Morgunblaðið - 07.04.1990, Blaðsíða 58

Morgunblaðið - 07.04.1990, Blaðsíða 58
58 MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR LAUGARDAGUR 7. APRÍL 1990 ÚRSUT Íshokkí Úrslitakeppni NHL-deildarinnar í Banda- ,4 ríkjunum og Kanada í fyrrinótt: Patrick-deildin: N'ew York Rangers - New York Islanders 2:1 Washington Capitals - New Jersey Devils5:4 . , ..... (eftir framlengingu) Adams-deildin: Hartford Whalers - Boston Bruins...4:3 Buffalo Sabres - Montreal Canadiens.4:1 Körffuknattleikur NBA-deildin í fyrrinótt: Detroit Pistons - Atlanta Hawks.104: 99 Chicago Bulls - Orlando Magic.111:104 Utah Jazz- Seattle Supersonics .■.101: 91 LA Lakers - Sacramento Kings....110:103 Golf Staðan eftir fyrsta hring í bandarísku meist- arakeppninni [US Masters] sem hófst í "fyrrakvöld (keppendur bandarískir nema annað sé tekið fram): 64 Mike Donald 66 John Huston 67 Peter Jacobsen 68 Bill Britton 70 George Archer, Ray Floyd, Curtis Strange, Larry Mize, Bernhard Langer (V-Þýskalandi), Bill Glasson, Masashi Ozaki (Japan) 71 Tom Purtzer, Andy North, Scott Hoch, Payne Stewart, Nick Faldo (Bretlandi), Christopher Patton (áhugmaður), Donnie Hammond, Mike Hulbert 72 Bob Tway, John Mahaffey, Ronan Raf- ferty (Bretlandi), Fuzzy Zoeller, Peter Senior (Ástralíu), Lanny Wadkins, Chip Beck, Wayne Grady (Ástralíu), Ian Woosnam (Bretlandi), Craig Stadler, Ben Crenshaw, Jose-Maria Olazabal (Spáni), Jack Nicklaus j^73 Hubert Green, Don Pooley, Blaine McCallister, Robert Gamez, Gary Player (Suður Afríku) 74 Billy Casper, David Frost (Suður Afríku), Brian Claar, Larry Nelson, Mark McCumber, Jodie Mudd, Mark Calcavecchia, David Ishii, Seve Balleste- ros (Spáni), Fred Couples, Scott Simp- son, Tom Pemice 75 Ted Schulz, Tommy Armour III, Mark O’Meara, Tom Kite, Charles Coody, Naomichi Ozaki (Japan), Mark Lye 76 Andy Bean, Timothy Hobby (áhugmað- ur), Curt Byrum, Ámold Palmer, Gay Brewer, Mike Reid 77 Tom Byrum, Tommy Aaron, Tom Wat- —son, Ian Baker-Finch (Ástralíu), Tim Simpson, Steve Jones, Sandy Lyle (Bret- landi), Stephen Dodd (Bretlandi-áhug- maður), Wayne Levi, David Rummeils, Tony Sills 78 Doug Ford, Jeff Sluman, Ken Green, Lee Trevino, Greg Norman (Ástralíu) 79 Daniel Green (áhugmaður), Dan For- sman 80 Craig Parry (Ástralíu), Leonard Thomp- son, Paul Azinger 81 Hal Sutton 83 James Tayior (áhugmaður) HAIMDKNATTLEIKUR / ÍSLANDSMÓTIÐ fitillinn að veði Fyrsti leikurinn í nýja FH-húsinu geturráðið úrslitum Tekist á! Fyrirliðarnir, Guðjón Árnason, FH, og Jakob Sigurðsson, Val, mættust á miðri leið í gær. Báðir voru vissir um hvert íslandsmeistaratitillinn færi að þessu sinni, en þeir voru langt því frá að vera sammála. Morgunblaðið/Július FH-INGAR geta nær tryggt sér íslandsmeistaratitilinn í 1. deild karla í dag, en til þess þurfa þeir að sigra Valsmenn. Valsmenn eru hins vegar ekki á því að láta bikarinn, sem þeir hafa varðveitt í tvö ár, af hendi og með sigri eiga þeir enn möguleika á að verja titil- inn. „Þetta verður dæmigerður úrslitaleikur," sagði Guðjón Árnason, fyrirliði FH, við Morg- unblaðið. „Við verðum að sigra til að vera áfram með,“ sagði Jakob Sigurðsson, fyrirliði Vals. etta