Morgunblaðið - 07.04.1990, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 07.04.1990, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. APRÍL 1990 1.500 böm í heimsókn hjá Granda hf.: Lyktin vond - steikt ýsa með tómatsósu góð UM 1.500 grunnskólanemendur lögðu leið sína í fiskvinnslustöð Granda hf. í gær og skoðuðu starf- semina sem þar fer fram. Var á mörgum nemendanna að heyra að heimsóknin hefði verið bæði skemmtileg og fróðleg. Mikla kátínu vakti meðal krakkanna að allir urðu að hafa hárnet á höfði og plast yfir skóm, en þau tóku því vel og virtust skilja að nauð- synlegt er að gæta fyllsta hrein- lætis þar sem matvælaframleiðsla fer fram. Bömin gengu í fylgd kennara sinna og starfsmanna Granda um Norðurgarðinn þar sem fram fer vinnsla á bolfiski, þorski og ufsa og fieiri tegundum. Ráðgert var að eng- in vinnsla færi fram meðan á heim- sókninni stæði en svo fór að helming- ur starfsmanna var við vinnu á flæð- ilínum en hinn helmingur gekk um salina og fræddi nemendurna um starfsemina. Fisklyktin virtist fara illa fyrir bijóstið á sumum en krakkarnir báru sig vel og sögðust vita að fiskveiðar og fiskvinnsla væru undirstöðu- atvinnugreinar ís- lendinga. Brynjóif- ur Bjarnason, framkvæmdastjóri Halldór Sigmundsson Granda hf., var í hlutverki gestgjaf- ans og gekk með krökkunum um salina. Hann sagði að von væri á framhaldsskólanemendum eftir kl. 14 sem ætluðu einnig að kynna sér starfsemina. Halldór Sigmundsson, 11 ára nemandi í Engidalsskóla í Hafnar- firði, sagði að sér litist vel á svona starfskynningu. „Við byijuðum á því að fara í gegnum gúmbjörgunarbát- inn uppi og síðan gengum við um fiskvinnslusalina. Annars gæti ég ekki hugsað mér að vinna hérna, lyktin er svo ægilega vond. En fisk- vinnsla er mikilvæg fyrir þjóðarbúið, Dagbjört 0111 Ólafsdóttir Freysdóttir 75% af útflutningstekjum." Halldór sagði að sér þætti þó steikt ýsa með tómatsósu góður matur. Dagbjört Freysdóttir, 11 ára nem- andi í Engidalsskóla, sagðist ekki hafa farið í starfskynningu áður. „Ég gæti ekki hugsað mér að vinna í fiski vegna lyktarinnar. Það byija líka svo margir að reykja sem vinna í fiski en það ætla ég aldrei að gera. Þjóðin kemst hins vegar ekki af án fiskvinnslu, þetta er undirstaða þjóð- arinnar. Við höfitm oft fisk heima og mér finnst hann bara ágætur á bragðið," sagði Dagbjört. Ollí Olafsdóttir, 12 ára nemandi VEÐURHORFUR í DAG, 7. APRÍL YFIRLIT i GÆR: Fremur hæg sunnan- og suðvestanátt um mest allt land. Þó var hægviðri á Suðausturlandi. Skýjað var um allt land, en að mestu úrkomulaust. Hiti +2 til -5-6 stig. SPÁ: Sunnan- og suðvestanátt. Skúrir eða slydduél sunnan og vestanlands og á vestanverðu Norðurlandi. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: HORFUR Á SUNNUDAG OG MÁNUDAG: Suðvestanátt sums stað- ar allhvöss með skúrum sunnan- og vestanlands, en að mestu úrkomulaust í öðrum landshlutum. Hiti +4 til +6 stig. TÁKN: Heiðskírt Léttskýjað Hálfskýjað Alskýjað x Norðan, 4 vindstig: ' Vindörin sýnir vind- stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. / / / / / / / Rigning / / / * / * / * / * Slydda / * / * * * * * * * Snjókoma * * * -)0° Hitastig: 10 gráður á Celsíus Skúrir * V ■ == Þoka = Þokumóða » , ’ Súld OO Mistur —{- Skafrenningur [T Þrumuveður VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að ísl. tíma Akureyri Reykjavík hiti <■5 1 veftur skýjað skýjað Bergen 4 léttskýjað Helsinki 7 skýjað Kaupmannah. 7 léttskýjað Narssarssuaq +6 snjókoma Nuuk +1 snjókoma Osló 7 skúr Stokkhólmur 7 skýjað Þórshöfn 3 skýjað Algarve 14 skúr Amsterdam 10 heiðskírt Barcelona 16 þokumóða Berlín 10 skýjað Chicago 4 skýjað Feneyjar alskýjað Frankfurt 10 skýjað Glasgow 8 skúr Hamborg 8 hálfskýjað Las Palmas 20 alskýjað London 11 léttskýjað Los Angeles 14 SÚId | Lúxemborg 10 skýjað Madríd 10 skúr Malaga 19 hálskýjað Mallorca 17 skýjað Montreal 0 snjóél New York 8 rigning Orlando 13 léttskýjað Paris 12 skýjað Róm 18 alskýjað Vín vantar Washington 9 skúr Winnipeg +12 léttskýjað Morgunblaðið/Emilía Börnin horfa angistarfull á ísaðan fiskinn en Brynjólfiir Bjarnason, framkvæmdastjóri Granda, brosir til þeirra. úr Varmárskóla í Mosfellsbæ, sagði að sér litist vel á þá starfsemi sem færi fram í Granda. Hún var að skoða fiska sem lágu ísaðir í fisk- körum. „Það sem kom mér