Morgunblaðið - 28.02.1990, Qupperneq 32
32
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. FEBRÚAR 1990
Bjami ÞórKjartans-
son - Kveðjuorð
Fæddur 22. febrúar 1940
Dáinn 25. janúar 1990
Fimmtudagsmorguninn 25. jan-
úar sl. ók ég frá Húsavík austur
í Kelduhverfi. Þegar ég var kom-
inn út á Tjömes, kom allt í einu
yfír mig mjög mikill beygur, sorg
og söknuður. Það gjörsamlega
þyrmdi yfír mig um stund, ég
hágrét. Af hveiju vissi ég ekki.
Síðar um morguninn, þegar ég var
nýkominn heim í Austurgarð,
hringdi síminn. Bjami Þór var að
deyja, eða „gamli maðurinn er
farinn“, eins og sonur hans, Kjart-
an, orðaði það.
Lífíð gefur manni marga kunn-
ingja, en fáa vini. Bjami Þór var
vinur minn. Við kynntumst fyrst
á bemskuárum. Hann þótti bald-
inn í kaupstaðnum og var sendur
í sveit. Móðir hans, Asta Bjama-
dóttir í Bjamahúsi á Húsavík,
sendi hann tíu ára gamlan til
Sveins og Guðrúnár á Víkinga-
vatni í Kelduhverfí. Þar átti hann
góða daga.
Við Bjami gengum saman í
'bamaskóla. Faðir minn, Bjöm
Haraldsson var kennari. Þeir virtu
hvor annan og urðu hinir mestu
mátar. Já, við Bjarni vomm baldn-
ir strákar og brölluðum margt, en
kannski ekki svo slæmir.
Hann var kraftmikill, fjörugur
og átti létt með að læra. Var hrók-
ur alls fagnaðar. Best man ég
þegar hann lék „Hans klaufa“ á
bamasamkomu í Fundarhúsinu.
Hann kom ríðandi á geithafri Óla
á Hóli, inn á leiksviðið, að heilsa
uppá kóngsdóttur.
Meiri fagnaðarlæti í leikhúsi hef
ég ekki upplifað. Svo lékum við
púkana í „Kinnahvolssystram“,
það var ógleymanlegt. Félagslífíð
í sveitinni var mikið í þá daga. A
unglingsáranum flutti Bjarni til
móður sinnar Ástu og kjörföður,
Kjartans Sæmundssonar kaup-
félagsstjóra að Hraunteig 11,
Reykjavík. Ungur kvæntist hann
Hrafnhildi Björnsdóttur úr
Reykjavík. Þau eignuðust fjóra
syni, Kjartan Þór, Birgi, Geir og
Baldur Sívertsen.
Bjami Þór tók sér ýmislegt fyr-
ir hendur um dagana, var m.a.
lengi á sjó, vélstjóri á toguram og
farskipum, var bílstjóri og stund-
aði margskonar verslunarstörf.
Síðast gerðist hann heildsali og
stofnaði sitt eigið fyrirtæki. Hann
var ijölhæfur og hugmyndaríkur,
en misheppinn stundum. Alla tíð
höfum við haft gott samband, þó
mislangt hafi verið milli funda og
vík milli vina. Bjami var maður
bráðskemmtilegur, sögumaður
góður og hann átti sinn ævintýra-
heim.
Við ræddum lífsgátuna, gleðina
og sorgina, ástina og dauðann og
það sem gerir manninn að manni.
Og við drakkum saman brennivín.
Og minningar úr sveitinni okkar,
Kelduhverfi, vora Bjama alltaf
jafn kærar. Svo var eins þegar ég
kvaddi hann síðast á Landakots-
spítala, tveimur vikum áður en
hann dó. Lífsgleðin horfin, hann
sárþjáður og hugurinn fyrir norð-
an.
Trygglyndið var hans aðal.
Hann var góður drengur.
Ástvinum hans öllum sendi ég
mínar innilegustu samúðarkveðj-
ur. Guð veri sál hans Iíknsamur.
