Morgunblaðið - 28.02.1990, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. FEBRÚAR 1990
25
Organista- og kóranámskeið
1 Borgarfj ar ðarpr ófastdæmi
Hvannatúni í Andakíl.
HAUKUR Guðlaugsson, söng-
málastjóri Þjóðkirkjunnar, hélt
James Woods í hlutverki Eddie
Dodd í „Teflt í tvísýnu".
Stjörnubíó:
„Teflt í tvísýnu^
fyrir nokkru námskeið fyrir org-
anista og kóra í Borgarfjarðar-
prófastdæmi. Leitað hafði verið
að heiman eftir slíkri aðstoð og
er samróma álit þátttakenda, að
mjög vel hafi til tekist.
Dagskránni var þannig hagað að
þrjú kvöld komu organistar saman
og æfðu undir leiðsögn Hauks Guð-
laugssonar, en tvö kvöld komu kór-
ar flestra kirkna í héraðinu saman
til æfinga í Borgarneskirkju og í
félagsheimilinu Þinghamri. Ing-
veldur Hjaltested aðstoðaði þar við
raddþjálfun. Á laugardaginn æfði
fólkið saman að Hlöðum á Hval-
fjarðarströnd og einnig í Saurbæ-
jarkirkju og söng þar lög, sem grun-
næfð höfðu verið til undirbúnings
á væntanlegu kirkjukóramóti í nóv-
ember næstkomandi.
Um 100 manns tóku þátt í æfing-
unum, þar af voru 10 organistar.
Hannes Baldursson, organisti
Hvanneyrarkirkju, taldi í samtali
við fréttaritara þetta hafa verið
mikla lyftistöng fyrir sönglífið í
Borgarfirði. Hann sagði svona nám-
skeið heima í héraði væru miklu
betur sótt og kæmi að miklu betri
notum en ef þyrfti að sækja þau í
önnur héruð.
Hannes vildifyrir hönd'allra þátt-
takenda ítreka þakkir til þeirra Ing-
veldar og Hauks fyrir ánægjulega
og gagnlega vikudvöl með borg-
firsku kirkjukórafólki.
- D.J.
STJORNUBIO hefur tekið
sýninga myndina „Teflt
til
í
tvísýnu". I aðalhlutverkum eru
James Woods og Robert Down-
ing, Jr. Leikstjóri er Joseph Ru-
ben.
Myndin segir frá snjöllum lög-
fræðingi, Eddie Dodd, sem gegn
betri vitund tekur að sér að verja
mann sem framið hefur morð í
fangelsi. Dodd nýtur aðstoðar ungs
hugsjónamanns. Þeir lenda brátt í
klóm kerfisins sem ekki aðeins
snýst gegn þeim í orði heldur verki.
■ ARGENTINA - leiðrétting. I
frásögn af veitingahúsinu Arg-
entínu við Barónstíg í sunnudags-
blaði Morgunblaðsins var villandi
orðalag og tveir veitingamenn,
Krislján Sigfusson og Óskar
Finnsson, sagðir eigendur staðar-
ins. Hið rétta er, að þeir reka veit-
ingahúsið, en eigendur aðstöðunnar
era Tryggvi Agnarsson, Ingþór
Björnsson, Anton Narvez og Jör-
undur Guðmundsson. Er þetta hér
með leiðrétt.
■ HESTUR fældist á Álftanes-
vegi á sunnudagskvöld og hljóp
fyrir bíl. Knapinn féll af baki og
fékk skurð á höfuð en hestinn sak-
aði ekki heldur lét sig hverfa út í
myrkrið. Óverulegar skemmdir
urðu á bílnum.
Ur Draugaglettum.
■ KIRKJUBÆJARKLAUST-
UR. Leikdeild UMF Ármanns á
Kirkjubæjarklaustri frumsýnir í
kvöld leikritið Draugaglettur eftir
Iðunni Steinsdóttur undir leik-
stjórn Harðar Torfasonar. Drau-
gaglettur er nútímalegt gaman-
leikrit sem fjallar um fjölskyldu sem
er að flytjast utan af landi til höfuð-
borgarinnar en því fylgja ýmsir erf-
iðleikar. Leikdeildin fer síðan í
leikferðalag um Suður- og Suð-
vesturland og verður- sýnt á eftir-
farandi stöðum: Fimmtudaginn 1.
mars í Heimalandi, 2. mars í Goð-
alandi, 3. mars verður sýnt í leik-
húsi „Frú Emilíu“ Skeifúnni 3c,
4. mars í Leikskálum, Vík, og
fimmtudaginn 8. mars verður önnur
sýning á Kirkjubæjarklaustri. Þá
verður lokasýningin í Hofgarði í
Öræfum sunnudaginn 11. mars.
