Morgunblaðið - 28.02.1990, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 28. FEBRÚAR 1990
41
töm
FOLK
HANDKNATTLEIKUR / HEIMSMEISTARAKEPPNIN
Ánægðir með aðstöðuna
Zlin, Tékkóslóvakíu. Frá Steinþári Guðbjartssyni, blaðamanni Morgunblaðsins.
1K el fer um íslenska liðið, þar inni í Zlin í gærkvöldi og fylgdust. venjulega eru 4000 til 6000
W sem það býr 4 hóteli í Zlin. nokkrir íbúar Zlin með. A sama manns á leikjum.
„Þetta er besta hótel, sem ég hef tíma fór fram íshokkíleikur í Handbolti á sér langa sögu f
verið á í Austur-Evrópu,“ sagði næsta húsi og þar voru nokkur Zlin og hér var meistaralið 1960.
Stefán Carlsson, læknir íslenska þúsund áhorfendur. Íshokkí er Síðan hefur heldur hallað undan
liðsins. vinsælasta íþróttin í Zlin, höllin fæti, en handbolti kvenna er mjög
Liðið æfði í 75 mínútur í höll- tekur 10.000 áhorfendur, en vinsæll að sögn heimamanna.
Morgunblaðið/Júlíus
Alfreð Gíslason hittir hér fyrir félaga sína úr spænska handboltanum. Ignacio Ordonez, félagi Alfreðs hjá Bidasoa er
til vinstri og á milli þeirra er Javier Cabanas.
„ísland í etfíðum hópi“
- sagði rúmenski landsliðsmaðurinn Vasile Stinga
■ EINAR Einarsson, sem lék
með Selfyssingum í 2. deild í fyrra,
hefur gengið frá félagaskiptum yfir
í sitt gamla félag, Víking. Hann
lék alla leiki Selfossliðsins í fyrra
sumar. Einar hefiir leikið 35 leiki
fyrir Víking í 1. deild og skorað
í þeim tvö mörk.
■ LOGI Ólafsson, þjálfari
Víkings, fer til Stuttgart í Vest-
ur-Þýskalandi í dag þar sem hann
mun dvelja í vikutíma og fylgjast
með æfígnum hjá Stuttgart. Til
gamans má geta þess að Logi lék
með Ásgeiri Sigurvinssyni í Faxa-
flóaúrvalinu á sínum tíma.
■ JAVIER Clemente, þjálfari
Atletico Madrid á Spáni, var rek-
inn frá félaginu í gær, eftir tap
gegn Osasuna í deildarkeppninni
um helgina. Liðið er nú i öðru sæti,
átta stigum á eftir Real Madrid.
„Atletico getur ekki sætt sig við
að vera númer tvö,“ sagði forseti
félagsins, eftir brottrekstur Cle-
mentes. Ekki hefur verið ákveðið
hver tekur við þjálfarastöðunni.
■ PORTO, sem er í efsta sæti
portúgölsku deildarkeppninnar, féll
úr bikarkeppninni í gærkvöldi er
liðið tapaði fyrir Tiresense, 2:0.
Tiresense er aðeins í 11. sæti deild-
arinnar og komu þessi úrslit því
mjög á óvart.
■ MARK Hateley, enski leikmað-
urinn hjá Mónakó, þarf að gangast
undir uppskurð á vinstri ökkla í
London í dag og verður frá knatt-
spymu í minnst tvo mánuði. Hate-
ley meiddist eftir að hann skoraði
í jafnteflisleik gegn Marseille um
síðustu helgi. Hann hefur verið
frekar óheppinn því í fyrra var hann
frá vegna meiðsla í sjö mánuði.
■ AZEGLIO Vicini, landsliðs-
þjálfari ítala í knattspyrnu, hefur
framlengt samning sinn við ítalska
knattspymusambandið fram yfir
Evrópukeppnina í Svíþjóð 1992.
Vicini tók við þjálfarastöðunni af
Enzo Bearzot eftir lélegt gengi
liðsins í heimsmeistarakeppninni í
Mexíkó 1986.
