Morgunblaðið - 28.02.1990, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. FEBRÚAR 1990
27
Látlaus umferð um flugvöllinn
Á tveimur og hálfum tíma lentu sex Fokker-flugvél-
ar, sem komu frá Reykjavík á Akureyrarvelli, en
alls var von á sjö vélum frá Reykjavík í gær. Um
völlin fóru um 550 farþegar auk farþega sem flugu
á vegum Flugfélags Norðurlands. Frá því kl. 9 á
sunnudagsmorgun og fram til hádegis í gær var
ekki hægt að lenda á Akureyrarvelli vegna illviðris.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Langan tíma tók í gærmorgun að ryðja flugvöllinn,
en snjóþykktin var rúmlega 20 sentímetrar. Sigurð-
ur Kristinsson vaktstjóri hjá Flugleiðum sagði að
mjög mikið hefði verið að gera á flugvellinum. „Það
hefur verið látlaus umferð hér og um 460 farþegar
fóru um völlin á tímabilinu frá kl. 14 til 16.30,“ sagði
Sigurður.
K. Jónsson gengur úr
Sölusamtökum lagmetis
Ætlum okkur út í sjálfstæða sölustarfsemi í framtíðinni,
segir Baldvin Valdimarsson aðstoðarframkvæmdastjóri
Niðursuðuverksmiðja K. Jóns-
son og Co hf. á Akureyri hefur
sagt sig úr Sölusamtökum lagmet-
is, en verksmiðjan hefúr um ára-
bil verið langstærsti einstaki
framleiðandi innan SL með yfir
50% af öllum vörum sem seldar
eru í gegnum samtökin. Stefiit er
að því að fara út í sjálfstæða sölu-
starfsemi í framtíðinni og leita
nýrra markaða. Verkefiiastaða
verksmiðjunnar er þokkaleg sem
stendur.
stærsti einstaki framleiðandi innan
SL á síðustu árum með á bilinu
44-60% af allri seldri vöru í gegnum
samtökin. Garðar Sverrisson fram-
kvæmdastjóri Sölusamtaka lagmetis
sagðist í samtali við Morgunblaðið
vonast til að samtökin gætu fram-
leitt upp í gerða sölusamninga þrátt
fyrir að K. Jónsson hefði sagt sig
úr samtökunum, en það tekur eitt
ár að ganga úr samtökunum frá
því um úrsögn er tilkynnt. „Við
væntum þess að áfram verði um
einhvers konar samstarf að ræða á
milli samtakanna og niðursuðuverk-
smiðjunnar, en framtíðin verður að
skera úr um með hvaða hætti það
verður,“ sagði Garðar.
Verkefnastaða niðursuðunnar er
þokkaleg sem stendur, en Baldvin
sagði ekki vitað hvað yrði er liði
fram á árið, það væri hins vegar
alveg ljóst að fyrirtækið myndi
standa við alla gerða sölusamninga
og menn þyrftu ekki að óttast að
fyrirtækið stæði ekki við sína samn-
inga.
Baldvin Valdimarsson aðstoðar-
framkvæmdastjóri Niðursuðuverk-
smiðju K. Jónsson og Co. sagði að
varðandi skipulag sölumála í fram-
tíðinni vonaðist hann til að um þau
yrði gott samkomulag á milli verk-
smiðjunnar annars vegar og Sölu-
samtaka lagmetis hins vegar. „Það
er ljóst að við ætlum okkur út í sjálf-
stæða sölustarfsemi í framtíðinni og
það er ástæða þess að við segjum
okkur úr SL. Við vonumst til að um
skipulag sölumála í framtíðinni verði
gott samkomulag," sagði Baldvin.
I kjölfar úrsagnar úr SL er ljóst
að K. Jónsson og Co þarf að leita
nýrra markaða fyrir framleiðslu
fyrirtækisins og sagði Baldvin að
fyrirtækið kæmi til með að leita
þeirra í náinni framtíð. „Á síðasta
ári duttu stórir viðskiptaaðilar út og
það gefur því augaleið að við þurfum
að finna aðra í þeirra stað,“ sagði
Baldvin.
Niðursuðuverksmiðja K. Jónsson
og Co á Akureyri hefur verið lang-
Fyrirlestur um
sorg og sorg-
arviðbrögð
SÉRA Sigfinnur Þorleifsson
sjúkrahúsprestur á Borgarspítal-
anutn heldur fynrlestur á vegum
samtaka um sorg og sorgarvið-
brögð I Akureyrarkirkju annað
kvöld.
í fyrirlestri sínum mun Sr. Sig-
finnur fjalla um sorgina og trúna.
Fyrirlesturinn hefst kl. 20.30 í
Akureyrarkirkju, en að honum lokn-
um verður boðið upp á kaffi og
umræður í safnaðarheimilinu. Allir
eru velkomnir á fyrirlesturinn og í
umræðurnar á eftir.
Fyrstu viðskiptavinir
fengn kíló af saltkjöti
FJÓRIR fyrstu viðskiptavinir Höepftiers, útibús KEA í Innbænum,
fengu hver um sig að gjöf eitt kíló af saltkjöti í tilefni sprengidags-
ins, sem var i gær. Akvörðun hefiir verið tekin um að halda
rekstri verslunarinnar áfram þrátt fyrir hallarekstur siðustu ára
og hafa verið gerðar ýmsar breytingar á rekstrinum. Vöruverð
í versluninni verður lækkað og er vonast til að við það muni
viðskiptin aukast.
