Morgunblaðið - 28.02.1990, Síða 38
38
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. FEBRUAR 1990
mmmn
Ast er
•a-n
.. . eilíf vinátta.
JM Reg. U.S. Pat Off.—all rights reserved
° 1990 Los Angeles Times Syndicate
Mig dreymdi þig í nótt, þú
varst á kafí í sósu, brúnuð-
um kartöflum og sultu-
taui...
Viltu ekki biðja fólkið um
að hafa ekki svona hátt...
HÖQNI HREKKVÍSI
n'aðo f flosprekanm// v
ORETTLAT SKATIALOG
Til Velvakanda.
I sjónvarpi kom fram löggiltur
endurskoðandi til að kenna fólki að
gera skattskýrslu. Skattframtalið
hljóðaði uppá hjón með tvö börn.
Hjónin höfðu ágæt laun, eða tvær
milljónir og áttahundruð þúsund
kr. á árinu samanlagt, nokkurn
kostnaðarfrádrátt og persónufrá-
drátt. Þau eiga tvö börn en telja
ekki fram krónu í bamabótum, sem
nema hundruðum þúsunda á ári.
Allt framlag í félagsþjónustu ekki
talið fram. Þetta er bara gjöf sem
leggst inní heimilishaldið skattfrítt,
tekið af öðrum skattþegum með
valdboði óréttlátra skattalaga sem
valdhafarnir eru stöðugt að herða,
eða var þetta fölsk skýrslugerð sem
kallar fram skattsvik, eða gleymd-
ist þetta og fleira sem af okkur er
krafist við framtal? Nei, ég er viss
um að þetta er gert til að dylja
fyrir þeim sem með hrikalegum
hætti eru misrétti beittir í skatta-
málum, hvað barnafólk nýtur sér-
stakrar íhlutunar í annarra tekjur
í gegnum ríkiskúnstina. Þegar við
tökum svo til samanburðar fullorðið
fólk komið á ellilaun. Margt af því
fólki hefur ekki háar tekjur og
verður að greiða skatt af ellilaunum
sínum og eru þau þó lítið brot af
þeim tekjum sem barnafólk nýtur
frá almenningi og hafi eldra fólk
einhveijar tekjur þó ekki sé nema
brot af tekjum fyrrnefndra hjóna
er höggvið af tekjutryggingunni.
Þetta er hrikaleg valdníðsla
gagnvart eldra fólki og því þó
miklu fremur þar sem stjómin
kennir sig við jafnrétti og félags-
hyggju, nokkuð sem sýnir ískyggi-
lega valdníðslu í stjórnarháttum og
gengið þvert á margítrekaðar yfir-
lýsingar stjórnarflokkanna.
Þorleifiir Kr. Guðlaugsson
Fá reiðskapn-
um kennist...
Til Velvakanda.
í gömlum sögnum er frá því
greint, að Ásgrímur Hellnaprestur,
er nefndur var hinn illi, hafi oft
er bjargþrota fólk bar að garði hans
raðað góðgæti í kringum sig oe
.............. >!■!■! II m
Fyrirmenn
Til Velvakanda.
„Á reiðskapnum kennist, hvar
heldri menn fara,“ lætur Einar
Ben. söguhetjuna segja í þýðingu
sinni á Pétri Gaut eftir Henrik
Ibsen — ekki fyrirmenn, eins og
stendur í dálkum Velvakanda þ. 8.
þ.m.
Þegar vitnað er í „alkunnt ljóð“,
ber að sýna skáldi þá kurteisi, að
orðrétt sé eftir því haft.
Til gamans má rifja upp, að reið-
skjótinn, sem kemur við sögu, er
(svo) „feiknamikill grís, með kaðal-
enda fyrir beizli og gamlan poka
fyrir hnakk“, en á honum tvímenna
Gautur og grænklædda konan.
