Morgunblaðið - 07.04.1990, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 07.04.1990, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. APRÍL 1990 33* ■ BANDA- RÍSKI gítar- Ieikarinn Mic- hael Chapdela- ine heldur tón- leika í Norræna húsinu í Reykjavík, á morgun, sunnu- daginn 8. apríl og hefjast þeir kl. 20.30. Michael Chapdelaine hef- ur unnið til fyrstu verðlauna í virt- um gítar- og tónlistarkeppnum og má þar nefna „Guitar Foundation of America“-keppnina, Paganini- keppnina og keppni Félags banda- rískra tónlistarkennara. Chapdela- ine hefur lokið meistaragráðu við Florida State-háskólann og voru honum veitt verðlaun fyrir framúr- skarandi námsferil við það tæki- færi. Hann hefur auk þess sótt námskeið til virtra kennara, t.d. Andreas Segovia. Hann kemur reglulega fram á tónleikum um öll Bandaríkin, jafnt sem einleikari og kammertónlistarmaður og leikur í útvarpi og sjónvarpi. Chapdelaine er nú á leið í tónleikaferðalag um Evrópu. ■ NOKKUR ungmenni og kirkju- kór Neskirkju munu bera pálmavið- argreinar til kirkju sinnar á vígslu- afmæli Neskirkju á pálmasunnudag kl. 14.00. Er þetta gert til að minnast þess GENGI OG GJALDMIÐLAR GENGISSKRÁNING Nr. 68 6. aprfi 1990 Kr. Kr. Toll- Ein. Kl. 09.16 Kaup Sala Gengi Dollari 60,98000 61.14000 61.68000 Sterlp. 100,25100 100,51400 100.02300 Kan. dollari 52.21100 52.38400 52.39300 Dönsk kr. 9.41050 9.43520 9.44930 Norsk kr. 9,29430 9.31870 9,32290 Sasnsk kr. 9.94290 9.96900 9.99190 Fi. mark 15.24310 15.28310 15.27300 Fr. franki 10.70200 10.73010 10.69120 Belg. franki 1.73860 1.74310 1.73940 Sv. franki 40.69400 40.80080 40.54430 Holl. gyllini 31.96020 32.04400 31.92960 V-þ. mark 35.98280 36.07720 35.93880 ít. líra 0.04889 0.04902 0.04893 Austurr. sch. 5.11580 5.12920 5.10600 Port. escudo 0.40710 0.40810 0.40790 Sp. peseti 0.56570 0.56720 0.56270 Jap.yen 0.38770 0.38872 0.38877 írskt pund 96.41200 96.66500 96.15000 SDR (Sérst.) 79.34350 79,55170 79.64060 ECU, evr.m. 73.61810 73.81130 73.56270 Tollgengi fyrir apríl er sölugengi 28. mars. Sjálfvirkur simsvari gengisskránmgar er 62 32 70. er Jesú kom til Jerúsalem og mann- fjöldinn fagnaði honum með því að bera pálmagreinar eins og tíðkaðist í þá daga þegar konungar voru á ferð. ■ HAFLIÐI Kristinsson verður settur inn sem nýr forstöðumaður Hvitasunnukirkjunnar Fíladelfíu í Reykjavík á morgun, sunnudaginn 8. apríl. Fráfarandi forstöðumaður, Einar J. Gíslason, lætur nú af störfum eftir 20 ára forstöðu við Einar J. Gíslason Hafliði Kristins- son Fíladelfíusöfnuðinn, og tékur Haf- liði við sem fjórði forstöðUmaður safnaðarins frá stofnun haqs árið 1936. Samkoman á pálmasunnudag hefst kl. 16.30, og eftir samkomuna er samkomugestum boðið til kaffi- drykkju í neðri sal kirkjunnar. Allir eru velkomnir meðan húsrúm leyfir. ■ LANDSSAMBAND lijálpar- sveita skáta, Bandalag íslenskra skáta og Hjálparstofnun kirkj- unnar tóku höndum saman á sl. ári um stofnun fyrirtækis til að safna einnota öl- og gosdrykkjaum- búðum og koma þeim til skila til Endurvinnslunnar. Fyrirtæki sitt nefndu eigendur Þjóðþrif hf. Um 50 dósakúlur eru nú staðsettar á höfuðborgarsvæðinu