mest á óvart er allur tækjabúnaðurinn hér og hve margar tegundir af fiski eru hér. Ég gæti vel hugsað mér að vinna við fiskvinnslu en ég held að launin séu kannski of lág,“ sagði Ollí. í dag er opið hús hjá Granda hf. og býðst almenningi þá að kynna sér starfsemi fyrirtækisins. Fimm valkostir um veðurupplýsingar VEÐURSTOFA íslands hefur í samvinnu við Póst og síma tekið í notkun nýjan símsvara með upplýsingum um veður, þar sem lands- mönnum öllum er í sömu símanúmerum, 990600 til 605 og fyrir sama gjald boðið að velja milli fimm valkosta með upplýsingum um veður af ýmsu tagi. Páll Bergþórsson, veðurstofu- stjóri, sagði að í fyrsta númerinu væri þessi þjónustua kynnt og allir valkostir. I öðru númerinu fengjust upplýsingar um veður og veðuhorfur í stórum dráttum fyrir landið í heild, í því þriðja hefðbundin veðurspá fyr- ir einstök spásvæði á landi og mið- um. I fjórða númerinu er ahægt að fá upplýsingar um veður og veður- horfur á höfuðborgarsvæðinu, í því fimmta verður hægt að fá veðurlýs- ingu fyrir valdar erlendar veður- stöðvar og í því sjötta flugveðurskil- yrði yfir Islandi að degi til. Páll sagði að þeir hjá Veðurstof- unni vonuðust eftir að þessi bætta þjónusta mæltist vel fyrir, því hvergi væri jafn mikið hugsað um veðrið og hér. Þannig hefði hann kannað hringingar í eldri svarsíma Veður- stofunnar 17000, sem náði einungis til höfuðborgarsvæðisins og Akur- eyrar. Hann hefði fylgst með hring- ingum í eina viku og þær hefðu ver- ið 800 að meðaltali á dag og 1.500 þegar mest var og veður slæmt. Þetta samsvaraði 300 þúsund hring- ingum á ári og sýndi að þörfin væri mikil fyrir þessa þjónustu, 'auk þess sem ónæði veðurfræðings á vakt ætti vonandi eftir að minnka. Yfírmenn á Herjólfí boða til verkfalls FARMANNA- og fiskimannasam- band íslands hefur boðað til þriggja sólarhringa verkfalls fyrir hönd yfirmanna á farþegaskipunu Heijólfi og hefst verkfallið 12. Haftiarfj örður: Veggjakrot veldur usla ÓKUNNUR maður hefúr undan- farna daga farið um Hafnarfjörð og krotað á húsveggi. Hann skilur eftir sig sömu áletrunina alls stað- ar: HF 32. Rannsóknardeild lög- reglunnar í Hafiiarfirði telur líklegt að kvikmynd, sem Stöð 2 sýndi um liðna helgi, hafi vakið þessa áráttu með manninum. Maðurinn hefur úðað málningu á veggi Hafnarfjarðarkirkju, Prent- smiðju Hafnarfjarðar og Dvergs 0g þurfa forráðamenn húsanna að mála veggi þeirra. Lögreglan biður þá sem búa yfir upplýsingum um málið að hafa við sig samband. Um liðna helgi sýndi Stöð 2 kvik- mynd um pilt sem berst við yfirvöld í heimaborg sinni. Hann beitir fyrir sig veggjakroti og kvittar fyrir með áletruninni Turk 182. Að sögn Sveins Björnssonar, yfirlögreglu- þjóns rannsóknardeildar lögreglunn- ar í Hafnarfirði, tók hafnfirski veggjakrotarinn til við iðju sína eftir sýningu þessarar myndar en ekki hefur tekist að ráða í skammstöfun- ina HF 32. apríl ef ekki hefúr samist fyrir þann tíma. Að sögn Helga Lax- dal, varaformanns FFÍ, er þess krafist að laun yfirmanna hækki i samræmi við hækkanir undir- manna hjá útgerð Heijólfs. „Um borð í þessu skipi er orðinn óeðlilega lítill launamunur milli und- irmanna og yfirmanna. Farmanna- og fiskimannasambandið semur fyrir hönd yfirmanna á farskipum og Sjó- mannafélagið almennt fyrir hönd undirmanna. Þessu er þannig varið að yfirmenn á Heijólfi sigla sam- kvæmt samningum FFÍ en Jötunn í Vestmannaeyjum semur fyrir undir- menn á skipinu. Þeir samningar hafa byggst á samningum Sjó- mannafélagsins en þó hafa verið í þeim ákveðnar viðbætur. Við teljum að hliðstæða samninga eigi að gera við alla áhöfnina," sagði Helgi. Helgi sagði að erfitt væri að nefna einhveijar tölur um þá launahækkun sem yfirmenn á Heijólfi færu fram á, það yrði að skoða það í samhengi við heildarkjör áhafnarinnar. Þó væri um talsverðar upphæðir að ræða. Þórarinn V. Þórarinsson, fram- kvæmdastjóri Vinnuveitendasam- bands íslands, sagði að sér þætti verkfallsboðunin ekki skynsamleg ráðstöfun. „Það eru allir mjög róleg- ir yfir þessu, um þetta leyti eru litl- ir flutningar á milli lands og Eyja. Hins vegar er það ljóst að tímabært er orðið að ljúka gerð kjarasamninga við Farmanna- og fiskimannasam- bandið,“ sagði Þórarinn. Ekki hefur verið boðað til samn- ingaviðræðna með deiluaðilum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.