgarstjóri hefur eink-
um til afnota, er lagt um hríð að
vetrarlagi til að hlífa henni. Hefur
hún þannig til að mynda ekki verið
í notkun frá því í október s.l. Engar
sérstakar hömlur hafa verið lagðar
á not borgarstjóra af embættisbif-
reið, þar sem borgarstjóri á og rekur
á eigin kostnað tvo fólksbíla. Er ljóst
að not embættisbifreiðar í einkaþágu
eru mjög óveruleg. Því ber ekki að
greiða skatt af þeim notum að mati
borgarendurskoðanda.
Reglur um dagpeninga ráðherra
gilda um borgarstjóra samkvæmt
svari við fyrstu spurningu. Heildar-
dagpeningagreiðslur á s.l. ári voru
649.692. Ekki var gerður reikningur
vegna hótelkostnaðar.
Borgarstjóri hefur ekki sérstakt
risnufé, en ef samkvæmi á vegum
embættisins eru haldin á heimili
borgarstjóra, eru þau greidd. Slíkt
er afar fátítt (innan við eitt á ári),
þar sem borgarstjórahjónin hafa leit-
ast við að halda heimili sínu utan
við þann samkvæmiseril, sem emb-
ættinu óhjákvæmilega fylgir."
Samkvæmt þeim upplýsingum
sem Morgunblaðið aflaði sér í gær-
kvöldi eru mánaðarlaun forsætisráð-
herra nú u.þ.b. 290.000 krónur, laun
fyrir setu varamanns í hafnarstjóm
eru 8.031 króna og laun fyrir setu
í stjórn Landsvirkjunar eru 34.300
krónur á mánuði. Samtals u.þ.b. 332
þúsund krónur.
Skuldabréfavextir lækkaðir meira
Ný könnun á útvarpshlustun:
Flestir hlusta á Rás 2
SAMKVÆMT skoðanakönnun
Gallup á Islandi, sem urnin var
fyrir útvarpsstöðvarnar, Samstarf
auglýsenda og Samband íslenskra
auglýsingastofa dagana 21. og 22.
febrúar, kváðust 41% aðspurðra
hlusta mest á Rás 2, 21% kváðust
hlusta mest á Rás 1 og 20% kváð-
ust hlusta mest á Bylgjuna. Mun
færri sögðust hlusta mest á aðrar
stöðvar, en samtals kváðust 85%
aðspurðra hafa hlustað eitthvað á
útvarp þá daga sem könnunin var
gerð.
7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20
Tími dags
en viðmiðanir gerðu ráð fyrir
Verða 18,5% en hefðu getað lækkað í 19,3%
Fleiri sógðust hlusta á Rás 2 nú
en í síðustu könnun, sem gerð var í
október, en marktæk breyting var
ekki á öðrum stöðvum. Á landinu
öllu sögðust flestir hlusta einhvern
tíma á Rás 2 yfir daginn, eða 45%,
þá á Rás 1, eða 36%, og 18% sögð-
ust einhvem tíma hlusta á Bylgjuna.
Álíka margir sögðust einhvem tíma
hlusta á Aðalstöðina, Stjömuna og
Effemm, eða 5-7%.
Þegar spurt var um hlustun fólks
á landinu öllu á hveija útvarpsstöð
síðastliðna viku kváðust 73% hafa
frá ísafírði til Bolungarvíkur og
Súðavíkur færum að mestu undan-
farið þótt teppst hafa annað slagið
um skamman tíma, aðallega vegna
snjóflóða. í gær var komið ágætis
veður á ísafirði og var þá hafist
handa við mokstur heiðaveganna
og Djúpvegarins’ til Reykjavíkur.
Horfið var frá mokstri á Breiða-
dals- og Botnsheiðum vegna skaf-
rennings, en fimm snjóruðnings-
tæki frá ísafirði, Reykjanesi og
Holmavík unnu að ruðningi á
Steingrímsfjarðarheiði og í ísafjarð-
ardjúpi. Vetrarleiðin milli ísafjarðar
VALUR Valsson, bankaslpóri og
formaður bankasljórnar Islands-
banka, segir að það sé allur gang-
ur á því hvort forvextir víxla séu
hærri eða lægri en skuldabréfa-
vextir sem greiðast eftir á að-
og Hólmavíkur er 250 km löng og
átti Kristinn Jón síður von á að það
tækist að opna leiðina í gær en
hann taldi að vegasamband ætti að
vera komið á í síðasta lagi um há-
degi í dag ef veður héldist skaplegt.
Búið var að opna leiðimar í gær
frá Flateyri og Þingeyri á flugvel-
lina og .unnið var að ruðningi á
veginum milli þorpanna.
Flug í febrúar til Ísaíjarðar hefur
verið mjög stopult og að sögn Gríms
Jónssonar, flugumferðarstjóra á
ísafirði, voru ófærir dagar orðnir
níu í gær. Hann sagði að nú hefði
fallið verulega meiri snjór á flug-
spurður um skýringar á því hvers
vegna víxilvextir bankans verði
1,25% hærri en skuldabréfavextir
frá mánaðamótum.
íslandsbanki lækkar forvexti víxla
úr 21% í 19,75% og skuldabréfa-
völlinn en í sama tíma í fyrra.