Framtíð verslunarinnar Hö-
epfners hefur verið til umræðu
um nokkurt skeið, en undanfarin
misseri hefur verslunin verið rekin
með halla. Starfsfólki var sagt
upp störfum, ef til þess kæmi að
versluninni yrði lokað, en nú
hefur verið tekin ákvörðun um
að halda rekstri hennar áfram og
búið er að endurráða starfsfólkið.
Ágústína Söebech deildarstjóri og Jóna Sveinsdóttir starfsmaður
í Höepfiier, verslun KEA í Innbænum, með sprengidagssaltkjötið.
Kjennsla
Véiritunarkennsla
Vélritunarskólinn, s. 28040.
¥ ÉLAGSLÍF
I.O.O.F. 7 = 1712288% = 9.O.
I.O.O.F. 9 = 1712288'* =
□ HELGAFELL 59902287 IVA/ 2
□ GLITNIR 599028027 = 1
Hörgshlíð 12
Boðun fagnaðarerindisins.
Almenn samkoma í kvöld
kl. 20.00.
Stúkan Einingin nr. 14.
Fundur ÍTemplarahöllinni í kvöld
kl. 20.30. Öskupokauppboð
sjúkrasjóðsins. Mætum öll.
Æt.
Hvítasunnukirkjan
Fíladelfía
Biblíulestur í kvöld kl. 20.30.
Allir hjartanlega velkomnir.
Kjj Útivist
Rökkurganga íViðey
miðvikud. 28. feb.
Gengið um Vestureyna. Brottför
kl. 20.00 frá Viðeyjarbryggju
Sundahöfn. Verð kr. 500,-
Sjáumst.
Útivist.
Myndakvöld
fimmtud. 1. mars i Fóstbræðra-
heimilinu, Langholtsvegi 109,
hefst kl. 20.30. Myndir: Leynd-
ardómar Surtseyjar - Karl
Sæmundsson sýnir, Fimm-
vörðuháis - Básar - Ragnar
Axelsson sýnir frábærar myndir
frá þessari vinsælu gönguleið, á
skútu á slóðir Ódysseifs - Árni
Sævar sýnir. I tilefni af 15 ára
afmæli félagsins sjá karlmenn-
irnir í Útivist um veitingarnar,
sem ekki verða af verra taginu.
Fjölmennum.
Útivist.
....SAMBAND (SLENZKRA
KRISTNIBOÐSFÉLAGA
Samkoma í Kristniboðssalnum,
Háaleitisbraut 58, í kvöld kl.
20.30. Ræðumaður Margrét
Hróbjartsdóttir. Allir velkomnir.
Hjálpræðis-
herinn
Kirkjustræti 2
I kvöld kl. 20.30 vakningasam-
koma með majorshjónunum
Björgu og Conrað Örsnes frá
Noregi. Hersöngsveitin syngur.
Kaffiveitingar í lok samkomu.
Fimmtudag kl. 20.30 vakninga-
samkoma með Björgu og Con-
rað ásamt lofsöngshópi frá Veg-
inum. Allir velkomnir.
Emmess skíðamót
skiðadeildar Fram verður haldið
laugardaginn 3. mars nk. Keppt
verður í stórsvigi í flokki 11-12
ára og 9-10 ára.
Þátttaka tilkynnist í sima 20052
fyrir kl. 22.00 i kvöld, miðviku-
dag.
Fararstjórafundur föstudag kl.
20.00 í Framheimilinu.
SjfcmnA
félag um sorg og sorgarferli
á Suðurnesjum
Fundur verður í Bjarma miðviku-
daginn 28. febrúar kl. 20.30 í
Kirkjulundi, Keflavík. Sr. Sigfinn-
ur Þorleifsson, sjúkrahúsprestur
á Borgarspítala, heldur fræðslu-
fund með læknum og hjúkrunar-
fólki Sjúkrahúss Kelfavíkurlækn-
ishéraðs, ásamt prestum á
svæðinu og stuðningsaðilum.
Fjallað verður um hjúkrun, sál-
gæslu og umönnun dauðvona
sjúklinga. Fundurinn er ekki öll-
um opinn, en í framhaldi af hon-
um munum við sinna aöstand-
endum slíkra sjúklinga á Suður-
nesjum í stuðningshóp, ef þörf
krefur. Hafið samband við Esth-
er í sima 11992, Margréti í síma
13436 eða Ólaf i síma 11080.
Stjórnin.
FELAGSSTARF
Bíldudalur
Sjálfstæðisfélag Arnarfjarðar heldur félags-
fund fimmtudaginn 1. mars kl. 21.00 í fé-
lagsheimilinu Baldurshaga.
Dagskrá:
1. Stjórnmálaviðhorfið - Þorvaldur Garð-
ar Kristjánsson, alþingismaður.
2. Sveitarstjórnakosningar.
3. Önnur mál.
Stjórnin.
Blönduós - aðalfundur
Aðalfundur sjálfstæðisfélags Blönduóss verður haldinn í Sjálfstæðis-
húsinu laugardaginn 3. mars kl. 14.00.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Undirbúningur bæjarstjórnarkosninga.
3. Önnur mál.
Félagar fjölmennið.
Stjórnin.
Sjálfstæðisfélagið Óðinn, Selfossi
Almennur félagsf undur
verður haldinn 1. mars nk. kl. 20.30 í Hótel Selfossi, norðursal.
Dagskré fundarins verður:
1. Tillaga kjörnefndar um framboðslista Sjálfstæðisflokksins við
bæjarstjórnarkosningarnar á Selfossi.
2. Kosningaundirbúningurinn.
3. Húsnæðismál.
4. Önnur mál.
Aliir, sem þátt tóku í prófkjörinu, eru hvattir til að mæta og taka
þátt í flokksstarfinu.
Stjórn sjálfstæðisfélagsins Úðins.