Morgunblaðið/Hanna Hjartardóttir
Allar sýningarnar hefjast kl. 21
nema í Reykjavík, hún hefst kl. 15.
- HSH
Höskuldur Harri Gylfason.
■ HÖSKULDUR Harri Gylfa-
son opnaði þann 24. febrúar síðast-
liðinn myndlistarsýningu í Ás-
mundarsal við Freyjugötu. Harri
útskrifaðist úr grafíkdeild Mynd-
H BSÍ og Passamyndir hf. hafa
í tilefni af öskudeginum ákveðið að
bregða á leik og bjóða öllum krökk-
um sem hafa klætt sig uppá í til-
efni dagsins til myndatöku fyrir kr.
150. Auk myndanna fá bömin bók
til að safna í myndum af vinum og
kunningjum, einnig er boðið upp á
Minut maid; Þeir sem vilja geta
komið á BSÍ frá kl. 10 í dag, ösku-
dag. Þá er boðið upp á glens og
gaman í Kaupstað í Mjódd en þar
er risastór öskupoki með einhverju
góðgæti í fyrir bömin. Þar gildir
sama tilboð og á BSI varðandi
myndatöku.
lista- og handíðaskóla íslands
1986 og stundaði auk þess nám í
málaradeild skólans í eitt ár. Þetta
er fyrsta einkasýning Harra en áður
hefur hann tekið þátt í nokkram
samsýningum. Á sýningunni eru
olíumálverk, grafík og myndir unn-
ar með blandaðri tækni. Sýningin
er opin daglega frá kl. 14—18 og
henni lýkur sunnudaginn 4. mars.
Sýningin er öllum opin.
FISKVERÐ Á UPPBOÐSMÖRKUÐUM
27. febrúar.
FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði
Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar-
verð verð verð (lestir) verð (kr.)
Þorskur 86,00 76,18 78,15 10,123 791.068
Samtals 77,62 10,273 797.368
FAXAMARKAÐUR hf. i í Reykjavík
Þorskur 94,00 60,00 79,50 37,947 3.016.691
Þorskur(óst) 55,00 55,00 55,00 0,273 15.015
Ýsa 117,00 93,00 104,10 9,056 942.747
Ýsa(ósl.) 94,00 83,00 91,49 0,740 67.704
Karfi 41,00 40,00 40,12 2,773 111.256
Ufsi 44,00 37,00 41,95 44,468 1.865.616
Hlýri+steinb. 35,00 17,00 30,92 1,228 37.964
Langa 52,00 44,00 47,02 1,611 2.520
Grálúða 50,00 50,00 50,00 1,305 65.250
Hrogn 200,00 115,00 118,06 2,583 304.950
Samtals 64,90 104,544 6.784.782
FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf.
Þorskur 97,00 46,00 81,06 8,020 650.120
Þorskur(1.n.) 92,00 84,00 91,21 10,100 921.200
Ýsa 127,00 75,00 115,43 5,957 687.599
Karfi 40,00 40,00 40,00 1,143 45.720
Ufsi 38,00 15,00 34,65 14,120 489.301
Skarkoli 43,00 26,00 38,82 1,497 58.115
Samtals 65,33 50,420 3.294.161
SKIPASÖLUR í Bretlandi 19. til 23. febrúar.
Þorskur 113,75 146,610 16.676.262
Ýsa 119,24 13,873 1.654.117
Ufsi 66,79 0,428 28.553
Karfi 78,78 1,038 81.736
Grálúða 112,56 20,263 2.280.720
Samtals 113,10 185,191 20.944.935
Selt var úr Rán HF í Hull 19. febrúar og Arnarnesi Sl í Aberdeen 22. febrúar.
GÁMASÖLUR í Bretlandi 19. til 23. febrúar.
Þorskur 107,57 691,108 74.339.660
Ýsa 125,28 379,455 47.538.593
Ufsi 68,34 38,698 2.644.585
Karfi 72,07 17,749 1.279.197
Koli 160,27 78,751 12.621.385
Grálúða 98,32 17,414 1.712.181
Samtals 112,25 1.360,35 152.698.962
SKIPASÖLUR í Vestur-Þýskalandi 19. til 23. febrúar.