Edda
Víkveiji skrifar
Misheppnað geimskot Ariane-
flaugarinnar í síðustu viku
kann að hafa þau áhrif hér á
landi, að áhugamenn um sjón-
varpsgervitungl og sendingar frá
þeim fái síðar en ella að sjá fleiri
stöðvar á skjánum heima hjá sér.
Gervitunglin eru orðin helsti
tengiliður okkar við umheiminn
og hafa með tölvunum gjörbreytt
aðstöðu okkar til-að hafa sam-
skipti við aðrar þjóðir. Hér á Morg-
unblaðinu eru blaðamenn til dæm-
is í tölvu- og gervihnattarsam-
bandi við breska blaðið Daily Tel-
egraph og geta kallað upp á tölv-
una hjá sér af tölvu þess í London
fréttir áður en þær birtast í breska
blaðinu. Svipuðu tölvusambandi
hefur nú verið komið á milli Morg-
unblaðsins og vestur-þýsku frétta-
stofunnar dpa.
Þessi tækni er þannig, að óger-
legt er að lýsa henni með orðum,
menn verða að kynnast henni í
raun til að átta sig á byltingunni
sem í henni felst.
XXX
• •
Oflugasta sjónvarpsstöðin sem
næst hér á landi frá gervi-
hnetti er Sky-stöðin, sem rekin
er af fjölmiðlakónginum Rupert
Murdoch. Fyrsta starfsár stöðvar-
innar er nýliðið og á því nam tap-
ið á rekstri hennar 129 milljónum
dollara eða um 7.700 milljónum
íslenskra króna. Hallinn var þann-
ig rúmum 1.500 milljónum kr.
meiri en á rekstri íslenska þjóðar-
búsins undir ijármálastjórn Ólafs
Ragnars Grímssonar. Murdoch
gerði sér hins vegar aldrei vonir
að stunda hallalausan rekstur á
fyrsta sjónvarpsári sínu eins og
Olafur Ragnar á fyrsta ráðherra-
árinu, sem ætlaði að reka ríkissjóð
með 600 milljón króna afgangi.
í frétt um Sky, sem sendir út
á fjórum rásum, fréttir, skemmti-
dagskrá, kvikmyndir og íþróttir,
segir, að á fyrsta árinu hafi stöð-
inni tekist að ná í 1,3 milljón
áskrifendur, en áætlað hafði verið
að þeir yrðu 2,3 milljónir. Er talið
að stöðin þurfi 3 milljónir áskrif-
enda til að endar nái saman.
Erlendis þurfa menn að greiða
450 dollara eða 27.000 krónur
fyrir disk til að ná í Sky geislann.
Vegna þess hve viðskiptin voru
dræm greip fyrirtækið til þess
ráðs að leigja diska á 7.50 dollara
á mánuði eða 450 krónur. Lesend-
ur hafa vafalaust tekið eftir aug-
lýsingu í Morgunblaðinu frá
Radíóbúðinni, þar sem auglýstir
eru gervihnattadiskar á stað-
greiðsluverði frá 69.950 kr. til
125.980 kr. eftir gæðum. Fjar-
lægðin gerir að verkum að við
þurfum stærri diska en þeir sem
eru í meira návígi við gervihnett-
ina.
xxx
Um síðustu helgi gengu í gildi
reglur í Bandaríkjunum, sem
banna reykingar í flugvélum, ef
ferðin tekur skemmri tíma en sex
klukkustundir. Víkveiji hefur áður
minnt á að reykingar eru bannað-
ar á flugleiðum innan Norðurlanda
en þó ekki til íslands. Flug til New
York frá Keflavík tekur um 5
klukkustundir og um 3 stundir til
Luxemborgar, svo að dæmi séu
tekin úr áætlun Flugleiða.
Hér með er skorað á Flugleiðir
og Arnarflug að taka flugfélög á
Norðurlöndum og Bandaríkjunum
til fyrirmyndar og banna reyking-
ar í vélum sínum.