Eyjólfur Bjamasonn, forstöðu-
maður tæknideildar Isafjarðar,
sagði að þeir hefðu ekkert undan
við að moka göturnar, sér virtist
að nú þegar væri kominn álíka snjór
og í lok mars í fyrra, en þá fyrst
þurfti að keyra snjó að einhveiju
ráði í burtu. Nú hafa sjö vörubílar
verið í fullri vinnu í tæpar tvær
vikur við að keyra snjó og er kostn-
aður bæjarins vegna snjómoksturs
orðinn hátt í átta milljónir króna
það sem af er vetrinum.
í fyrra gerði ekki hlákudag frá
miðjum desember til aprílloka, ef
slíkt skeður aftur í ár má reikna
með að svalimar á efstu hæðum
fjölbýlishúsanna verði orðnar aða-
laútgönguleiðir ibúanna.
Úlfar.
vexti úr 21,5% í 18,5%. Vextir af
yfirdráttarlánum lækka úr 25% í
22,25% og af viðskiptavíxlum úr
23,25% í 22%. Búnaðarbanki lækkar
víxilvexti úr 21,5% í 18,5% og al-
genga vexti skuldabréfa úr 22% í
18,5%. Forvextir viðskiptavíxla
lækka úr 22,5% í 20% og vextir yfir-
dráttarlána úr 25% í 22%. Lands-
bankinn lækkar algenga skuida-
bréfavexti úr 22,5% í 18,75% og
víxiivexti úr 22% í 18,5%. Vextir
yfirdráttarlána verða 22,5% en voru
26,5% og vextir viðskiptavíxla verða
20,5% en voru 23%. Samvinnubank-
inn lækkar forvexti víxla úr 20 í 19%
og viðskiptavíxla úr 22% í 21,5%.
Algengir vextir skuldabréfa lækka
úr 22% í 18,5% og vextir yfirdráttarl-
ána úr 26% í 24%. Vaxtaákvörðun
sparisjóðanna liggur ekki fyrir fyrr
en fyrir hádegi í dag.
„Það hefur verið ójafnvægi á þess-
um hlutum. Við erum smá saman
að jafna þetta. Það tekur sinn tíma
og gerist ekki í einu vetfangi og við
lögðum frekar áherslu á að skulda-
bréfavextimir lækkuðu að fullu núna
miðað við það sem um hafði verið
talað þegar kjarasamningarnir lágu
fyrir, þrátt fyrir að verðlagsbreyt-
ingin gæfi kannski ekki tilefni til
þess. Aðrir Iiðir lækka aðeins minna,
en við eigum von á því að með næstu
vaxtabreytingum þá muni þetta
jafna sig,“ sagði Valur.
Aðspurður sagðist hann ekki eiga
von á verulegum vaxtabreytingum
fyrr en um næstu mánaðamót.
Stefán Pálsson, bankastjóri Bún-
aðarbankans og formaður Sambands
íslenskra viðskiptabanka, sagði að
stundum hefði verið munur á for-
vöxtum víxla og skuldabréfavöxtum
og stundum hefðu þeir verið með
svipuðum hætti. Núna hefði Búnað-
arbankinn ákveðið 3% lækkun á
víxlum en 3,5% lækkun á skulda-
bréfum. Sannast sagna hefði verið
farið með skuldabréfavextina aðeins
neðar heldur en verðbólgustigið
segði til um. Miðað við hækkun láns-
kjaravísitölu síðasta mánaðar og
spár um hækkun næstu tvo mánuði
þá hefðu vextirnir átt að vera 19,3%.
Rauði krossinn:
Merkjasala
hefst í dag
ÁRLEG merkjasala Rauða kross
íslands fer fram í dag, öskudag,
og næstu daga. Kjörorð merkja-
sölunnar að þessu sinni er: „Mann-
úð er málið.“ Rauði krossinn hefur
mannúð að leiðarljósi í öllu starfí
sínu innanlands sem utan, en tekj-
ur meriyasölunnar eru notaðar í
innanlandsverkefni Rauða kross-
félaganna.
Um áratuga skeið hafa skólaböm
lagt Rauða krossinum lið með þess-
um hætti. Meðal verkefna sem Rauði
krossinn vinnur að á hveijum tíma
má nefna skyndihjálpamámskeið,
kaup og starfrækslu sjúkrabíla, for-
varnir í fíkniefnamálum unglinga og
stuðning við alnæmissjúklinga og
aðstandendur þeirra. Merki Rauða
krossins kostar að þessu sinni 300
kr. og hvetja forráðamenn Rauða
krossins fólk til að taka vel á móti
sölubömum. Með því að styðja starf
Rauða krossins stuðla landsmenn að
bættu samfélagi — og nú er tæki-
færi til þess undir kjörorðinu „Mann-
Úð er málið“. (Fréttatilkynning)
Isafjörður:
Kostnaður vegna snjó-
moksturs átta milljónir
ísaflrði
Samgöngur hafa gengið mjög erfiðlega á Ísafírði og í nágrenni
undanfarið vegna snjókomu og storms. Mikill snjór er hér nyrst í
ísafjarðarsýslum, en sunnan Dýrafjarðar og Álftafjarðar er mikið
minni snjór en á sama tíma i fyrra, að sögn Kristins Jóns JÓnsson-
ar, rekstrarstjóra Yegagerðarinnar.
Tekist hefur að halda leiðunum