verður fyrsti leikurinn í deildinni, sem fer fram í hinu nýja og glæsilega íþróttahúsi FH við Kaplakrika, en það var vígt um síðustu helgi. Aðstaða er fyrir um 3.000 áhorfendur og gera heima- menn ráð fyrir fullu húsi. 3.000 áhorfendur? „Að undanförnu höfum við verið að velta því fyrir okkur, hvort við náum upp sömu stemmningu og í gamla húsinu og höfum komist að þeirri niðurstöðu að ekkert sé því til fyrirstöðu," sagði Guðjón. „Það skiptir ekki máli hvar leikið er. Vellirnireru alls staðarjafn stór- ir og því höfum við ekki neinar ányggjur. Álagið er á FH-ingum, en við stefnum að því að sigra í fyrsta leiknum í húsinu," sagði Jakob. „I svona leikjum blómstrar allt, sem getur blómstrað og það verður gaman að spila fyrir fullu húsi.“ Valur með tak á FH Valsmenn hafa haft ákveðið tak á FH-ingum undanfarin ár, unnið fjóra síðustu leiki og ekki tapað fyrir þeim í þijú ár. FH, sem hamp- aði síðast titlinum 1985, hefur að- STAÐAN FYRIR 16. UMFERÐ Fj. leikja U J T Mörk Stig FH 15 13 1 1 400: 335 27 VALUR 15 12 1 2 401: 340 25 STJARNAN 15 9 2 4 345: 324 20 KR 15 7 3 5 323: 319 17 ÍBV 15 5 3 7 348: 351 13 KA 15 6 1 8 340: 358 13 ÍR 15 5 2 8 326: 340 12 GRÓTTA 15 4 1 10 326: 360 9 ViKINGUR 15 2 3 10 332: 364 7 HK 15 2 3 10 310: 360 7 eins tapað einum leik í vetur — gegn Val í fyrri umferðinni, 26:21. Valsmenn eru hins vegar með tvö töp á bakinu, gegn KR-ingum og KA-mönnum. „Okkur hefur gengið illa með Val, 'en reynum að breyta því. Vals- menn voru betri í fyrri leiknum í vetur, en við höldum okkar striki og leikum okkar leik. Það er mikið í húfi, en til að sigra verður hver og einn að leysa sitt dæmi sjálfur, því það er enginn veikur hlekkur í Valsliðinu og þess vegna má hvergi slaka á. Rétt hugarfar og sterk liðs- heild ráða úrslitum," sagði fyrirliði FH. „FH-ingar hafa verið á góðri sigl- ingu í vetur, en okkur gekk ágæt- lega að stöðva þá í fyrri leiknum og höfum gert ákveðnar ráðstafan- ir fyrir þennan leik. Allur undirbún- ingur að undanförnu hefur miðast við að vera í toppi um þessa helgi og menn hafa beðið með óþreyju eftir leiknum. Fyrri úrslit hafa ekk- ert að segja — það er þessi leikur, sem skiptir máli,“ sagði fyrirliði Vals. Staða FH góð Guðjón sagði að að staða liðanna í deildinni fyrir leikinn væri viss styrkur fyrir FH. „Það er mikið í húfi og við gerum eins vel og við mögulega getum. Auðvitað getum við tapað, en þá fáum við annað tækifæri og það er viss léttir.“ Jakob sagði að of snemmt væri að hugsa um aukakeppni, því marg- ar hindranir væru í veginum. „Fyr- •ir okkur er frumskilyrði að sigra FH til að eiga möguleika á að veija titilinn, en það væri vissulega gam- an að ljúka mótinu með tveimur aukaleikjum, fá Evrópuleikja- stemmningu í lokin.