og í nokkrum kaupstöðum og bæjum úti á Iandi. í dósakúlurnar má setja allar ein- nota öl- og gosdrykkjaumbúðir, hvort heldur er glerflöskur, plast: flöskur, plastdósir eða áldósir. í dag, laugardag, gefst fólki kostur á því að hringja í síma 26440 og 621390 og þá munu skáta koma og sækja uppsafnaðar birgðir. Skát- ar munu einnig standa við dósakúl- urnar í dag og aðstoða fólk við að losa sig við tómar umbúðir. ■ FÉLAG einstæðra foreldra hélt fund um meðlagsmál fímmtu- daginn 22. mars sl. Framsöguerindi Michael Chap- delaine FISKVERÐ Á UPPBOÐSMÖRKUÐUM - HEIMA I 6. apríl. FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar- verð verð verð (lestir) verð(kr.) Þorskur 78,00 32,00 70,49 1,721 121.307 Þorskur(ósl.) 75,00 65,00 70,37 7,058 496.684 Þorskur(smár) 30,00 20,00 26,31 1,365 35.914 Ýsa 75,00 75,00 75,00 0,360 27.000 Ýsa(ósl.) 36,00 36,00 36,00 0,024 864 Karfi 23,00 23,00 23,00 0,053 1.219 Ufsi 20,00 20,00 20,00 0,047 940 Steinbítur 28,00 20,00 25,78 0,621 15.994 Steinbítur(ósL) 29,00 20,00 21,51 0,621 13.356 Langa 40,00 40,00 40,00 0,070 2.800 Skata 5,00 5,00 5,00 0,021 105 Hnísa 140,00 140,00 140,00 0,015 2.030 Gellur 215,00 160,00 201,94 0,070 14.035 Samtals 60,75 12,763 775.380 í dag verður m.a. selt óákveðið magn af þorski, karfa og ufsa úr Víði HF. FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík Þorskur 74,00 46,00 65,75 30,669 2.016.499 Þorskur(ósl.) 85,00 40,00 61,66 39,173 2.415.317 Ýsa 73,00 50,00 67,43 34,719 2.341.108 Ýsa(ósl.) 68,00 68,00 68,00 0,163 11.084 Karfi 34,00 31,00 32,81 16,829 562.218 Ufsi 36,00 20,00 31,69 68,841 2.181.727 Hlýri+steinb. 43,00 20,00 30,10 5,720 172.168 Langa 41,00 38,00 39,22 6,295 246.921 Lúða 390,00 140,00 267,41 1,200 320.895 Skarkoli 50,00 20,00 22,88 0,787 18.008 Keila 13,00 13,00 13,00 0,160 2.080 Skata 5,00 5,00 5,00 0,010 50 Skötuselur 215,00 215,00 215,00 0,040 8.600 Rauðmagi 50,00 20,00 24,26 1,742 42.266 Hrogn 130,00 130,00 130,00 0,043 5.590 Samtals 49,97 207,026 10.345.304 í dag, laugardag, verður selt úr bátum og hefst uppboðið klukkan 12.30. FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf. Þorskur 101,00 31,00 70,95 108,881 7.725.537 Ýsa 95,00 50,00 76,32 25,572 1.951.575 Karfi 46,00 15,00 28,93 . 2,746 79.445 Ufsi 32,00 15,00 25,47 9,383 238.971 Steinbítur 29,00 15,00 19,73 21,712 428.395 Hlýri 23,00 23,00 23,00 0,177 4.071 Langa 51,00 29,00 45,79 • 0,288 13.188 Lúða 310,50 105,00 253,93 0,518 131.534 Skarkoli 50,00 35,50 47,52 0,982 46.664 Keila 19,00 5,00 18,08 1,177 21.285 Skötuselur 340,00 340,00 340,00 0,004 1.360 Rauðmagi 43,00 40,00 • 41,71 0,051 2.127 Hrogn 150,00 150,00 150,00 0,105 15.750 Samtals 61,82 172,956 10.691.760 | í dag, laugardag, verður selt óákveðið magn úr dagróðrabátum. fluttu Geir H. Haarde alþingis- maður, Finnur Ingólfsson, aðstoð- armaður tryggingamálaráðherra, og Ingibjörg Magnúsdóttir, vara- formaður Félags einstæðra for- eldra. Fundurinn var vel sóttur og var eftirfarandi ályktun samþykkt af fundinum. „Almennur fundur Félags einstæðra foreldra skorar á stjórnvöld að beita sér fyrir því að gerð verði könnun á raunverulegum framfærslukostnaði barna og miða meðlag/barnalífeyri við þá könnun, þannig að foreldrum verði í reynd gert skylt að framfæra börn sín að jöfnu.