Þorskur 89,61 0,900 80.650
Karfi 96,77 461,315 44.641.599
Samtals 96,62 478,542 46.236.897
Selt var úr Ögra RE í Bremerhaven 19. og Víði HF í Bremerhaven 21.
Leikhópurinn Vera.
■ FÁSKRÚÐSFJÖRÐUR
Leikhópurinn Vera á Fáskrúðs-
fírði vinnur nú að uppsetningu á
Grænu lyftunni sem er gamanleik-
ur eftir Avery Hopward undir leik-
stjóri Sigurgeirs Scheving. Ráð-
gert er að frumsýna sunnudaginn
4. mars í félagsheimilinu Skrúð og
síðan verða sýningar áfram og í
nágrannabyggðum. Leikendur era
átta og í aðalhlutverkum eru Agnar
Jónsson, Ásta Mikaelsdóttir, Lilja
Lind Snæþórsdóttir og Steinn
Jónasson. Þetta er önnur sýningin
■ SAMTÖK áhugafólks um al-
næmisvandann halda aðalfund
sinn í kvöld kl. 20.30 í Hótel Lind
við Rauðarárstíg. Dagskrá fundar-
ins er venjuleg aðalfundarstörf, auk
þess sem Haraldur Briem læknir
segir frá nýjungum í rannsóknum
á sjúkdómnum og meðferð hans. í
frétt frá Samtökunum segir að þau
hafi verið stofnuð í desember 1988
í því skyni að aðstoða þá sem
greinst hafa með alnæmi og veikst
og aðstandendur þeirra, efla
fræðslu um alnæmi og vinna gegn
fordómum. Meðal þess sem Sam-
tökin hafi beitt sér fyrir á síðasta
ári hafí verið stofnun stuðningshóps
þeirra sem greinst H'afa með alnæmi
og formaður samtakanna, Auður
Matthíasdóttir félagsráðgjafi, hafi
starfað með hópnum. Þá hafi sam-
tökin styrkt nokkra einstaklinga
ijárhagslega, einkum þá sem hvað
verst hafi orðið fyrir barðinu á þeim
fordómum gagnvart sjúkdómnum
sem enn þrífíst í okkar samfélagi,
eins og segir í fréttinni.
Morgunblaðið/Albert Kemp
sem Sigurgeir setur upp hjá leik-
hópnum Veru á Fáskrúðsfirði.
Formaður leikhópsins er Guðný
Þorvaldsdóttir. _ ^lbert
Aldaraf-
mæli Ejn-
ars Munks-
gaards
Landsbókasafh íslands minnist
þessa dagana með sýningu í and-
dyri Safnahúss-
ins aldarafinælit
hins merka út-
gefanda og Is-
landsvinar EJj-
nars Munksga-
ards.
Kunnastur ei
hann af útgáfuir
ljósprentana
fomra íslenzkri
handrita, ér hanr
hóf með útgáfu Flateyjarbóka:
1930, en sá flokkur varð alls 21
bindi.
Sýningin mun standa nokkra’
VÍkur. (Frá Landsbókasafni íslands.)
Ejjnar
Munksgaard
H.ÞOBCRlMSSOW&CO
ABET£PK±o±
HARÐPLAST Á BORÐ
ÁRMÚLA29, SÍMI 38640
SflMTÖK FISKVINNSLUSTÖÐVfl
AUKNING
VINNSLUVIRDIS
í SJÁVARÚTVEGI
Ráðstefna á Hótel Sögu, A sal,
föstudaginn 2. mars kl. 12.00.
Frummælendur:
Dr. Alda Möller, matvælafræðingur
Dr. Sigurður Bogason, matvælafræðingur
Guðbrandur Sigurðsson, matvælafræðingur
Helgi Geirharðsson, vélaverkfræðingur
Sigurjón Arason, efnaverkfræðingur
Jóhann Antonsson, viðskiptafræðingur
Örn D. Jónsson, skipulagsfræðingur
Að erindum loknum verða pallborðsumræður,
þar sem framsögumenn sitja fyrir svörum.
Ráðstefnustjóri:
Dr. Ágúst Einarsson, varaformaður SF.
Ráðstefnan er öllum opin
og hefst með hádegisverði í Skálanum á 2. hæð.
Þátttökugjald er kr. 1.500.
Hádegisverður innifalinn.