Morgunblaðið - 28.02.1990, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. FEBRUAR 1990
Rúmenía:
Vildi hleraalla
síma í landinu
Búkarest. Reuter.
RÚMENSKI herinn skýrði á mánudag frá þeim umfangsmiklu
hlerunum, sem stundaðar voru í tíð fyrri stjórnar, og sýndi frétta-
mönnum hlerunarstöðvar og ógrynnin öll af snældum með sam-
tölum fólks. Var lögð áhersla á, að njósnum af þessu tagi hefði
verið hætt en stjórnvöldum og hernum er í mun að fullvissa al-
mennning um, að stjórnarfarið sé allt annað en áður var.
„Segið öllum heimi frá því, að
persónunjósnum hafí verið hætt í
Rúmeníu," sagði Nicolae Cerbu,
hershöfðingi í merkjasveitum
hersins, þegar hann sýndi frétta-
mönnum lítið herbergi í pósthúsi
í Búkarest. Var það yfirfullt af
búnaði, sem hleraði símtöl, magn-
aði þau og beindi til hlerunarmið-
stöðvarinnar í hjarta borgarinnar.
Sagði Cerbu, að sams konar her-
bergi væru í öllum 30 pósthúsun-
um í Búkarest.
í hlerunarmiðstöðinni, tveimur
stórum byggingum, voru símtölin
tekin upp á hljóðsnældu og þættu
þau „áhugaverð" voru þau skrifuð
niður á blað. Voru meira en 2.000
upptökutæki í miðstöðinni en auk
hennar hafa fundist fjórar aðrar
hlerunarmiðstöðvar í verksmiðj-
um í borginni. Ion Pacepa, yfír-
maður rúmensku leyniþjón-
ustunnar, sem flýði til Vestur-
landa 1977, segir í bók, sem hann
skrifaði, að Ceausescu hafí stefnt
að því að geta hlerað alla síma í
landinu árið 1984 en talsmenn
hersins segja, að svo langt hafi
þó ekki verið komið.
í litla herberginu á pósthúsinu
var fylgst með 18.000 símtækjum
en búnaðurinn réð þó ekki við að
hlera nema 36 símtöl samtímis.
„Það var ekki fylgst með öllum.
Aðallega þeim, sem höfðu á hendi
einhver embætti eða öryggislög-
reglan, Securitate, hafði áhuga
á,“ sagði Cerbu en undir það
síðamefnda féllu allir útlendingar;
Rúmenar, sem höfðu ekki nema
talað við útlending; stjórnmála-
menn; kunnir einstaklingar;
menntamenn og íþróttamenn svo
ekki sé talað um andófsmenn.
Reuter
Síðastliðinn sunnudag safnaðist nokkur hópur manna saman við
bronsstyttu af Lenín í miðborg Búkarests og krafðist þess, að
hún yrði brædd upp og máimurinn notaður í kirkjuklukkur. A
spjöldum, sem fest voru á fótstallinn, stóð meðal annars: „Er
kommúnisminn á burt í raun og veru?“, „Niður með kommúnism-
ann“ og „Lærum, lærum, lærum af 45 árum undir kommúnisma".
Bretland:
Hættir Owen afskipt-
um af stjórnmálum?
St Andrews. Frá Guðmundi Heiðari Frímannssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
DAVID Owen, leiðtogi Jafhaðarmannaflokksins í Bretlandi, játti því í
fyrsta sinn um helgina, að hann kynni að hætta afskiptum sínum af
brezkum sljórnmálum í næstu kosningum.
í sunnudagsblaðinu The Ohserver
sl. sunnudag birtist frétt um að
Owen kynni að hætta afskiptum
sínum af brezkum stjórnmálum, sem
var höfð eftir ónafngreindum heim-
ildarmönnum. i The Times sl. mánu-
dag staðfestir Owen, að hann hug-
leiði það í fyrsta sinn í alvöru að
hverfa úr stjórnmálum eftir næstu
kosningar.
Owen tekur fram að hann hafi
ekki tekið endanlega ákvörðun um
þetta og ætlar að sjá til næstu 18
mánuði. Hann segist vilja gera
samning við Verkamannaflokkinn
fyrir næstu kosningar. Verka-
mannaflokkurinn þurfí á því að
halda að sannfæra kjósendur um,
að hann hafi breytzt.
Frá því að Owen stofnaði Jafnað-
armannaflokkinn, hefur fylgi miðju-
flokkanna brezku hrapað og er nú
í 4-5%.
21
AUGLÝSING
Hressir seljendur með gæðavöru á „Kolaportsverði"
Kolaportið í stöðugri sókn:
Nýtt hitakerfi gj ör-
breytir aðstöðunni
Allir geta verið með
Seljendumir í Kolaportinu eru af
öllu tagi og úrvalið af söluvarningi
ótrúlegt. Mikið af sölubásunum eru
með notaða muni og jafr.vel heilu
búslóðirnar, en fleiri þó með nýjar
vörur og sumar á ótrúlegu verði. Það
hefur reyndar borið á því að verslan-
ir auglýsi vörur á „Kolaportsverði"
líkt og „Glasgowverð" var áður gott
slagorð, en'það þýðir ekki að hlutirn-
ir verði að vera á hundraðkall eða
minna. Leðurjakkar, pelsar, sófasett
og annaö selst vel þó verðmiðarnir
hljóði upp á tugþúsundir.