“ ■ DR. DUNCAN Brown verk- fræðingur frá Nýja Sjálandi heldur fyrirlestur í húsi Verkfræði- og raunvísindadeilda, VR-II, við Hjarð- arhaga mánudaginn 9. apríl nk. kl. 17.00. Dr. Duncan Brown starfar hjá Design Power New Zealand Ltd., ríkisrekinni stofnun, sem hefur yfír- umsjón með allri hönnun jarð- varmavirkjana þar í landi. Hann mun dveljast á íslandi í nokkra daga sem gestur Háskóla íslands, Verkfræðingafélags íslands og Orkustofnunar. Erindi hans hingað er að kynna sér stöðu í rannsóknum og nýtingu jarðvarmans á Islandi. Fyrirlesturinn fjallar um stöðuna í þessum málum í heimalandi hans og þá einkum nýjustu framkvæmd- ir í þeim málum á Nýja Sjálandi, sem er Ohaaki raforkuverið á Broadlands jarðhitasvæðinu. Þama var reist 116 mW raforkuver og voru fyrstu hverflarnir ræstir síðla árs 1988. Fyrirlesturinn er öllurn opinn. ■ PÁSKABASAR Kvenfélags Fríkirkjunnar í Reykjavík verður haldinn að Laufásvegi 13, í dag, laugardaginn 7. apríl, kl. 14. I FYRIRLESTRAR um hernám Danmerkur og Noregs verða í Norræna húsinu mánudaginn 9. apríl kl. 20.30, en þann dag eru 50 ár liðin frá því að þýski herinn réðist inn í löndin. Fyrst talar norski sagnfræðingurinn Berit Nokleby og nefnir hann fyrirlesturinn „Ockupasjonen av Norge 9. april 1940“. Danski sagnfræðingurinn Knud J.V. Jespersen heldur fyrir- lestur um „Politik og modstand under den tyske besættelse af Dan- mark 1940-45“. Berit Nokleby er einn fremsti sagnfræðingur Noregs hvað snertir heimsstyrjöldina. Hún starfar við háskólann í Helsinki. Nýlega kom út eftir hana bókin „Da krigen kom“. Berit Nokleby vinnur nú að bók um ævi Josefs Terboven. Knud J.V. Jespersen er lektor við háskólann í Óðinsvéum og hefur ritað mikið um og rannsakað her- námsárin í Danmörku. (Fréttatilkynning frá Norræna húsinu.) ■ MÁLFUNDAFÉLAGIÐ Magni gengst fyrir Magnavöku í Hafnarborg í dag, laugardag, kl. 14.00. Lúðrasveit Tónlistarskóla Hafnarfjarðar leikur undir stjóm Stefáns Ómars Jakobssonar, Hanna Eiríksdóttir les ljóð, Kári Þormar leikur einleik á píanó, Stefán Ómar Jakobsson leikur á básúnu við und- irleik Helga Bragasonar á píanó og Karlakórinn Þrestir syngur. Að- gangur á vökuna er ókeypis. ■ FÉLAGSFUNDUR Kríunnar, félags um óháð framboð á Höfn í Hornafirði, hefur samþykkt fram- boðslista fyrir næstu bæjarstjórn- arkosningar og hafði til hliðsjónar skoðanakönnun sem fram fór á stofnfundi félagsins þann 26. mars sl. Var tillagan samþykkt í einu Keppt um Morgun blaðsskeifuna KEPPT verður um Morgun- blaðsskeifuna á bændaskól- unum á sunnudag og mið- vikudag. Skeifukeppni Bændaskólans á Hvanneyri verður haldin á pálmasunnudag og hefst dag- skráin klukkan 10 með keppni í A og B flokki gæðinga. Hóp- reið verður frá kirkjunni klukk- an 13, en skeifukeppnin hefst klukkan 14. Að henni lokinni verður kaffi í boði skólans og þar fer fram verðlaunaafhend- ing. A Hólum verður skeifu- keppnin á miðvikudaginn og hefst klukkan 14. Að henni lok- inni verður gæðingakeppni og þar á eftir óvænt