“ VERÐA KR-INGAR ÍSLANDSMEISTARAR t DAG? Úrslitaleikur á Seltjamamesi í dag kl. 15.00: * KR IBK Softtituxtsl>nitil I SSWUliR TRYGGINGAMIÐSTÖÐIN" ADALSTRÆTI 6 — 101 REYKJAVÍK - SÍMI 26466 Bæjarins beztu í hálfleik getur þú unnið NISSAIM MICRA bíl frá Ingvari Helgasyni llll FORMPRENT Hverfisgotu 78, simar 25960 - 25566 PARKET GÓLFDUKAR VEGGKLÆÐINGAR HURÐIR HARÐVIÐARVAL HF. USTAH KRÓKHÁLSI 4 R. Slml 871010 SEGULL HF. NÝLENDUGÖTU 26 SlMAR 13309-19477 Helgason M Rauðagwti Snr. 91 -3 3S 60 I l l | l«í t Í JI í ikj Ju i Þarftvo aukaleiki? Sextánda umferðin í 1. deild karla á íslandsmótinu í handknatt- leik hefst í dag. Flestra augu bein- ast að viðureign FH og Vals í nýja FH-húsinu í Kaplakrika. Með sigri geta heimamenn hugsanlega tryggt sér íslandsmeistaratitilinn, en hafi íslandsmeistarar Vals betur ná þeir FH að stigum. Verði liðin með jafn- mörg stig að 18 umferðum loknum verða tveir aukaleikir um íslands- meistaratitilinn og verður þá leikið heima og að heiman. FÉLAGSLÍF Bein útsending í Grafarholti Bandaríska meistarakeppnin í golfi er hafin, en keppni lýkur á sunnudag. Sýnt verður frá mótinu í beinni útsendingu hjá Eurosport. í því tilefni ætlar Golfklúbbur Reykjavíkur að hafa opið hús í Grafarholti frá klukkan 19 í kvöld og annað kvöld. Herrakvöld Hauka Herrakvöld Hauka verður haldið miðvikudagskvöldið 11. apríl í nýj- um sal í Haukahúsinu við Flatar- hraun og hefst kl. 20. Heiðurs- gestur og ræðumaður kvöldsins verður Ellert B. Schram, ritstjóri DV og fyrrum formaður KSÍ. For- sala miða er í versluninni Filmur og framköllum og í Haukahúsinu. Um helgina KÖRFUKNATTLEIKUR Þriðji leikur KR og ÍBK um íslands- meistaratitilinn verður í íþróttahúsinu á Seltjarnarnesi í dag og hefst kl. 15. HANDKNATTLEIKUR Tveir leikir verða í dag í 1. deild karla, VÍS-keppninni. FH og Valur mætast í nýja FH-húsinu í Kaplakrika og á Akureyri eigast við KA og ÍR. Báðir leikirnir hefjast kl. 16.30. Tveir leikir verða annað kvöld kl. 20. HK fær Víking í heimsókn og ÍBV tekur á móti Stjömunni. Síðasti leikur 16. umferðar verður á mánudagskvöld; KR mætir Gróttu í Laugardalshöll kl. 20.15. í 1. deild kvenna verða tveir leikir í dag; Stjaman og Haukar mætast kl. 14 í Garðabæ FH tekur á móti Víkingi kl.15. Á mánudag mætast KR og Fram í Laugardalshöll kl. 19 og eftir leikinn fá Framstúlkumar íslandsbikarinn af- hentan. SUND Innanhússmeistaramót íslands í sundi verður í Vestmannaeyjum um helgina. Keppni stendur í dag, á morgun og á mánudag. Undanrásir verða alla dag- ana frá kl. 9.30 til 12 og úrslita frá kl. 17 til 19.30. Meðal keppenda eru allir bestu sundmenn landsins, m.a. Ragnheiður Runólfsdóttir sem hefur synt mjög vel að undanförnu og gæti slegið Norðurlandamet í 100 og 200 m bringusundi, Eðvarð Þór Eðvarðsson sem er óðum að komast í sitt gamla form, Amþór Ragnarsson og Bryndís og Magnús Ólafsbörn. GLÍMA Tvö mót eru á dagskrá um helgina, bæði á Laugarvatni. Meistaramót ís- lands — Landsflokkaglíman verður í dag og hefst kl. 13. Þar verður keppt í 14 aldurs- og þyngdarflokkum karla og kvenna og verður yngstu keppendur 10 ára. Fjöldi þátttakenda verður meiri en nokkru sinni fyrr, 86 talsins. Á morgun, sunnudag, verður Grunn- skólamót GLÍ í fjórða skipti. Mótið hefst kl. 10. Keppt verður um gmnn- skólameistaratitil í hveijum bekk, frá 3. bekk upp í 9. bekk, í stúlkna- og drengjaflokkum. SQUASH íslandsmótið hófst í gær hjá Squash- klúbbnum, Stórhöfða 17, og verður framhaldið í dag kl. 13-17. Úrslitaleik- ir hefjast kl. 15.15 á morgun, sunnu- dag.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.