FRJALSAR
Heimsmet hjjá Elliot
Bretinn Peter Elliot setti heimsmet
í gær í 1.500 metra hlaupi innan-
húss, á alþjóðlegn móti í Sevilla á Spáni.
Elliot hljóp á 3:24,21 mín og bætti
heimsmet Marcus O’Sullivan frá írlandi
en það var 3:35,60 mín, sett fyrir rúmu
ári.
„ÍSLENDINGAR eru í mjög erf-
iðum hópi — með öllum bestu
liðunum. Sovétmenn eru nú
lang bestir, Júgóslavía er líka
með mjög gott lið en einnig
Austur-Þýskaland og ísland.
Ég tel þessi fjögur lið þau
foestu í C og D riðli,“ sagði rúm-
enski landsliðsmaðurinn kunni
Vasile Stinga í samtali við
Morgunblaðið er hann var hér
á landi með liði Rúmeníu á
dögunum.
Stinga, sem leikur með Valencia
á Spáni, segir lið Spánar ungt.
„í liðinu eru mjög góðir leikmenn
en þeir hafa ekki mikla reynslu.
Spánveijar hugsa fyrst og fremst
um að byggja upp gott lið fyrir
Ólympíuleikana í Barceiona, en
gætu þó hæglega komið á óvart í
Tékkóslóvakíu,“ sagði Stinga.
Rúmenski landsliðsmaðurinn
sagði B-riðil, þar sem lið hans leik-
ur, vera erfíðan. „Fyrsti leikur okk-
ar gegn Suður Kóreu er mjög mikil-
vægur. Tékkar verða erfiðir enda á
heimavelli og það er alltaf erfítt að
leika gegn Svisslendingum. Þeir
leika mjög rólega og kerfísbundið.
En ég hygg þó að annað hvort
Suður Kóra eða Sviss lendi í síðasta
sæti riðilsins og sitji eftir,“ sagði
Vasile Stinga.
Hann sagði markmið Rúmena að
vinna sér sæti á Ólympíuleikunum
í Barcelona. „Áður var okkar mark-
mið alltaf að verða númer eitt —
alltaf — en nú hugsum við bara um
að komast á Ólympíuleikana. Takist
það gefst okkur tími til að undirbúa
gott lið fyrir þá baráttu, við eigum
mikið af ungum og góðum leik-
mönnum," sagði Stinga.
HANDKNATTLEIKUR
Virðing þáttlökuliða í lágmarki
Breytir þó ekki eðli brotsins, segir í úrskurði dómstóls HSÍ
í ÚRSKURÐI dómstóls HSÍ í
máli Þorbjamar Jenssonar
segir m.a. að framkvæmd
handknattleiksmóts Stjörn-
unnar hafi veríð í slakara lagi
og eftirlit HSÍ með mótinu
hafi brugðist. Einnig segir að
þátttakendum hafi ekki verið
gert það nægilega Ijóst að um
opinbert mót hafi verið að
ræða og virðing þátttökuliða
í lágmarki. Það breyti þó ekki
eðli brotsins og aðeins sé
fjallað um þetta tiltekna brot.
Þorbjörn var dæmdur í
þriggja mánaða keppnisbann
og handknattleiksdeild Vals
gert að greiða 10.000 kr. sekt
fyrir að hafa gengið af velli í
leik gegn Gróttu.
Hér fylgir úrskurður dómstóls
HSÍ.
Mál þetta var lagt fyrir dómstól-
inn af stjóm HSÍ með kæru
dags. 18.2. 1990. Kært er það tilvik
að leikmenn Vals í meistaraflokki
karla gengu af leikvelli áður en leik-
tíma lauk, í leik við Gróttu í hand-
knattleiksmóti í Garðabæ, svoköll-
uðu „Handboltadagar í Garðabæ“, í
mótmælaskyni við úrskurð dómara
leiksins.
Krafíst var þyngstu refsingar og
vísað til e-liðs 18. gr. reglugerðar
HSÍ um handknattleiksmót.
Málavextír eru þeir, að leikmaður
Vals var útilokaður vegna grófs ieik-
brots. Annar leikmaður sama félags
var nokkru síðar útilokaður vegna
óíþróttmannslegrar framkomu.