Tveir ungir bræður, átta og tíu
ára, voru í Kolaportinu í fyrsta skipti
að seija margskonar dót úr kompunni
sem foreldrarnir höfðu gefið þeim.
Eftir daginn höfðu þeir selt fyrir 20
þúsund, sem áttu að fara í ferðasjóð-
inn þeirra fyrir næsta sumar og nóg
var eftir af dóti til að selja næstu
laugardaga.
Hópar úr tveimur framhaidsskól-
um voru einnig að safna í ferðasjóði
og ungmennafélag af Suðurnesjum
seldi úrvals fiskmeti af öHu tagi til
ágóða fyrir sitt málefni. Nokkrir
saumaklúbbar voru greiniiega sam-
ankomnir í sama tilgangi og svo
mætti endaiaust telja.
Pantanasími Kolaportsins
Tekið er á móti pöntunum á sölu-
básum í síma 687063 kl. 16-18 á
virkum dögum og hægt er að panta
sölubása allt að þijá mánuði fram í
tímann. í þeim síma eru einnig allar
nánari upplýsingar veittar um starf-
semi Kolaportsins.
Það er alltaf góð stemmning á Kolaportsmarkaðnum á laugardög-
um, en aðstandendur hans voru þó í sérstaklega miklu hátíðar-
skapi síðasta laugardag. Þann dag var einmitt tekið í notkun
stórt og mikið hitakerfi sem gjörbreyta mun aðstöðunni, að sögn
Helgu Mogensen, frumkvöðuls markaðstorgsins.
„Með þessu erum við nú reyndar
ekki að reyna að breyta Kolaportinu
í neinn aldingarð með pálmum og
suðrænum ávöxtum, en það er mikill
munur að koma nú að Kolaportinu
15 gráðu heitu á laugardagsmorgni,
þegar frost er kannski búið að vera
alla vikuna," segir Helga, en hingað
til hefur Kolaportið verið algjörlega
óupphitað.
Hálf miljón gesta
Kolaportsmarkaðurinn hóf göngu
sína 8. apríl í fyrra og á þessu tæpa
ári er talið að samtals hafi nálægt
hálf milljón gesta komið þar við á
laugardögum. „Ég vissi ekki hveiju
við mátttum eiga von á og í byijun
voru eflaust einhveijir sem töldu hug-
myndina hreinlega fáránlega og að
þetta gæti aldrei gengið, en reynslan
hefur svo sannarlega sýnt annað og
mér virðist ljóst, að Kolaportsmark-
aðnum verði haldið áfram um ókomna
framtíð.
Seljendur eru að meðaltali um eitt
hundrað talsins og við leggjum mikla
áherslu á, að sífellt séu nýir söluaðil-
ar að koma inn með sem fjöibreytt-
ast vöruúrval. Ég held reyndar að
það sé lykilatriði varðandi þessar vin-
sældir Kolaportsins að fólk geti kom-
ið laugardag eftir laugardag og alltaf
fundið tugi nýrra söluaðila með nán-
ast allt milli himins og jarðar."
Þverskurður þjóðfélagsins
„Hér sjáum við fólk úr öllum stétt-
um þjóðfélagsins skemmta sér kon-
unglega, bæði við að selja og koma
í heimsókn. Ég held reyndar að það
sé ekki til annar eins vettvangur að
hitta gamla vini og rifja upp gömul
kynni; það sýnir sig vel í kaffisölunni
okkar, þar sem fólk dvelst tímunum
saman.“
við okkur og ef þeir komast ekki sjálf-
ir í Kolaportið, værum við fús að
taka við ábrestinum og annast söluna
fyrir þá.“
Meira af búslóðum
„Þá fáum við einnig aldrei nóg af
búslóðum í Kolaportið og á það sér-
staklega við um húsgögn og heimilis-
tæki. Fólk, sem kemur hér með stóra
sendibíla fulla af búslóðum, er iðulega
að kveðja okkur um hádegið, búið
að selja allt sem það kom með. Ég
held að þetta hljóti að vera þægilegri
leið en að auglýsa í blöðum og gera
svo ekki annað en svara í símann
næstu vikuna."
Stöðug þróun
„Við höfum lært mikið síðan við byij:
uðum í Kolaportinu," segir Helga. „í
byijun leyfðum við seljendum t.d. að
koma hér inn með vörurnar í bílum
á morgnana, en nú aðstoða starfs-
menn okkar við að setja þær á vöru-
bretti í anddyrinu og rafmagnslyftar-
ar sjá síðan um að koma þeim í rétta
sölubása. Þannig höfum við losnað
við mengun, óhreinindi og slysa-
hættu, sem margir kvörtuðu yfir í
byijun. Það hefur verið lán okkar að
hér hafa aldrei orðið teljandi óhöpp,
en við leggjum áherslu á það að kaup-
endur komi ekki fyrr en undirbúningi
er að fullu lokið klukkan tíu.“
Broddurinn vinsæll
„Ég get varla ímyndað mér nokkra
vörutegund eða þjónustu sem ekki
er hægt að selja eða kynna með góð-
um árangri í Kolaportinu, en ef ég
ætti að nefna einhveija eina vöru sem
þá vinsælustu, hlýtur það að vera
broddurinn," segir Helga. „Við fáum
oft í heimsókn kvenfélög af lands-
byggðinni með brodd, en það er sama
þó komið sé með mörg hundruð lítra,
það fá aldrei allir sem viija. Ég vil
því skora á alla, sem hafa yfir þessu
góðgæti að ráða, að hafa samband