dagskráratriði. Yarmr Kanada og NATO Yfírmaður allra hervarna í Kanada, A. John G.D. de Chastela- in, flytur fyrirlestur á hádegisverð- arfundi Samtaka um vestræna sam- vinnu (SVS) og Varðbergsí Átt- hagasal Hótels Sögu í dag. Vegna breytinganna í Austur- Evrópu eru nú miklar umræður um þróun öryggismála og Atlantshafs- bandalagsins (NATO). í því sam- bandi beinist athyglin að varnar- samstarfi Evrópuríkja og Banda- ríkjanna og Kanada í Norður- Ameríku. Fyrirlestur kanadíska hershöfðingjans fjallar um varnir Kanada með sérstöku tilliti til Norður-Atlantshafssvæðis NATO. Átthagasalur Hótels Sögu verður opnaður klukkan 12 á hádegi. A. John G.D. de Chastelain hljóði og er listinn því þannig skip- aður: 1. Gísli Sverrir Árnason, 2. Svava Kristbjörg Guðmunds- dóttir, 3. Stefán Ólafsson, 4. Björn Grétar Sveinsson, 5. Ragn- hildur Jónsdóttir, 6. Guðjón Þor- björnsson, 7. Hrönn Pálsdóttir, 8. Svava Arnórsdóttir, 9. Haukur Þorvaldsson, 10. Bára Ingvadótt- ir, 11. Guðni Þór Hermannsson, 12. Inga Kristín Sveinbjörnsdótt- ir, 13. Árni Stefánsson, 14. Sig- urður Hjaltason. Ákveðið var á fundinum að sækja um listabók- stafinn H. ■ NÁTTÚRUVERNDARFÉ- LAG Suðvesturlands fer tvær vettvangsferðir laugardaginn 7. apríl til að kanna loftmengun við aðalumferðaræðar í Reykjavíkur- borg. Kynntar verða einfaldar kannanir á rykögnum í lofti og sýrustigi í úrkomu. Kannanir sem allir geta gert með einföldum og ódýrum áhöldum. Fyrri ferðin verð- ur farin kl..13.30 frá gömlu rafstöð- inni við Ártúnsvað og að Breiðholts- braut eða Miklubraut eftir því hver vindstaðan hefur verið sl. sólar- hring. Seinni ferðin sem verður samanburðarferð verður farin kl. 15.30 úr Nauthólsvík austur eða norður með Öskjuhlíð. ■ SMEKKLEYSA efhir til veislu í Tunglinu sunnudagskvöld- ið 8. apríl. Þar koma fram ýmsir listamenn til eflingar þjóðerni og menningu íslendinga. Sýnd verður kvikmynd Óskars Jónassonar, Sérsveitin, Laugarásvegi 25, og tónlist flytja Laufey Sigurðardótt- •ir fiðluleikari í félagi við Pál Eyj- ólfsson gítarleikara og Megas treð<-' ur upp. Skáldin Einar Már Guð- mundsson, Sigfús Bjartmarsson, Halla Frímannsdóttir, Bragi Ól- afsson, Einar Örn Benediktsson og Bárður R. Jónsson koma fram. Einnig verður lesið úr trúarljóðum eftir Vestur-íslendinginn Harald C. Leiðrétting í forystugrein blaðsins í gær seg- ir að þingmenn allra flokka á þingi nema Borgaraflokksins standi að bréfí um málskot til Lagastofunar vegna frumvarps til laga um físk- veiðistjóm. Hið rétta er að það eru þingmenn allra flokka nema Fram' sóknarflokksins sem standa að þessu bréfi. t Þökkum af alhug auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför móður minnar, ömmu okkar, dóttur, systur og mágkonu, CECILÍU ÞÓRÐARDÓTTUR fulltrúa, Espigerði 16, Reykjavík. Sérstakar þakkirtil hjúkrunarfólks og lækna á Landakotsspítala. Þórður Einarsson, Ólafur Þórðarson, Cecilfa Þórðardóttir, Þórður Hjálmar Þórðarson, Þórður Ólafsson, Kristín S. Helgadóttir, Helgi G. Þórðarson, Þorgerður Mortensen, Þórunn Þórðardóttir, Sigurður Þ. Guðmundsson, Kristín Einarsdóttir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.