Morgunblaðið - 28.02.1990, Side 44
Neskaupstaður:
Rafmagn skammtað
í kjölfar snjóflóðs
Neskaupstað.
STÓRT snjóflóð féll um miðjan dag í gær á bæinn Þrastarlund í
Norðíjarðarsveit, en bærinn stendur á mörkum sveitarinnar og kaup-
staðarins. Flóðið lenti á ibúðarhúsinu og skemmdi það mikið. Þá
hreif það með sér vélageymslu sem stóð austan við íbúðarhúsið en
í henni voru bæði vélar og bflar.
Ekki hefur verið búið í Þrastar-
lundi síðan í haust er ábúendur
fluttu í bæinn. Snjóflóðið braut nið-
ur aðalrafmagnslínuna til bæjarins
svo og rafmagnslínuna sem liggur
inn í Norðfjarðarsveit og varð þar
rafmagnslaust. Rafmagn var
skammtað í bænum því varaaflstöð
á staðnum annar ekki álaginu.
A Fljótlega eftir að fióðið féll var
svæðið frá Mána og inn að Þrastar-
lundi rýmt en á því svæði féllu snjó-
Einnig skemmdi flóðið útihús.
flóðin miklu árið 1974. Á þessu
svæði eru fá íbúðarhús en þar
standa flestir stærstu vinnustaðir
bæjarins.
Búast má við að vatnslaust verði
í kaupstaðnum þar sem dælustöð
fyrir vatnsveituna er inni í sveitinni
og á meðan rafmagnslaust er þar
berst ekki vatn til bæjarins.
Ágúst
Sjá einnig fréttir á bls. 18-19.
K. Jónsson og Co
segir sig úr SL
Niðursuðuverksmiðja K. Jóns-
sonar og Co hf. á Akureyri hefiir
sagt sig úr Sölusamtökum lag-
metis. Verksmiðjan hefur um ára-
bil verið langstærsti einstaki
framleiðandi innan SL, með yfír
50% af þeim vörum sem þau hafa
selt. Fyrirtækið ætlar að hefja
sjálfstæða sölustarfsemi og leita
nýrra markaða.
Baldvin Vaidimarsson, aðstoðar-
*
framkvæmdastjóri K. Jónssonar,
segir að fyrirtækið vonist eftir góðu
samkomulagi við SL um sölumál í
framtíðinni. Garðar Sverrisson,
framkvæmdastjóri Sölusamtaka
lagmetis, segist vonast til að sam-
tökin geti framleitt upp í gerða
samninga þrátt fyrir að K. Jónsson
hefði sagt sig úr samtökunum.
Sjá Akureyrarsíðu bls. 27.
Samið við bóka-
gerðarmenn
NÝIR kj arasamningar Félags
bókagerðarmanna og Félags
íslenska prentiðnaðarins voru
undirritaðir í gærkvöldi.
Samningamir eru á sömu nótum
og aðrir kjarasamningar sem gerðir
hafa verið upp á síðkastið, og verða
þeir bomir upp í félögunum á næst-
unni.
Morgunblaðið/Sverrir
Oskudagurinn
Öskudagurinn er í dag. Þessi dagur er alla jafna einn skemmtileg-
asti dagur í lífi hvers barns. Bömin á barnaheimilinu Fögrubrekku
á Seltjamarnesi vom í gær að undirbúa daginn full tilhlökkunar. Á
bls. 19 er sagt frá dagskrá sem verður á Lækjartorgi í dag.
16% verð-
lækkun á
lambakjötí
Sala 1.050 tonna
hefst um helgina
Á MORGUN mun verð á lamba-
kjöti á lágmarkssverði lækka
um 16%, og verð á vinnslukjöti
úr 5. og 6. verðflokki um 14%.
Eftir verðlækkunina mun 6 kg
poki með lambakjöti á lág-
marksverði úr úrvalsflokki
kosta 2.622 kr., eða 437 kr.
kílóið, og poki með lambakjöti
úr A-flokki mun kosta 2.502
kr., eða 417 kr. kílóið.
Verðlækkunin tekur til um 800
tonna af lambakjöti á lágmarks-
verði og um 250 tonna af vinnslu-
kjöti. Niðurgreiðslur vegna verð-
lækkunarinnar, sem stendurtil 31.
maí, nema samtals 60,5 milljónum
króna.
Samkvæmt upplýsingum Þór-
halls Arasonar, starfsmanns sam-
starfshóps um sölu lambakjöts,
verður eingöngu boðið nýtt kjöt
úr hæsta gæðaflokki, þar sem öllu
eldra kjöti hefur þegar verið ráð-
stafað. Nýjar rækilega merktar
umbúðir munu tryggja að neyt-
endur þurfi ekki að vera í vafa
um aldur og gæðaflokk kjötsins,
auk þess sem sérstakt gæðaátak
er í gangi sem tryggja á sam-
ræmda niðurhlutun þess. Tveir
valkostir varðandi niðurhlutun
kjötsins verða í boði fyrir neytend-
ur, en í poka með kjöti úr úrvals-
flokki verður súpukjöt, kótilettur,
grillrif og heilt læri, og í poka
með kjöti úr A flokki verður súpu-
kjöt, hálfur hryggur heill eftir
endilöngu, grillrif og heilt læri.
Dreifing á kjötinu í verslanir
hefst um næstu helgi, en búist er
við að jafnvægi á milli efrirspurnar
og framboðs í verslunum náist um
miðjan mánuðinn.