Þórarinn Bjömsson
Kransar, krossar
og Jdstuskreýtihgar.
Sendum um allt land.
GLÆSIBLÓMIÐ
GLÆSIBÆ,
Álfheimum 74. sími 84206
Kveðjuorð:
Sr. Róbert Jack
Kynni mín við séra Róbert hóf-
ust fyrir 3 áram. Ég tók að mér
að sjá um að bíllinn hans væri í
lagi. Upp frá því hittumst við
reglulega. Oftast var það þó ekki
bíllinn sem tók mestan tímann.
Hann tók sér góðan tíma til að
spjalla. Hugur séra Róberts var
ótrúlega frjór, lífsreynsla og gáfur
hans komu fram í víðsýni og kær-
leika. Það var sama hversu vit-
lausar vangaveltur mínar vora,
alltaf studdi hann mig og betram-
bætti hugmyndir mínar. Og aldrei
vantaði þennan fína skoska hú-
mor. Á þessum stutta tíma hefur
séra Róbert miðlað mér ómetan-
legum fróðleik um allt milli himins
og jarðar. Þessar samræður okkar
eiga eftir að lifa með mér alla tíð.
Með söknuði kveð ég nú í hinsta
sinn góðan vin minn, séra Róbert
Kveðja:
Geir M. Jónsson
Við viljum í nokkrum fáum en
fátæklegum orðum minnast fyrr-
verandi yfirmanns okkar Geirs M.
Jónssonar sem lést 18. febrúar sl.
Fyrstu kynni okkar af Geir voru
þegar við mættum fyrsta daginn í
vinnu hjá SS og á móti okkur tók
lágvaxinn viðkunnanlegur maður
með stórt hjarta eins og við áttum
eftir að kynnast síðar.
Við viljum þakka Geir samfylgd-
ina á liðnum árum, ekki bara á
vinnustað heldur og í öllum þeim
ferðalögum um landið, þar sem
hann var alltaf hrókur alls fagnað-
ar, með frásagnargleði og frábærri
þekkingu á landi og þjóð.
Við vottum eiginkonu hans, börn-
um og öðrum ættingjum okkar
dýpstu samúð.
Vinnufélagar hjá SS
Kveðjuorð:
Páll Tómasson
Jack. Ástvinum Róberts færi ég
mínar kærastu samúðarkveðjur.
Skúli Sigurðsson
Fæddur 4. október 1902
Dáinn 16. janúar 1990
Páll Tómasson, húsasmíðameist-
ari, Skipagötu 2, Akureyri, var bor-
inn til moldar hinn 22. jan. sl. Þess
góða manns langar mig að minnast
fáeinum orðum.
Páll Tómasson var skynsamur
dugnaðarmaður. Hann var aldrei
með hávaða en virti lífið og um-
hverfi sitt fyrir sér með yfirveguð-
um góðvilja. Hann var og af kunn-
um dugnaðarættum kominn, svo
sem hafa borið vitni hann og bræð-
ur hans, Eyþór, Guðmundur, Ólaf-
ur, Sveinn og Böðvar frá Bústöðum
í Áusturdal í Skagafirði.
Mín fyrstu bernskuár til 10 ára
aldurs bjó ég með fjölskyldu minni
í húsi þeirra Páls og Ónnu konu
hans í Skipagötu 2. Dagfarsprúður
var Páll Tómasson og sívinnandi.
Þegar hann var við störf sín heima
fyrir við smíðar, málningarvinnu
eða ýmislegt annað, sem hann var
að dytta að, man ég oft eftir hon-
um, þar sem hann var að raula lag
fyrir munni sér. Nutum við börnin
þess þá hve barngóður hann var.
Ekki gleymi ég húsunum sem hann
smíðaði handa okkur systranum
fyrir jólin, alveg eins og sínum eig-
in dætrum. Okkur krökkunum
fannst gaman að tala við Pál enda
t
Bróðir minn,
KRISTJÁN ELÍS STEFÁNSSON,
Bræðraborgarstíg 36,
andaðist í Landspítalanum mánudaginn 26. febrúar.