Þjálfari Vals kaliaði þá leikmenn
sína af leikvelli. Þar sem liðið kom
ekki aftur til leiks, flautuðu dómarar
leiksins leikinn af. Sérstakur dóm-
stóll mótsins dæmdi leikinn tapaðan
Val 0-10 og vísaði liðinu úr keppni.
Mál þetta er að fuilu upplýst og
málsatvik Ijós.
Telja verður, gegn _ andmælum
Vals, að reglugerð HSÍ ura hand-
knattleiksmót eigi við um mót þetta.
Svo virðist sem framkvæmd móts-
ins hafí verið í slakara lagi og eftir-
lit með mótinu af hálfu HSÍ hafí
brugðist og að þátttakendum hafi
ekki verið gert það nægjanlega ljóst
að um opinbert mót hafí verið að
ræða með þátttöku tveggja lands-
liða. Virðing þátttökuiiða fyrir mót-
inu og innbyrðis virðist hafa verið í
lágmarki og verður að skoða brot
Vals í því ljósi, án þess þó að eðli
brotsins breytist nokkuð við það.
Brot annarra þátttakenda á reglum
sambandsins skipta þar og engu
máli en eru sjálfstæð brot, sem sæta
kæru til dómstóls HSÍ.
Orðalag 18. gr. c-lið reglugerðar
HSÍ um handknattleiksmót, þar sem
sagt er að flokk megi setja f leik-
bann, þykir verða að skiija svo að
átt sé við leikmenn, þjálfara, liðs-
stjóra og aðra starfsmenn liðs, sem
skráðir eru á leikskýrslu og þar sem
notað er hugtakið leikmaður síðar í
sama tölulið, sé átt við alla framan-
greinda aðila.
Brot það sem kært er fyrir er
talið fullsannað og rétt fært til refsi-
ákvæða og þykir refsing hæfílega
ákveðin 3 mánaða leikbannh þjáifara
liðsins, Þorbjarnar Jenssonar, og
dæma félagið til greiðslu sektar að
fjárhæð kr. 10.000,00, sem er hám-
arksfjárhæð ákvæðisins. Þá ber að
víta lið Vals í heild. Átelja verður
og þátt HSÍ f máli þessu.
Dómsorð: Þjálfari Vals, Þorbjörn
Jón Jensson, sæti leikbanni í 3 mán-
uði frá birtingu dóms þessa að teija
í mótum á vegum HSI. Valur greiði
kr. 10.000,00 í sekt til HSÍ.
Dómsorðið var lesið í dóminum
að aðilum fjarstöddum. Þannig fram
farið. JRétti slitið.
Valgarður Sigurðsson,
Gunnlaugur Hjálniarsson,
Þorsteinn Einarsson.
ÚRSUT
UMFT-UMFIM 88:98
Iþróttahúsið á Sauðárkróki, úrvalsdeildin í
körfuknattleik, þriðjudaginn 27. febrúar
1990.
Gangur leiksins: 4:2, 12:10, 22:19, 34:26,
42:36, 53:38, 56:49, 58:56, 62:65, 77:78,
81:86, 88:98.
Stig Tindastóls: James Lee 30, Sturla
Örlygsson 21, Valur Ingimundarson 16,
Pétur Vopni Sigurðsson 7, Sverrir Sverris-
son 6, Bjöm Sigtryggsson 4 og Haraldur
Leifsson 4.
Stig UMFN: Patrick Releford 33, Teitur
Örlygsson 19, Friðrik Rúnarsson 14, J6-
hannes Kristbjömsson 13, Helgi Rafnsson
8, ísak Tómasson 6, Friðrik Ragnarsson 3
og Ástþór Ingason 2.
Dómarar: Kristinn Albertsson og Guð-
mundur S. Maríasson og dæmdu mjög illa.
Áhorfendur: 400.
Valur-ÍR 57:67
íþróttahús Vals, úrvalsdeildin í körfuknatt-
leik, þriðjudaginn 27. febrúar 1990.
Gangur leiksins: 7:6, 7:25, 20:30, 30:38,
36:44, 45:44, 48:48, 50:54, 52:60, 57:67.