Forvextir víxla lækka mun
minna en skuldabréfavextir
Atvinnulífínu sendur reikningurinn fyrir vaxtalækkununum, segir hagfræðingur VSI
FORVEXTIR víxla og viðskiptavíxla lækka minna en vextir almennra
skuldabréfa nú um mánaðamótin. Þannig eru forvextir víxla annað
hvort jafnir eða hærri en algengir skuldabréfavextir, sem greiddir eru
eftir á óg verða í flestum bankanna 18,5% frá 1. mars og lækka um
3-4%. Hannes G. Sigurðsson, hagfræðingur Vinnuveitendasambands
íslands, segir að sú staðreynd að vaxtalækkanir nái í minna mæli til
viðskiptavíxla og yfírdráttarlána, sem er algengasta form skammtíma-
íjármögnunar I iðnaði og verslun, heldur en til almennra skuldabréfa,
sýni að í raun sé verið að senda atvinnulífinu reikninginn fyrir vaxta-
lækkununum. Valur Valsson bankastjóri íslandsbanka segir að lögð
hafí verið áhersla á að skuldabréfavextir Iækkuðu að fullu nú þótt
verðlagsbreytingar gæíu kannski ekki tilefni til þess, en aðrir liðir
iækkuðu minna nú. Þetta ætti eftir að jafna sig með næstu vaxtabreyt-
ingu.
Smáfuglarn-
ir flykkjast
til byggða
SNJÓRINN í vetur hefur eins
og svo oft áður gert fæðuleit
smáfuglanna erfiða. Hópast
þeir því til borga og bæja í
von um að fínna þar fæðu.
Ævar Petersen, fuglafræð-
ingur, sagði ekki vera hægt að
segja til um hvort smáfuglun-
um hefði farnast vel eða illa í
vetur miðað við fyrri vetur.
Engar athuganir hefðu verið
gerðar á því. Hins vegar hópuð-
ust þeir nú til byggða sem af-
leiðing af snjóalögunum víða
um land. Væru til dæmis um
þessar mundir stórir hópar af
snjótittlingum í Reykjavík.
Sagði hann fólk vera duglegt
við að gefa þeim og færu sum-
ir með heila sekki af fuglafóðri
yfir veturinn.
Ævar sagði einnig að ijúpan
hefði það nú víða slæmt fyrir
norðan og austan. Væri hún
einnig farin að sækja til byggða
og leitaði fæðis í námunda við
mannabyggð.
íslandsbanki lækkar víxilvexti um
1,25%, Búnaðarbanki um 3% ogvexti
viðskiptavíxla um 2,5%. Landsbanki
lækkar viðskiptavíxla um 2,5% og
Samvinnubanki lækkar viðskipta-
víxla um 0,5%. Vaxtaákvörðun spari-
sjóðanna lá ekki fyrir í gær. Yfirleitt
er það þannig að forvextir eru lægri
en eftir á greiddir vextir. Þannig er
ávöxtun 60 daga víxils sem ber
18,5% vexti 20,7%, ávöxtun víxils
með 19,75% vexti 22,2% og ávöxtun
víxils með 22% vexti 25,1%. Síðustu
10 daga janúarmánaðar var meðaltal
víxilvaxta banka og sparisjóða 24,6%
og meðaltal algengra vaxta skulda-
bréfa 29,3% og munaði því rúmum
4,5%. Nú síðast í febrúar eru sam-
svarandi meðaltöl 21,2% og 22,2%
og eftir mánaðamótin verða víxil-
vextirnir hærri að meðaltali en
skuldabréfavextirnir.
Hannes sagði að þetta væri mjög
alvarlegt mál þar sem í bréfí við-
skiptabankanna og sparisjóðanna til
aðila vinnumarkaðarins vegna kjara-
samninganna væri sagt berum orð-
um að aðrir vextir verði lækkaðir
með sama hætti og skuldabréfavext-
ir. „Ef eitthvað var þá var áhugi hjá
okkur fyrir því að þetta rándýra
vaxtaform lækkaði meira en annað
en ekki minna,“ sagði Hannes.
„Ég sé ekki betur en bankarnir
séu að ganga á bak orða sinna og
séu ekki heilshugar í því að reyna
að ná því markmiði að ná verðbólg-
unni niður. Það liggur auðvitað ljóst
fyrir að það eru þessir vextir sem
atvinnulífið er að borga og það var
talað um að þeir lækkuðu það mikið
að greiðslustaða fyrirtækjanna
myndi batna verulega," sagði Hann-
es ennfremur, aðspurður hvort þetta
stefndi markmiðum kjarasamning-
anna í hættu, en í þeim segir að
atvinnulífíð noti svigrúmið vegna
vaxtalækkana til að mæta upphafs-
hækkun launa og velti henni ekki út
í verðlagið.
Ólafur Davíðsson, framkvæmda-
stjóri Félags íslensk'ra iðnrekenda,
sagði að sér sýndist að með þessu
hefði þróunin ekki ennþá orðið sú
sem aðilar vinnumarkaðarins hefðu
lagt áherslu á. „Það verður ástæða
til að athuga þetta og fylgja því frek-
ar eftir, þannig að þessi vaxtalækkun
raunverulega nýtist atvinnulífínu
eins og til stóð,“ sagði Ólafur.
Sjá nánar frétt á bls. 18.