Steinunn Stefánsdóttir.
t
Útför móður minnar og tengdamóður,
GUÐRÍÐAR SIGURÐARDÓTTUR,
Skeiðarvogi 147,
Reykjavík,
verður gerð frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 1. mars kl. 13.30.
Hrefna Brynjólfsdóttir,
Gísli Ólafsson.
t
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
BJÖRG EINARSDÓTTIR
frá Hafranesi,
síðast til heimilis á Hrafnistu,
Reykjavfk,
verður jarðsungin frá Hafnarfjarðarkirkju fimmtudaginn 1.
kl. 13.30 síðdegis.
Guðný Jensdóttir Brennan,
Helga Jensdóttir,
Rafn Jensson,
Einar V. Jensson,
Sigurður Jensson,
Guðbjörn Jensson,
Óskar Halldórsson,
Lúísa Bjarnadóttir,
Edda Hjaitested,
Martyna Jensson,
Guðrún Pálsdóttir,
Valfríður Jensdóttir Powers, Philip Powers,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför,
GUÐMUNDAR HANNESSONAR.
Sigmar Guðmundsson,
Hannes Guðmundsson,
Henný Guðmundsdóttir, Gústaf Pálmi Ásmundsson,
Emil Guðmundsson, Helga Sófusdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
SKARPHÉÐINN JÓNSSON
fyrrv. bifreiðastjóri,
Hvassaleiti 28,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 1. mars kl.
15.00.
Ingibjörg Skarphéðinsdóttir, Ingi S. Guðmundsson,
Sverrir Skarphéðinsson, Hólmfri'ður Þórhallsdóttir,
Ingóifur Skarphéðinsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
kom hann leiðbeiningum sínum um
lífíð og tilveruna á framfæri við
okkur yngstu borgarana með góð-
vilja og kímni.
í einkalífi sínu hefur Páll Tómas-
son verið mikill hamingjumaður.
Hann gekk á árinu 1938 að eiga
sína ágætu konu, Önnu Jónínu
Jónsdóttur frá Syðri-Grund í Svarf-
aðardal. Hefðu þau því 20. jan. sl.
átt 52 ára brúðkaupsafmæli. Þau
Anna og Páll hafa og alltaf staðið
hvort við annars hlið í blíðu og
stríðu. Hún hefur verið mjög söng-
elsk og tekið mikinn þátt í tónlist-
arlífi á Akureyri. Hún hefur og
búið Páli og börnum þeirra einstak-
lega gott heimili af mikilli smekk-
vísi. Þau Anna og Páll hafa eignast
fjórar dætur, Sigrúnu, Sigurbjörgu,
Onnu Pálu og Helenu sem eru allar
vel menntaðar, fallegar og góðar
manneskjur að öllu leyti. Dótturson-
ur þeirra, sonur Sigrúnar, Páll Tóm-
asson arkitekt, ólst einnig upp hjá
þeim. Nú eru barnabörnin orðin sjö
og barnabarnabörnin fjögur.
Alla sem borið hefur að garði í
Skipagötu 2 hafa mætt þar hressi-
legu viðmóti, hlýju og vinsemd. Og
það er því í gegnum árin orðinn
stór hópur sem lagt hefur leið sína
til Önnu og Páls og notið gestrisni
þeirra hjóna og höfðingsskapar. Og
íjölskylduvinir hafa ekkert kosið
frekar en að fara til Akureyrar á
sumrin til að sækja þau heim. Sann-
ast þá, að þar sem nóg hjartarými
er er og nóg húsrými.
Fagrar æskuminningar eru fjár-
sjóður sem seint fyrnist. Páll Tóm-
asson átti sinn ríka þátt í að gefa
mér slíkan minningasjóð. Þess
vegna hugsa ég ávallt til hans og
fjölskyldu hans með virðingu og
þakklæti. Blessuð sé minning hans.
Guðrún Þóra Magnúsdóttir