Stig Vals. Chris Behrends 23, Svali Björg-
vinsson 12, Matthías Matthiasson 9, Ragn-
ar Jónsson 5, Einar Ólafsson 4, Hannes
Haraldsson 2 og Guðni Hafsteinsson 2.
Stig ÍR: Thomas Lee 26, Bjöm Steffensen
16, Jóhannes Sveinsson 10, Eggert Garð-
arsson 5, Bjöm Bollason 4, Gunnar Öm
Þorsteinsson 4 og Sigurður Einarsson 2.
Dómarar: Leifur Garðarsson og Sigurður
Yalgeirsson. Dæmdu ágætlega.
Áhorfendur: 20.
2MH *
James Lee og Sturia Örlygsson, UMFT. r ■ ■
Patrick Releford og Teitur Örlygsson,
UMFN. Thomas Lee, ÍR.
P
Valur Ingimundarson UMFT. Friðrik
Rúnarsson og Jóhannes Kristbjömsson,
UMFN. Chris Behrends og Matthías Matt-
híasson, Val. Bjöm Steffensen og Jóhannes
Sveinsson, ÍR.
Þór-ÍBK 111:114
íþróttahöllin á Akureyri, bikarkeppnin -
siðari leikur í átta liða úrslitum, þriðjudag-
inn 27. febrúar 1990.
Gangur leiksins: 15:6, 37:32, 55:45,61:53,
71:66, 71:72, 90:94, 111:114.
Stig Þórs: Konráð Óskarsson 32, Dan
Kennard 23, Jón Öm Guðmundsson 18,
Eiríkur Sigurðsson 17, Guðmundur Bjöms-
son 9, Bjöm Sveinsson 6, Jóhann Sigurðs-
son 4, Ágúst Guðmundsson 2.
Stig IBK: Sandy Anderson 26, Falur Harð-
arson 25, Nökkvi Már Jónsson 23, Guðjón
Skúlason 23, Sigurður Ingimundarson 11,
Albert Óskarsson 4 og Ingólfur Haraldsson
2.
Btkarkeppnin
Um helgina var dregið í bikarkeppni KKÍ.
Njarðvík mætír Haukum 4. og 8. mars og
KR-ingar mæta Keflvíkingum á sama tíma.
í bikarkeppni kvenna leika Haukar og
UMFN 8. og 16. mars og hinsvegar ÍR og
ÍBK 6. og 8. mars.
Knattspyrna
Enska bikarkeppnin, 16-Uða úrslit:
Cambridge United-Bristol Rovers..5:1
(Cambridge, sem leikur í 4. deild, mætir Cryst-
al Palace á heimavelli í flórðungsúrslitum).
1. DEILD:
Chariton-Arsenal............... 0:0
Southampton-Norwich..............4:1
Matthew Le Tissier 55. 60. 85., Kevin Moore
81. — Martín Allen 17.
Liverpool-Derby..............Jrestað
Aston VUla er i efsta sæti í 1. deild en ekki
Liverpool eins og sagði í blaðinu í gær. ViUa
hefur 52 stíg, Liverpool 50. Bseði hafa lokið
26 leikjum. Viðureign Iiverpool og Derby í
gærkvöldi var frestað vegna veðurs.
HM
Leikirnir
í sjónvarpi
og útvarpi
Leik íslands og Kúbu verður
sjónvarpað beint í Ríkissjónvarpinu
í dag. Útsending hefst kl. 18.45,
en stundarfjórðungi síðar verður
flautað til leiks. Bjarni Felixson
íþróttafréttamaður er í Tékkósló-
vakíu og lýsir leiknum í kvöld, sem
og öðrum leikjum íslands í HM.
SamúeJ Örn Erlingsson lýsir
leikjum íslands í útvarpinu. Þáttur
um HM hefst kl. 18.30 á Rás 2.
Lýsing Samúels verður á Rás 2
en einnig á stuttbylgju, og næst
hún á 7870 MHZ, 9268 MHZ og
13855 MHZ. Þetta á við um leikina
í kvöld og á morgun, en lýsingin á
leiknum gegn Júgóslavíu á laugar-
daginn næst hins vegar á 9288
MHZ, 13861 MHZ og 15767 MHZ.